Morgunblaðið - 22.11.1984, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 22.11.1984, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1984 Kinnock og Healey í Sovétríkjunum London, 21. nóv. AP. NEIL Kinnock, leiðtogi Verka- mannaflokksins í Bretlandi, fór í dag í sex daga heimsókn til Sovét- ríkjanna. Við brottför sína lét hann svo um mælt, að samskipti á alþjóða- vettvangi væru of mikilvæg til þess að láta risaveldin um þau. I för með Kinnock var Denis Healey, aöaltals- maður Verkamannaflokksins í utan- ríkismálum. Þetta er fyrsta för Kinnocks til Sovétríkjanna síðan hann varð leiðtogi Verkamannaflokksins. Gert er ráð fyrir, að hann hitti Konstantin Chernenko, forseta Sovétríkjanna, að máli og enn- fremur Andrei Gromyko utanrík- isráðherra og ýmsa verkalýðsleið- toga. „Megintilgangurinn með ferð- inni er að ræða við leiðtoga Sov- étríkjanna og gera þeim grein fyrir skoðunum okkar," var haft eftir Kinnock í dag. Sagði hann, að helztu málefnin, sem rætt yrði um, væru afvopnun, mannréttindi, alþjóðasamskipti og málefni land- anna fyrir botni Miðjarðarhafs- ins. Kinnock vék sér undan því að svara spurningum um fjárhags- aðstoð frá sovézka verkalýðssam- bandinu til stuðnings kolaverk- fallinu í Bretlandi, sem nú hefur staðið í 8 mánuði. €j MlileMI Verkfall strætisvagnastjóranna stóð frá 3. aprfl til 25. maí í vor með nokkrum hléum þó. Hér sjást nokkrir þeirra meðan á því stóð. Vestrænir fréttamenn í Póllandi: Bannað að sitja fundi mannrétt- indanefndanna Danmörk: Háar sektir vegna ólöglegs verkfalls strætisvagnastjóra K.unm.nn.hofn 21. nA. K.upm.nn.hofn, 21. iót. Vinnumáladómstóll í Kaupmanna- höfn hefur kveðið upp þann dóm, að verkalýðssamtökin SID, sem eru samtök starfsmanna við samgöngur og annað, skuli greiða 21 milljón danskra króna í skaðabætur vegna verkfalls strætisvagnastjóra í vor er leið. Þetta er þyngsti dómur, sem kveðinn hefur verið upp í Danmörku í svona máli. Deilan snerist um það, að nokkrir strætisvagnastjórar sögðu sig úr verkalýðsfélaginu og neit- uðu að greiða til þess félagsgjöld vegna þess, að gjöldin runnu að hluta til Alþýðusambandsins og þaðan að hluta til danska jafnað- armannaflokksins. Voru þeir að mótmæla því að vera skyldaðir til að fjármagna rekstur eins stjórn- málaflokks og það án tillits til hvort þeir styddu hann eða ekki. Verkalýðsfélagið krafðist þess, að mennirnir væru reknir úr starfi en stjórn strætisvagnanna neitaði þvi og vitnaði i landslög, sem segja, að enginn maður sé skyld- ugur til að vera í verkalýðsfélagi. Lögðu þá aðrir strætisvagnastjór- ar niður vinnu þar til stjórnin neyddist til að láta undan. Eins og fyrr sagði var sektin 21 milljón danskra króna en auk þess voru verkfallsmennirnir sektaðir sérstaklega um 6.000 d.kr. hver. Heildarsektin er því um 26 millj. d.kr. Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu, að SID bæri ábyrgð á ólöglegu verkfalli, sem auk þess hefði haft það að markmiði að brjóta landslög á nokkrum mönnum. SID ætlar að greiða sektina en formaður þess, Hardy Hansen, hyggst taka þetta mál upp í væntanlegum samningavið- ræðum við atvinnurekendur og eins hyggst hann beita sér fyrir því, að vinnumáladómstóllinn verði lagður niður. Varejá. 19. nóvember. AP. MATTHEW C. Vita, fréttaskýrandi AP-fréttastofunnar í Varsjá, höfuð- borg Póllands, var kallaður á fund talsmanns pólska utanríkisráðneyt- isins í dag. Þar var honum sagt að það væri ólöglegt athæfi að sitja blaðamannafundi hinna nýstofnuðu mannréttindahreyfinga í landinu. Vita var varaður jafnframt við því, að ef hann virti ekki „pólsk lög“ í þessu sambandi yrði hann sóttur til saka og látinn svara fyrir „brotið". Vita sagði að orða- lag það, sem hann má nú moða úr, hafi verið verulega loðið. Til dæm- is var honum ekki sagt hvaða refs- ingu hann ætti yfir höfði sér ef hann gerðist brotlegur. Þá var honum heldur ekki sagt hvar ger- ast myndi ef hann ræddi við fé- laga í umræddum nefndum, hefði eftir þeim í fréttapistlum sínum eða minntist á dreifibréf þeirra. Stjórnvöld í Póllandi gera nú allt hvað þau geta til að kveða í kútin hina „nýju Samstöðu" sem svo hefur verið kölluð. Frétta- menn Reuters-fréttastofunnar og ABC-sjónvarpsstöðvarinnar hefðu fengið sams konar tiltal og Vita hjá AP. Er ætlun yfirvalda í Pól- landi að kæfa hreyfinguna með þögninni. Ormar geta þrif- ist án súrefnis Toftizwe, AuRturríki, 21. nóTcmber. AP. VESTUR-ÞÝSKUR sjávarlíffræðing- ur, sem verið hefur við rannsóknir I Toplitz-vatni I Austurríki, hefur fundið þar undarlega ormategund, en hún getur þrifist án súrefnis. Greindi austurríska fréttastofan frá þessu í dag. Ormarnir eru um 20 sm langir og „það, sem er furðulegt við þá, er að þeir lifa í súrefnislausum hluta vatnsins, nokkuð, sem hingað til hefur verið talið útilokað", sagði í Fréttum AP. Að sögn fréttastofunnar var það líffræðingurinn dr. Hans Fricke, sem ormana fann, en hann hefur stundað rannsóknir á vatninu öðru hverju um árabii. Að þessu sinni var hann þó ekki við vatnið í fræðilegum tilgangi heldur var hann að hjálpa mönnum úr vest- ur-þýska hernum við að finna ým- islegt, sem nasistar földu í vatn- inu undir lok síðustu heimsstyrj- aldar. Að því verki loknu skoðaði hann sig um í vatninu í dvergkaf- bát og uppgötvaði ormana. V estur-Þýskaland: Genscher hættir við Póllandsferð Bonn, 21. nóvember. AP. HANS-Dictrich Genscher, utanrík- isráðherra Vestur-Þýskalands, hef- ur hætt vió þriggja daga heimsókn til Póllands, sem hefjast átti í dag. Kom tilkynning utanríkisráðuneyt- isins mjög á óvart en í henni voni tilgreindar nokkrar ástæður fyrir því, aó ferðinni var aflýst Ein ástæðan er sú, að pólsk yfirvöld neituðu að gefa vega- bréfsáritun einum blaðamann- anna, sem áttu að fylgja Gensch- er í austurveg, en þar er um að ræða Carl Gustaf Ströhm, Austur-Evrópufréttaritara Bonn-blaðsins „Die Welt“. Einn- ig var sagt, að pólska stjórnin hefði bannað, að Genscher legði blómsveig á leiði þýsks her- manns og á leiði pólska prestsins Jerzy Popieluszko, einarðs Sam- stöðumanns, sem var myrtur fyrir skömmu. í tilkynningu vestur-þýska utanríkisráðuneytisins sagði, að vonandi gæti Genscher farið ferðina seinna þegar betur stæði á. Pólska stjórnin hafði augljós- lega bundið miklar vonir við Hans-Dietrich Genscher komu Genschers enda hefði hann orðið fyrstur utanríkis- ráðherra NATO-ríkja til að koma til landsins eftir herlög. Hún hefur þó ekki getað þolað, að Genscher skyldi ætla að setja blómsveig á leiði sr. Popieluszko, yfirlýsts andstæðings kommún- istastjórnarinnar. Fornleifa- fundur við Svartahaf MohKtu, 21. bót. AP. SOVÉZKIR fornleifafræðingar hafa fundið leifar fornrar borgar á botni Svarta hafs úti fyrir strönd Úkraínu. Skýrði TASS-fréttastofan frá þessu í dag. Er talið, að þetta sé borgin Akra, sem er eina borgin í hinu forna konungsríki á þessu svæði, sem var ófundin. Það var vísbendingu ungs skóla- pilts að þakka, að borg þessi fannst. Samkvæmt frásögn TASS fann hann árið 1982 forna mynt á strönd Svarta hafsins rétt fyrir austan Krímskaga skammt frá úkraínsku borginni Kerch. Þetta vakti áhuga fornleifafræðinga, sem tóku til við að grafa á þessu svæði. Kafarar fundu síðan virk- isvegg og virkisturn, sem ótvírætt tilheyra þessari fornu borg. England: Froskar vernd- aðir á vegum 1/ondon, 21. nóvember. AP. NÚ STENDUR til að vernda froska sem tipla yfir breska vegi á leið til pörunarstaða sinna. Verða í því skyni sett upp varúðarskilti á 150 stöðum strax á næsta ári, að því er samgönguráðuneytið í London upp- lýsir. Á skiltunum verður útlínumynd af froski til merkis um að dýrin séu tíðir vegfarendur á viðkom- andi stað. Ekið er yfir þúsundir froska ár hvert, einkum á þeim tíma, þegar dýrin eru að leita sér að heppilegum tjörnum til pörun- ar, að því er ráðuneytið upplýsir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.