Morgunblaðið - 28.11.1984, Qupperneq 1
72 SÍÐUR MEÐ 12 SÍÐNA ÚTSÝNARBLAÐI
STOFNAÐ 1913
234. tbl. 71. árg.
MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1984
Prentsmiðja Morgunblaösins
GIFTUSAMLEG BJÖRGUN ÞREMENNINGANNA VIÐ PRESTSVATN
Morgunbla&ift/Árni S»berg.
Heimtur úr helju
Þröstnr Goðiuaon ásnmt föóur sínum, Guðna Kristjánssyni, i heimili
þeirra í Hafnnrfirði síðdegis í gær.
MorgunblaAiA/Júlliu.
Björgunarsveitarmenn bera Ingu Björk Gunnarsdóttur niður hlfðar
Efstadalsfjalls.
NANAST
MARTROÐ
Verst að vita af örvæntingu ástvinanna, sagði Þröstur
Guðnason, einn þremenninganna, eftir hrakningana
„ÞETTA var nánast martröð, en maður var ákveðinn í því að gefast
ekki upp. Ég vissi að við gátum skrimt nokkra daga meðan við
höfðum snjóhúsið, en verst var að vita af örvæntingu ástvinanna
beima. Við vissum hvernig okkur leið, en þeir ekki,“ sagði Þröstur
Guðnason í samtali við Morgunblaðið ( ger. Hann var einn ung-
mennanna þriggja, sem í gær björguðust heil á húfi eftir um tveggja
sólarhringa hrakninga í óbyggðum.
„Okkur leið ákaflega illa vegna
þess, að við gótum ekki látið vita
af okkur. Þess vegna fórum við
upphaflega úr bílnum, til að láta
vita af okkur og létta áhyggjun-
um af ástvinunum heima. Það var
þetta sem lá þyngst á okkur. Eftir
að við komum niður að vatninu
reyndum við svo að halda þessum
áhyggjum frá okkur með þvi að
ganga um og segja sðgur.
Þetta var reynsla, sem margt
má læra af og brýnast af öllu er
að yfirgefa aldrei öruggt skjól,
þegar maður veit ekki fyllilega
hvar maður er staddur. Það er
náttúrulega frumskilyrði i öllum
ferðalögum, að láta vita um ferð-
ir sínar, áætlaðar leiðir og komu-
tima á áfangastað. Án þess verð-
ur skipulögð leit nánast ógjörn-
ingur, komi til þess að hennar
verði þörf. Við létum vita um
áætlanir okkar og það hefur efa-
laust bjargað miklu,“ sagði Þröst-
ur Guðnason.
Bandaríkin:
Eiturlyf
fyrir 40
milljarða
Yocca, Artuu, 27. ■ÍTember AP.
LÖGREGLUMENN handtóku í gær
fjóra menn úti í eyðimörkum Arizona
og lögðu jafnframt hald á 680 kg af
mjög sterku kókaíni. Er það metið á
einn milljarð dollara komið í hendur
eiturtyQaneytenda.
Upp um eiturlyfjasmyglarana
komst þegar leynilögreglumaður,
sem var i fríi og á ferðalagi um
eyðimörkina, tók eftir nýjum hjól-
förum á flugvelli, sem ekki hefur
verið notaður frá því á stríðsárun-
um. Hann gerði starfsbræðrum
sínum viðvart og i gær sátu þeir
fyrir tveimur bílum, sem notaðir
voru til að flytja eitrið. Voru í þeim
tveir Bandarikjamenn og tveir
Mexíkanar, sem gáfust upp án
nokkurrar mótspyrnu.
Enn lækka
vextirnir
New Yofk, 27. aÓTmber. AP.
ANNAR stærsti banki i Banda-
ríkjunum, Chase Manhattan, og
nokkrir smærri bankar lækkuðu í
dag vexti I ll,25%en i gær lækk-
uðu aðrir stórir bankar vextina i
11,50%. Dollarinn lækkaði einnig
nokkuð.
Þessar vaxtalækkanir koma
ekki alveg á óvart og er haft
eftir einum fjármálasérfræð-
ingi, Arnold Moskowitz, að
merkilegast væri hvað þær
hefðu dregist. Dollarinn lækk-
aði í dag nokkuð vegna vaxta-
lækkunarinnar en starfsmenn
kauphallanna segja, að enn sé
miki! eftirspurn eftir dollarn-
um.
Seint í dag var staða helstu
gjaldmiðla gagnvart dollar
þessi: 3.0555 vestur-þýsk mörk;
2.5192 svissneskir frankar;
9.3575 franskir frankar; 3.4455
hollensk gyllini; 1,892.75 ítalsk-
ar lírur; 1.3215 kanadískir doll-
arar og fyrir enska pundið
fengust 1.2090 dollarar.
Vestur-Þýskaland:
Kirkjumenn segja sig
úr friðarhreyfingunni
Bmb, 27. Bireaber. AP. •' Á—
KLOFNINGUR kom upp i vestur-þýsku friðarhreyfingunni í dag þegar ýmsir
bópar kristinna manna og kirkjunnar ákváðu að segja sig úr landsráði
hreyfingarinnar í mótmælaskyni við yfirráð kommúnista i henni, græningja
Sovétríkin:
Meiri herút-
gjöld boðuð
MoekTv, 27. •ÓTeaber. AP.
FUNDUR æðsta ráðsins sov-
éska hófst í dag í Moskvu og
vakti það einkum athygli, að
Dmitri F. Ustinov varnar-
málaráðherra var fjarver-
andi.
Ustinov varnarmálaráðherra,
sem er 76 ára gamall, hefur ekki
sést opinberlega síöan 27. sept-
ember og var ekki viðstaddur
hersýninguna á byltingarafmæl-
inu 7. nóvember. Þá var kvefi um
kennt en nánari fréttir af heilsu-
fari hans eru engar.
Vasily Garbuzov fjármálaráð-
herra sagði frá útgjöldunum til
hermála á næsta ári og eiga þau
DMITRI USTINOV
Varnarmálaráðherrann hefur ekki
sést opinberlega i tvö mánuði.
að hækka um 2,3 milljarða doll-
ara. Eru heildarútgjöldin þá 22,77
milljarðar dollara eða 4,87% af
fjárlðgum. Vestrænir sérfræð-
ingar segja, að raunverulega séu
útgjöldin tvöfalt meiri.
og vinstrisinnaðra jafnaðarmanna.
Sjö samtök kirkjunnar, sem að-
ild hafa átt að friðarhreyfingunni,
komu saman til fundar I Bonn I
gærkvöldi og var þar samþykkt að
ganga úr landsráði hreyfingarinn-
ar, sem stofnað var árið 1981.
Sögðu talsmenn samtakanna, And-
reas Zumach og Karl-Heinz Koppe,
að friðarhreyfingin væri nú í hönd-
um kommúnista, græningja, sem
virtust hafa þá hugsjón helsta að
hatast við Nato og samtök vest-
rænna þjóða, og vinstrisinnaðra
jafnaðarmanna.
Þessi klofningur ber upp á sama
tima og viðtal I vestur-þýska út-
varpinu við Herbert Hellenbroich,
forseta vestur-þýsku stjórnlaga-
stofnunarinnar, en þar sagði hann,
að kommúnistar með náin tengsl
við skoðanabræður sina austan-
tjalds, hefðu mikil áhrif { friðar-
hreyfingunni.
„DKP, vestur-þýski kommún-
istaflokkurinn, hefur beitt sér að
því einu aC hafa sem mest áhrif á
friðarhreyfinguna og virkjað í
þeim tilgangi allt kerfi sitt og
sellusveitir. Þeir sáu í friðarhreyf-
ingunni tæki til að stjórna með
kjósendum, sem þeir geta ekki ann-
ars vegna lltils fylgis, og friðarstef-
ið hafa þeir notað sér út I ystu æs-
ar,“ sagði Hellenbroich, sem bætti
þvi við, að „enginn vafi“ léki á, að
þeir tækju við fyrirskipunum frá
austur-þýska kommúnistaflokkn-
um, SED.