Morgunblaðið - 28.11.1984, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1984
Goðft
konan
Nú er til siðs að flytja stuttar
hugvekjur í Ríkisútvarpið, bæði
snemma morguns og síðla kvölds.
Ég kann þessum sið vel, en stund-
um eru nú morgunorðin dálítið á
skjön við veruleikann. Ég man sér-
staklega eftir einni morgunstund
hér á dögunum. Náttúran var i óða
önn að feila laufin af trjánum úti
fyrir borðstofunni. Morgunsólin at-
aði börkinn því gulli er ekki verður
keypt fyrir peninga. Undirritaður
gleypti sanasólina og þakkaði skap-
aranum í senn fyrir þetta undraiyf
er kæfir á augabragði lýsisbragðið
og fyrir ljós heimsins, er honum
fannst á þeirri stundu, að myndi
Ijóma í garðinum að eilífu. Einmitt
þá upphefjast morgunorð morgun-
útvarpsins. Grámygluleg karl-
mannsrödd tekur að dásama haust-
veðrið, ég samsinnti brosandi, en
Adam var ekki lengi i Paradis,
bjartir haustdagarnir eru skyndi-
lega orðnir að myrkum óveðursdög-
um vetrarins ... sem einsog þið
vitið kæru hlusendur er langur og
myrkur á voru norðlæga landi.
Þegar hér var komið sögu, slökkti
ég á viðtækinu, gullnir sólargeisl-
arnir dönsuðu ekki lengur á berki
frjómikilla trjáa, heldur á laufi er
féll til jarðar, sem boðberi hins
stranga og myrka vetrar.
Annar tónn
Morgunhugvekja gærdagsins,
þriðjudagsins 27. nóvember, var
með öðru sniði. Ljúf kvenmanns-
rödd seytlaði úr viðtækinu og um-
vafði morgunverðarborðið hlýju, er
stuggaði burt myrkrinu úti fyrir.
Röddin fiutti þann boðskap, að við
skyldum gefa nánari gætur að þvf
Ijúfa sambandi er oft myndast
milli afans og afabarnsins og ömm-
unnar og ömmubarnsins. Svo lauk
hugvekjunni og naktar hríslur
trjánna gægðust á ný inní borð-
stofuna. Ég tók að hugleiða boð-
skap hinnar ljúfu kvenmannsra-
ddar og komst að þeirri sorglegu
niðurstöðu að nú ættu alls ekki öll
börn afa og ömmu að halla sér að.
En þá varð mér hugsað til Þórb-
ergs, gerðist hann ekki Sobbeggi
afi litlu manneskjunnar á hæðinni
fyrir neðan í sambýlishúsinu núm-
er 45 við Hringbraut? Vissulega, og
er ekki ástæða til að halda að flest
börn búi sér til afa og ömmu þegar
í harðbakkann slær. Heimur þess-
ara litlu skinna er nú einu sinni
saman settur af öfum og ömmum,
mömmum og pöbbum, frænkum og
frændum að viðbættri löggunni og
jólasveininum.
Góða konan
í þessu sambandi minnist ég þess
er ég var einu sinni á labbi niðrí bæ
með iítinn son minn. Að venju hélt
drengurinn fast í hönd pabba sins,
en þá bregður svo við að hann
sleppir allt I einu takinu. Ég lft um
öxl og sé þá mér til mikillar undr-
unar að drengur leiðir þar konu
nokkra. Þau koma nær og sé þá að
þetta er „góða konan“ á gæsluróló.
Þarna hafði pabbastrákur eignast
sína „ömmu“, enda ástkær amma
hans ekki í bænum þá stundina.
Ég segi hér frá þessu atviki, þvf
mér finnst harla neikvæð umræða í
gangi í þjóðféiaginu þessa dagana
um barnaheimili, gæsluvelli og
Ieikskó|a. Ef blessuð börnin eru
ekki höfð allan liðlangan daginn á
þessum stofnunum þá líður þeim
þar vel og þau eignast þar gjarnan
nána vini og læra ýmislegt sem að
gagni má koma i skólanum síðar-
meir. Krakkarnir hafa gott af þvf
að kynnast leikreglum samfélags-
ins, laus við pilsfaldinn.
Eg vil að lokum nota tækifærið
og leiðrétta smá viiiu f seinustu
grein minni, þar átti náttúrulega
ckki að standa ... vel góðviljaðir.
Ólafur M. Jóhannesson
ÚTVARP / S JÓN VARP
Þyrni-
fuglarnir
21
■I Sjónvarpið sýn-
J5 ir f kvöld 6.
þáttinn af 10
eftir skáldsögu Colleen
McCullough. í síðasta
þætti gerðist það, að fjár-
stofn Drogheda-búgarðs-
ins var farinn að braggast
eftir eldsvoðann mikla og
þurfti að fá rúningamenn
til aðstoðar við að rýja
allan fjöldann. { hópi rún-
ingamannanna var Luke
O’Neill og gerði hann sér
strax mjög dælt við
Meggie. Þegar líða tekur
að brottför rúningamanna
tekur Luke veðmáli við
bróður Meggiear og kepp-
ast þeir um hvor þeirra sé
fljótari með klippurnar.
Luke er ákveðinn í að vera
um kyrrt og veðjar þvf
þannig, að hvort sem
hann vinnur eða tapar, þá
verður hann ráðinn
vinnumaður á búgarðinn.
Skömmu síðar segir móðir
Meggiear henni frá þvf að
faðir Ralph sé kominn i
páfagarð og finnst Meggie
Meggie hefur nú gefið upp alla von um að eignast fijöur
Ralph og afræður því að giftast rúningamanninum Luke
O’NeiII.
þá fyrst vonlaust að hann
snúi aftur til hennar og
tilkynnir að hún ætli að
giftast Luke O’Neill. Þess
má geta, að leikararnir
sem leika þau hjónaleysin
eru í „alvörunni" gift.
Þýðandi þáttanna um
Þyrnifuglana er óskar
Ingimarsson.
Kristiim
og Das
■i Kristján Sigur-
00 jónsson og Jón
Ólafsson sjá
um Morgunþátt rásar 2 f
dag. Að sögn Kristjáns
leika þeir ný og vinsæl lög
og að vanda fá þeir gesta-
plötusnúð til sin, sem mun
velja tónlist í þáttinn og
sjá um kynningu hennar.
í dag er það Kristinn Ág-
úst Friðfinnsson, fyrrver-
andi sóknarpestur á Suð-
ureyri við Súgandafjörð
sem kemur og leikur
uppáhaldslögin sin. Krist-
inn Ágúst er nú forstöðu-
maður Skálholtsútgáf-
unnar, sem gefur út
kristileg efni, þ.á m.
hljómplötur. Leikið verð-
ur af nýrri plötu hljóm-
sveitarinnar Das Kapital,
sem Bubbi Morthens er
höfuðpaurinn f, en
hljómplata þeirra kom út
í gær. Fyrir skömmu
fengu sjónvarpsáhorfend-
ur að sjá og heyra þá fé-
laga í Glugganum, þar
Kapital
Krjstjin Sigurjónsson
sem þeir fluttu eitt lag-
anna af plötunni.
íslensk tónlist
16
20
Á síðdegistón-
leikum í dag
verður ein-
göngu flutt íslensk tónlist
eftir Steingrim Sigfússon,
Knút R. Magnússon og
Jón Ásgeirsson. Fyrsta
verkið eru þrjú lög eftir
Steingrím og eru þau
sungin af Guðmundi Jóns-
syni við undirleik Guð-
rúnar Kristinsdóttur á pf-
anó. Síðan flytja þeir Lár-
us Sveinsson, Jón Sigurðs-
son, Stefán Þ. Stephensen
og Björn R. Éinarsson
svítu fyrir málmblás-
arakvartett og Jón Sigur-
björnsson syngur fjögur
lög Knúts við undirleik
Ragnars Björnssonar á pí-
anó. Næst verður fluttur
blásarakvintett eftir Jón
Ásgeirsson og eru flytj-
endur hans Einar Jóhann-
esson, Bernharður Wilk-
inson, Daði Kolbeinsson,
Joseph Ognibene og Haf-
steinn Guðmundsson.
Þessum íslensku síðdeg-
istónleikum lýkur síðan
með þremur fslenskum
þjóðlögum í útsetningu
Jóns Ásgeirssonar.
„Reykjavíkur Ensemble"
leikur.
Knútur R. Magnússon
ÚTVARP
MIÐVIKUDAGUR
28. nóvember
7J0 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn.
A virkum degi. 7.25 Leikfimi.
7.55 Daglegt mál. Endurt.
þáttur Siguröar G. Tómas-
sonar frá kvöldinu áöur.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15
Veðurfregnir.
Morgunorö: — Guömundur
Hallgrfmsson talar.
900 Fréttir.
94)5 Morgunstund barnanna:
„Dularfullir atburðir I Flnu-
vlk“ eftir Turid Ðaike. Matthl-
as Kristiansen les þýöingu
sfna (2).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 9.45 Þing-
fréttir.
104» Fréttir. 10.10 Veöur-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.).
10.45 Islenskir einsöngvarar og
kórar syngja.
11.15 Úr ævi og starfi Islenskra
kvenna
Umsjón: Björg Einarsdöttir.
11A5 (slenskt mál
Endurtekinn þáttur Asgeirs
Blöndals Magnússonar frá
laugardegi.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12J0 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar
1340 Barnagaman
Umsjón: Gunnvör Braga.
13J0 Svartur og hvllur djass.
144» A bókamarkaöinum
Andrés Björnsson sér um
lestur úr nýjum bókum.
Kynnir: Dóra Ingvadóttlr.
14.30 Miödegistónleikar
Alexis Weissenberg og
hljómsveit Tónlistarskólans I
Parls leika „Andante Spian-
ato“ og „Grande Polonaise
Brillante" op. 22 eftir Frédér-
ic Chopin; Stanislaw Skrow-
aczewski stj.
14.45 Popphólfið
1530 Tilkynningar. Tónleikar.
154» Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
1030 islensk tónlist
1. Þrjú Iðg eftir Steingrlm
Sigfússon. Guðmundur
Jónsson syngur. Guörún
Kristinsdóttir leikur á planó.
b. Svfta fyrir málmblásara-
kvartett. Lárus Sveinsson,
Jón Sigurösson. Stefán Þ.
Stephensen og Bjðrn R. Ein-
arsson ieika.
19.15 Aftanstund
Barnaþáttur meö innlendu
og erlendu efni: Sðguhornið
— Karlinn I kúluhúsinu 1.
Höfundur, Guörún As-
mundsdóttir, les. Litli sjó-
ræninginn, Tobba og Högni
Hinriks.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Matur og næring
3. Kjöt og kjötréttir
Myndaflokkur I fimm þáttum
um næringu og hollt matar-
æöi.
Gestur I þessum þætti cr
Guðrún Hrönn Hilmarsdóttir.
c. Fjögur !ög eftir Knút R.
Magnússon. Jón Sigur-
bjömsson syngur. Ragnar
Björnsson leíkur á planó.
d. Blásarakvintett eftir Jón
Asgeirsson. Einar Jóhann-
esson. Bernharöur Wilkin-
son, Daöi Kolbelnsson, Jos-
eph Ognibene og Hafsteinn
Guömundsson ieika.
e. Þrjú islensk þjóölög l út-
setningu Jóns Asgeirssonar.
„Reykjavlkur Ensemble"
leikur.
17.10 Slödegisútvarp
Tilkynningar
18A5 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
194» Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19A0 Daglegt mál — Sigurður
G. Tómasson flytur þáttinn.
Umsjónarmaður Laufey
Steingrlmsdóttir, dósent.
Stjórn upptöku: Kristln
Pálsdóttir.
21.15 Þyrnifuglarnir
Sjðtti þáttur.
Framhaldsmyndaflokkur I tlu
þáttum, gerður eftir sam-
nefndri skáldsðgu eftir Coll-
een McCullough.
Efni sföasta þáttar: Luke
nokkur O’Neill kemur I hópi
rúningarmanna til Drogheda.
Hann fer ekki I launkofa með
hrifningu slna á Meggle og
ræöst til starfa á búinu. Séra
Ralph veröur ritarl erkibisk-
204» Útvarpssaga barnanna:
„Ævintýri úr Eyjum“ ettir Jón
Sveinsson
Gunnar Stefánsson les þýö-
ingu Freysteins Gunnarsson-
ar (6).
20M Hvaö viltu veröa?
Starfskynningarþáttur I um-
sjá Ernu Arnardóttur og Sig-
rúnar Halldórsdóttur.
214» „Let the People Sing“
1984
Alþjóðleg kórakeppni á veg-
um Evrópusambands út-
varpsstööva. 3. þáttur. Um-
sjón: Guömundur Gilsson.
Keppni æskukóra.
21.30 Útvarpssagan: Grettis
saga
Óskar Halldórsson les (7).
ups og fylgir honum til
Grikklands og I Páfagarö.
Um llkt leyti afræöur Meggie
að giftast Luke.
Þýöandi Óskar Ingimarsson.
22.15 Ungfrú heimur 1984
(Miss World 1984)
Dagskrá frá 34. alþjóöa-
keppni fegurðardrottninga
sem fram fór I Lundúnum
15. þessa mánaðar.
Valin var fegursta stúlka (
heimi árið 1984. Meðal
keppenda var feguröar-
drottning (slands, Berglind
Johansen.
23A0 Fréttir I dagskrárlok.
22.00 Horft I strauminn
meö Auöi Guöjónsdóttur.
(RÚVAK.)
22.15 Tlmamót
Þáttur I tali og tónum. Um-
sjón: Arni Gunnarsson.
23.15 Frá tónleikum Musica
Nova — 3. þáttur
Edith Picht-Axenfeld leikur á
pfanó.
a. Svita op. 25 eftir Arnold
Schönberg.
b. - „Sofferte onde serene"
eftir Luigi Nono.
Kynnir: Halldór Haraldsson.
23v*5 Fréttir. Dagskrárlok.
RÁS2
MIÐVIKUDAGUR
28. nóvember
104»—12.00 Morgunþáttur
Róleg tónlist Viötal. Gesta-
plötusnúöur. Ný og gömul
tónlist.
Stjórnendur: Kristján Sigur-
jónsson og Jón Ólafsson.
144»—15.00 Eftirtvö
Létt dægurlög.
Stjórnandi: Jón Axel Ólafs-
son.
154»—18.00 Nú er lag
Gömul og ný úrvalslög aö
hætti hússins.
Stjórnandi: Gunnar Salvars-
son.
184»—174» Nálaraugaö
Djassrokk.
Stjórnandi: Jónatan Garö-
arsson.
174»—184» Úr kvennabúrinu
Hljómlist flutt og/eöa samin
af konum.
Stjórnandi: Andrea Jóns-
dótttr.
SJÓNVARP
MIÐVIKUDAGUR
28. nóvember