Morgunblaðið - 28.11.1984, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1984
7
Dræmar umræður um skipulagsmál á ASÍ-þingi:
Frábiðjum okkur
afskipti Alþingis
- sagði Þórir Daníelsson í framsöguræðu sinni
TVÆR megínástKður eru fyrir því að skipulagsmál verkalýðslireyfingar-
innar hafa mikið verið til umrteðu á undanförnum misserum og eru nú eitt
aðalmál ASÍ-þingsins, að því er Þórír Daníelsson framkvemdastjórí
Verkamannasambandsins sagði i framsögureðu sinni um skipulagsmál á
þinginu í germorgun.
Ifyrsta lagi, sagði hann, þykir
ýmsum núverandi skipulag vera
orðið úrelt og hreyfingunni, sem
baráttutæki launafólks, fjötur
um fót. í öðru lagi hefur málið nú
verið flutt inn i sali Alþingis
„með þeim hætti, að tæpast verð-
ur hreyfingu okkar til framdrátt-
ar“.
Þórir rakti nokkuð aðdraganda
málsins og þær samþykktir sem
gerðar hafa verið um skipulags-
mál ASl á undanförnum áratug-
um. Hann sagði að i ályktun
ASl-þings fyrir fjórum árum
hefði þvi verið slegið föstu, að
núverandi skipulag væri með öllu
óviðunandi og að breyta þyrfti
skipulaginu á þann veg að vinnu-
staðurinn yrði grundvallarein-
ing, þ.e. i hreint atvinnugreina-
skipulag. Hinsvegar hafi komið i
ljós í umræðum eftir þingið að
um ályktunina var engan veginn
eining. Framkvæmdastjóri VMSÍ
sagðist vera sannfærður um, að
mikil þörf væri á skipulagsbreyt-
ingum til að gera hreyfinguna að
betra, virkara, samhentara og
fjölbreyttara baráttutæki. „Ég er
þeirrar skoðunar," sagði hann,
„að skipulag okkar samtaka hafi
engan veginn fylgt atvinnu-
þróuninni svo sem nauðsynlegt
var ef vel átti að fara. Núverandi
skipulag á einnig sinn þátt i
þeirri innbyrðis togstreitu, mis-
klíð og misskilningi, sem valdið
hefur hreyfingunni ómældum
erfiðleikum og tjóni og allt verð-
ur að gera til þess að kveða
niður.“
Hann sagðist telja að helst
kæmu þrjár leiðir til greina:
1. Viðhalda núverandi skipu-
lagi að mestu eða öllu leyti, þó
þannig, að efla landssamböndin,
m.a. með því að öll félög, sem til
þess hafi rétt, verði aðilar að við-
komandi landssambandi og
stofna landssambönd i þeim
greinum, þar sem þau eru ekki
fyrir — þannig að ASÍ verði
raunverulega samband lands-
sambanda. Sem dæmi um þetta
mætti hugsa sér landssamband
verkafólks hjá opinberum aðil-
um. Nauðsynlegt væri að af-
marka með nokkuð skýrum hætti
meginverkaskiptingu milli ASl
og landssambandanna.
2. Breyta öllu skipulaginu frá
grunni, þannig að öll landssam-
böndin og meginþorri félaganna
verði hrein atvinnugreinasam-
bönd og atvinnugreinafélög, að
stofni til eftir tillögunum frá
1960. Hér kæmi einnig til álita
deildaskipt Alþýðusamband, þar
sem atvinnugreinadeildir kæmu i
stað landssambanda.
3. Halda núverandi skipulagi
hvað félögin snertir í metinatrið-
um. Þá væri ekki hróflað við
samnings- og verkfallsrétti fé-
laganna en landssamböndin yrðu
smám saman atvinnugreinasam-
bönd. Félögin yrðu þá deildaskipt
með formlegum eða óformlegum
hætti eftir atvinnugreinum og
hver deild ætti síðan aðild að við-
komandi atvinnugreinasam-
bandi. Ekkert væri því til fyrir-
stöðu, að innan sama landssam-
bands væru fleiri en ein atvinnu-
grein ef það þætti henta betur.
Þórir sagði að á ráðstefnum
um skipulagsmálin sl. vor, hefði
komið greinilega fram að fólk að-
hylltist þá leið, sem síðust var
nefnd. Hann rakti síðan þær
hugmyndir, sem fyrir þinginu
lægju um skipulagsmál og sagði
að lokum: „Á það vildi ég svo að
lokum leggja mikla áherslu, að
engar breytingar verða gerðar
nema fólkið, félagsmennirnir,
séu þeim samþykkir. Skipun
ofanfrá, hvort sem er frá þessu
þingi eða öðrum stofnunum
MorgunblaÖið/RAX.
Akurnesingar og fleiri á ASÍ-þinginu: Verkalýðsfélagið þar er eitt af
félögunum sem er deildaskipt og eiga deildirnar aðild að hinum ýmsu
landssamböndum.
verkalýðssamtakanna, eru
gagnslausar ef þær eiga ekki
skilningi og fylgi að fagna. Af-
skipti utanaðkomandi aðila, þar
með talið Alþingi, frábiður
verkalýðshreyfingin sér full-
komlega.“
Umræður um skipulagsmálin
urðu ekki miklar. Helgi Guð-
mundsson frá Akureyri, sem ver-
ið hefur starfsmaður miðstjórn-
ar og skipulagsnefndar ASl á
þessu sviði, lagði á það áherslu,
að atvinnulif á íslandi væri að
taka svo miklum stakkaskiptum,
m.a. með tölvubyltingunni, að
nauðsynlegt væri að ákvarða at-
vinnugreinaskiptinguna sem
fyrst. Hann sagði að breyt-
ingarnar yrðu þó gagnslitlar
nema þeim fylgdu breytingar á
starfsháttum smærri eininga í
verkalýðshreyfingunni, þannig
að hægt væri að auka virkni
hinna óbreyttu félagsmanna.
„Eins og er eru mörg lítil verka-
lýðsfélög starfandi, sem eru
varla nokkuð nema nafnið eitt.
Um fimmtungur félagsmanna i
Alþýðusambandinu eru í félög-
um, sem telja 100 félaga og það-
an af færri. Það eru vitaskuld
nær gagnslaus félög og það hlýt-
ur að vera nær útilokað fyrir þau
að gegna sínu hlutverki, verið
baráttutæki og þjónustustofnan-
ir fyrir sína félagsmenn nema
með mjög háum félagsgjöldum
eða lykilaðstöðu í atvinnulífinu,“
sagði hann.
Helgi lagði til að unnið yrði að
því á næstunni að smærri stétt-
arfélög sameinuðust þannig að
þau yrðu fær um að hafa i sinni
þjónustu 1—2 starfsmenn. „Um
35 félög innan ASÍ eiga engan
fulltrúa hér á þinginu," sagði
hann, „það eru svo lítil félög að
þau hafa ekki bolmagn til að
senda hingað fulltrúa." 1 öðru
lagi, sagði Helgi Guðmundsson,
er bæði rétt og nauðsynlegt að
faglærðir og ófaglærðir, i viðasta
skilningi, nái saman innan sinna
atvinnugreina. Loks taldi hann
nauðsynlegt að stofnuð yrðu tvö
ný landssambönd, annarsvegar
samband starfsfólks i opinberri
þjónustu, s.s. starfsfólk sjúkra-
húsa, dagvistunarstofnana og
sveitarfélaga (sem að hluta væru
i Verkamannasambandinu; ræki-
lega yrði hugað að skörun við
BSRB) og hinsvegar samband
starfsfólks i einkaþjónustu, s.s.
veitingahúsum o.fl.
Fjölmennasti klúbbur landsins
og aðrir goðir gestir, velkomnir
KLUBBURINN
A UTSYNARKVÖLD
MEÐ FRÍ-KLÚBBSSTEMMNINGU í
BCCADWAr
^ Frí-klúbbsfólagar og gestir kveðja
L sumarið og heilsa vetri á glæsilegri
Frí-klúbbshátíö meö bráöhressu og
fjörugu fólki.
Rúllugjald Frí-klúbbsins er aðeins
kr. 100,- í staö kr. 170,-.
Fríklúbbskjör:
Kvöldveröur á kr. 385,-
N
Kl. 19.00 Húsiö opnað, Frí-klúbbMtarfsemenn sumars-
ins taka á móti gestum og bjóöa þá velkomna.
Kl. 19.30 „Friklúbburinn á sólarströndum ’84“
Frumsýning nýrrar kvikmyndar. Ingólfur Guöbrands
son, forstjóri Útsýnar kynnir.
Kl. 20.00 Veislan hefst meö suöraanu sniöi, gómsætum
réttum og Frí-klúbbsfjöri.
Fjölbreytt skemmtiatriöi, m.a.
TÍSKUSÝNING, Modelsamtökin sýna nýjustu vetrar-
tiskuna.
DANSSÝNING, sérsaminn dans frá Dansnýjung Kol
brúnar Aöalsteinsd.
STÓR-BINGÓ meö Útsýnarferöum næsta árs í verö-
laun, heildarverömæti vinninga kr. 63.000,-
sunnudaginn
2. desember 1984
Dansinn stiginn meö Frí-
klúbbsfjöri til kl. 01.00. Ný
8 manna hljómsveit
Gunnars Þóröarssonar og
söngvararnir Björgvin
Halldórsson, Sverrir Guö-
jónsson og Þuríöur Sig
uröardóttir.
Hlnn síhressi
Hermann Gunnars-
son kynnir.
Framkvstj. Frí-klúbbsins, Pálmi
Pálmason stjórnar, honum til aö-
stoöar veröa hinir rómuöu Frí-
klúbbsfararstjórar: Erlingur Karlsson
(Spánn), Katrín Pálsdóttir (Portúgal),
Ingibjörg Hjaltalín (Italía) Hlldigunn-
ur Gunnarsdóttir (Portúgal), Hrafn-
hildur Valbjörnsdóttir (italía) og Jón-
ína Benediktsdóttlr.
Modelkeppnin
Ungfrú og
Herra
Útsýn
1985 hefst.
MATSEÐILL A:
Sérstakur þríréttaöur
sælkera matseðill á sór-
verði, kr. 650,-
Koníakslöguö humarsúpa.
Lambabuffsteik m/rlstuö-
um sveppum, bacon-
steiktum kartöflum, gljáö-
um gulrótum, blómkáli
m/ostabráö, salati og
rauövínssósu.
Fyllt bökuö epli m/kókos-
fyllingu og rjóma.
Fjölbreyttir feröamöguleikar vetrarins kynntir meö
nýrri feröaáætlun.
Frí-klúbbsfararstjórar bregöa á leik meö þátttöku
gesta.
MATSEÐILL B:
Ódýr en Ijúffengur Frí-
klúbbsmatseöill í spænsk-
um grísaveislustíl: Aöeins
kr. 385,-
Svínakjöt, kjúklingar
m/salati, sósu og blönd-
uöu grænmeti.
ATH.: Ákveöiö hvorn
matseöilinn þiö veljiö
um leiö og pantaö er.
Tryggóu þér plóss {
tíma í síma 77500,
því húsiö fyllist
fljótt. Boröapant-
anir og miöasala í
Broadway daglega
á milli kl. 11—19.
Sérstakt Frí-klúbbstilboö