Morgunblaðið - 28.11.1984, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1984
25
1. des. fagnaður
í Bolungarvík
HINN árlegi 1. desember fagnað-
ur .sjálfstæðisfélaganna í Bolung-
arvík verður haldinn í Félagsheim-
ilinu í Bolungarvík laugardaginn 1.
desember næstkomandi og hefst
klukkan 20.00.
Á fagnaðinum verður að
vanda flutt fjölbreytt dagskrá.
Heiðursgestur að þessu sinni
verður Halldór Blöndal alþingis-
maður. Þá verða flutt skemmti-
atriði, jólahugvekja og söngur.
Matur verður framborinn.
Daginn eftir, eða sunnudaginn
2. desember, efna sjálfstæðisfé-
lögin í Bolungarvík til almenns
stjórnmálafundar, þar sem Hall-
dór Blöndal verður frummæl-
andi. Fundarstaður og tími
verða auglýstir síðar.
Halldór Blöndal alþingismaður
Opnunartími verzl-
ana í desember
ÞAR SEM Þorláksmessa ber nú
upp á sunnudag verða verzlanir
þá lokaðar. í staðinn er opið
laugardaginn 22. desember til
klukkan 23.
í frétt sem Mbl. barst í gær
frá Kaupmannasamtökum ís-
lands segir m.a.:
Auk venjulegs afgreiðslu-
tima sem er frá mánudegi til
fimmtudags kl. 8.00—18.30 og
á föstudögum frá kl. 8.00—
21.00 má hafa verslanir opnar i
desember sem hér segir: Laug-
ardaginn 1. desember til kl.
16.00. Laugardaginn 8. des-
ember til kl. 18.00. Laugardag-
inn 15. desember til kl. 22.00.
Laugardaginn 22. desember til
kl. 23.00. Aðfangadag, 24. des-
ember, til kl. 12.00. Á gaml-
ársdag er verslunum einnig
lokað kl. 12.00 á hádegi.
Átta árekstrar á laugardagskvöldið:
Ökumenn í öllum
tilfellum grunaðir
um ölvun við akstur
ÁTTA árekstrar urðu í Reykjavík
á laugardagskvöldið og voru öku-
menn í öllum tilvikum grunaðir
um ölvun við akstur. Að öðru leyti
var helgin áfallalítil að sögn lög-
reglunnar.
Að sögn lögreglumanns slysa-
rannsóknardeildar eru atvik
sem þessi afar fátíð og bentu
þau til óheillavænlegrar þróun-
ar. Sagði hann, að flestir þess-
ara árekstra hefðu verið lítil-
fjörlegir og engin teljandi
meiðsli hefðu orðið á fólki.
Jólaóratórían
eftir Tunström
— Mál og menning gefur út bókina,
sem fékk verðlaun Norðurlandaráðs
1984, í þýðingu Þórarins Eldjárn
Hjá Máli og menningu er komin
út skáldsagan Jólaóratórían eftir
sænska rithöfundinn Göran Tun-
ström. Hann hlaut bókmenntaverð-
laun Norðurlandaráðs 1984 fyrir
þessa bók, sem Þórarinn Eldjárn
hefur þýtt
í miðju þessarar sögu er heima-
byggð höfundar í Vermalandi i
Svíþjóð, en hún teygir anga sfna
alla leið til Nýja-Sjálands. Frægar
persónur koma við sögu, svo sem
skáldkonan Selma Lagerlöf og
landkönnuðurinn Sven Hedin, en
aðalpersónurnar eru feðgarnir Ar-
on og Sidner, og segir frá draum-
um þeirra, sorgum og þrám. Al-
varlegir þættir og kátlegir skipt-
ast á í þessari sögu, þar sem spurt
er um möguleika fegurðar og list-
ar í þessum heimi.
Jólaóratórían er gefin út bæði
innbundin og sem kilja, Ugla, (
hinum nýja kiljuflokki Máls og
menningar. Hún er 358 bls. að
1 UGLA
stærð, unnin I Prentsmiðjunni
Odda hf., nema hvað þýðandinn
setti hana sjálfur á tölvu. Kápu
gerði Sigurður Ármannsson.
(Frítutllkr«ilnf.)
Veðdeild Landsbankans
auglýsir nýtt símanúmer
621662
í þessum síma eru veittar almennar
upplýsingarum Húsnæðismálalán
og skyldusparnað ungmenna.
Skráið upplýsingasímann í símaskrána.
VEÐDEILD LANDSBANKANS
Laugavegi 77, Reykjavík sími 21300
upplýsingasími 621662
Sólböðin
okkar hafa
endanlega sannað
ágæti sitt.
Nú er vitað að ljósaböð
í hófi eru holl.
Við leggjum ríka áherslu á ráðgjöf og starfsfólk
okkar er ávallt reiðubúið að leiðbeina þér.
Sólbaðsstofa
Ástu B.Vilhjálms
Grettisgötu 18
sími 28705