Morgunblaðið - 28.11.1984, Blaðsíða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1984
ncrnm
C 1984 Unlverial Pr«»« S)rn<1lc»te 7.,9
„þetta. tekur unn þa& loit XO mlnátur."
ást er...
... aA ví/ja heldur
koss í ábæti
TM Rn. U.S. Pat Ofl.-a rtahtt raMrvw)
•19*4 Lo» Angdu TTm»« Syndtatt
Áóur en ég kynntist þér vissi
ég ekki hvað hrein ást erl
Ég get ekki hjálpað þér í dag,
ég á eftir að klára 18 holur!
HÖGNI HREKKVÍSI
Ée pEKKI HAMW EKXþ EW HAWW VAR
AF5KAPLEGA VING JARMLEGUí? /"
Endur og svanir
R.Á. skrifar:
Mig langar til að taka undir orð
Huldu B. í grein í Velvakanda á
þriðjudag, 20. nóvember, um
endurnar og svanina á Tjörninni.
Ég er alveg sammála henni um að
of margir svanir séu nú á Tjörn-
inni og svo er um fleiri. Ég fer oft
með litlu frænku mina niður að
Tjörn á laugardögum og ekki er
það eins skemmtilegt og halda
mætti. Síðasta laugardag fórum
við sem oftar að gefa öndunum
brauð og frænka mín henti þvi til
þeirra. Þá kemur svanur, bitur í
öndina og hrifsar til sín brauðið.
Frænka mín fór að hágráta og
varð svo hrædd um endurnar, að
um nóttina var hún alltaf að
vakna og kallaði: „Farðu ljóti
fugl.“ Ég tek því undir orð Huldu
B. og segi: „Fækkið svönunum.“!
Reynsluheimur kvenna
skiptir máli
Vegna skrifa í Morgunblaðinu og
Dagblaðinu Vísi að undanförnu um
Kvennalistann og þingkonur hans,
langar mig sem konu að koma fáein-
um orðum á framfæri.
Alþjóð veit að Sjálfstæðisflokk-
urinn á í innbyrðis erfiðleikum
þar sem bítast á ofstækisfullir
frjálshyggjumenn og þeir sem
Útvarpshlustandi:
Mig langar til að kvarta yfir lé-
legri dagskrá útvarpsins, þ.e.
gömlu rásarinnar. Það er ekkert
spilað allan daginn nema fréttir,
veður og tónleikar með sinfóníu-
tónlist. Þetta er alveg óþolandi.
Eini þátturinn sem er hlustandi á
eru Lög unga fólksins. Ég skil ekki
Vegna yfirlýsingar Húsmæðra-
samtakanna nýlega um nauðsyn á
lagfæringum á álagningu tekju-
skatts hjóna, þar sem fordæmd er sú
dæmaiausa háttsemi að mismuna
útivinnandi konum og húsmæðrum í
skattaálagningu á heimilin er rétt
að segja frá eftirfarandi:
Sjónvarpsmál
Ég er ein 13 ára og mig langar
til að vita af hverju sjónvarpið
sýnir svona litið unglingaefni. Það
eru annað hvort franskar eða
júgóslavneskar bíómyndir eða við-
töl við gamla karla. Væri ekki
hægt að sýna fleiri tónleika eða
meiri tónlist. Með von um að eitt-
hvað verði gert.
Ein 13 ára.
hógværari eru I gróðasjónarmið-
um sínum. Þetta er jú staðreynd
og einnig það að nú er sami flokk-
ur mjög svo uggandi um fylgi sitt
meðal kjósenda. Hér er vissulega
um að ræða stórt og alvarlegt
vandamál fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn og alls ekki svo auðvelt að sjá
lausn á, en ef sjálfstæðismenn
af hverju maður var ekki uppi hjá
Guði áður en rás 2 byrjaði. Hún er
sko oftast frábær. Er nokkur
möguleiki á að rás 2 verði lengur á
daginn en frá kl. 10—12 og
14—18? Að lokum langar mig til
að spyrja: Hvers vegna má ekki
taka upp efni í útvarpinu?
Á síðasta landsfundi Sjálfstæð-
isflokksins var samþykkt I 7. lið
álitsgerðar um skattamál svo-
hljóðandi: „Tekjum hjóna verði
skipt jafnt á milli þeirra fyrir
álagningu." Ennfremur var sam-
þykkt að það skyldi gert á undan
öllum öðrum breytingum.
Hér var fyrst og fremst stefnt
að því að koma í veg fyrir þann
óheyrilega ójöfnuð í skattheimtu
þar sem annað hjóna er skattlagt
mun hærra en gert er þegar bæði
vinna úti. Ranglætið kemur þá
líka fram í því að vinna húsmóður
er einskis metin. Þannig borga
hjón, þar sem einungis annað
þeirra vinnur úti, miklu hærri
skatt en hjónin í næstu íbúð, þar
sem bæði vinna úti. Hér þarf úr-
bóta strax.
Sjómannskona
halda að með því að fara niðrandi
orðum um Kvennalistann og þing-
konur hans, vinni þeir flokknum
fylgi meðal íslenskra kvenna, þá
vaða þeir villu.
Þessa framkomu sjálfstæð-
ismanna má að visu auðveldlega
skýra en hún er ofur eðlileg afleið-
ing þess að þeir hafa ekki lagt það
í vana sinn að hlusta á og ég tala
nú ekki um að taka mark á við-
horfum og skoðunum kvenna, í
ljósi þessa er jafnvel hægt að út-
skýra kímnigáfu iðnaðarráðherra
þegar hann í DV þ. 10. nóvember
sl. talar um fylgikonur og lagskon-
ur. Þarna erum við um leið komin
að kjarna málsins, innan gömlu
flokkanna hafa þau málefni, sem
konur vita að eru vægast sagt að-
kallandi, ekki náð fram að ganga,
þess vegna eru tilkomin Samtök
um kvennalista þar sem konur
vinna i sameiningu að þessum
málefnum, konur af öllum sviðum
þjóðfélagsins hvort sem þær
starfa innan veggja heimilisins,
Alþingis eða vinna eitthvert af
þeim óteljandi störfum er konur
inna af hendi.
Það er vel hægt að skilja að
fyrir þá karlmenn sem litið hafa á
konur sem óæðri verur vitsmuna-
lega séð, sé það eins konar „menn-
ingarsjokk" að standa nú frammi
fyrir þeirri viðurkenndu stað-
reynd að reynsluheimur kvenna og
þau málefni, sem þær leggja lið, er
nokkuð sem skiptir máli og það
miklu máli fyrir velferð barna,
karla og kvenna almennt.
Að endingu læt ég í ljós þá ein-
lægu von mína að þessi, sem betur
fer óðum minnkandi, hópur karla
hætti að berja höfði sínu við stein-
inn en nýti þess í stað orku sína
við að reyna að ráða fram úr þeim
óteljandi vandamálum sem þeir
hafa komið þjóðinni i.
21. nóvember 1984,
Ragnhildur Eggertsdóttir.
Útvarpsmál
*
Ojöfnuður í skattheimtu
llJ ~K V