Morgunblaðið - 28.11.1984, Blaðsíða 60
OPIÐALLA DAGA FRÁ
KL. 11.45 - 23.30
AUSTURSTRÆTI 22
INNSTRÆTI, SlMI 11633
EUROCARD
TIL DAGLEGRA NOTA
MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
Heil
á húfi
Ungmennin þrjú, sem saknað
var frá því á sunnudagskvöld,
fundust heil á húfí klukkan
11.25 í gærmorgun. Höfðu
þau þá búið um sig í snjógöng-
um við suðurenda Prestsvatns
norðan Efstadalsfjalls. Fyrr
um morguninn höfðu þau orð-
ið vör við fíugvél og gerðu því
stórt SOS-merki í snjóinn rétt
hjá snjógöngunum. Ungmenn-
in voru ótrúlega vel á sig kom-
in, að sögn Gylga Haralds-
sonar læknis, sem skoðaði
þau í heilsugæslustöðinni á
Laugarvatni.
%•
SOS-merkið fremst á myndinni og opin á snjógöngunum f barðinu beint upp af. Morgunbiaait/RAX
Nánará 3/4/30/31.
MorgunblftAið/Július
Inga Björk Gunnarsdóttir, Þröstur Guðnason og Gunnar Hjartarson í
heilsugæzlustöðinni.
Fjórði útisigurinn á Dönum:
150 íslendingar yfir-
gnæfðu 2000 heimamenn
„ÉG TRÚÐI ÞVÍ fyrst ekki að þetta væru þau,“ sagði Valdimar Bjarnason, sem fann
þremenningana við Prestsvatn í samtali við Morgunblaðið í gær. Hinni umfangsmiklu leit að
ungmennunum þremur, sem yfírgáfu bifreið sína á sunnudagskvöldið á hálendinu norðaustur
af Laugarvatni lauk rétt fyrir hádegið í gær, er þau fundust heil á húfí. Höfðu þau búið um sig
í snjógöngum við Prestsvatn og voru ótrúlega vel á sig komin að sögn leitarmanna, sem fundu
þau og læknis. Voru þau nokkuð vel göngufær eftir að hafa notið aðhlynningar björgunar-
sveitarmanna.
Leit hafði þá staðið frá því
skömmu eftir miðnætti aðfara-
nætur mánudags við afar erfið
skilyrði, sérstaklega fyrri sólar-
hringinn. óðu leitarmenn krapa-
elg á köflum, oft á tíðum upp
fyrir hné og jafnvel upp í mitti.
Vegna þessa lentu þeir í tals-
verðum erfiðleikum með farar-
tæki sin, bæði bíla og vélsleða.
Vegna veðurs var aldrei unnt að
beita flugvélum við leitina.
Um 500 manns frá fjölmörg-
um björgunarsveitum á Suður-
Norræn verðkönnim:
Verðið oftast
hæst hjá okkur
NORRÆN verðlagsyfirvöld fram-
kvæmdu í marz sl. könnun á verði
og verðmyndun á 18 tegundum mat-
og drykkjarvöru. Könnunin var gerð
í nokkrum verzlunum í hverri höfuð-
borg Norðurlandanna fimm. í stuttu
máli varð niðurstaðan sú að í flest-
um tilvikum var vöruverð hæsi ■
Reykjavík. Sjá bls. 18.
og Vesturlandi auk heimamanna
og nemenda á Laugarvatni stóöu
að leitinni. Stjórnendur leitar-
innar voru orðnir heldur svart-
sýnir í gærmorgun á að ung-
mennin fyndust heil á húfi. Því
var fögnuður þeirra mikill svo og
annarra leitamanna, þegar þær
fréttir bárust að þau væru fund-
in og ótrúlega vel á sig komin.
ÍSLENDINGAR sigruðu Dani í
landsleik í handknattleik í Óðinsvé-
um í Danmörku í gærkvöldi með 21
marki gegn 19. íslendingar léku vel
og var sigur þeirra sanngjarn.
Um 150 Islendingar, búsettir i
Danmörku, komu á leikinn til að
styðja við bakið á landsliðinu og
studdu þeir vel við bakið á okkar
mönnum. Ef fyrstu fimmtán min.
leiksins eru undanskildar má
segja, að hinir 150 Islendingar
hafi yfirgnæft Danina 2.000 sem
fylgdust með leiknum.
Nánar á 58/59.
Lánaútgjöld ríkissjóðs samkyæmt fjárlagafmmvarpi 1985:
Sjötta hver króna af tekjum
fer í vexti og afborganir
ALBERT GUÐMUNDSSON fjármálaráðherra mælti fyrir frumvarpi til
fjárlaga 1985 á Alþingi í gær. Heildargjöld frumvarpsins nema 25,3
milljörðum króna en heildartekjur 24,9 milljörðum. Rekstrarhalli ríkis-
sjóðs er áætlaður um 400 m.kr. Tekjur ríkissjóðs sem hlutfall af þjóðar-
framleiðslu lækka úr 29% 1984 í 28,8% 1985. Gert er ráð fyrir 600 m.kr.
lækkun tekjuskatta.
Áætlaðir vextir og afborganir
af umsömdum lánum A—hluta
rikissjóðs nema 2.884 milljónum
króna, samkvæmt frumvarpi til
fjárlaga 1985; vextir 1.183 m.kr.
og afborganir 1.701 m.kr. Yfir-
dráttarvextir ríkissjóðs í Seðla-
banka áætlast 166 m.kr. Vegna
breytts gengis og verðlags á
næsta ári hækka þessir liðir um
230 m.kr.
Samtals nema útgjöld ríkis-
sjóðs í frumvarpinu, sem tengj-
ast greiðslu fjármagnsútgjalda,
tæpum 3,3 milljörðum króna.
Það eru um 16% heildartekna
ríkissjóðs eða rúmlega sjötta
hver króna. „Ef til vill er það það
uggvænlegasta," sagði Albert
Guðmundsson fjármálaráðherra
í fjárlagaræðu á Alþingi i gær,
„að arðsemi sumra þeirra verk-
efna, sem lán hafa verið tekin
til, er mjög vafasöm, svo ekki sé
kveðið fastar að orði.“
Þá kom fram í ræðu ráðherra
að greiddar ríkisábyrgðir 1983
námu 193 m.kr., en á móti komu
endurgreiðsiur, 91 m.kr. Á næsta
ári er gert ráð fyrir greiðslum á
bilinu 100—150 m.kr.
Seld spariskírteini ríkissjóðs,
sem geta komið til greiðslu 1983,
nema alls um 3,8 milljörðum
króna. Mikill vandi getur þvi
steðjað að rikissjóði, að sögn
ráðherra, ef ekki kemst meira
jafnvægi á fjármagnsmarkaðinn
en nú er.
Sjá nánar fjárlagaopnu í
þingfréttum Morgunblaðs-
ins í dag, bls. 36/37.