Morgunblaðið - 18.12.1984, Side 27

Morgunblaðið - 18.12.1984, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1984 Wm SfOJd Applell er nýja einkatölvan frá Apple, nákominn ættingi Apple //e-tölvunnar, sem m.a. hefur verið valin í framhaldsskólana og handa ríkisstofnunum. Þetta þýðir að Applellr getur keyrt sömu forrit og Apple //e-tölvan, sem gerir það verkum að meira en 16.000 forrit standa vélinni til boða. Á Applell -tölvuna getur þú fengið fjárhagsbókhald, heimilisbókhald, launabókhaid, ritvinnslu, gagnagrunnskerfi, áætlanagerðarkerfi, kennsluforrit, leiki, teikniforrit af ýmsu tagi, t.d. fyrir verkfræði- og húsateikningar, sérhæfð forrit fyrir ættfræðinga, bókasöfn, læknastofur, samskiptaforrit til þess að tengjast öðrum tölvum og svona mætti lengi telja. BASIC forritunarmálið er innbyggt í Applell , en auk þess eru m.a. fáanleg forritunarmál eins og Pascal, Fortran, Cobol, Super Pilot o.fl. Auk þess er nú fáanlegt forritunarmálið LOGO, sem hefur verið íslenskað að öllu leyti! Applell tryggir þér og fjölskyldu þinni þátttöku í ævintýraheimi tölvanna. Hér er um einstakt tækifæri að ræða til þess að eignast fullkomna tölvu á góðum kjörum. Til þess að tryggja að þú getir strax haft gagn af nýju App/eII - tölvunni, látum við fylgja nýtt og fullkomið heimilisbókhaid í jólatilboði okkar! Applellr, 128K með skjá og innbyggðu diskadrifi, tveimur Serial tengingum fyrir prentara og síma - modem, ásamt tengingu fyrir sjónvarp. Skipholti 19. Revkjavik. S 29800 iXarc/cc?., I búoin

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.