Morgunblaðið - 18.12.1984, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1984
Hætta á krabba-
meini í Bhopal
Miinchen, 17. desember. AP.
VESTUR-ÞÝSKUR læknir, sem er
sérfræðingur í eiturefnum, sagði í
viðtali við dagblað í Miinchen í dag,
að þúsundir manna í borginni Bhop-
al á Indlandi gætu fengið krabba-
mein af eiturefninu, sem komst út í
andrúmsloftið þar. Þá kvað hann
hættu á mörgum öðrum innanmein-
um, svo sem skemmdum á nýrum,
lifur og heila fólks.
Læknirinn, Max Daunderer, fór
til Bhopal og kynnti sér ástand
fólks þar að beiðni indverskra
stjórnvalda. Talið er að um 2.500
manns hafi látist af völdum gas-
eitrunarinnar frá efnaverksmiðju
Union Carbide-fyrirtækisins f
borginni 2. desember. Tugþúsund-
ir til viðbótar hafa hlotið sár og
sjúkdóma af eitrinu.
Noregur:
Frumvarp um bann
við laxveiðum í reknet
Ósló, 17. desenber. Prá Jan Erik Laure, frétUriUra Mbl.
LAGT hefur verið fram frumvarp um
að banna reknetaveiðar á laxi á
norskum hafsvæðum. Hefur frum-
varpið vakið ólgu innan samtaka
sjávarútvegsins.
Veiðimálastofnunin vill leiða í
lög algert veiðibann eftir 1985, i
allrasíðasta lagi 1987. Samtök sjó-
manna og útvegsmanna eru al-
gerlega á móti frumvarpinu og
munu leita allra ráða til að hafa
áhrif á stjórnvöld í þá átt, að því
verði hafnað. Er búist við hörðum
átökum um frumvarpið i Stór-
þinginu.
Samtök sjómanna og útvegs-
manna gagnrýna málsmeðferð
veiðimálastofnunarinnar harð-
lega. Vísa þau til, að stofnunin
hafi viðurkennt það í athugasemd,
sem hún hafi látið frá sér fara, að
ekki sé fyllilega vitað, hversu mik-
ið af laxi sé veitt í reknet né
hvernig veiðin hafi þróast frá ári
til árs.
Norsku bændasamtökin eru
hlynnt algjöru banni. Benda þau
á, að við það aukist möguleikar á,
að laxinn leiti inn í firði og upp I
ár. Gefi það bændum auknar nytj-
ar af laxi, bæði í veiði og tekjum
af ferðamannaþjónustu.
Reagan andvígur nið-
urskurði til hermála
Waakingtan. 17. denember. AP.
SVO VIRÐIST sem Reagan
Bandaríkjaforseti sé ófáanlegur til
að fallast á þau ráð efnahagssér-
fræðinga sinna að skera niður út-
gjöld til hermála til að draga úr hin-
um mikla halla á fjárlögum ríkisins.
Þetta þýðir að ef forsetinn ætlar
að halda fast við fyrirætlanir sín-
ar um að lækka fjárlagahallann
verður hann að hækka skatta eða
skera niður útgjöld á öðrum vett-
vangi.
David Stockman hagsýslustjóri
og fleiri nánir samverkamenn for-
setans munu hafa gert tillögu um
allt að 8 milljarða dala lækkun á
framlögum til hermála á fjárhags-
árinu 1986, en Caspar Weinberger,
varnarmálaráðherra, er sagður
hafa lagst gegn tillögunni og feng-
ið forsetann á sitt band.
Larry Speakes, blaðafulltrúi
forsetans, segir hins vegar að
Reagan hafi enn enga afstöðu tek-
ið til tillagna um útgjöld til varn-
armála á árinu 1986.
Ekkert þokaðist í við-
ræðum Israela og Líbana
Naqoura, Líbaaoa, 17. deaembcr. AP.
EKKERT þokaðist áleiðis í dag í við-
ræðum ísraela og Líbana um frið-
argæsluhlutverk Sameinuðu þjóð-
anna í Líbanon, en það hefur verið
helsti ásteytingarsteinninn í sjö
vikna löngum viðræðum ríkjanna
um brottflutning herja.
í sameiginlegri tilkynningu sem
gefin var út að lokinni þessari tí-
undu lotu viðræðnanna sagði að-
eins að rædd hefðu verið hernað-
arleg málefni og aðilar mundu
hittast á ný á fimmtudag.
A \ • « f • X- f f .. f ftr/oimamyna
Aö veita hjalparhond
Sir Geoffrey Howe utanríkisráðherra Bretlands færir Mikhail Gorbachev, sovézkan
starfsbróður sinn, úr frakkanum þegar sá síðarnefndi kom til viðræðna við Howe í
London í gær, á þriðja degi vikulangrar heimsóknar Gorbachevs til Bretlands.
Gorbachev er næstvaldamesti maður Sovétríkjanna, að því að talið er.
Svíþjóð:
Þingmenn syndi ekki án
sundfata í laug þinghússins
Stokkhólmi, 17. desember. AP.
KONA sem vinnur í sænska þinginu hvetur þingmenn hinnar
virðulegu 500 ára gömlu stofnunar, þ.e.a.s. þá þeirra sem eru
karlkyns, til að hlíta óskrifuðum siðareglum um að vera í
sundskýlum, þegar þeir fari í innanhússlaug þingsins.
Rita Strom, en svo heitir konan,
er deildarstjóri á skrifstofum
þjóðþingsins, og hefur hún hafið
baráttu á móti þvf, að þingmenn
syndi án sundfata í þessari litlu
hringlaga laug, sem ætluð er til
afnota fyrir þingmenn af báðum
kynjum, svo óg annað starfsfólk
þinghússins.
Norðmenn fá að veiða 10.000
tonnum meira af kolmunna en á
síðasta ári á færeysku miðunum,
fá að veiða alls 40.000 tonn. Hins
vegar minnkar aflakvóti þeirra
fyrir botnfisk um 7.000 tonn.
Þorskkvóti Færeyinga norðan
62. breiddarbaugs minnkar um 200
„Það eru ekki margir dagar síð-
an ég sá fimm eða sex allsnakta
þingmenn leika sér að þvi að
stinga sér sem oftast ofan af
sundlaugarbakkanum, beint fyrir
framan augun á einum af kven-
kynsþingmönnunum, líklega í því
skyni að fæla hana frá að fá sér
sundsprett," sagði Rita Strom í
tonn, verður alls 1.900 tonn.
Sumarloðnukvóti þeirra á norsk-
um miðum minnkar um 2.000
tonn, verður alls 8.000 tonn. Til
þess að bæta þetta upp fá fær-
eyskir sjómenn að veiða allt að 200
tonnum meira af fiski á norskum
veiðisvæðum í Norðursjó og 2.000
tonnum meira af vinnslufiski.
viðtali við Aftonbladet i Stokk-
hólmi.
Ekki virðist það hins vegar svo,
að öllum konunum sem í þinginu
starfa sé eins mikill ami að þess-
ari meintu nekt þingmannanna,
þó að það sé með vissum fyrirvör-
um.
„Ég held ég hefði ekkert á móti
því að fá mér sundsprett með
þeim,“ segir Mona Sahlin, 27 ára
gamall þingmaður Jafnaðar-
mannaflokksins, í viðtali við
Aftonbladet í gær, sunnudag, „það
er að segja, svo framarlega sem
þeir væru ekki of margir. Þetta er
bara lítil laug.“
„Heyr á endemi,“ segir Ingem-
und Bengtsson, sem er 65 ára
gamall og einn af deildarforsetum
þingsins, í viðtali við blaðið. „Ég
hef aldrei séð nokkurn þingmann
beran í lauginni."
Bengtsson sagði það af og frá,
að til væru einhverjar óskrifaðar
siðareglur um klæðnað manna í
lauginni. „Það er engin leið að
gefa út reglur um slíkt.“
Stjórnar-
kreppa í
ísrael?
Noregur;
Samið við Færeyinga
um fiskveiðikvóta
Ósló, 17. desember, Frá Jan Erík Laure, frétUritar* Mbl.
NORÐMENN og Færeyingar hafa komið sér saman um fisk-
veiðikvóta fyrir árið 1985. Verður þar um sama heildarafla-
magn að ræða og á þessu ári.
Dagblaðið Bild:
Tvær nýjar myndir af
Sakharov-hjónunum
Ilamh»r0. 17. ibmnihrr AP V
llmmborjr. 17. (ksember. AP.
DAGBLAÐIÐ Bild í Vestur-Þýska-
landi birti á laugardag tvær mynd-
ir sem sýna sovéska andófsmann-
inn Andrei Sakharov og konu hans
Yelenu Bonner og segir að þær
hafi verið teknar með leynd
snemma í október.
Blaðið segist hafa undir hönd-
um sex myndir til viðbótar af
þeim hjónum og séu myndirnar
allar komnar frá aðilum í Sov-
étrikjunum. Ekki er greint frá
því hvaða aðilar það eru, en áður
hefur Bild skýrt frá því að það
standi í sambandi við sovéska
blaðamanninn Victor Louis, sem
sovésk stjórnvöld hafa oft fengið
til að „leka“ upplýsingum til
Vesturlanda.
Fyrri myndin sýnir Sakharov
og frú Bonner á leið inn í bifreið,
sem lagt hefur verið á skógar-
vegi. Frú Bonner heldur á nestis-
tösku og eru þau bæði peysu-
klædd. I forgrunni myndarinnar
sést í þriðja manninn, sem hylur
andlit sitt með tímariti. Blaðið
segir að hann sé starfsmaður
sovésku leyniþjónustunnar, KGB,
og greina megi dagsetningu
7.—13. október á tímaritinu.
Síðari myndin sýnir Sakh-
arovhjónin leiðast. Frú Bonner
þar klædd stakk, með trefil og er
með sígarettu í munnvikinu.
Sakharov er í frakka.
Bild hefur eftir heimildum
sinum í Sovétríkjunum að miðað
við allar aðstæður séu þau hjón-
in við góða heilsu. Þau hafi leyfi
til að ferðast um Gorky, sem er í
400 km fjarlægð frá Moskvu, en
Andrei Sakharov var í janúar
1980 dæmdur til að búa þar í
útlegð.
í maí á þessu ári hóf Sakh-
arov, sem er 63 ára að aldri,
hungurverkfall til að krefjast
þess að frú Bonner, sem er 61 árs
gömul, fengi að leita sér lækn-
ishjálpar erlendis. Um tíma var
álitið að Sakharov væri látinn,
en Bild kvaðst í nóvember hafa
fyrir því heimildir að hann hefði
verið fluttur í sjúkrahús og hefði
verið útskrifaður þaðan.
Tel A»h, 17. desember. AP.
SHIMON Peres, forsætisráðherra
ísraels, og leiðtogar Likud-banda-
lagsins hafa í dag reynt að telja ein-
um af ráðhcrrum stjórnarinnar, sem
beðist hefur lausnar, hughvarf, þar
sem brotthvarf hans úr stjórninni
kann að tefla framtíð hennar í tvf-
sýnu.
Ráðherrann, Yitzhak Peretz, er
leiðtogi fámennra trúarsamtaka
gyðinga af austurlenskum upp-
runa, sem aðild eiga að Likud-
bandalaginu og hafa fjóra menn á
þingi. Likud og Verkamannaflokk-
urinn mynda helmingaskipta-
stjóm í ísrael. Peretz segist ekki
vilja gegna embætti innanríkis-
ráðherra nema fallið verði frá
fyrirhuguðum breytingum á verk-
sviði ráðuneytisins, sem fela í sér
að það hefur ekki lengur með fjár-
stuðning við trúarsamtök að gera.
Afsögn Peretz á að taka gildi á
morgun, þriðjudag, en Peres og
Shamir, leiötogi Likud-bandalags-
ins, sem hætt hefur við Banda-
ríkjaför vegna málsins, segjast
ætla að reyna að finna lausn á
ágreiningnum fyrir þann tíma.