Morgunblaðið - 18.12.1984, Page 40

Morgunblaðið - 18.12.1984, Page 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1984 Qlympíuleikamir: N-Kóreumenn þrasa enn um val Seoul Tókýó, 17. desember. AP. FORMAÐUR ólympíunefndar Noróur-Kóreu sagði í samlali við japanska fréttamenn í dag, að Norður-Kóreumenn væru afar óhressir með að næstu sumarleikir skyldu vera haldnir í Suður-Kóreu. Gaf hann ■ skyn að Norður- Kóreumenn myndu ekki verða meðal þátttakenda á leikunum vegna þessa. Er það ekki í fyrsta skiptið sem Norður-Kóreumenn viðra skoðun sína og var þetta eitt af mörgum dæmum um að kommúnistaríki hafa verið að gera því skóna að þau hyggist ekki taka þátt í leikunum. Formaðurinn sendi fyrir skömmu bréf til Samaranch, for- seta alþjóðaólympíunefndarinnar, og þar sagði meðal annars, að það „væri aldrei hægt að tryggja ör- yggi íþróttamanna í hinni storma- sömu Suður-Kóreu.“ Sagði for- maðurinn jafnframt, að menn yrðu að gera sér grein fyrir þvi að það væri „varanleg stríðshætta“ á Kóreuskaganum og „aðeins tíma- bundið vopnahlé". Formaðurinn Til móts við hala- stjörnu Moskvu, 17. desember. AP. SOVÉSKIR geimvísindamenn hafa sent út í geiminn sjálfvirkt geimfar sem á að koma fyrir rannsóknartækjum á yfirborði Venusar og fara síðan til móts við halastjörnu Halleys, eða svo sagði í fréttatilkynningu frá Tass-fréttastofunni sovésku í dag. Þess var ekki getið hvenær hið ómannaða geimfar lagði af stað í ferðina löngu, en í júní á næsta ári verður geimfarið Vega, en svo heitir það, statt hjá Venusi og þar mun sjálf- virkur búnaður koma fyrir rannsóknartækjum á yfirborði stjörnunnar. Síðan verður för- inni haldið áfram uns geimfar- ið mun hitta fyrir halastjörn- una sem kennd hefur verið við Halley, en fundurinn verður í mars 1986. Mun sjálfvirkur ljósmyndabúnaður smella ákaft í návist halastjörnunnar merkilegu. Fleiri athuganir verða gerðar á halastjörnunni við þetta tækifæri. Geimfar þetta var sent upp eftir nokkurra ára samvinnu vísindamanna frá Sovétrikjun- um, Vestur-Þýskalandi, Frakklandi, Austurríki og fá- einum Austur-Evrópuþjóðum. Tækjabúnaður er einkum sov- éskur, austur-þýskur og franskur. reifaði síðan í bréfinu dæmi um stríðsæsingastefnu Suður-Kóreu- manna og lýsti í smáatriðum skotbardaganum á landamærun- um á dögunum, er þrír norður- kóreskir hermenn og einn suður- kóreskur létu lífið er til bardaga kom út af sovéskum flóttamanni sem stakk sér frá norðri til suðurs. Er það hins vegar skoðun fjöl- margra, að Norður-Kóreumenn eigi ekki síður sök á því hvernig til tókst og það sé jafnvel alfarið þeim að kenna. í niðurlagi bréfs- ins segir, að „ljóst sé að fjölmörg kommúnistaríki muni af þessum sökum ekki senda æskufólk sitt til keppni á Ólympíuleikunum í Seoul“. Sósíalistar á Spáni: E1 Salvador: Dauðasveitir á stjá á ný Saa Halvador, 17. dewmber. AP. ERKIBISKUPINN í San Salvador, Arturo Rivera I Damas, sagði í dag, að dauðasveitir hægri manna væru teknar til óspilltra málanna á nýjan leik, en lítið sem ekkert hefur ann- ars farið fyrir þeim síðan að Duarte forseti settist í valdastól og ekkert síðan að friðarviðræður stjórnvalda og skæruliða hófust um miðjan október. „Hræðilegir glæpir dauðasveit- anna eru byrjaðir á ný,“ sagði Damas og taldi sig vita með vissu um þrjú slík morð í siðustu viku. Á síðustu fimm árum hafa dauða- sveitir hægri manna myrt þúsund- ir manna í El Salvador. Damas gat þess einnig, að 2 stjórnar- hermenn og 70 skæruliðar hefðu fallið í bardaga miklum nýlega. Hann gat þess ekki hvaðan hann hefði heimildir sínar, en yfirleitt hefur hann þær frá talsmönnum stjórnarhersins, en þeir eiga til að ýkja mannfallstölur, reikna sér færri fallna, en andstæðingunum fleiri. Felipe Gonzalez, forsætisráðherra Spánar og leiðtogi jafnaðarmanna. Samþykktu stuðning við A tlantsha fsbandalagið IMadrid, 17. desember. AP. FLOKKUR sósíalista á Spáni sam- þykkti á 30. þingi sínu, sem haldið var um helgina, að Spánverjar verði áfram aðilar að Atlants- hafsbandalaginu, svo sem flokks- formaðurinn, Felipe Gonzalez for- sætisráðherra, lagði til. Spánverjar gengu í Atlants- hafsbandalagið í maí 1982, en hafa ekki tekið þátt í hernaðar- samstarfi á vettvangi þess. Sósí- alistaflokkurinn lagðist upp- haflega gegn aðild að bandalag- inu, og felur samþykktin um helgina því í sér stefnubreyt- ingu. 412 greiddu henni atkvæði, 126 voru á móti og 42 sátu hjá. í samþykkt flokksþingsins er ennfremur lagt til, að ekki verði komið fyrir kjarnorkuvopnum á Spáni. Þá er hvatt til þess að endi verði bundinn á yfirráð Bretaá Gíbraltar, að bandarísk- hermönnum á Spáni, sem um eru 12. þúsund, verði fækkað, og Spánverjar gangi í Evrópu- bandalagið. Gonzalez, sem er 42 ára að aldri, var endurkjörinn formað- ur Sósíalistaflokksins. Hann hefur nú verið flokksformaður í tíu ár. Mannskæð flóð Rio De Janeiro, 17. dewmber. AP. GEYSILEG úrkoma sem stóð yfir í rúmlega tvo sólarhringa hafði stórkostleg fióð í (or með sér í Minas Gerais í suðurhluta Brasilíu um helgina. 13 manns drukknuðu, en rúmlega 2000 misstu heimili sín. Mann- og eignatjónið varð nær allt í fátækrahverfi höfuðborgar sýsiunnar, Belo Horizonte, á bakka Arrudas-árinnar. Hún flæddi yfir bakka sína og færði heilu hverfin á bólakaf. Síðast er fréttist voru flóðin í rénun og var óttast að fleiri lik kynnu að finn- ast. Ein fjölskylda missti fimm ung börn. Þrátt fyrir sjatnandi flóð rigndi enn ákaflega á þessum slóðum. Shakespeare of djarf- ur fyrir skólabörnin? Kíehmond, Virginíu, 17. desember. AP. MIKIL reiði er nú á mörgum víg- stöðvum eftir að útgáfufyrirtæki skólabóka ritskoðaði leikritin frægu Hamlet og Rómeó og Júlíu og nam á brott úr þeim alls 420 línur á þeim forsendum að um klám væri að ræða. Þetta gerðist í Virginíu. Yfirmenn menntamála í Banda- ríkunum hafa fallist á að kanna ofan i kjölinn aðfinnslur margra um meðferð útgefandans Scott/- Foresman á skáldskap úr um- ræddum leikritum. Úr Hamlet voru numdar brott 100 línur, en úr Rómeó og Júlíu öllu meira, eða 320 línur. Margret Marston, sem á sæti í menntamálanefnd Virginíu, sagði að svo virtist sem útgefand- anum hefði „þótt kynlíf svífa helst til mikið yfír vötnunum í textun- um sem skornir voru burt. Mig hryllir við þessari meðferð," sagði frú Marsten og talaði máli margra. Hún sagði að nefndin hefði áður samþykkt alla þá kennslubókartexta sem lagðir voru fyrir hana í haust, en eftir að hafa athugað nánar umrætt mál, hefði nefndin áskilið sér rétt til að endurskoða afstöðu sína og það myndi hún gera. Það sem ósiðlegt þótti í Hamlet var er prinsinn danski fárast yfir því við móður sína að hún skuli hafa gengið að eiga frænda sinn mjög skömmu eftir lát föður síns. Biður Hamlet móður sína lengstra orða að samrekkja ekki frænda. í Rómeó og Júlíu þykir ósiðlegur draumur Júlíu um að eiga einn lokafund með landrækum elsk- huga sínum. Danir óvenjuhraustir eftir að læknar fóru að taka gjald fyrír sjukravidtöl DANIR eru greinilega orónir miklu beilsuhraustari eftir aó heimilislæknar fóru upp til hópa aó taka gjald fyrir sjúkraviótöl til þess aó ýta á eftir auknum greiösl- um frá heilbrigðiskerfinu. Fyrstu þrjár vikurnar eftir að gjaldtökur þessar hófust, fækk- aði viðtalsbeiðnum um nærri 80%. Gjöldin hafa numið frá sem svarar um 360 ísl. kr. fyrir viðtal á stofu, á viðtalstíma, upp í 5000 kr., að sagt er, fyrir næturvitjun í heimahúsi. Danir virðast frem- ur hafa valið bann kostinn að þreyja af smámagapínu en leggja enn þyngri þrautir á pyngjuna sína. Nýleg Gallup-skoðanakönnun leiddi í ljós, að 60% þeirra, sem spurðir voru, og þar á meðal voru vinstrisinnar, sem venju- lega styðja hvers konar launa- baráttu, töldu kröfur læknanna ekki nægilega rökstuddar. Þegar tillit er tekið til þess, að meðallaun i Danmörku eru sem svarar u.þ.b. 600 þús. kr. ísl. og læknar hafa að meðaltali jafn- gildi 1,5 milljóna ísl. kr. i laun, er e.t.v. ekki að undra, þótt kröf- urnar hafi fengið dræmar undir- tektir. Vera kann, að launadeila þessi leiði til nýrra umræðna um, hvort rétt sé,að danskur almenn- ingur greiði gjald sem svarar tæpum 200 kr. ísl. fyrir hvert læknisviðtal, eins og Svíar gera. Gjaldið hefur fækkað viðtölum í Svíþjóð niður í þrjú til fjögur á ári á íbúa. 1 Danmörku eru læknisviðtöl á hverju ári sex til sjö á íbúa. (íll itmnskm bUAinu Btfaen) Búlgarir apa eft- ir „Johnny Walker“ Lundúnum, 17. denember. AP. TALSMAÐUR breska viöskiptaráöuneytisins sagði í dag, aó Búlgarir væni farnir aó flytja út ólöglega eftirlíkingu af skosku viskíi, svokölluöu „Johnny Walker". Þetta varö uppvíst er tollarar í ítölsku hafnarborginni Ancona, geröu upptæka 22.500 kassa af viskílíkinu í búlgörsku skipi. Tollskjöl öll frá Búlgaríu voru í lagi og því aó sjá sem viskflíkió væri framleitt og flutt út meó fullu samþykki stjórnvalda í Búlgaríu. sókn. Einnig lofuðu þeir að leggja hald á þær birgðir sem kynnu að finnast i Búlgariu. Enn sem komið er hefur ekkert orðið úr efndum. Bruggarar í Skotlandi fengu fyrsta pata sinn af viskíverk- smiðjunni í Búlgaríu fyrir fjórum árum, en lítið var vitað um fram- leiðslugetu hennar. Nú hefur hins vegar frést, að verksmiðjan geti framleitt viskílíki af þessu tagi fyrir 3,5 milljónir punda ár hvert. Þrir Frakkar reistu verksmiðjuna með fullu leyfi yfirvalda í Búlg- aríu og hennar gæta vopnaðir herlögreglumenn. Bretar eru með ýmsan útflutning til Búlgariu. Mest flytja þeir þangað af.... jú, skosku viskíi. Mjöður þessi líkist mjög Johnny Walker-viskíi, liturinn, bragðið, lyktin, flöskurnar og merkingarn- ar. Það eina sem sjáanlega er at- hugunarvert í fljótu bragði er að það vantar á merkingarnar: „pro- duce of Scotland". Skoskur brugg- ari einn sagði mjöðinn ótrúlega líkan hinu eiginlega viskíi að flestu leyti og það þyrfti kunn- áttumann til að sjá í gegnum „gervið". „Það er örlítil græn slikja á glasinu þegar þú drekkur viskiið," sagði bruggarinn. Stjórnvöld í Bretlandi gerðu at- hugasemd við þennan útflutning Búlgara er viskífarmurinn fannst og lofuðu Búlgarir ýtarlegri rann-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.