Morgunblaðið - 19.12.1984, Blaðsíða 1
80 SIÐUR
STOFNAÐ 1913
251. tbl. 71. árg.________________________________MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1984_______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Gorbachev um afvopnunarmál:
Rússar tilbúnir að
slá af kröfum sínum
Lundúnum, 18. denember. AP.
MIKHAIL S. Gorbachev, talinn
annar valdamcsti maður Sovét-
ríkjanna, ávarpaði breska þingið
í Westminster í dag og sagði
að Sovétríkin væru fús til „meiri
háttar niðurskurðar“ á öllum
tegundum vopnabúra til þess að
„sækja fram til friðar og batn-
Flugræn-
ingjarfyrir
rétt í íran
andi sambúðar við hin stórveld-
in.“ Sagði Gorbachev, að lykill-
inn að batnandi sambúö og af-
vopnun væri samkomulag um að
koma í veg fyrir vígbúnaðar-
kapphlaup í geimnum.
Ávarp Gorbachevs og viðræður
hans við breska þingmenn í kjöl-
farið fóru fram fyrir luktum dyr-
um og kom þá fram í máli hans, að
Sovétmenn vildu ekki einungis
draga úr kjarnorkuvopnabúrum,
heldur vildu þeir einnig minnka
hefðbundin vopnabúr og eyða
efnavopnum. Aðspurður um bág
mannréttindi í Sovétríkjunum,
virtist Gorbachev nálægt því að
bregðast reiðilega við er hann
varði með oddi og egg mannrétt-
indi -í Sovétríkjunum. Síðar, er
hann snæddi hádegisverð með
breskum þingmönnum, kvað við
annan tón, hann sagði þá: „Ég hef
ekkert á móti erfiðum spurning-
um, sannleikurinn kemur þá helst
fram.“
Þingmenn spurðu Gorbachev
enn fremur hvaða vonir Sovét-
menn byndu við komandi afvopn-
unarviðræður stórveldanna sem
hefjast á nýjan leik í Genf 7. og 8.
janúar. Hann svaraði því til að
Sovétmenn væru allir af vilja
gerðir og reiðubúnir til meiri hátt-
ar tilslakana, það færi því eftir
hugarfari Bandaríkjamanna
hvernig til tækist, „þeir munu
finna fyrir trygga samferðamenn
ef þeir vilja fara þá braut að
draga úr kjarnorkuógninni," sagði
Gorbachev.
Símamynd AP.
Mikhail Gorbachev skoðadi Westminster Abbey-kirkjuna áður en hann
ávarpaði breska þingheiminn. Hér gengur hann frá kirkjunni að heimsókn-
inni lokinni.
Teheran, 19. deaember. AP.
AÐALSAKSÓNARI Teheranborgar,
sagði á blaðamannafundi í dag, að
flugræningjarnir fjórir sem rændu
farþegaþotu frá Kuwait á dögunum,
héldu fjölda gísla og myrtu tvo
þeirra á flugvellinum í Teheran áður
en þeir voru yfirbugaðir af Irönum,
yrðu dregnir fyrir rétt í íran. Þeir
yrðu ekki framseldir, heldur dæmdir
sarakvæmt islamskri réttvísi.
Saksóknarinn, Hojatoleslam
Mir Emadi, sagði að „fjöldi ríkja"
hefði óskað eftir framsali flug-
ræningjanna, en vegna þess að
umrædd ríki og fleiri hefðu aldrei
framselt ræningja íranskra flug-
véla, kæmi ekki til greina að verða
við „svo barnalegum kröfum," eins
og hann orðaði það. Emadi sagði
að íranska lögreglan hefði málið
til rannsóknar og stæðu yfir-
heyrslur yfir myrkranna á milli,
réttarhöldin myndu hefjast er
þeim væri lokið, en að öðru leyti
vildi hann ekkert um málið segja.
Hann sagði að þjóðerni og tilgang-
ur ræningjanna myndi engu máíi
skipta, þeir yrðu dæmdir sam-
kvæmt írönskum lögum og myndu
fá makleg málagjöld.
Kóleru-
faraldur
Dar es Salum, Tanuniu, 19. desember. AP.
KÓLERUFARALDUR hefur brotist
út í Lindi-héraði í Tansaníu. Veik-
innar varð þar fyrst vart í síðasta
mánuði, en síðan hafa fjölmargir
veikst og 30 látið lífið. Svæðið er nú
í sóttkví og einu tengsl þess við um-
heiminn eru um flugvélar hersins í
landinu. Þær flytja lyf og vistir.
Svæðið sem um ræðir er við
Indlandshafsströndina og yfirvöld
í Tanzaníu hafa stranga gæslu
með allri strandlengjunni til þess
að koma I veg fyrir útbreiðslu
sjúkdómsins. Venjulega byrjar
kólera á því aö sjúklingarnir
drekka mengað vatn.
Ronald Reagan:
8,7 milljarða útgjalda-
niðurskurður til hermála
Washington, 18. desember. AP.
RONALD Reagan Bandaríkjaforseti lýsti í dag talsverðum sam-
drætti í útgjöldum til varnarmála er áætlaðar tölur fyrir komandi
fjárlagaár voru gerðar opinberar. Er um 8,7 milljarða dollara sam-
drátt að ræða, en ýmsir fjármálasérfræðingar í Bandaríkjunum
telja að betur megi ef duga skuli til að jafna greiðsluhalla Banda-
ríkjanna.
Larry Speaks, talsmaður for-
setans, sagði að helstu ráðgjafar
forsetans í fjármálum hefðu
lagt að honum að slá 8 milljarða
dollara af útgjöldunum til varn-
armála og því væri hér um 700
milljónum dollara meiri sam-
drátt að ræða. Á hinn bóginn
myndi samdrátturinn nema ein-
ungis 28,1 milljarði dollara yfir
þriggja ára tímabil, en ráðgjaf-
ar forsetans höfðu gefið upp að
samdráttur á því tímabili yrði
að nema 58 milljörðum ef takast
ætti að minnka að gagni 100
milljarða greiðsluhalla Banda-
ríkjanna við útlönd. Speaks
sagði að þrátt fyrir tölurnar
hefði forsetinn ekki horfið frá
markmiðum ráðgjafa sinna, það
væri hins vegar verið að vinna
að því hvernig hægt væri að ná
þeim.
Caspar Weinberger, varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna,
hefur barist gegn hvers kyns
minnkun fjárveitinga til varn-
armála, sagði að hann væri
„bara ánægður" með tölurnar,
því það væri ekki fyrirsjáanlegt
þrátt fyrir ákveðinn samdrátt,
að framleiðsla ýmissa lykil-
vopna dragist saman.
Símamynd AP.
BEST í BETRUNARHÚS
Fyrrum knattspyrnuhetjunni George Best, sem gerði garðinn frægan
með Manchester Utd. og landsliði Norður-frlands á sínum tíma, var
settur í fangelsi i dag. Á hann að afplána 12 vikna fangelsisdóm fyrir
ölvun við akstur, líkamsárás og óspektir á almannafæri. Reyndi Best að
áfrýja dómnum en allt kom fyrir ekki. Á meðfylgjandi mynd er verið að
færa Best í svartholið.
Sjá nánar/78
Afganistan:
Andspyrnumenn
færast í aukana
Nýju Delhí, 19. desember. AP.
ANDSPYRNUMENN, sem berjast gegn Sovétmönnum og leppstjórn þeirra í
Afganistan, hafa látið mikið til sín taka upp á síðkastið. Harðir bardagar hafa
verið háðir í og skammt fyrir utan höfuðborgina Kabúl og dynjandi skothríð
heldur vöku fyrir borgarbúum hverja nótt. Mikið mannfall hefur verið bæði
í röðum andspyrnumanna og ekki síður stjórnarhermanna og Rússa. Þá hafa
andspyrnumenn hæft raforkuver þannig að rafmagn hefur farið af stórum
hluta Kabúl. Miklir vetrarkuldar eru
blóðsúthellingum.
Vestrænir stjórnarerindrekar
sem ekki vildu láta nafna sinna
getið sögðu mest ganga á í vestur-
hluta Kabúl, þar sem helstu mið-
stöð Sovétmannanna er að finna.
Segja þeir fjölda sjúkrabifreiða
hafa verið á þönum til og frá
hverfinu og flugvellinum, fullar af
særðum Rússum, en flugvélarnar
hafi flutt þá til læknismeðferðar
heima í Sovétríkjunum. Sem fyrr
var erfitt að ná tölum um mann-
nú í landinu. en þeir draga ekki úr
fall.
Þessar auknu aðgerðir and-
spyrnumanna eiga rætur að rekja
til þess, að 27. desember eru fimm
ár liðin frá innrás Sovétríkjanna í
landið. Nú eru í Iandinu á annað
hundrað þúsund hermenn sem
berjast við hlið afganska stjórn-
arhersins. Búist er við enn vax-
andi umsvifum andspyrnumanna
og í kjölfarið á því, að venju,
hefndaraðgerðum Sovétmanna.