Morgunblaðið - 19.12.1984, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1984
51
Eigendur og yfirþjónn: Árni Eyjólfsson, yfirþjónn, Sigrid Foss, Guómundur Jónsson, Sesselja Siguróardóttir, Örn
Grétarsson, Kristín Gunnarsdóttir og Sigurður Þór Sigurósson.
Selfoss:
Veitingastaðurinn Gjáin opnar
Selfowi, IS. desember.
í G/ERKVÖLDI opnaði hlutafélagið
Rúkolla, þar sem hluthafar eru þrenn
ung hjón hér á Selfossi, veitingastað í
gamla KÁ-húsinu við Austurveg.
Gjáin, eins og staðurinn nefnist,
tekur með góðu móti 90 manns í
sæti. Teikniver, Selfossi, hannaði
húsnæðið í samráði við eigendur.
Níu manns vinna á staðnum, yfir-
þjónn er Árni Eyjólfsson.
Margt var um manninn við
opnunina og rómuðu gestir hlýlegt
umhverfi og notalegt andrúmsloft.
Sérlega var vandað til innréttinga
og allrar þjónustu. Opið verður þrjú
kvöld í viku, fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagskvöld. Heldur
þótti gestum þó einkennilegt að ekki
skyldi fást leyfi að hafa staðinn
opinn á sama tíma og á sams konar
stöðum í Reyjavík. Þeir veltu því
fyrir sér hvers vegna fólk austan
Hellisheiðar sæti ekki við sama borð
hvað þetta varðaði. Vonandi verður
þessu breytt fljótlega.
— Haukur.
Hluti gesta við opnun staðarins.
Einstaklingar
Minni f jölskyldur
Nú er tækifærið að eignast glæsilegan og góðan
örbylgjuofn frá
Komdu til okkar og kynntu þér hvernig þú getur
steikt, soðið og bakaö allan venjulegan mat á
örskammri stund.
Hvernig þú getur affryst matvæli á stuttri stund og
gert þér heilsusamlega máltíð á auöveldan og hag-
stæöan hátt.
Meö Toshiba ofninum fylgir matreiðslunámskeið
og þú getur orðið listakokkur eftir stuttan tíma.
Við fengum takmarkað magn á þessu hagstæða
verði kr. 11.490. Hagstæð kjör útb. 3.000 og eftir-
stöðvar 1.500 kr. á mánuði.
Líttu við og ræddu viö okkur um hvernig Toshiba
ER 539 ofnin getur gjörbreytt matreiðslunni.
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
Bergstaðastræti 10 A Sími 16995
VIÐBURÐARIKT
KNATTSPYRNUÁR 1984!
íbók Víðis Sigurðssonar, Islensk knattspyrna
1984 er allt um viðburði ársins: sigrana, glæsimörk-
in, baráttuna, ósigrana.
Sumir atburðir munu seint gleymast, t.d. sigurinn á
Walesbúum á Laugardalsvellinum í undankeppni HM
og glæsilegur árangur Ásgeirs Sigurvinssonar í
Vestur-Þýskalandi, en íslensk knattspyrna
1984 varðveitir þá alla.
Litmyndir af meistaraliðum ársins 1984, ítarlegar
upplýsingar um félög og leikmenn. Leikir allra
leikmanna í 1. og 2. deild karla og 1. deild kvenna.
Mörkin. Svart/hvítar myndiraf öllum liðum 1. deildar
karla og lokastöður í öllum deildum og flokkum
íslandsmótsins.
DAGBÓK KNATTSPYRNUNNAR 1984 í MÁLI OG MYNDUM -
VÖNDUÐ BÓK SEM GEYMIR MINNINGAR UM VIÐBURÐARÍKT KNATTSPYRNUÁR.
VATN AVIT) U N
Frásögur fjögurra þekktra veiðimanna af veiðiferðum,
veiðigleði og fengsælli vatnavitjun í fegurð íslenskrar
náttúru. Guðmundur Guðjónsson tók saman.
Hver og einn hefur sína sérvisku og aðferðir við veiðar:
Ólafur G. Karlsson tannlæknir, Rafn Hafnfjörð
prentsmiðjustjóri og Ijósmyndari, Hjalti Þórarinsson
læknir og Guðlaugur Bergmann framkvæmdastjóri
lýsa veiðum með mismunandi agni, segja skemmtileg-
ar sögur af ónefndum veiðimönnum og skynsömum
löxum og rifja upp ógleymanlegar veiðiferðir.
VATNAVITJUN - AGN SEM HVER
EINASTI VEIÐIMAÐUR BÍTUR Á.
O
Bókhlaðan