Morgunblaðið - 19.12.1984, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 19.12.1984, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1984 Stultar þingfréttir Ný lög frá Alþingi Á fundi neðri deildar Alþingis síðastliðinn mánudag voru nokkur frumvörp afgreidd sem lög. 1 fyrsta lagi frumvarp um frádrátt frá skattskyldum tekjum vegna fjárfestinga manna í atvinnu- rekstri. Þá voru lög um sérstakan barnaauka um tekjustofn sveitar- félaga, um löggilta endurskoðend- ur og um almannatryggingar. Landsvirkjun þarf 14 % gjaldskrárhækkun Landsvirkjun þarf 14% hækkun á gjaldskrá um næstu áramót og gildir sú hækkun fyrir allt næsta ár. Rafmagnsveitur ríkisins þurfa um 20% hækkun og er þörf Raf- magnsveitu Reykjavíkur sú sama. Þetta kom fram í máli iðnaðarráð- herra, Sverris Hermannssonar, við umræður um verðjöfnunar- gjald af raforku á fundi neðri deildar síðastliðinn mánudag. Ráðherra gerði hins vegar fyrir- vara á áreiðanleika þessara talna. Tollskrá Neðri deild samþykkti á fundi sl. þriðjudag frumvarp fjármála- ráðherra um tímabundna heimild til að leggja á jöfnunargjald á hús og húshluta og var því vísað til efri deildar. Gjaldinu er ætlað að . rétta við hlut innlendrar húsa- gerðar gagnvart samkeppni er- lendis frá, en það á samkvæmt frumvarpinu að falla niður 31. desember 1985. Vörukaup opinberra stofnana nema 7—9 milljörðum króna GERA má ráð fyrir að vöruinnkaup opinberra stofnana nemi um 7—9 milljörðum króna á ári, ef miðað er við að 40—50% af rekstrarkostnaði þeirra fari í vörukaup. Því er Ijóst að mikilvægt er að vel takist til í innkaupum þessara aðila. Morgunblaðið/Ól.K.M. Austfjarðaþingmenn Egill Jónsson og Sverrir Hermannsson, þingmenn Austfirðinga, bera saman bækur sínar í hliðarsal þinghússins. Þetta eru niðurstöður lauslegr- ar könnunar Hagvangs hf. á inn- kaupum opinberra aðila á iðnað- arvörum og gerð var að beiðni iðn- aðarráðherra, Sverris Her- mannssonar, en hann kynnti þær í fyrirspurnatíma sameinaðs þings síðastliðinn þriðjudag. f svari ráðherra við fyrirspurn frá Eggert Haukdal, Sjálfstæðis- flokki, um þetta mál kom fram að Hagvangur gerði tillögur til úr- bóta en athuga þarf hlutverk Inn- kaupastofnunar ríkisins og sam- skipti hennar við opinbera aðila. Norskt sjónvarp til fslands: Engar formlegar viðræður — sagði ráðherra. Könnunarviðræður íslenska og norska sjónvarpsins æskilegar Ragnhildur Helgadóttir, menntamálaráðherra, sagði á Alþingi í gær að engar formlegar viðræður hefðu farið fram um móttöku norsks sjónvarpsefn- is, aðeins óformleg skoöanaskipti milli menntamálaráðherra landanna. Ráð- herra kvað það vinnulag eðlilegt, að sínu mati, að RÚV verði falið að hefja könnunarviðræður við norska ríkisútvarpið um þetta efni, og umræða og ákvörðun reist á niðurstöðum þeirra viðræðna. Ráðherra nefndi þann mögu- leika að nýta þann tíma sólar- hrings, sem dreifikerfi sjónvarps Qpinberar stofnanir: Flestar án lax- veiðikostnaðar Erlendir gestir hjá nokkrum Flestar opinberar stofnanir svara fyrirspurnum frá Stefáni Benediktssyni (BJ) um kaup á laxveiðileyfum 1980—1983 á þá lund að til þeirra hafi ekki komið á þessum tíma. Þetta gildir um öll ráðuneytin og flestar stofnanir þeirra. Þá kemur fram að fjármálaráðuneytið varði fimm hundruð krónum til kaupa á tveimur silungsveiðileyfum í Meðalfellsvatni fyrir hálfan dag. er ekki nýtt nú, til útsendingar á hinu norska efni. Þá væri fyrst og fremst um að ræða morgunefni fyrir fullorðið fólk, fræðsluþætti ýmiss konar og síðdegisefni helgað börnum. Norðmenn senda þetta efni til Svalbarða og það er tæknilega auðvelt að ná því hér. Móttöku- kostnaður yrði að sjálfsögðu okkar, en ekki mikill. Ekki yrði krafizt höfundarlauna fyrir efni, sem starfsfólk norska sjónvarps- ins semur, en svo væri um stærst- AIÞIftGI an hluta efnis á þessum tíma sólarhrings. Að öðru leyti yrði kostnaðarþáttur málsins að koma í ljós í könnunarviðræðum milli íslenzka og norska sjónvarpsins. Framangreint kom fram í svari ráðherrans við fyrirspurn frá Eiði Guðnasyni (A). Eiður og fleiri þingmenn stjórnarandstöðu kröfðust upplýsinga um kostnað- arþátt málsins, ef til kæmi; töldu norska sjónvarpið ekki það skemmtilegasta í heiminum; nauðsynlegt væri að texta efnið í dreifingu hér og fá fram umræðu um það í þinginu. Ellert B. Schram (S) og Gunnar Schram (S) töldu tækniþróun í dreifingu sjónvarpsefnis það öra að íslenzk einangrun væri út í hött, enda kröfur fslendinga um valfrelsi til sjónvarpsefnis vax- andi. Sá síðarnefndi benti á brezkt Ragnhildur Helgadóttir sjónvarpsefni, sem væri yfirleitt vandað, og hægt væri að ná hér innan skamms. Aukning erlendra skulda 1985: Samsvarar 6 % af útflutningstekjum Gert er ráð fyrir að erlendar skuldir þjóðarbúsins í formi langra lána nemi 42.660 milljónum króna miðað við meðalgengi ársins, að því er fram kemur í fjárfestingar- og lánsfjáráætlun fyrir komandi ár. Greiðslubyrði erlendra lána í hlutfalli af útflutningstekjum er 23% 1984 og verður svipuð næsta ár. Ríkisstofnanir, sem varið hafa fjármunum i slík leyfi, fyrir er- lenda og innlenda gesti, eru: Landsvirkjun, Seðlabanki, Lands- banki, fslenzka járnblendifélagið. Samkomudagur þings á nýju ári: „Eigi síðar en 28. jan.“ Forsætisráðherra lagði fram í gær tillögu til þingsályktunar um frestun á fundum Alþingis, samkvæmt 23. grein stjórnarskrárinnar. Tillagan gerir ráð fyrir „að fundum þingsins verði frestað frá 20. desember eða síðar, ef henta þykir, enda verði það kvatt saman á ný eigi síðar en 28. janúar 1985“. Samkvæmt þessari tillögu er stefnt að því að þingi ljúki fimmtudaginn 20. desember nk. Ekki er þó víst að svo verði, enda mörg mál óútkljáð, sem æskilegt er að afgreiða fyrir þinghlé. Mikill þungi hefur verið í þing- störfum, eins og oft áður á þessum tíma. Þannig vóru 86 mál á dagskrá tveggja funda í samein- uðu þingi í gær, en fyrirséð, að aðeins hluti þeirra fengi umfjöll- un þann daginn, hvað þá endan- lega afgreiðslu. Greiðslur Seðlabanka nema frá kr. 31 þúsundi til 245 þúsunda á ári, greiðslur Landsbanka frá 52 þúsund til 387 þúsunda, greiðslur Landsvirkjunar vóru 68 þúsund 1980 og 144 þúsund 1982 en engar hin árin og greiðslur Járnblendifé- lags frá 12 upp í 58 þúsundir á ári. Búnaðarbankinn segist hinsveg- ar aldrei hafa keypt laxveiðileyfi og segir vonandi, að þessar upp- lýsingar fullnægi „fróðleiksfýsn hlutaðeigandi þingmanns og valdi ekki vonbrigðum". Auk endurgreiðslu af löngum erlendum lánum að fjárhæð 4.700 m.kr. er áætluð lántökuþörf vegna viðskiptahalla 1985 4.800 m.kr. Nýjar erlendar lántökur eru áætl- aðar alls 8.500 m.kr., þ.e. 7.300 m.kr. til langs tíma og 1.200 m.kr. í formi skammtímalána. Þrátt fyrir þetta eru horfur á að greiðslujöfnuður verði óhagstæð- ur um allt að 1.000 m.kr. sem jafn- framt rýrir gjaldeyrisstöðuna. Eins og fyrr segir er heildar- innkoma langra erlendra lána 1985 áætluð 7.300 m.kr. en endur- greiðsla 4.700 m.kr. Hrein aukning erlendra skulda er því áætluð 2.600 m.kr. eða sem svarar 6% af útflutningstekjum og 3% af áætl- aðri þjóðarframleiðslu. Er það ívið Iægra hlutfall en 1983 og 1984. Heildarlánsfjáröflun 1985: Tæpír tíu milljarðar króna — 7,3 milljarðar erlend lán Ileildarlánsfjáröflun opinberra aðila, Framkvæmdasjóðs og annarra lánastofnana auk atvinnuvega, nemur alls 9.868 m.kr. samkvæmt fjár- festingar- og lánsfjáráætlun 1985, sem lögð var fram á Alþingi í gær. Þar af standa áform til erlendrar lántöku 7.300 m.kr., sem er nánast sú fjárhæð sem stjórnvöld settu sem „þak“ á erlendar lántökur 1985, en innlend lánsfjáröflun 2.568 m.kr. íbúðarlánasjóðir 1.558 m.kr. 5) Lánastofnanir 1.372 m.kr. og 6) Atvinnufyrirtæki 1.836 m.kr. I inngangi lánsfjáráætlunar segir að innlenda fjáröflunin sé Heildarlánsfjárþörfin skiptist þannig: 1) Ríkissjóður, A- og B-hluti, 3.149 m.kr. 2) Fyrirtæki með eignaraðild ríkissjóðs 1.800 m.kr. 3) Sveitarfélög 153 m.kr. 4) „einkar ótrygg á næsta ári“. Veigamesti þáttur hennar er kaup lífeyrissjóða á skuldabréf- um húsbyggingarsjóða og fram- kvæmdasjóðs, 40% af ráðstöfun- arfé þeirra. Þá segir ennfremur að „skuldabréfa- og spariskír- teinamarkaðurinn hafi reynzt einkar óviss á þessu ári“. Þá segir svo orðrétt í áætlun- inni: „Það er ávallt nokkrum vand- kvæðum bundið að áætla lántök- ur atvinnuvega. Líta verður í samhengi á lántöku Fram- kvæmdasjóðs, og þar af leiðandi ráðstöfunarfé atvinnuvegasjóð- anna, til nýs þróunarfélags og beinar erlendar lántökur at- vinnufyrirtækja. Alls eru þetta um 3.300 m.kr. ... “ Lánsfjáráætlun fyrir 1985 er unnin í samvinnu Fjárlaga- og hagsýslustofnunar, Fram- kvæmdastofnunar, Seðlabanka og Þjóðhagsstoínunar, eins og hliðstæðar áætlanir gengin ár. Palli var einn í heiminum hin heimsfræga barnabók, sem þýdd hefur veriö á 37 tungumál, er komin í bókaverslanir eftir langa fjarveru. Þetta veröur jólabók barnanna í ár. Bókaútgáfan Björk.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.