Morgunblaðið - 19.12.1984, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1984
3
Koffeinlaust
kaffi á markað
KAFFIBRENNSLA Akureyrar, sem framleiðir BragakafTi, hefur unnið að
framleiðslu á koffeinlau.su kaffi, sem væntanlegt er á markað nú um áramót-
in. Að sögn Gunnars Karlssonar, framkvæmdastjóra, fer vinnslan á kaffinu
fram í l'yskalandi, þar sem koffeinið
fjóra til fimm daga.
Gunnar Karlsson sagði enn-
fremur að þótt koffeinið væri síað
úr kaffinu hefði það engin áhrif á
bragð eða ilm og því væri hið nýja
kaffi tilvalið fyrir þá, sem vildu
njóta kaffidrykkju, án þess að
setja í sig of mikið af koffeinefn-
inu. Notkun hins koffeinlausa
kaffis væri til dæmis upplögð á
kvöldin, þar sem fólk þyrfti ekki
að óttast svefnleysi eftir kaffi-
drykkjuna. Gunnar sagði enn-
fremur, að á undanförnum árum
hefði þörfin fyrir koffeinlaust
kaffi aukist hér á landi enda
síað úr kaffinu og tekur vinnslan um
margir, sem hvorki vildu né
mættu neyta koffeins, en vildu
hins vegar ekki vera án kaffisins,
og væri þetta því góð lausn fyrir
þá.
Gunnar sagði að verði á hinu
koffeinlausa kaffi yrði stillt mjög
í hóf, þrátt fyrir kostnað sem því
fylgdi að láta sía koffeinið úr í
Þýskalandi. Væri reiknað með að
koffeinlausa kaffið yrði á sama
verði og „Colombía-kaffið", sem
var um 40 krónur pakkinn í heild-
sölu nú um mánaðamótin nóv-
ember-desember.
Fengi gengur vel á
Grænhöfðaeyjum
FISKVKIÐIVKRKKFNI Fengs, skips Þróunarsamvinnustofnunar íslands
sem fór til Grænhöfðaeyja sl. apríl, hefur gengið framar öllum vonum.
Verkefnið er fólgið í því að kenna eyjaskeggjum nýja veiðitækni, meðferð
nýstárlegs veiðibúnaðar, aðstoða þá við leit að nýjum fiskimiðum og byggja
upp aðstöðu til fiskirannsókna.
Að sögn Þórs Guðmundssonar,
framkvæmdastjóra þSSÍ vann
Fengur fyrst að fiskveiðirann-
sóknum undir stjórn Jakobs
Magnússonar fiskifræðings en var
síðan við togveiðar fram á haust.
Voru þær veiðar mjög árangurs-
ríkar og fann skipið eftirsótta
fisktegund i mjög miklum mæli
sem ekki hefur verið nýtt þar áð-
ur. Sl. haust var Fengur við tún-
fiskveiðar og lauk veiðitímabilinu
í lok nóvember. Gengu veiðarnar
mjög vel og var heildarafli rúm 50
tonn. Mun helsta vandamálið við
túnfiskveiðarnar vera beitu-
öflunin, en eyjaskeggjar nota lif-
andi beitu.
Um þessar mundir er Fengur
við humarveiðar og notar til þess
gildrur. Jafnframt er skipið við
leit að nýjum humarmiðum og
hefur hvort tveggja gengið mjög
vel. Einn liður Þróunarverkefnis-
ins er að kortleggja fiskimiðin
umhverfis Grænhöfðaeyjar til að
auðvelda eyjaskeggjum veiðarnar
og leita nýrra miða með aukinn
fiskútflutning í huga. Sagði Þór
Guðmundsson að Fengur yrði við
humarveiðar fram í janúar en
ekki væri enn lokið verkáætlun-
inni fyrir næsta ár.
wT. m
Um 30 tonn af bréfum og bögglum voru afgreidd frá Póstmiðstöðinni við Ármúla í gær.
Um 250 ungmenni við útburð á jólapósti
í G/KR hófu 250 börn og unglingar
störf hjá Pósti og síma við útburð á
jólapóstinum. Um 30 tonn af bréfa-
og bögglapósti fóru um póstmið-
stöðina við Ármúla í gær en greið-
lega hefur gengið að koma honum á
áfangastaði, bæði flugleiðis og
landleiðis. Lítið var flogið innan-
lands um helgina vegna veðurs og
töfðust póstflutningar því nokkuð
en nú hefur verið tekið upp eðlilegt
flug á ný.
Björn Björnsson, póstmeistari í
Reykjavík, sagði að afgreiðsla á
jólapósti gengi nú mjög greiðlega
og sá póstur sem færi um póst-
miðstöðina staldraði þar stutt
við. í gær fór vöruflutningabif-
reið hlaðin pósti á Austfirði og
pósti á Vestfirði hefur verið kom-
ið í skip. Sagði Björn að bréfa-
magn um þessi jól virtist vera
svipað og áður en hins vegar væri
það alltaf að færast í aukana að
fólk sendi böggla sín á milli.
Sæbjargarstrandið:
Óvíst hvort einhverju
verður hægt að bjarga
SÆBJÖRG VE 56 liggur enn á hlið-
inni í liornsvík þar sem hún strandaði
á mánudagsmorgun. í gær hugðust
fulltrúar tryggingarfélags útgerðar-
innar, Tryggingamiðstöðvarinnar hf.,
fara um borð til að kanna ástand
skipsins og hvort einhverju væri hægt
að bjarga en það reyndist ekki hægt
vegna veðurs.
Björgunarsveitin á Höfn mun
fylgjast með bátnum þar til unnt
verður að komast um borð og skera
úr um hvort mögulegt er að bjarga
skipinu. Líkur eru taldar á að það
verði hægt að gera á morgun eða
föstudag. Telja flestir vonlítið með
björgun skipsins og að sú von verði
enn minni með hverjum deginum
sem líður því skipið er á stöðugri
hreyfingu í grjóturð. Tryggingamat
Sæbjargarinnar, sem er 19 ára
gömul, er 29,4 milljónir kr., en það
er eitt lægsta mat á loðnubáti í öll-
um flotanum. Tryggingamat báts-
ins, nótar og farangurs skipverja er
samtals 31,6 millj. kr. Búist er við
að sjópróf fari fram í Vestmanna-
eyjum á morgun.
Va^ K( k & t>y9
FS&ttJ
,----/, / '-»um St;t, 9*ði
Mi
. &ugott n ^onsUtn "Wu,,. ,
, kaL,- '
^ ***».-:
va,.m.n
' - --.J ÍOo
vndi.
enon
Síríus
Konsum
suðusúkkulaöi
Gamla góða Síríus Konsum
súkkulaðið er í senn úruals
suðusúkkulaði og gott til átu. Það
er framleitt úr bestu hráefnum, er
sérlega nærandi og drjúgt til suðu
og í bakstur, enda jafnuinsælt í
nestispökkum ferðamanna og
spariuppskriftum húsmæðra.
Síríus Konsum er uinsælast hjá
þeim sem uelja bara það besta.
jmO s Sífffa