Morgunblaðið - 19.12.1984, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1984
Flugleiðir hafa
leigt DC 8 71
— Fullnægir kröfum vegna hávaðameng-
unar i Bandaríkjunum
FLUGLEIÐIR hafa tekið á leigu flugvél af gerðinni IK' 8 71 frá bandaríska
flugfélaginu National Airlines. Flugvélin er með nýrri gerð hreyfla, sem
fullnægja kröfum í Bandaríkjunum um hávaðamengun á flugvöllum. Vélin er
leigð til eins árs, en hún kom til landsins sl. Töstudag og fer í fyrsta
farþegaflug sitt á föstudaginn kemur.
Að sögn Leifs Magnússonar hjá
Flugleiðum var ákveðið að taka
flugvélina á leigu á meðan óljóst
var um hvort undanþágur fengj-
ust frá kröfum um búnað flugvéla
vegna hávaðamengunar í Banda-
ríkjunum. Enn er óljóst, hvort
undanþaga fæst til lendinga í New
York og verður vélin því notuð í
flug þangað, ef ekki fæst undan-
þága.
Leifur sagði, að með tilkomu
vélarinnar gætu Flugleiðir haldið
uppi áætluðu flugi þangað, þrátt
fyrir að umbeðinni undanbágu
yrði hafnað. Hann var þá spurður,
hvort ekki mætti draga undan-
þágubeiðnina til baka. Hann svar-
aði því til, að betri hagkvæmni
næðist í rekstri, ef unnt yrði að
nota allar vélarnar þrjár til jafns
á Norður-Atlantshafsflugleiðinni.
Þá væri leiguvélin ekki með sömu
burðargetu og vélar Flugleiða á
þessari flugleið sem eru að gerð-
inni DC 8 63. Leifur sagði enn-
fremur, að Flugleiðir væntu svars
frá New York í fyrstu viku janú-
armánaðar.
Morgunbla9iJ/Bjarni
Frá vinstri: Guðmundur Einarsson, framkv.stj. Hjálparstofnunar kirkjunnar, Halldór Halldórsson, skipstjóri, Georg
Stanley Aðalsteinsson, skipstjóri, Arndís Pálsdóttir og herra Pétur Sigurgeirsson, biskup íslands.
Verða við hjálparstörf
í Eþíópíu næstu tvö ár
Ásgrímur Pálsson
framkvœmdastjóri látinn
ASGRÍMUR Pálsson, framkvæmda-
stjóri Hraðfrystihúss Stokkseyrar,
lézt síðastliðinn mánudag 17. des-
ember, 54 ára að aldri. Hann fædd-
ist í Siglufirði 13. ágúst 1930.
Ásgrímur var sonur hjónanna
Sigríðar Indriðadóttur og Páls Ás-
grímssonar í Siglufirði. Móðir Ás-
gríms lézt er hann var 5 ára og
eftir það ólst hann að mestu upp
hjá föðursystur sinni og manni
hennar að Grund í Svarfaðardal.
17 ára hélt hann til náms í
Menntaskólanum á Akureyri og
lauk þaðan gagnfræðaprófi 1948.
Hann hætti síðan námi þar 1950
og fór þá til sjós og var á togurum
og minni bátum um nokkurn tíma.
Hann lauk síðar farmannaprófi
frá Stýrimannaskólanum og var
eftir það á millilandaskipum, með-
al annars stýrimaður á skipum
Sambandsins. Hann hætti síðan
sjómennsku og vann um tíma við
flugumsjón. 1960 hóf hann störf
við útgerð, fyrst með tengdaföður
sínum í Keflavík, en nokkru
seinna gerðist hann framkvæmda-
stjóri Hraðfrystihúss Stokkseyrar
og gegndi þeirri stöðu til dauða-
dags.
Ásgrímur átti sæti í stjórn
Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna um árabil og sat einnig í
stjórn Coldwater og Umbúðamið-
GEORG Stanley Aðalsteinsson skip-
stjóri og eiginkona hans, Arndís
Pálsdóttir, fara í dag til Eritreu í
N-Eþíópíu þar sem þau munu dvelj-
ast við hjálparstörf í tvö ár. Þau
hjónin fara utan á vegum Lúterska
alheimssambandsins og Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar og verður starf
þeirra fólgið í því að kenna innfædd-
um að nýta sér hin auðugu fiskimið
stöðvarinnar. Hann átti um tíma
sæti í hreppsnefnd Stokkseyrar og
sýslunefnd Árnessýslu fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn.
Ásgrímur var tvíkvæntur. Fyrri
kona hans var Anna Þorgríms-
dóttir úr Keflavík og slitu þau
samvistir, en síðari kona hans var
Ragnheiður Hermannsdóttir úr
Hafnarfirði og lifir hún mann
sinn. Ásgrímur átti tvö börn með
fyrri konu sinni og eitt barn eign-
aðist hann fyrir hjónaband.
514 stjórnir,
nefndir og ráð
FIMM hundruð og fjórtán
stjórnir, nefndir og ráð störfuðu
á vegum ríkisins á síðasta ári og
cru þá forsætisráðuneytið og iðn-
aðarráðuneytið undanskilin. Það
fyrrnefnda sendi engar upplýs-
ingar og frá því síðarnefnda bár-
ust upplýsingar of seint til fjár-
laga- og hagsýslustofnunar fjár-
málaráðuneytisins til að hægt
væri að taka þær með í árlega
skýrslu um stjórnir, nefndir og
ráð ríkisins.
í þeim 514 stjórnum, nefnd-
um og ráðum, sem í skýrslunni
eru, starfaði 2.721 nefndar-
maður. Nefndaþóknanir námu
tæpum 25 milljónum króna og
annar kostnaður tæpum 2,7
milljónum.
Flestar nefndir störfuðu á
vegum menntamálaráðuneytis-
ins; 168, og næstflestar á veg-
um heilbrigðis- og trygginga-
ráðuneytis, 65, en þess má geta,
að árið 1982 störfuðu 73 nefnd-
ir á vegum iðnaðarráðuneytis.
við strendur N-Eþíópíu, þar sem
hungursneyðin er mest.
{ byrjun þessa árs dvaldist Hall-
dór Halldórsson skipstjóri á sömu
slóðum um tveggja mánaða skeið,
þar sem hann lagði drögin að
hjálparstarfi því sem þau hjónin
munu vinna. Sagði hann á fundi,
sem haldinn var með blaðamönn-
um í vikunni að viðstöddum þeim
hjónum, að áður hefðu fiskveiðar
verið blómlegar í N-Eþíópíu. Borg-
arastyrjöld sú sem þar hefur geis-
að í 25 ár hefði hins vegar orðið
þess valdandi að fiskveiðar hafa
lagst niður og kunnáttan meira
eða minna glatast.
Georg Stanley hefur starfað við
sjávarútveg í 30 ár, sem sjómaður
og skipstjóri. Kváðust þau hjónin
ekki fara þessa ferð til að svala
ævintýraþránni heldur hefðu þau
bennandi áhuga á því að leggja
sitt af mörkum til hjálpr við hina
sveltandi þjóð. Georg hefur und-
anfarna mánuði unnið að því að
undirbúa sig sem best til fararinn-
ar og aflað þeirra tækja og veið-
arfæra sem til þarf. Verður starf
hans fólgið í því að kenna Eþíópíu-
búum netagerð, smábátaútgerð og
varðveislu fiskafurða.
Þau Georg og Arndís sögðu að
lokum að það væri mikið starf
framundan, sem ekki yrði unnið á
tveimur árum, en þó vonuðust þau
til að geta komið sem mestu til
leiðar með hjálparstarfi sínu.
Teikning Muggs enn ófundin:
„Vona að myndin komist
til skila fyrir jólin“
— segir eigandi teikningarinnar, frú Elísabet Waage
TEIKNINGIN eftir Mugg, sem stol-
ið var af sýningu í Listasafni alþýðu
sl. lostudag, var enn ófundin í
gærkvöldi. I fyrrakvöld hafði Rann-
sóknarlögregla ríkisins upp á manni,
sem talið var að hefði vitneskju um
afdrif myndarinnar, en eftir yfir-
heyrslur töldu lögreglumenn að
hann hefði ekki átt hlut að máli.
Myndina á frú Elísabet Egilson
Waage. Muggur teiknaði myndina
af henni sofandi þegar hún var
þriggja ára gömul árið 1913. Þá
Golf á sunnudag —
snjóleikir mánudag
Akureyri, 17. desember.
UM MIÐJAN dag í gær lauk á
golfvcllinum á Akureyri síðasta
golfmóti ársins, þegar starfsfólk Ut-
vegsbankans efndi til golfkeppni
með þátttöku um 10 golfleikara.
Fleiri nýttu sér góða veðrið í gær og
eltu litlu, hvítu kúluna á Jaðri og
segja má að það hafi ekki mátt
seinna vera, því með kvöldinu tók
að snjóa og í morgun var hér jafn-
fallinn allt að 15 sm snjór. Það mun
vera einsdæmi hér á Akureyri að
golfkeppni skuli fara fram á þess-
um árstíma og segir allnokkuð um
þá einmuna veðurblíðu sem verið
hefur hér norðan fjalla allt frá því
snemma t vor. — En börnin á Akur-
eyri kunnu svo sannarlega að meta
snjókomuna og voru fljót til að
bregða sér í hefðbundna snjóleiki.
G.Berg.
Morgunblaðið/KGA
{ golfi á Jaðarsvelli á sunnudag, flestir fóru eftir auðum brautunum, en á
stundum lenti boltinn þó ofan í skurðum eins og gengur.
Mor«unblaðið/G.Bern.
Krakkarnir voru ánægðir með snjókomuna og eldri Akureyringar töluðu
um að nú væri orðið jólalegt.
Teikningin eftir Mugg, sem stolið
var. Myndina teiknaði Muggur árið
1913 af Elísabetu Egilson Waage,
sem nú er eigandi hennar.
var Muggur 22 ára. Elísabet eign-
aðist myndina, sem ber nafnið
„Beta“ að ljósmóður sinni, Þuríði
Bárðardóttur, látinni. „Þetta kem-
ur óneitanlega við mig, myndin
var svo persónuleg," sagði Elísa-
bet í samtali við blaðamann Mbl. í
gær. „Myndin hafði aldrei verið
lánuð út fyrr — það hvarflaði ekki
að mér að lána hana fyrr en farið
var að vinna að bókinni um Mugg.
Þessi mynd er eini erfðagripurinn,
sem ég hef eignast í lífinu og hún
er mér enn kærari fyrir það, að
aftan á hana hafði Þuríður skrif-
að: Að mér látinni á Elísabet Eg-
ilson þessa mynd.“
Þau Muggur og Elísabet þekkt-
ust vel, þau bjuggu í sama húsi,
hún var komin undir fermingu
þegar hann lést aðeins 33 ára
gamall árið 1922. „Ég man vel eft-
ir honum — þegar hann dó fannst
mér lífið í fyrsta skipti grimmt,"
sagði Elísabet.
Nú sagðist hún bíða og vona að
myndin kæmi óskemmd í leitirn-
ar. „Ég vona bara að þetta sé ekki
einhver ólánsmaður, sem eyöilegg-
ur hana, ég vona að hann finnist,
skili myndinni, verði síðan sleppt
og óskað gleðilegra jóla. Ég er
hrædd um að mér þættu jólin
heldur dapurlegri ef myndin verð-
ur ekki komin í leitirnar," sagði
frú Elísabet Waage.