Morgunblaðið - 19.12.1984, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.12.1984, Blaðsíða 2
2____________________ Sjávarafurðadeild SÍS: MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1984 Vinakvöld á aðventu MorKunblaftið/RAX. Kór Flensborgarskóla í llafnarfirði bauð öllum bæjarbúum til „vinakvölds á aðventu“ í hátíðasal skólans í gærkvöldi. Fluttur var helgisöngleikur og hátíðatónlist var flutt af kórfélögum og hljóðfæraleikurum. Meðal annars var sungið við kertaljós. Verðfall á ísfiskmörkuðunum í Bretlandi vegna mikils framboðs: 600 lestir af „gámafiski“ héðan komnar á markaðinn 8 fiskiskip selja afla sinn þar í þessari viku MJÖG mikiö framboð á íslenzkum ísfiski í Bretlandi þessa vikuna hefur dregið verulega úr fiskverði á uppboðum þar. Hefur verðið á skömmum tíma fallið um 20 krónur á kíló. 8 íslenzk fiskiskip selja afla sinn í Bretlandi þessa vikuna og um 600 lestir af „gámafiski" héðan eru komnar á markaðinn þar. Verð fyrir gámafiskinn lá ekki fyrir í gær, en áætlað er að sölu á honum Ijúki í dag. Engin áform um útboð á flutningum „ÞAÐ hefur ekki komið til tals hjá Sjávarafurðadeild Sambandsins að leita tilboða í fiskfiutninga sína. Ástæða þess er meðai annars sú, að innan Sambandsins er skipadeild, sem við höfum skipt við til þessa. Við höfum hvorki greitt meira né minna en aðrir fyrir fiskflutninga okkar og ég á ekki von á því, að það breytist," sagði Sigurður Markússon, fram- kvæmdastjóri Sjávarafurðadeildar- innar, er Morgunblaðið innti hann eftir því, hvort deildin hygðist bjóða út flutninga sína eins og SH hefur að undanförnu gert. Morgunblaðið innti ennfremur Axel Gíslason, framkvæmdastjóra Skipadeildar Sambandsins, eftir því hvort farmgjöld á frystum fiski yrðu lækkuð hjá Skipadeildinni í kjölfar lækkunar á farmgjöldum hjá Eimskipafélaginu. Axel sagði, að fram að þessu hefðu viðskipta- vinir Skipadeildar Sambandsins aldrei þurft að greiða hærri farm- gjöld fyrir samsvarandi flutninga og hægt hefði verið að fá hjá öðrum skipafélögum. Að sjálfsögðu yrði því haldið áfram að halda við- skiptavinum Skipadeildarinnar samkeppnisfærum á þessu sviði sem öðrum. Skipadeildin stæði nú í viðræðum við fulltrúa þeirra út- flutningsaðila á fiski, sem hefðu flutt méð henni. Um það hefði hann í raun ekki meira að segja á þessari stundu. Hann sagði þó, að um verulega lækkun farmgjalda væri að ræða, sérstaklega til Sovét- ríkjanna. Hann ætti ekki von á því, að hægt væri að halda verðinu þangað í 55 dollurum lengi, það hlyti að hækka að loknu næsta ári. Viss hagræðing og gámavæðing hefði átt sér stað í freðfiskflutning- um til Bandaríkjanna og Vestur- Evrópu, sem réttlætt gæti nokkra lækkun farmgjalda, en svo væri ekki um Rússlandsflutninga. Ann- ars ætlaði hann sér ekki að tjá sig neitt um útflutningsaðferðir Eim- skipafélagsins. Slysadeild Borgarspítalans: Aberandi fjölgun eitrunar- slysa barna Varað við mislitum ilmolíum, sem freista lítilla barna MIKIÐ hefur verið um eitrunar- slys á heimilum síðustu daga. Að sögn læknis á slysadeild Borgar- spítalans er áberandi fjölgun síð- ustu daga á eitrunarslysum lítilla barna, og þar eru flest tilfellin vegna þess að lítil börn drekka ilmolíur, sem læknar rekja til jólaskreytinga. Nokkur börn hafa verið fiutt á sjúkrahús síðustu daga vegna þessarar tegundar eitrunar og vitað er um alvarlegt lungnatilfelli frá í fyrra vegna slíkrar eitrunar. Læknir á slysadeild, sem rætt var við í gærkvöldi, sagði mjög mikilvægt, að fólk reyndi ekki að láta börnin æla olíunni, ef þau settu hana ofan í sig, því mesta hættan væri í því fólgin að olían færi í öndunarfæri og lungu. Sagði hann að alvarlegar lungnaskemmdir gætu hlotist af, því væri áríðandi að leita læknis í þessum tilfellum. Ilm- olian sem hér um ræðir er mis- lit og oftast í fallegum umbúð- um, sem freista lítilla barna. Sigluvík SI seldi á mánudag 124,1 lest í Grimsby. Heildarverð var 3.413.500 krónur, meðalverð 27.50. Verðið er óvenju lágt og stafar það fyrst og fremst af miklu framboði á markaðnum. Fyrr í þessum mánuði komst með- alverðið upp í 48 krónur. í gær seldi Björgvin EA 130,7 lestir af þorski og kola í Grimsby. Heildarverð var 4.123.000 krónur, meðalverð 31,55. Þórir SF seldi 31,4 lest í Hull. Heildarverð var 988.800 krónur, meðalverð 31,50. Þá seldi Kolbeinsey ÞH 128,8 lest- ir í Hull. Heildarverð var 3.523.600 krónur, meðalverð 27,36. Nokkuð Á ANNAÐ hundrað aðilar, einstaKi- ingar og fyrirtæki, skrifuðu sig fyrir 8—9 milljóna kr. hlutafé á stofn- fundi hlutafélags til eflingar fyrir- tækjum í einkarekstri sem haldinn var í gær. Fyrirtækið hlaut nafnið Frumkvæði hf. og var Víglundur Þorsteinsson kosinn formaður stjórnar. Stjórn féiagsins mun aug- lýsa eftir verkefnum á næstunni. Árni Árnason, framkvæmda- stjóri Verslunarráðs íslands, sagði í samtali við Mbl. að ýmsir fleiri aðilar hefðu sýnt áhuga á að vera af karfa í aflanum dró meðalverð- ið niður. Jóhanna Hauksdóttir, starfs- maður LlÚ, sagði í samtali við Morgunblaðið, að framboð á ís- lenzkum fiski í Bretlandi væri nú allt of mikið. Fluttur hefði verið utan ísaður fiskur í 60 gámum fyrir Bretlandsmarkað fyrir þessa viku, en þegar sölur fiskiskipa hefðu verið skipulagðar, hefði að- eins verið vitað um 40 gáma. 10 til 12 lestir væru í hverjum gámi og magnið því verulegt. Meðal annars vegna þessa fóru 8 gámar af ísfiski frá Vestfjörðum til Hirtshals í Danmörku með Hafskip um helgina. Auk þessa með í félaginu. 1 samþykktum fé- lagsins væri gert ráð fyrir 10 milljóna kr. hlutafé og yrði það því líklega eitt af fyrstu verkefn- um nýkjörinnar stjórnar að auka hlutaféð. Árni sagði að þetta fyr- irtæki væri samstarfsvettvangur manna úr fjölda einkafyrirtækja í mörgum atvinnugreinum. Hlut- verk þess yrði að leggja nýjum fyrirtækjum lið og styrkja starf- andi fyrirtæki eftir því sem að- stæður leyfðu. Víglundur Þorsteinsson, for- hefur Hafskip flutt nokkuð af ís- fiski í gámum til Þýzkalands. Elín Þorbjarnardóttir ÍS seldi á mánudag 108,6 lestir í Cuxhaven. Heildarverð var 3.423.100 krónur, STJÓRNENDUR ísbjarnarins í Reykjavík íhuga nú að breyta einum togara sinna, Asþóri RE 10, í frysti- skip. Ákvörðun hefur enn ekki verið tekin, en áætlaður kostnaður er 10 til 12 milljónir króna. Asþór er byggður í Noregi 1970 og er skuttog- ari af minni gerðinni. Uppi eru hugmyndir um breyt- ingar á fleiri togurum og hafa eig- endur Merkúrs, áður Bjarna Bene- diktssonar, ákveðið að breyta stjóri B.M. Vallá hf. og formaður Félags íslenskra iðnrekenda, er formaður stjórnar Frumkvæðis hf. Aðrir í stjórn eru: Benedikt Sveinsson, hæstaréttarlögmaður; ólafur ÓJohnson, forstjóri O. Jo- hnson & Kaaber hf.; Ingimundur Sigfússon, forstjóri Heklu hf.; Árni Árnason, framkvæmdastjóri Verslunarráðs íslands; Guðjón Tómasson, framkvæmdastjóri Drafnar hf., og Jón Ingvarsson, framkvæmdastjóri ísbjarnarins hf. og formaður stjórnar Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna. meðalverð 31,52. I gær seldi Hólmanes 194,2 lestir af blönduð- um afla í Bremerhaven. Heildar- verð var 5.373.800 krónur, meðal- verð 27,67. skipinu í frystitogara. Meðal ann- arra útgerða, sem athugað hafa þessi mál, má nefna Ögurvík og Sæfinn. Gísli Jón Hermannsson, framkvæmdastjóri Ögurvíkur, sagði í samtali við Morgunblaðið, að athugað hefði verið hvort borg- aði sig að breyta Ögra og Vigra, en engin ákvörðun þar að lútandi hefði enn verið tekin. Hjá Sæfinni, sem gerir út togarann Arinbjörn RE, fengust þær upplýsingar, að til athugunar væri að breyta skip- inu, en engin ákvörðun lægi fyrir. Breytingar af þessu tagi eru tald- ar kosta allt að 50 milljónir króna eftir umfangi og veiðitap vegna þeirra er allt að tveir mánuðir. Jón Ingvarsson, framkvæmda- stjóri ísbjarnarins, sagði í samtali við Morgunblaðið, að ef af þessu yrði, væri það ætlunin að breyt- ingarnar miðuðust aðallega við vinnslu karfa og grálúðu fyrir Japansmarkað og jafnvel rækju fyrir sama markað. Kostnaður við breytingar þessar væri áætlaður minni en hjá flestum öðrum, því lestin í skipinu hefði upphaflega verið frystilest og því þyrfti ekki að gera veigamiklar breytingar á henni. Vélbúnaður og niðursetn- ing hans gæti kostað 10 til 12 milljónir króna, þar sem vinnsla um borö miðaðist aðeins við þrjár fiskitegundir. Stálfélagið hf: Aðalfundi frestað FRE8TTA varð aðalfundi Ntálfélags- ins hf. sem halda átti í gær vegna þess að fundurinn var ekki löglcgur. I*eir hluthafar sem mættir voru höfðu yfir að ráða innan við helm- ingi hlutafjár. Sigtryggur Hallgrímsson, starfsmaður Stálfélagsins sagði að stefnt væri að halda aðalfund- inn 17. janúar. Frá Stofnfundi Frumkvæðis hf. Morgunblaðið/Árni Sæberg. Á annað hundrað aðilar stofnuðu Frumkvæði hf. Víglundur Þorsteinsson kosinn formaður Fleiri skuttogurum breytt í frystiskip?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.