Morgunblaðið - 19.12.1984, Qupperneq 60
-60
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1984
þessar
standa
upp ur
ókaílóðinu!
Jónas Ámasoa
Fleira íólk.
Eftir tveggja áratuga hlé, ný bók Jónasar
Ámasonar. Hann er enn sami Jónas og þessi
bók er vœntanlega hans íjölmörgu
addáendum kœrkomin.
Reykjaforlagið, Laugavegi 178, Símar: 17802—686110
Guðmundur Jakobsson
Mannlif undir Kömbum.
Nokkrir Hvergerðingar teknir
tali Allt er það ágœta íólk
búsett í Hveragerði, en á
rœtur víðsvegar um land
Bókin er harla íjölbreytt að
eírú sjór aí fróðleik, en að
auki skemmtilestur.
Steíán Jónsson
Mínir mezm,
Vertíðarsaga Steíáns Jónssonar á sér
ekki hliðstœðu í sjómannabókum.
Þekking hans á efninu, stDl og tungutak
er hans einkaeign Tvímœlalaust
raunsannasta bók sem sést hefur um
sjómannalíí á vertíð.
Jónas Ámason
Syndin er lœvís og lipur.
Pessi írœga bók kom út fyrir 20 árum síðan og
varð hún metsölubók á einum mánuði Ætla
má að mörgum þeim 50 þúsund
sem síðan haía komist til vits og ára leiki
forvitni á, hvers vegna hún hlaut þessar
viðtökur.
Mezzo í
banastuði
Hljóm-
plotur
Sigurður Sverrisson
Mezzoforte.
Rising.
Steinar.
Ég tnan að ég sagði á sínum
tíma um síðustu plötu Mezzo-
forte, að mér fyndist hún hreint
ekki skemmtileg þrátt fyrir
óaðfinnanlegan hljóðfæraleik.
Reyndar fannst mér sú plata
bera öll merki þreytu og stöðn-
unar, sem kahnski var ekki
óeðlilegt í ljósi þeirrar gifurlegu
keyrslu sem verið hafði á hljóm-
sveitinni fram að útgáfu hennar.
Það var því eiginlega með
hálfgerðum kvíða að ég renndi
Rising undir nálina i byrjun
jólamánaðarins. Eftir að Krist-
inn Svavarsson hætti var ég á
því að nauðsynlega kynni að
vanta þann ferskleika, sem hon-
um og saxafónleik hans fylgdi,
en þær efasemdir hurfu skjótt.
Þótt þeir séu nú aðeins fjórir,
Gunnlaugur Briem, Eyþór
Gunnarsson, Jóhann Ásmunds-
son og Friðrik Karlsson, er í
mínum huga ekki nokkur vafi á
því að tónlist þeirra hefur ekki
verið eins fersk og kröftug í háa
herrans tíð ef þá nokkru sinni.
Rising ber því sannarlega nafn
með rentu því með þessari plötu
hefur Mezzoforte stigið mikil-
vægt skref og að minni hyggju
losað sig að stórum hluta úr
viðjum þeirrar stöðnunar, sem
einkennt hefur síðustu plötur
þeirra.
Platan hefst á laginu Check It
In, fjörlegu lagi, sem síðan renn-
ur snyrtilega saman við Take
Off Eyþórs Gunnarssonar. Það
lag hefur að geyma grípandi línu
sem samfara kröftugum gítar-
leik Friðriks gerir það eftir-
minnilegt. Tvö næstu lög, Happy
Hour og Waves, bæði eftir Frið-
rik, eru nokkuð í hinum hefð-
bundna Mezzostíl en lokalag
fyrri hliðar, Blizzard, eftir Ey-
þór er þrususkemmtilegt og
jassað. Frábær hljóðfæraleikur
skín í gegnum lagið og má vart á
milli sjá hver er öðrum fremri.
Síðari hliðin hefst á lagi Frið-
riks, Solid, en það og Blizzard
eru í mínum huga bestu lög plöt-
unnar. Solid er mjög kröftugt
lag og á köflum er þar stutt yfir
í hreint rokk hjá Mezzo. Á eftir
fylgja síðan tvö lög „a la Mezzo"
áður en titillagið Rising, ljúft
með frábærum bassaleik, býr
mann undir lokaátökin í laginu
Check It Out.
Sannarlega fara þeir fjór-
menningar á kostum í mörgum
laganna og þegar við bætist
saxófónleikur Dale Barlow og
ásláttarleikur Frank Ricotti er
það eins og gott krydd á safaríka
steik. „Sándið" er pottþétt sem
og hljóðblöndun og úr verður því
besta plata Mezzoforte til þessa.
Frá hægri Ingrid Halldórsson, Óttar Halldérsson og frú Anne Goldkorn en
þau kynntu Jil Sanders-snyrtivörurnar.
Jil Sanders-snyrti-
vörur á markaðinn
ISFLEX hf. hefur tekið að sér einkaumboð á íslandi fyrir snyrtivörur frá Jil
Sanders.
Jil Sanders sem er þýsk að upp-
runa lærði við Los Angeles fash-
ion school en starfaði að loknu
námi fyrir tímaritið McCalls. 23ja
ára stofnaði hún sína fyrstu verzl-
un, en rekur nú 27 verzlanir og 120
útibú um allan heim.
Snyrtivörurnar eru prófaðar í
rannsóknarstofum Beecham lyfja-
fyrirtækisins breska.
ísland mun vera fyrst norður-
Iandanna til að taka upp sölu á
snyrtivörum frá Jil Sanders.
Landssambandið gegn
áfengisbölinu:
Bindindisfélög
í skólum verði
endurvakin
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun:
„16. þing Landssambandsins
gegn áfengisbölinu hvetur til þess
að reynt verði að endurvekja bind-
indisfélög í skólum og síðan sam-
band þeirra og leitast við að efla
áhuga nemenda í framhaldsskól-
um á bindindismálum."