Morgunblaðið - 19.12.1984, Side 66

Morgunblaðið - 19.12.1984, Side 66
66 MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1984 t Eiginmaöur minn og faöir okkar, ÓSKAR GUOLAUGSSON, Gnoðarvogi 34, andaöist í Landspítalanum 18. desember. . Dýrleif Tryggvadóttir, Guöiaugur Tr. Óskarsson, Baldvin P. Óskarsson, Sigurlfn R. Óskarsdóttir, Óskar J. Óskarsson, Anna Elfn Óskarsdóttir. t Eiginmaöur minn, KRISTINN JÓNSSON vélstjóri, Vesturgötu 56, Reykjavfk, lést í Borgarspitalanum laugardaginn 8. desember. Bálför hefur fariö fram. Ósk Guójónsdóttir. t Eiginmaöur minn, ÁSGRÍMUR PÁLSSON, lóst mánudaginn 17. desember. F.h. vandamanna, Ragnheiöur Hermannsdóttir. t Eiginkona mín, móöir, tengdamóöir og amma, SELMA KALDALÓNS, sem lést miövikudaginn 12. desember, veröur jarösungin frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 20. desember kl. 3. Jón Gunnlaugsson, Karen Oktavfa Kaldalóns Jónsdóttir, Henrik Friis, Þorbjörg Kaldalóns Jónsdóttir, Elsa Kaldalóns Jónsdóttir, Sólveig Kaldalóns Jónsdóttir, Gunnlaugur Andreas Jónsson, Sigvaldi Kaldalóns Jónsson, Margrét Kaldalóns Jónsdóttir, Þórhallur Kaldalóns Jónsson, Eggert Stefán Kaldalóns Jónsson, Jón Stephenson Edward Balys, Árni Ólafsson, Helge Grane Madsen, Guórún H. Brynleifsdóttir, Helga Kristinsdóttir, og önnur barnabörn. t Móöir min og amma, SIGRÚN STEFÁNSDÓTTIR frá Valþjófsstööum, veröur jarösungin frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 20. desember kl. 10.30. Sveinn Jónsson, Helgi Ómar Sveinsson. t Móöir okkar, tengdamóöir og amma, DÓRÓTHE VILHJÁLMSDÓTTIR, Eskihlfó 9, verður jarösungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 20. des. kl. 13.30. Fyrir hönd vandamanna, Börnin. t Móöir min, GUÐRÚN BRYNJÓLFSDÓTTIR, sem andaöist 13. desember, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 20. desember kl. 10.30. Aóalheiöur Brynjólfsdóttir. t Móöir min og amma okkar, ÞÓRANNA GUOMUNDSDÓTTIR fyrrum húsfreyja á Litla-Hrauni, Kolbeinsstaóahreppi, Hnappadalssýslu, sem lést 8. desember sl., veröur jarösungin frá Aöventkirkjunni i dag, 19. desember, kl 13.30. Oddný Siguröardóttír og barnabörn. Jóhanna dóttir — Fædd 3. október 1915 Díin 9. desember 1984 í dag, þann 19. desember, þegar ég kveð hinstu kveðju elskulega tengdamóður og ömmu barna minna, langar mig með nokkrum orðum að votta henni virðingu mína og elsku, þó ég geti aldrei með orðum sagt það sem í hjarta mínu býr, það bíður síns tíma. Jóhanna fæddist þann 3. októ- ber 1915 í Laugardal í Vestmanna- eyjum, og ólst þar upp hjá foreldr- um sínum, Eyjólfi Sigurðssyni og Nikólínu Eyjólfsdóttur. Fljótlega bar á því að Jóhanna var forkur til allra starfa, og ekki veitti af duglegum höndum á stóru heimili, hún fór fljótt að vinna öll þau verk sem til féllu, sérstaklega ræddi hún oft við mig um störf sín á sjúkrahúsinu þar á staðnum og fannst mér sem hugur hennar hefði um tíma staðið til hjúkrun- arstarfa og held ég að þar hefði kraftur hennar, styrkur og manngæska notið sín vel. En út- þráin gerði vart við sig, um tví- tugt, og lá leið hennar til Ólafs- fjarðar þar sem hún vann, til að byrja með öll venjuleg störf, sem til féllu við útgerð á þeim tíma. Iðulega sátum við saman og sagði hún mér þá hvernig þessum störf- um var háttað, verður mér því oft hugsað til þeirrar miklu vinnu sem konur inntu af höndum á þessum tíma, störf sem nú teljast til grófustu karlmannsverka, og myndum við konur í dag veigra Eyjólfs- Minning okkur við að fara í þeirra spor. En tengdamóður minni var ekki fisj- að saman þegar um vinnu var að ræða. Seinni hlutann af veru sinni á Ólafsfirði vann hún hjá Ásgrími Hartmannssyni og konu hans, Helgu, sem ráku þá, eftir þvi sem ég best veit, eina veitinga- og gistihúsið á staðnum. Heyri ég á öllum að Jóhanna vann sín störf vel og af alúð og kynnti sig í alla staði vel. það sýnir hugur þeirra hjóna í gegnum árin og þar var ræktuð vinátta samhliða vinnu á þeim stað. En ekki fann Jóhanna það sem hún leitaði að á Ólafsfirði, heldur lá leið hennar til Reykjavíkur þar sem hún um skeið vann á Lista- mannaskólanum og heyrði ég á henni að þaðan átti hún margar skemmtilegar minningar. Eftir það tók hún til starfa á sauma- stofunni Spörtu sem á þeim tíma var þekkt sem góð saumastofa. Þar sýndi hún að henni var margt til lista lagt því allt sem að saumaskap snéri lék í höndum hennar eins og hver önnur list, bæði handavinna allskonar og vélavinna. Á heiðursstað í stofu hennar standa myndarlegir silfur- kertastjakar sem Ragna i Spörtu gaf henni sem viðurkenningu fyrir vel unnin störf. Þeir sýna að störf hennar voru metin mikils. Árið 1976 fór Jóhanna aftur að vinna eftir nokkurt hlé og þá á saumastofu Halldórs Guðjónsson- ar, hún mat hann mikils og með þeim tókst góð samvinna, sauma- t Eiginmaöur minn, faöir, stjúpfaöir og tengdafaöir, ÞORSTEINN PJETURSSON, Akurgeröi 39, fyrrum starfsmaður Fulltrúaróös verkalýösfélaganna i Reykjavík, veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 21. desember kl. 13.30. Guðmunda Lilja Ólafsdóttir, Ólafur Þorsteinsson, Vilhelmina Þorsteinsdóttir, Guðríöur Þorsteinsdóttir, Stefón Reynir Kristinsson, Helga Karlsdóttir, Gunnar Ingimarsson. t Amma okkar og langamma, GUÐBJÖRG ÞORSTEINSDÓTTIR, óöur til heimilis f Mjósundi 1, Hafnarfiröi, veröur jarösungin frá Hafnarfjaröarkirkju mlövikudaginn 19. desember kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Elli- og hjúkrunar- heimiliö Sólvang í Hafnarfirði. Sonarsynir og börn þeirra. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför eiginmanns mins, fööur okkar, tengdafööur og afa, SIGFÚSAR JÓNSSONAR, Víöilundi 6C, Akureyri. Sérstakar þakkir viljum viö færa læknum og starfsfólki handlækn- ingadeildar Fjóröungssjúkrahúss Akureyrar og forstjóra og starfs- fólki Sútunarverksmiöju SiS. Guö blessi ykkur öll. María isaksdóttir, Jóna Guöjónsdóttir, Ólafur Magnússon, Ingibjörg Sigfúsdóttir, Knútur Valmundsson, Hjördis Sigfúsdóttir, Gunnlaugur Ingólfsson, Siguröur Sigfússon, Jónína Valgarösdóttir og barnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför fööur okkar og tengdafööur, AXELS THORSTEINSONAR, rithöfundar. Börn og tengdabörn. stofan skipti síðan tvisvar um eig- endur og vann Jóhanna hjá báðum þeim aðilum allt fram á þennan dag má segja. Arið 1945 flutti Jóhanna í húsið á Bárugötu 19, og má segja að þá byrji hamingjuhjól hennar að snú- ast og þar finni hún það sem hún leitaði að. I húsinu bjó einnig ungur mað- ur, Valdimar Guðmundsson, skip- stjóri, sem þann 19. ágúst 1946 gerðist lífsförunautur hennar. Stuttu seinna festu þau kaup á húsinu á Bárugötu 16, þar sem þau hafa búið síðan, og hæg hafa verið heimatökin þegar ekki þurfti að flytja lengra en yfir götuna. Jóhanna og Valdimar eignuðust 3 börn: Valdimar eiginmann minn f. 1948. Eyjólf; kvæntan Hönnu Unnsteinsdóttur, f. 1949, og Helgu gifta Óskari Alfreðssyni, f. 1951. Öll bera þau það með sér að vel hefur verið að þeim búið í æsku og uppvexti og nutu þau þar þess sem svo tengdabörn og barnabörnin fengu að njóta síðar, ástar, um- hyggju og jákvæðs lífsviðhorfs. Valdimar maður Jóhönnu er sjómaður, og það að vera eigin- kona sjómanns er mikið álag og vita það sjálfsagt flestir að styrk og festu þarf til að halda um stýr- ið á þeirri skútu sem heima er siglt rétt eins og þeirri sem á sjó siglir. Aldrei urðu þó árekstrar á skip- um þeirra Jóhönnu og Valdimars, heldur mættust þau á miðri leið í lífsins sjó og sigldu skipi sínu saman í ást og virðingu til enda. Elsku tengdapabbi, guð gefi þér styrk til að halda siglingunni áfram, þrátt fyrir mikinn missi. Elsku Valdimar, Eyjólfur og Hanna, Helga og Óskar, öll barna- börnin sem ömmu þótti svo vænt um, allir aðrir sem nú syrgja Jó- hönnu. Hvert um sig vitum við hvað við missum mikið; en hugg- um okkur við það að þjáningar hennar og hetjuleg barátta eru á enda. Huggum okkur við, að svo lengi sem hún lifir í hjörtum okkar og huga þá er hún hjá okkur. Eg þakka elskulegri tengda- mömmu minni fyrir alla þá vin- áttu og blíðu sem hún sýndi mér og börnunum ætíð, og ég vona að ég hafi reynst sú tengdadóttir sem hún átti skilið. Far þú í friði, frið- ur guðs þig blessi. Eins og móðir reyndist mér sem vinur í raun ég huggun fann hjá þér hafðu Guðs laun. Gerða Tengdamóðir mín Jóhanna Eyj- ólfsdóttir, Bárugötu 16, Reykjavík, andaðist í Landakotsspítala sunnudaginn 9. desember sl. eftir stutta en erfiða legu. Útför hennar verður gerð í dag frá Fossvogs- kirkju. Jóhanna fæddist þ. 3. október 1915, dóttir hjónanna Nikólínu Eyjólfsdóttur og Eyjólfs Sigurðs- sonar skipstjóra og smiðs í Laug- ardal, Vestmannaeyjum. Jóhanna var elst 9 barna og eru nú þrju þeirra á lífi. Jóhanna minntist ætíð foreldra sinna og æskustöðva með mikilli hlýju og virðingu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.