Morgunblaðið - 19.12.1984, Qupperneq 70
70
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1984
fólk í
fréttum
Á þessari mynd mi m.a. sá Brynju Meðal gesta voru eigendur verzl-
Norquist og Gullveigu Sæmundsdótt- unarinnar Elle Ragnar Guó-
ur, ritstjóra Líf. mundsson og Kósa Helgadóttir.
LEGO-kubba-
samkeppni
Valur Þórsson færferð til Lego-landsí verðlaun
Aheimilissýningunni í haust fór
fram LEGO samkeppni í bás
kölluðum „LEGO ævintýralandið".
Samkeppnin fólst í því að gera átti
módel úr LEGO-kubbum í básnum
og í Iok hvers sýningardags voru val-
in þrjú skemmtilegustu módelin.
Alls voru gerð 2600 módel. Fyrstu
verðlaun, ferð til Legolands með for-
eldrum, hlaut Valur Þórsson níu ára.
Er hann mætti til að taka við verð-
laununum ásamt tvíburabróður og
foreldrum sögðu bræðurnir, að þeir
hefðu komið einu sinni áður til
LEGO-lands, en það hefði verið þeg-
ar þeir voru fimm ára og verið þá of
litlir til að taka bílprófið þar. Þeir
sögðust vera búnir að koma upp
LEGO-landi heima hjá sér og leika
sér mikið að því saman.
Valur bjó til gíraffa úr kubbum og
sagðist hafa notað 16 eða 17 kubba til
verksins.
Annar drengur sem hlaut viður-
kenningu var aðeins þriggja ára,
Haukur Þór Búason. Hann fékk verð-
laun fyrir módel sem hann skírði
fyrst „Maður á hesti". Hann er nú
búinn að breyta nafninu. Hann valdi
-sér nefnilega hermannakubba er
börnin völdu sér verðlaun og breytti
þá nafninu með því sama í „Hermað-
ur á hesti“.
Frönsk tískusýning
á Hótel Sögu
Um síðustu helgi tóku sig
saman Franska útflutn-
ingsmiðstöðin, Samtök franskra
fataframleiðenda og Verzlunar-
fulltrúi franska sendiráðsins
sem nú er Gene Litand og héldu
franskt kvöld að Hótel Sögu.
Frönsk koná, dansstjórinn M.
Engel kom til landsins gagngert
til að setja á svið tískusýning-
una, sem var miðpunktur kvölds-
ins. Þar var sýndur franskur
fatnaður er fæst hér á landi og
þær verzlanir sem tóku þátt í
sýningunni voru m.a. Eva, Gull-
foss, Hjá Báru, Christine og
Endur og Hendur. Það voru
Módel 79 er sýndu fatnaðinn,
sem var fyrir alla aldurshópa.
Litirnir sem virtust vera áber-
andi voru í gráu, hvítu og svörtu.
Varaliturinn var hárauður og
stutt hártíska virtist yfirgnæf-
andi. Lágir skór þóttu hæfa
hversdagsiega í vinnu o.s.frv. en
háir skór á kvöldin.
Er sýningu lauk var dregin út
happdrættisvinningur, ferð til
Parísar, og síðan var stiginn
dans. Fjöldi fólks mætti og allir
voru búnir í besta skart. A með-
fylgjandi myndum má sjá
nokkra af gestunum.
Morgunbladið/Bjarni
Hér sést Páll Flygenring ráóuneytisstjóri og frú koma á sýninguna, en í
baksýn sést í Elínborgu Stefánsdóttur.
Haukur Þór Búason fékk
verðlaun fyrir módel sitt
„Hermaður á hesti“.
Verðlaunahafinn Valur Þórsson stendur vinstra
megin við gíraffann og að baki honum Björn Ást-
mundsson forstjóri Reykjaiundar. Hægra megin við
gíraffann standa Örn, tvíburabróðir Vals og foreldr-
ar þeirra Þyri Andersen og Þór Guðmundsson.
Hér sjáum við
Salvöru Nordal
blm. og Dóru
Guðjónsdóttur.
M. Engel dansstjóri.
Það voru mörg börn sem fengu viðurkenningu.