Morgunblaðið - 19.12.1984, Qupperneq 71
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1984
71
HANS, SONUR FRIDU ÚR ABBA:
Frægðin er of
dýru verði keypt
ans Fredriksson, sonur
hennar Fridu úr hljóm-
sveitinni Abba er að feta í fót-
spor mömmu sinnar og nú ný-
lega gaf hann út sína fyrstu
hljómplötu, sem ber nafnið
„Push Here". Hann segist þó
ekki vilja verða frægur út á nafn
móður sinnar, heldur standa á
eigin fótum. Hann var aðeins
fimm ára þegar mamma hans
fór að búa með Benny í Abba-
hljómsveitinni. Hans var til
skiptis hjá foreldrum sínum en
þegar hann var 17 ákváðu hann
og systir hans Lotta að flytja
alfarið til móðurinnar.
Inntur eftir hvort ekki hefði
verið erfitt að vera barn frægrar
konu, kvað hann það vera og það
hefði oft verið spurning hvort
kunningjarnir vildu vera vinir
hans vegna, eða til að kynnast
mömmu hans. Þau mæðginin
hafa mikið samband og hittast
oft, en Frida er nú búsett í Par-
ís. Draumur Hans er þó ekki að
verða jafn frægur og mamman,
hann segir það of dýru verði
keypt. Það er ekkert einkalíf,
sem þetta fólk á. Þrátt fyrir það,
hafa þau ætíð verið mjög góðir
vinir og vilja segja að aldurinn
skipti þar máli því Frida var svo
ung er hún átti hann.
COSPER
Deild-
arstjóri
hjá N.O.
Reykvíkingur að nafni Jón
Sigurðsson, sem starfað hef-
ur um árabil hjá bandaríska
flugfélaginu Northwest Orient,
hefur fyrir skömu verið gerður
yfirmaður einnar deildar þessa
flugfélags, sem hefur aðalbæki-
stöð sína í Evrópu í London. Það-
an er stjórnað starfsemi félags-
ins á nokkrum helstu flugvöllum
í V-Evrópu og Skandinavíu. Hef-
ur Jón á sinni könnu yfirumsjón
með viðgerðar- og viðhaldsþjón-
ustu flugvéla félagsins á þessum
flugvöllum m.m. — Jón er sonur
Sigurðar Jónssonar flugmanns
(Sigga flug). Áður en hann fór til
starfa hjá Northwest Orient árið
1978 var hann starfsmaður hjá
Pan American flugfélaginu í
Keflavík og í Kaupmannahöfn.
Jón Sigurðsson er flugvirki að
mennt og á að baki sér í þeirri
grein yfir 20 ára starfsferil.
Kona Jóns er Kolbrún Ragnars-
dóttir Björnstein frá Keflavik.
Jón Sigurósson
Jennifer
Beals úr
Flashdance
Margir lesenda muna ef-
laust eftir Jennifer Beals
úr kvikmyndinni Flashdance
þó aðeins sé hún 21 árs. Hún
stundar nú nám við Yale-há-
skólann í Bandaríkjunum og
leggur áherslu á stjörnufræði,
heimspeki og frönsku. Inn á
milli stundar hún fyrirsætu-
störf. Hún mun einnig vera að
leika í kvikmynd „The Bride“
sem er eftir Mary Shelley. Þar
leikur hún ásamt Sting úr
myndinni „Police". Jennifer
býr með sambýlismanni sínum
Bob Simonds.
Demantshringar —
Draumashart
Gull og demantar
Kjartan Asmundsson, gullsmiður,
Aðalstræti 7, sími 11290.
Ódýru og fallegu
Hafa-baöskáparnir úr furu eru
komnir aftur. Fást í 3 litum.
\P
VALD. POULSEN!
Suöurlandsbraut 10. Síi ®,m* 686499.
Innréttingadeild 2. hæð.