Morgunblaðið - 19.12.1984, Qupperneq 74

Morgunblaðið - 19.12.1984, Qupperneq 74
74 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1984 c idm ymafui ffH| ;,| „W^ob er$uotv>. Hc-iD45kategt \ji& þab ab kLippa ut heiisi&u ajjgLýsmgu T" I>að sem þjóðfélagið vantar er fólk sem vill vinna eins og skepnur alla daga, án þess að hugsa um launin. HÖGNI HREKKVÍSI ,, . ..OGEG WlL AÐ pESSi SmOKUBlU HANS VEZÐI rJA(2L/EÓPUR ST«AX/* Háværir leigubílar Lesandi skrifar: Kæri Velvakandi. Hvaða leigubílastöð vill ríða á vaðið og ákveða að bílstjórar hennar hætti að flauta fyrir utan hús viðskiptavinanna? Ég á heima í stóru sambýlishúsi í Reykjavík. Fyrir enda hússins er ágætt bílastæði. Þá liggur heim- reið fram með húshliðinni en þar er skilti með greinilegri áletrun um að ekki megi leggja þar bílum og að öll bílaumferð sé óheimil um nætur. Því miður er þetta bann þverbrotið. Menn láta bíla sína standa þarna tímunum saman, heimamenn jafnt sem aðkomu- fólk. Meira að segja hefur mátt sjá nær daglega bíla sem tilheyra fólki í stjórn húsfélagsins en eins og kunnugt er vill sumt fólk að- eins fara eftir eigin lögum. Stöð- ugar kvartanir á fundum húsfé- lagsins hafa ekki dugað. Hér í húsinu eru bæði gamal- menni og ungabörn sem þurfa mikið að sofa. Húsmæður fá sér blund á ýmsum tímum dagsins, og þegar viö komum lúin heim að kvöldi þykir okkur gott að leggja okkur smástund áður en við borð- um. En við getum öll átt von á því að verða vakin af því að bílar valda hávaða við húsið. Þeir þeyta hornin og láta vélina drynja og svo spúa þeir aftur úr sér kolsýr- ingi sem berst inn í íbúðirnar o.s.frv. Enn verra er þetta við næstu blokk og kemur það auðvit- að líka niður á okkur. Leigubílstjórar eru vanir að flauta þegar þeir eru komnir þangað sem kallað var á þá. Fyrir skemmstu kom leigubíll að húsinu okkar milli kl. átta og níu á laug- ardagsmorgni — þegar flestir sofa — og flautaði. Og margir „venju- legir“ bílstjórar hafa lagt í vana sinn að flauta hástöfum til að kalla á fólk út úr húsum. Því sþyr ég aftur: Hvaða leigu- bílastöð vill verða fyrst til þess að leggja niður þá venju að bílstjór- Kona að vestan skrifar: Ég hringdi í búð í Reykjavík og arnir flauti á viðskiptavinina heldur berji að dyrum, hringi dyrabjöllu eða bíði úti í bíl á ábyrgð viðskiptamannsins? Ég þarf stundum að nota leigu- bíl. Ég heiti því að skipta ein- göngu við þá stöð á nýja árinu sem ríður á vaðið og tilkynnir að þeir flauti ekki við húsdyr. Ég er viss um að frétt eða tilkynning um þetta fengi rúm í Morgunblaðinu, t.d. hér hjá Velvakanda, og að hún vekti almenna ánægju og virðingu. spurði hvort þeir sendu vörur út á land. Jú, þeir sögðu það vera gert, en þegar ég bað þá að senda mér „vasadiskó" sem þeir hefðu verið að auglýsa á jólatilboðsverði, sögðu þeir, að þeir ættu svo fá eft- ir, að þeir sendu þau ekki út á land. Ég kvaðst ekki þurfa nema eitt fyrir dóttur mína, en þá var svarið það, að það gæti verið að þau seldust þennan dag, svo ég yrði að bíða eftir sendingu, sem kæmi rétt fyrir jól. Ég bað hann betur, því það eru ekki nema tvær póstferðir hingað í viku og það voru því síðustu forvöð hjá mér að ná í jólagjöf fyrir barnið. Það þarf ekki nema að hvessa og þá er allt ófært hingað og dóttir mín fengi enga jólagjöf. Ég legg til að versl- un þessi við Laugaveginn, sem auglýsir hljómtæki miði auglýs- ingarnar eingöngu fyrir Reykjavík og nágrenni! Hvorki fleiri né færri en 74 unglingar á Bolungarvík hafa sent Velvakanda bréf, þar sem þau kvarta mikið undan því, að heyra ekki til rásar 2. Á myndinni er forstöðumaður rásarinnar, Þorgeir Ástvaldsson, ásamt starfs- mönnum. Konu að vestan finnst að ef verslanir í Reykjavfk neita að senda vörur sínar út á land, þá eigi skilyrðislaust að auglýsa vörur þeirra eingöngu fyrir Reykjavík og nágrenni. Jólatilboð fyrir Reykvíkinga? Útvarp fyrir unglinga Velvakanda hefur borist bréf, sem undirritað er af 74 unglingum úr 6., 7., 8. og 9. bekk Grunnskóla Bolung- arvíkur: „Unga fólkið úti á landi hefur gleymst, það hefur Iíka áhuga á popptónlist, eins og er t.d. leikin í Listapoppi. Við fáum ekki að hlusta á rás 2 og nú er búið að færa þáttinn Listapopp yfir á rás 2, þannig að meirihluti unglinga missir af þessum þætti. Svo vilj- um við vekja athygli á því, að þó að rás 2 færi út kvíarnar um ára- mótin, þá fá ekki öll byggðarlög á landinu hana.“ Góð bók Bjargar í SÍÐUSTU viku barst undirrituð- um í hendur eintak af bókinni „Ur ævi og starfi íslenskra kvenna", en hér mun vera um að ræða útvarps- erindi sem Björg Einarsdóttir flutti veturinn 1983—1984. Bók þessa, sem er rúmar 400 bls. að stærð í stóru broti, tel ég þá at- hyglisverðustu sem út kemur á þessari „jólavertíð". í henni eru æviágrip 21 íslenskrar konu. Allar eiga frásagnirnar það sameigin- legt að vera vel skrifaðar og gefa glögga innsýn í lífsferil þeirra kvenna sem um er fjallað. Merk- ust er bókin þó fyrir hve vel hún lýsir tíðaranda hverju sinni. Hinn mikli fjöldi gamalla mynda sem prýðir bókina á ekki síst þátt í því að magna þau áhrif. Sú hugmynd að prenta myndirnar í daufbrúnum „ellilegum" lit er af- ar snjöll. Að lokum vil ég eyða nokkrum orðum í útlit bókarinnar í heild. Sýnist mér að vel hafi tek- ist um samsetningu leturs og mynda. Bókin er hönnuði og bóka- gerðarfólki til mikils sóma. Gísli Theodorsson HEILRÆÐI ALDREI verður nógsamlega áréttað að gæta vel að öllu því, er að rafmagni lýtur. Víða leynast hættur og rafmagnsslys eru hin alvarlegustu. Því ættu þeir, sem ekki hafa þekkingu á rafmagnstækjum, að forðast að fikta við þau, en leita þess í stað tii fagmanna. Viðgerð sem framkvæmd er í góðri trú getur hæglega misfarist á þann veg að ekki verði um bætt. Gæta verður þess að raftenglar séu ekki ofhlaðnir, raf- magnssnúrur allar yfirfarnar og gengið þannig frá jólaljós- um að ekki stafi eldhætta af. Njótum undirbúnings jólanna með slysaiausum dögum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.