Morgunblaðið - 26.01.1985, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 26.01.1985, Blaðsíða 42
42 MÖRGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JANtJAR 1985 „ Mig m'mrurak pcÁ st*c5i i umsókninni p/r\ní, OuS pú gætir 140 oré á- yninútu. " ást er ... ... að svífa af sælu áður en þú ferð á stefnumót- ið TM R«g U S Pat Oft - ali nghts reserved * 1979 Los Angetes Times Syndicate Y0+ H30 Ertu hjálpar þurfi fröken? Kallið þid þetta tómat-samloku hér á þessum stað? HÖGNI HREKKVÍSI /, KATTAMATUK ’A ÍTALSKA V\9j" Smábátahöfnin á ísafirði. Bréfritari heimsótti um 300 {slensk skip og báta úr öllum landshornum á liðnu árí og útbýtti þar guðsorði. Frá Salem-sjómanna- starfínu á ísafírði Sigfús B. Valdimarsson skrifar: „Lofið Drottin, allar þjóðir, vegsamið hann, allir lýðir, því að miskunn hans er voldug yfir oss og trúfesti Drottins varir að eilífu. Halelúja." Þannig hljóðar stysti kafli Biblíunnar, 117. sálmur Dav- íðs konungs. Ég get sannarlega tekið undir þessi orð, þegar ég horfi til baka yfir liðið ár, og hugsa til Salem-sjómannastarfs- ins. Þó það virðist hafa gengið með venjulegum hætti þá er margs að minnast, og Guði að þakka fyrir hans miskunn og náð. Guð gaf mér tækifæri til að heimsækja um 300 íslensk skip og báta úr öllum landshlutum og út- býta þar guðsorði. Voru þarna oft blessaðar stundir um borð í skip- unum, þar sem rætt var um trú- mál og beðið til Guðs. Oft voru þá líka spilaðar spólur með kristi- legum söngvum, sem vinir gefa til starfsins. Þá var kristilegt lesefni sent á hvert sveitaheimili í ísa- fjarðarsýslum, og til ferðamanna- hópa, m.a. þegar Stéttarsamband bænda hélt hér ársþing í sumar. Þegar Jonatan Moyzfeldt land- stjórnarformaður Grænlands og frú hans voru hér í opinberri heimsókn í sumar (27.8.) fékk ég tækifæri til að ávarpa þau á fundi í heimavist MA og færa þeim Guðsorð á grænlensku ásamt smá- minningargjöf frá sjómannastarf- inu, sem var þakkað innilega. Alls staðar er mér vel tekið, og ég verð var við það að margir bú- ast við mér um borð, og verður þá vinafundur eins og áður er þegar lýst. Undantekningar frá þessu eru þó austantjalds skip, þar fær maður ekki að tala við neinn mann nema skipstjórann (þá oftast i áheyrn annars manns). Það er þá undir hælinn lagt hvort hann tek- ur við nokkrum guðspjöllum á sínu máli eða ekki. Stórt rússneskt skip kom hér stuttu fyrir jól. Á því var 72 manna áhöfn. Ekki fékkst skipstjórinn til að taka við einu einasta guðspjalli, en bauð mér nokkra smáhluti, m.a. mynd af Lenin. Þá bauð ég honum jóla- pakka til áhafnarinnar því hann sagðist verða úti á miðunum um jólin. Ég sagði honum að þetta gerði ég við öll skip sem ég næði til og þannig væri ástatt með, t.d. hefði ég þá nýlega gefið 15 slíka pakka um borð í grænlenskan tog- ara. Allt kom fyrir ekki, hann þverneitaði, því þeir héldu engin jól. Ein mesta hátfð þeirra væri nýársdagur, en auðvitað I allt ann- arri merkingu en hjá kristnum mönnum. Vitnisburðinum um Jesúm Krist hefir því verið sáð víða út, og í Biblíunni eru mörg fyrirheiti um blessun og ávöxt af slíkri sán- ingu. Þetta náði einnig til folks af 30 þjóðernum erlendis. 15 Ntm, 5 Biblíur og 10 Passíusálmar voru gefnir, og nokkuð af spólum. Jóla- pakkar til sjómanna voru með færra móti eða um 150. Ég bið Guð að launa ríkulega öllum þeim sem stutt hafa starfið á einn eða ann- an hátt. Guðs náð veri með öllum sæfarendum og aðstandendum þeirra, og gefi þeim að hafa ávallt „Guðsorð fyrir leiðarstein í stafni". Guð blessi land okkar og þjóð, forseta vorn og ríkisstjórn. Þeim vil ég gefa orð frá heilagri ritn- ingu: „Leitið fyrst Guðsríkis og hans réttlætis, og þá mun allt annað veitast yður að auki.“ Matt. 6:33. „Sæl er sú þjóð, er á Drottin að Guði, sá lýður, er hann hefur kjör- ið sér til eignar." Sálm 33:12. Ger- um bæn Hallgríms að okkar bæn á komandi ári: Gefðu að móðurmálið mitt. Minn Jesú, þess ég beiði. Frá allri villu klárt og kvitt. Krossins orð þitt út breiði. Um landið hér, til heiðurs þér. Helst mun það blessun valda. Meðan þá náð lætur vort láð. Lýði og byggðum halda. (H.P.) Á nýársdag 1985. Þessir hringdu . . Sparisjóður aldraðra Kona hringdi: Daginn út og daginn inn dynja yfir manni auglýsingar í öllum fjölmiðlum frá bönkum og öðrum peningastofnunum um breytingar á reikningum og vaxtakjörum þeirra. Þessar auglýsingar eru sennilega táknrænar fyrir eyðslu- semi stofnananna. Svo örar eru þessar breytingar að engin leið er fyrir almenning að henda reiður á þeim. Því miður bitnar þetta mjög á eldra fólki sem ekki uggir að sér og situr eftir með lökustu vaxtakjörin. Það er nauðsynlegt að koma í veg fyrir þetta óréttlæti og virðist eina lausnin vera að aldrað fólk stofni sinn eigin sparisjóð sem tryggir að það fái ekki lakari kjör en aðrir. Þessum bönkum og öðrum pen- ingastofnunum virðist ekki lengur treystandi fyrir innistæðum aldr- aðra. Vil ég biðja forsvarsmann þeirra, Guðjón Baldvinsson, að taka þessi mál til athugunar við fyrsta tækifæri. Engir hljómleikar á þessu ári Steinþór Einarsson, sölustjóri hjá Samvinnuferðum-Landsýn hringdi og bað um að eftirfarandi yrði komið á framfæri: Samvinnuferðir-Landsýn hefur kannað alla hugsanlega möguleika á því að efna til ferða á hljómleika hljómsveitarinnar Duran Duran eriendis í framhaldi af fjölda les- endabréfa um þetta efni. Að at-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.