Morgunblaðið - 31.01.1985, Page 56
E
EUROCARO
Ttt DAGUGRA NOTA
FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 1985
VERÐ I LAUSASÖLU 25 KR.
Kaupskipaflotinn:
Ahrifa verkfalls-
ins gætir fljótlega
VERKFALL undirmanna á kaup-
skipum hófst klukkan 11 í gær-
morgun eftir árangurslausan
næturfund hjá sáttasemjara ríkis-
ins. Enn ber talsvert á milli deilu-
aðilja og hefur sáttasemjari ekki
boðað til annars fundar. Alls munu
um 400 undirmenn á farskipunum
tengjast þessu verkfalli að sögn
Guðmundar Hallvarðssonar, for-
manns Sjómannafélags Reykjavík-
ur, en stöóugildi eru mun færri.
Fyrsta skipið stöðvast þegar í
dag og síðan munu þau stöðvast
hvert af öðru leysist verkfallið
ekki innan tíðar. Nokkur kaup-
skipanna eru í mjög löngum sigl-
ingum eða siglingum milli er-
lendra hafna og mun verkfallið
tæplega hafa áhrif á ferðir
þeirra.
Verkfallið tekur líka til olíu-
skipanna Kyndils og Stapafells
og langt verkfall mun raska
loðnubræðslu og veiðum víða um
landið. Að sögn Þórðar Ásgeirs-
sonar, forstjóra Olíuverzlunar
íslands, er Kyndill nú á leið til
Norðurlandshafna, þar sem hann
mun afferma olíu. Þórður sagði,
að líklega dygðu oliubirgðir á
útsölustöðum OLÍS í viku til 10
daga þar sem þær væru minnst-
ar. Hins vegar væri það mjög
bagalegt, að Stapafellið, skip
Sambandsins, væri nú á leið frá
landinu með lýsisfarm og hefði
því ekki getað sinnt olíudreif-
ingu.
Morgunblaðiö/Friðþjófur
Sæmilegt á línuna
Afli hefur verið tregur í net það sem af er vertíð í Grindavík, en þokkalegur á línu. Þeir línubátar, sem
róa með tvær lagnir, hafa fengið 9—18 lestir í róðri. Sigurþór GK var að koma að landi í gær er þessi
mynd var tekin og skipverjar gerðu sig klára í að kasta endanum í land. Á vertíðinni er ekki óalgengt að
1.100 aðkomumenn starfi í Grindavík að sjómönnum meðtöldum og þar landi um 60 bátar að staðaldri.
Kristján Arason
15 mörk
Kristjáns
KRISTJÁN Arason, stór-
skytta úr FH, lék mjög vel
með íslenska landsliðinu í
handknattleik er það sigraði
lið Ungverja með 28 mörkum
gegn 24 í fyrsta leik
„Tournoi de France
85-keppninnar“ í Valance í
gærkvöldi. Kristján skoraði
15 mörk og réðu Ungverj-
arnir ekkert við hann. Stað-
an í leikhléi var jöfn, 13:13,
eftir að Ungverjar höfðu
lengst af haft frumkvæðið.
Sjá nánar á íþróttasíðum,
á bls. 52 og 55.
SH gerir 1,6 mOljaröa
króna sölusamning
COLDWATER Seafood ( 'orporation,
fyrirtæki Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
hú.sanna í Bandaríkjunum, hefur
gert samning við Long John Silver’s
um sölu á allt að 25 milljónum
punda, eða sem svarar 11.400 smá-
lestum af frystum þorskflökum.
Long John er veitingahúsakeðja í
Bandaríkjunum, en fyrir rúmu ári
síðan var saraið um sölu á svipuðu
magni til fyrirtækisins.
Heildarupphæð samningins er
40 milljónir dollara, eða sem svar-
ar um 1640 milljónum íslenzkra
króna. Afgreiðsla fisksins fer
fram á 15 mánuðum, frá 1. apríl
1985 til 30. júní 1986, en núgild-
andi samningur SH við Long John
Silver’s rennur út 31. marz næst-
komandi. Með þessu tryggir SH
sölu á 5 punda þorskflökum til
Long John Silver’s, sem er stærsti
kaupandi þorskflaka í Bandaríkj-
unum.
„Þetta er mikilsverður samning-
ur fyrir frystihús innan SH. Hann
tryggir sölu á framleiðslu liðlega
11 þúsund lesta af frystum
þorskflökum á óbreyttu söluverði í
dollurum og með honum er komið
í veg fyrir hugsanlega verðlækkun
á Bandaríkjamarkaði," sagði Jón
Ingvarsson, stjórnarformaður
Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna í samtali við Mbl.
„Samningurinn er ekki síst mik-
ilvægur í ljósi hinnar hörðu verð-
samkeppni á bandarískum mark-
aði vegna sífelldra undirboða
Kanadamanna. Hann tryggir
stöðu okkar í Bandaríkjunum,"
sagði Jón Ingvarsson.
Fiskifræðingar eftir rannsóknir á loðnustofninum:
Leggja til 220 þús-
und lesta aukningu
FISKIFRÆÐINGAR hafa að loknum loðnurannsóknum fyrir austanverðu
landinu lagt til að auka megi núverandi loðnukvóta um 220.000 lestir. Ef af
verður mun heildaraflinn nema 815.000 lestum á vertíðinni, sem hófst
síðastliðið haust. í leiðangri fískifræðinganna mældust alls um 700.000 lestir
af loðnu og að mati þeirra gefur það til kynna að auka megi kvótann sem
þessu nemur miðað við að 400.000 lestir af loðnu hrygni f vor, en er mælingu
lauk voru 55.000 lestir eftir af áður ákveðnum kvóta, 595.000 lestum.
Halldór Ásgrímsson, sjávarút-
vegsráðherra, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að í dag yrði
haldinn fundur með hagsmunaað-
iljum til að skipuleggja aukningu
veiðanna. Aukninguna þyrfti að
ákveða í samvinnu við Norðmenn,
en ekki hefði náðst í þá í gær.
Þegar hefði þó verið gert ráð fyrir
aukningu til að auðvelda undir-
búning og skipulag veiðanna, en
mjög mörg skip væru þegar búin
með áður ákveðinn kvóta. Skipu-
lagning veiðanna væri mjög nauð-
synleg, sérstaklega með tilliti til
þess, að horfur á loðnufrystingu
væru nú góðar, en frystingin væri
sérstaklega mikilvæg fyrir ýmis
bæjarfélög.
Athuganir fiskifræðinganna
hófust út af Lónsvík en svæðið út
af Austfjörðum og Norðaustur-
landi var kannað í þessum leið-
angri. Enn er eftir að kanna svæði
út af vestanverðu Norðurlandi og
Vestfjörðum. Strax og aðstæður
leyfa verða þau svæði könnuð og
að könnun lokinni mun Hafrann-
sóknastofnun leggja fram lokatil-
iögur um leyfilegan hámarksafla á
loðnuvertíðinni.
MorgunblaöiA/Friðþjófur
Niðurskurður í Höfnum
í gær var slátrað því sem eftir
var af seiðum í laxeldisstöðinni
Sjóeldi hf. í Höfnum en nýrna-
veiki kom upp í stöðinni fyrir
skömmu eins og kunnugt er.
Milljónatjón hefur orðið hjá
stöðinni vegna þessara aðgerða
og er óvissa með áframhaldandi
rekstur. Myndirnar voru teknar
þegar vatninu hafði verið hleypt
úr síðasta eldiskerinu og unnið
var við að háfa seiðin upp til að
flytja í bræðslu.