Morgunblaðið - 06.03.1985, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 06.03.1985, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 6. MARZ 1985 Sjómannaverkfall Sjómenn á Akureyri: „Samningar yfirmanna voru reiðarslag fyrir okkur sjómenn“ Jón Hjaltason matsvcinn, Davíð Hauksson háseti og Árni Sigurðsson bátsmaður. Morgunblaðift/GBerg Akureyri, 5. mars. Á FUNDI sjómanna á Akureyri í gsrkvöldi var samþykkt einróma að fresta ekki verkfalli frá sl. miðnætti, eins og samninganefnd sjómanna hafði lagt til. Fréttamaður Mbl. hitti að máli þrjá sjómenn í dag, þar sem þeir voru til skrafs og ráðagerða í skrifstofu Sjómannafélags Eyja- fjarðar. Þeir voru Jón Hjaltason, matsveinn á togaranum Kaldbak, Davíð Hauksson, háseti á Súlunni, og Árni Sigurðsson, bátsmaður á togskipinu Björgúlfi frá Dalvík. „Þú mátt hafa það eftir okkur að við greiddum allir atkvæði gegn þessu samkomulagi, það nær einfaldlega ekki nógu langt til móts við okkar kröfur. Því fannst okkur fráleitt að samþykkja frest- un á verkfallinu, missa þannig togarana út í allt að 14 daga veiði- ferð, sérstaklega þar sem ljóst var eftir að yfirmenn höfðu brugðist í þessum átökum og samþykkt samninga, sem vitað var að við gátum ekki sætt okkur við, að þeir myndu ekki sigla þeim til hafnar nú eins og þeir gerðu á dögunum. Okkar menn hefðu því verið úti á sjó í allt að 14 daga eftir að samn- ingar hefðu verið felldir, eins og okkar trú er að verði raunin. Við erum sérstaklega sárir við yfir- menn, þar sem þetta er í fyrsta skipti sem þeir taka þátt í verk- falli með okkur. Fram til þessa hafa þeir haft allt sitt á þurru í verkföllum, verið á launum meðan við börðumst fyrir auknum laun- um og réttindum og þeir síðan fengið þau á silfurfati eftir að samningar náðust við okkur. Samningar yfirmanna voru reið- arslag fyrir okkur sjómenn nú,“ sögðu Jón, Davíð og Árni að lok- um. GBer* Magnús Guðnason, háseti á Hólma- nesi, kvað þessar sérkröfur sem sjó- menn gera í viðbót við aðalkjara- samning, í samræmi við fyrri samn- inga, en þá hefðu einnig verið gerðir samningar hér á Austurlandi á sama hátt. Magnús sagði, að andstaða við aðalsamningana væri talsverð og tók hann lífeyrissjóðamálið sem dæmi. Hann kvað ekki gott að segja hvernig færi ef reynt yrði að ná því fram, sem farið væri fram á. Jónas Guðmundsson, háseti á Hólmatindi, sagðist eiga verst með að sætta sig við lífcyrissjóðamálin og að lífeyrisréttindin skuli ekki hafa verið gerð afturvirk. Þá væri líf sjómanns- ins ekki hátt metið, eða á um rúm- lega 500 þúsund krónur. Einnig fannst honum of lítið koma til baka af kostnaðarhlutdeildinni, sem hann taldi mikið rangiætismál. Ekki vildi hann spá um framhald málsins, en vonaði að það gengi saman sem fyrst. Heitt í kolunum á Eskifirði Þó nokkur harka hljóp í verkfallið hér á Eskifirði á þriðjudag, eftir að sjómenn höfðu fellt aðalkjarasamninginn sem gerður var á mánudaginn. Verkfallsverðir stöðvuðu í morgun skipverja á vélskipinu Vetti, sem ætluðu að fara að láta netin um borð. Þá urðu ýfingar við togarann Hólmanes er verið var að færa hann á milli bryggja. Síðan hefur verið stöðug fjölmenn varsla við loðnuskipið Sæberg, en verkfallsverðir töldu að sigla ætti skipinu til veiða. Ekkert hafði þó gerst undir kvöldið á þriðjudag. Akranes: Verkfalli ekki frestað — óánægja með frestun verkfalls áður úrslit atkvæðagreiðslu samningana liggja fyrir Akranesi, 5. marz. SJÓMANNADEILD Verkalýðsfélags Akraness samþykkti á fundi sínum á mánudagskvöld að fresta verkfalli sjómanna á fiskiskipum og héldu þá tveir loðnubátar til veiða. í hádeginu í dag boðaði deildin skyndiiega til fundar að nýju og á honum samþykktu sjómenn að hætta við frestun. Guðmundur M. Jónsson, formað- ur deildarinnar, var spurður að því að loknum fundinum af hverju hætt hefði verið við frestun. „Við samþykktum að hætta við frestun verkfallsins fram yfir talningu at- kvæða og ástæðan er sú, að á mörg- um stöðum á okkar svæði hafa ver- ið framin verkfallsbrot. Okkar svæði er nánast allt landið nema Aust- og Vestfirðir, því annars staðar á landinu standa sjómanna- félögin saman að atkvæðagreiðslu. Á þessum fundi okkar voru mættir um 70 manns og ákvörðun okkar var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum nema einu. Þess má geta að skipverjar á Rauðsey AK, sem var annað skipið, sem fór til veiða frá Akranesi í nótt, sendu fundin- um skeyti og hétu fullum stuðningi við að hefja ekki störf fyrr en að atkvæðagreiðslu lokinni. Ég veit ekki til þess að nein verkfallsbrot hafi verið hér á Akranesi," sagði Guðmundur. „Ég held að það, sem helzt skap- ar urg í sjómönnum, sé að þeir eru andvígir því, að samninganefndir í Reykjavík hafi gefið leyfi til frest- unar verkfalls áður en úrslit at- kvæðagreiðslunnar liggja fyrir," sagði Stefán Lárus Pálsson, skip- verji á skuttogaranum Höfðavík AK 200, er fréttaritari Mbl. ræddi við hann í dag. „Ég greiddi nú reyndar atkvæði sem yfirmaður, þó ég teljist til hins hópsins í dag, en á undanförnum árum hef ég verið stýrimaður og skipstjori á bátun- um.“ Aðspurður um það hvernig Guðmundur M. Jónsson, formaður sjómannadeildar Verkalýðsfélags Akraness. honum fyndust samningarnir, sagði hann: „Mér finnst þeir að mörgu leyti góðir þó maður sé aldr- ei fyllilega ánægður. Við fáum þrjár af fjórum helztu kröfunum að Stefán Lárus Pálsson, skipverji á Höfðavík AK 200. Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson mestu í gegn. Lífeyrissjóðurinn kemur svo að segja að fullu eftir skamman tíma, góð útkoma fékkst varðandi slysa- og dánarbætur og kauptryggingin hækkaði verulega." Samningarnir hefðu verið felldir — segja sjómenn í Keflavík og Sandgerði ÞAÐ VAR ekki margan undirmanninn að finna í höfnunum í Keflavík, Njarð- víkum og Sandgerði er Morgunblaðsmenn voru þar á ferðinni um hádegisbilið í gær, enda varla von þar eð fundir í sjómannafélögum þessara staða kvöldið áður höfðu ákveðið að aflýsa ekki vinnustöðvun sjómanna fyrr en þeir bátar sem þjófstörtuðu og fóru á veiðar áður en vinnustöðvun var aflýst, hefðu dregið net sín úr sjó og komið að landi aftur. Gífurleg samkeppni er um bestu staðina til að leggja netin og gripu fundirnir til þessa ráðs vegna þeirra sem virtu ekki vinnustöðvunina, eftir að fréttist að samkomulag hefði tekist með samninga- nefndum sjómanna og útvegsmanna. Erlingur KE 45, sem er loðnubát- ur, var þó að leggja að í höfninni í Njarðvíkum. Skipverjar sögðust hafa farið frá Vestmannaeyjum klukkan eitt um nóttina, en þegar fréttist að verkfallinu hefði ekki verið aflýst fram yfir talningu at- kvæða, hefði verið ákveðið að fara inn til Keflavíkur. Undirmenn um borð kváðust lítið hafa frétt af efn- isatriðum samningsins, enda ekki haft tækifæri til að sitja félags- fundinn kvöldið áður, þar sem samningurinn var kynntur. Þeir sögðust ekki vilja fara á veiðar úr því að verkfallinu hefði ekki verið frestað. „Það er bara að fara f bæ- inn aftur," sagði einn þeirra. „Ég man aldrei eftir öðrum eins fjölda samankomnum á fundi hér eins og var í gærkveldi. Það kom fram mikil óánægja með samning- ana, mönnum fannst að ekkert hefði komið út úr þessu,“ sagði Þorsteinn Tyrfingsson, sjómaður, sem við hittum að máli í húsnæði Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur. Þorsteinn Tyrfingsson sjómaður. „Það var samþykkt að skila ekki atkvæðum um samningana inn fyrr en þeir bátar sem þjófstörtuðu eru búnir að draga upp net sín. Það er Jón Pálsson sjómaður. um að ræða tvo báta frá Keflavík og fjóra frá Sandgerði eftir því sem ég best veit. Annar báturinn héðan fór út strax á miðnætti í nótt og er kominn aftur með draslið. Ég veit ekki hvað verður með hinn bátinn hér, hann er ekki enn farinn út, en mér skilst að þeir séu einnig að draga upp í Sandgerði,“ sagði Þorsteinn ennfremur. „Ef það hefði verið talið hér sér, þá tel ég víst að þessir samningar hefðu verið felldir og ég á alveg eins von á því að samningarnir verði felldir í heildaratkvæða- greiðslunni. Samningarnir voru til dæmis felldir fyrir austan. Fæstir eru ánægðir með samningana og það hefði átt að halda áfram og sýna hörku til að fá eitthvað fram, úr því það var komið út I verkfall á annað borð. Það eina sem við feng- um í þessum samningum er dálítil hækkun á kauptryggingu og svo eru líftryggingamálin einnig í góðu lagi,“ sagði Þorsteinn að lokum. „Þetta var fjörugur fundur. Ef talið hefði verið sér hér þá er vafa- samt að samningarnir hefðu verið samþykktir. Það eru fæstir ánægð- ir með það sem náðst hefur, en sumir vilja samþykkja vegna þess að þeir telja að það fáist ekki meira og vilja komast á sjö sem fyrst," sagði Jón Pálsson, sjómaður, sem
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.