Morgunblaðið - 06.03.1985, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 6. MARZ 1985
27
TREHOLT-RÉTTARMÖLDIN
Tékkneskur flóttamaður varaði Treholt við:
„Ef Rússarnir ná tang-
arhaldi á litla fingrinumu
— munu þeir brátt gleypa þig allan
Ösló, 5. mars. AP.
BRITT Groen, fyrri eiginkona Arne Treholts, bar vitni í réttarhöldunum i
dag og skýröi frá því, að sovéskur sendimaður, sem síðar var rekinn úr
landi, hefði verið tíður gestur á heimili þeirra. Annað vitni, landflótta,
tékkneskur iistmálari, kvaðst hafa varað Treholt við og ráðlagt honum að
hætta að umgangast þennan sama mann. Sagði hann við Treholt, að hann
væri viss um, að allir Sovétmenn í þessari stöðu væru KGB-njósnarar. Á
morgun verða réttarhöldin lokuð og er óvíst hvort eða að hve miklu leyti
þau verða opin hér eftir.
Britt Groen, sem var gift Tre-
holt í sex ár, frá 1967—’73,
skýrði frá því, að sovéski sendi-
maðurinn Evgeny A. Beljayev
hefði verið tíður gestur á heimili
þeirra og spurði þá saksóknar-
inn, Lars Quigstad, hvort þau
hjónin og nánustu vinir þeirra
hefðu oft rætt um KGB í sínum
hóp. „Við vorum öll viss um, að
þessu fylgdi nokkur hætta,“
sagði Groen, „og við ræddum oft
um að við þyrftum að fara var-
lega í samskiptum okkar við sov-
éska borgara."
Þegar Arne Treholt var
kvæntur Britt Groen var hann
framarlega í röðum róttækra
vinstrimanna og blaðamaður að
atvinnu. Hefur hann viðurkennt,
að „óreglulegt" samband hans
við Sovétmenn hafi byrjað með
kunningsskap við Beljayev.
Groen sagði, að Beljayev hefði
heimsótt þau hjónin „mjög oft“
en hins vegar hefði hún aldrei
séð hann afhenda nein skjöl.
Þegar Quigstad spurði um hvað
þeir hefðu rætt, sagði hún það
aðallega hafa verið ýmis pólitísk
málefni, Atlantshafsbandalagið,
herstjórnin í Grikklandi og ým-
islegt, sem kom fram í blöðun-
um. Fram hefur komið áður, að
Treholt tók við 1000 n.kr. af
Beljayev til að kaupa fyrir bók
um grísku herstjórnina og senda
ákveðnum mönnum en um það
kvaðst Groen ekki hafa vitað.
Tékkneski flóttamaðurinn og
listmálarinn Jan Kristofori, sem
einu sinni var vinur Treholts og
leigði hjá þeim hjónunum, Groen
og honum, sagði í vitnisburði
sínum, að hann hefði varað Tre-
holt við vinskapnum við Belja-
yev.
„Láttu þér nægja vodkað og
kavíarinn," kvaðst hann hafa
sagt við Treholt. „Ef Rússarnir
ná tangarhaidi á litla fingrinum
munu þeir brátt gleypa þig allan.
Ég er ekki í neinum vafa um, að
þessir menn eru allir KGB-
njósnarar."
„Hvernig brást Treholt við
orðum þínum?" spurði Quigstad.
„Hann sinnti því í engu, sagði
bara, að þetta væri allt í lagi,“
svaraði Kristofori.
Ákæruvaldið og verjendur
Treholts greinir enn mikið á um
að hve miklu leyti réttarhöldin
eigi að vera opin það sem eftir er
og var ekki ráðið fram úr þvi á
tveggja tíma löngum fundi í dag.
Ulf Underland, oddviti verjend-
anna, sagði í viðtali við norska
útvarpið, að samkomulag væri
hinsvegar um, að þau vitnanna,
sem skipuðu háar stöður í her og
lögreglu, skyldu vitna fyrir lok-
uðum dyrum.
í viðtali við NTB-fréttastof-
una sagði Jon Lyng, einn verj-
endanna, að hann teldi, að
nokkrir fyrrum embættismenn
ríkisins ættu að vitna fyrir
opnum tjöldum. Meðal þeirra
væru t.d. Jens Evensen, fyrrum
hafréttarráðherra og yfirmaður
Treholts frá 1973—79, fyrrum
utanríkisráðherra, Knud Fryd-
enlund, og aðstoðarvarnarmála-
ráðherra, Johan Jörgen Holst.
Evensen er nú dómari við Al-
þjóðadómstólinn í Haag.
*
Astralía:
Ekki nýjar tillögur
um varnarsáttmála
^ Kuala Lumpur, Malaysíu, 5. mars. AP.
ÁSTRALÍUMENN ætla ekki að
hafa frumkvæði að nýjum varnar-
sáttmála við Bandaríkjamenn í stað
þess fyrri milli Bandaríkjamanna,
Astrala og Ný-Sjálendinga, ANZUS-
bandalagsins, sem nú má heita í
fjörbrotunum. Kom þetta í dag fram
hjá Bill Hayden, utanríkisráðherra
Ástralíu.
„Við höfum engar tillögur um
nýjan sáttmála," sagði Hayden á
blaðamannafundi í Kuala Lumpur
í Malaysíu, þegar hann var inntur
eftir klofningnum í ANZUS-
bandalaginu í kjölfar þeirrar
ákvörðunar Ný-Sjálendinga að
banna kjarnorkuvopnabúnum
herskipum að koma þar í höfn.
Búist er við, að David Lange,
forsætisráðherra Ný-Sjálendinga,
komi til Kuala Lumpur á föstudag
til að skýra út fyrir Mahathir Mo-
hamad, forsætisráðherra Malay-
síu, hvers vegna hann ákvað að
banna komu bandarískra herskipa
til nýsjálenskra hafna. Malayískir
embættismenn fara ekkert í felur
með, að þeim líkar illa ákvörðun
Langes vegna sívaxandi umsvifa
Sovétmanna í þessum heimshluta.
„Blómakarfa“ Gauguins
komin í leitirnar
Hanau, 5. febrúar. AP.
MÁLVERK Pauls Gauguin, Blóma-
karfan, sem stolið var frá Listasafn-
inu í Osló 1982, ásamt sjö öðrum
mjög verðmætum listaverkum, hefur
komið í leitirnar í járnbrautarstöð í
Innsbriick í Austurríki.
Málverkið, sem lögregla fann í
töskugeymslu á stöðinni, hafði
skemmst verulega vegna þeirrar
meðhöndlunar, sem það hlaut í
höndum þjófanna. Það hefur verið
metið á 176 þúsund bandaríkjadali
(jafnvirði hálfrar áttundu milljón-
ar ísl. króna).
Hin málverkin sjö fundust í bif-
reið í borginni Hanau i Vestur-
Þýskalandi í júní f fyrra. Maður,
sem ekki hefur verið nafngreindur,
var þá handtekinn, en hann hafði
reynt að fá lögfræðing til að hafa
milligöngu um greiðslur fyrir
verkin frá Listasafninu í Osló.
Fleiri menn voru handteknir síðar í
sambandi við rannsókn málsins.
Lögfræðingurinn skýrði síðan
frá því 25. febrúar sl. að hann vissi
hvar áttunda málverkið, Blóma-
karfa Gauguins, væri niður komið
og var það samdægurs tekið í
vörslu lögreglunnar. Frá fundinum
var hins vegar ekki greint fyrr en í
dag.
Lögreglan segir að þjófarnir til-
heyri indverskum sértrúarsöfnuði,
sem starfar í Frankfurt og Osló.
Veður
víða um heim
Lægst Hæst
Akureyri +1 léttskýjað
Amsterdam 2 8 skýjaö
Aþena 8 16 skýjað
Bracelona 12 skýjaö
Berlín 3 7 skýjaö
Chicago 0 11 skýjað
Dublín 2 8 bjart
Feneyjar 10 skýjaö
Frankfurt 4 11 rigning
Genf +1 5 snjókoma
Helsínki +« +4 bjart
Hong Kong 13 17 bjart
Jerúsalem 5 14 skýjaö
Kaupm.höfn 1 1 skýjaö
Lissabon 6 14 rigning
London 3 12 bjart
Los Angeles 5 18 rigning
Luxemborg 7 skýjaö
Malaga 14 léttskýjað
Mallorka 14 léttskýjað
Miamí 23 25 skýjaö
Montreal +14 +2 snjók.
Moskva +12 +5 bjart
New York +3 2 skýjaö
Osló +3 +3 snjók.
París 4 10 skýjaö
Peking +8 0 skýjaö
Reykjavík 3 útk.í gr.
Rio de Janeiro 20 30 skýjað
Rómaborg 2 17 bjart
Stokkhólmur +« +3 skýjaö
Sydney 15 25 bjart
Tókýó 5 7 bjart
Vinarborg 0 3 skýjaö
Þórshöfn 8 skýjaö
Frekari
verkföll
vofa yfir
Pan Am
New York, 5. mars. AP.
Verkalýðsfélag flugþjóna, sem er
fulltrúi 6.000 starfsmanna hjá flug-
félaginu Pan American, hefur boðað
verkfall frá og með 1. aprfl næst-
komandi vegna þess að yfirmenn
flugfélagsins hafa vísað frá kröfum
um kauphækkanir.
Verkfallsboðunin kemur sér illa
fyrir hið illa fjárhagslega stadda
flugfélag, því þegar hefur verkfall
5.700 vélvirkja og fleiri flugvallar-
starfsmanna Pan Am allt að því
lamað innanlandsflug fyrirtækis-
ins í Bandaríkjunum.
TWU, verkalýðsfélagið, sem
hefur innan vébanda sinna þá
starfsmenn sem nú eru í verkfalli,
hafði hafnað tilboði um 20 prósent
kauphækkun, sem hefði komið til
framkvæmda á 2 ára tímabili,
m.a. vegna þess að félagið telur að
14 prósent kauphækkun sem sam-
ið var um árið 1982 hafi aldrei
komið til framkvæmda. John
Kerrigan, talsmaður verkalýðsfé-
lagsins sagði, að fátt virtist geta
komið í veg fyrir að verkfallið
dragist á langinn, því „þeir vilja
ekkert við okkur tala og við þar af
leiðandi ekki við þá“. Talsmenn
Pan Am hafa snúið þessari yfir-
lýsingu við.
LITGREINING MED
CROSFIELD
540
LASER
Klassískt kvöld
í Arnarhóli í kvöld
Marakvartettinn
leikur kammertónlist undir borðhaldi.
NÝR, STÓRKOSTLEGUR SÉRRÉTTASEÐILL.
NÝJUNG í KONÍAKSSTOFUNNI
Eftir Ijúffengan kvöldverft er notalegt aö setjast
í koníaksstofuna og hlusta á klassíska músík.
Sigríður Elliðadóttir sópransöng-
kona syngur fyrir gesti okkar.
Sigríður hóf söngnám við Tónskóla Sigursveins D. Krist-
inssonar og naut þar tilsagnar John Speight. Sl. þrjá
vetur hefur Sigríður stundað nám við Nýja tónlistarskól-
ann með Sigurð Demetz Franson sem aðalkennara.
Undirleikari er skólastjóri Nýja tónlistarskólans Ragnar
Björnsson.
Vinsamlegast pantið borð timanlega.
Me<) ósk um a<) þi<) eigid ánægjulega kvöldstund.
ARNARHÓLL
A horni Hverfisgötu og Ingólfsstrætis.
Boróapantanir í síma 18833.
LYKILLINN AD VANDAÐRI LITPRENTUN