Morgunblaðið - 06.03.1985, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 06.03.1985, Blaðsíða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. MARZ 1985 Terry Venables fær tvö freistandi tilboö ITALSKA knattspymufólagiö Int- er Milan heur boðiö Englendingn- um Terry Venables 250.000 pund fyrir eins árs starf hjá félaginu sem þjálfari skv. blaðafregnum á Englandi. Venables er nú þjálfari hjá Barcelona á Spáni og hefur liöö yfirburöastöðu í 1. deildinni þar í landi. Hann var áöur hjá QPR. Venbales hefur íhugaö aö taka sór frí frá knattspyrnu eftir 'þetta keppnistímabil. Forseti Barcelona, Luis Nunez, hefur ákveöiö, skv. frétt Sunday Mirror, að gera Venables tilboð um fjögurra ára samning til viöbót- ar viö þann sem hann hefur nú við félagiö — og bjóöa honum eina milljón punda fyrir þann samning. Þaö eru rúmar 45 milljónir ís- lenskra króna. Greinilegt aö Barcelona vill ekki missa Venables — en liðinu hefur gengið mun bet- ur en undanfarin ár eftir aö hann tók viö stjórninni í haust. Þess má geta aö með Inter Mil- an á ítalíu leika m.a. þeir Liam Brady, írinn snjalli sem áöur var hjá Arsenal, og Karl Heinz Rumm- enigge, fyrirliöi vestur-þýska landsliösins. • Terry Venables Evrópumeistaramótið í frjálsum íþróttum innanhúss: Bennett bætti heims- árangurinn í 400 metrum ÞAD VORU 377 keppendur frá 26 þjóðum sem mættu til leiks á Evrópumeistaramótinu í frjálsum íþróttum sem fram fór í Aþenu í Grikklandi um síðustu helgi. Remigius Machura frá Tékkó- slóvakíu stal gullverölaununum frá Austur-Þjóöverjanum Ulf Timm- ermann í kúluvarpi, er hann setti nýtt Evrópumet innanhúss og varpaöi kúlunni 21,74 metra og féll þar meö 11 ára gamalt met Geoff Capes sem var 20,95 metrar. Timmermann, sem er talinn besti kúluvarpari i dag, varö í ööru sæti, kastaði 21,44 metra, þriöji varö Svisslendingurinn Werner Gúenthör meö 21,33 metra. Hörö keppni var í langstökkinu milli Ungverjanna Byula Paloczi og Laszlo Yzalma, þeir stukku báöir 8,15 metra en Byula var dæmdur sigur þar sem hann stökk þessa lengd í fyrstu umferö, þriöji varö Sergej Laevsky frá Sovétríkjunum, sem stökk 8,14 metra. í langstökki kvenna var ein sem stökk lengra en sjö metra, þaö var Galina Christiakova frá Sovót- ríkjunum. Hún stökk 7,02 metra. Todd Bennett frá Bretlandi náöi besta árangri sem náöst hefur í 400 metra hlaupi innanhúss í heiminum er hann sigraöi á 45,56 sek. Svíinn Patrik Sjöberg, sem á best 2,38 metra í hástökki, sigraöi örugglega er hann stökk 2,35 m og átti einnig góöa tilraun viö heims- met 2,40 metra en felldi naumlega. Helena Fibingerova frá Tékkó- slavíu vann sín áttundu gullverö- EM innanhúss í Aþenu: Sex Grikkir gripnir fyrir lyfjanotkun SEX Grikkir voru útilokaðir frá keppni á Evrópumeistaramótinu innanhúss sem fram fór um síð- uatu helgi í Aþenu í Grikklandi, vegna notkunar á ólöglegum lyfj- um. Fimm karlar og ein kona vorg útilokuö frá keppni eftir aö komið haföi fram i blóöprufu sem tekin var af j>eim tveim dögum fyrir keppnina aö þau heföu notaö ólögleg hormónalyf. -lástökkvarinn Dimitris Kattis, s>>m var einn af þessum sex, sagöi vió blaöamenn aö hann heföi aldr- ei tekiö ólögleg lyf á sínum ferli. „Ég hef átt i vandræöum meö blóöþrýstinginn og einu lyfin sem ég tók var asperin," sagöi Kattis sem skorar á gríska frjálsíþrótta- sambandiö aö taka aöra prufu. Hinir sem féllu á þessu lyfjaprófi voru: kúluvarparinn Dimitrious Koutsoukis, grindahlauparinn El- izabeth Pandazi, þrístökkvarinn Dimitrious Mihas, spretthlauparinn Sotirios Tifas og grindahlauparinn Georgios Tsiandas. Lyfjaprófin voru tekin í háskóla í Aþenu en fara síöan í nánari rann- sókn til Rómar, þar sem rann- sóknarstofa sem Alþjóöa ólympíu- nefndin samþykkir. Ef þaö koma sömu niðurstööur úr lyfjaprófunum þar, munu þessir sex íþróttamenn fá lífstiöar bann. Þetta mál er talið mikiö hneyksli fyrir Grikkland sem er land ólymp- íuhugsjónarinnar. laun á Evrópumóti er hún sigraöi í kúluvarpi kvenna, varpaöi 20,84 metra. Fibingerova er 36 ára og hefur keppt á Evrópumótum síö- astliöin 11 ár. 20 ára Búlgari, Christo Markov, sigraöi í þrístökki, stökk 17,29 metra. Stefano Tilli sigraði í 200 metra hlaupi karla á 20,77 sek., hann setti met i þessari grein í síöasta mánuöi, hljóp þá á 20,52 sek. Helstu úrslit á Evrópumeistara- mótinu uröu þessi: Héstökk karla: metrar 1. Patrik Sjöberg, Svíþjóö 2,35 2. Aleksandar Kotovic, Sovétrikjunum 2,30 3. Dariusz Ðiczysko, Póllandi 2,30 Héttökk kvenna: 1. Stefka Kostadinova, Búlgariu 1,97 2. Susanne Helm, A-Þýskalandi 1,94 3. Danuta Bulkwska, Póllandi 1,90 Kúluvarp karla: 1. Remigius Machura, Tókkósl. 21,74 2. Ulf Timmermann, A-Þýskalandi 21,44 3. Werner Gúenthör, Sviss 21,23 Kúluverp kvenna: 1. Helena Fibingerova, Tókkósl. 20,84 2. Claudia Losch, V-Þýskaland 20,59 3. Heike Hartwig, A-Þýskaland 19,53 Þríatökk karla: 1. Christo Markov, Búlgaríu 17,29 2. Jan Cado, Tókkósl. 17,23 3. Volker Mai, A-Þýskalandi 17,14 Langatökk kvenna: 1. Galina Christiakova. Sovetríkjunum 7,02 2. Eva Murkova, Tókkósl. 6,99 3. Heike Drechsler, A-Þýskaland 6,97 400 metra hlaup karla: 1. Todd Bennett, Bretlandi 2. Klaus Just, V-Þýskalandi 3. Jose Alonso, Spáni aek. 45,56 45,90 46,52 200 metra hlaup karla: 1. Stefano Tilli, ítalíu 20,77 2. Olaf Prenzler, A-Þýskalandi 20,83 3. Aleksandr Evgeniev, Sovótríkjunum 20,95 200 metra hlaup kvenna: 1. Marita Koch, A-Þýskalandi 22,82 2. Kirsten Emmelmann, A-Þýskalandi 23,06 3. Els Vader, Hollandi 23,64 60 metra grindahlaup karla: 1. Gydergy Bakos, Ungverjalandi 7,60 2. Jiri Hudec, Tókkósl. 7,68 3. Viachesla Ustinov, Sovótríkjunum 7,70 60 metra grindahlaup kvenna: 1. Cornelia Oschkeat, A-Þýskalandi 7,90 2. Guinka Zagotcheva, Búlgaríu 8,02 3. Anne Piquereau, Frakklandi 8,03 60 metra hlaup karla: 1. Michael Macfarlane, Ðretlandi 6,61 2. Antoine Richard, Frakklandi 6,63 3. Ronald Desruelles, Belgíu 6,64 1500 metra hlaup karla: mín. 1. Jose Gonsalez, Spáni 3:39,26 2. Markus O’Sullívan, írlandi 3:39,75 3. Jose Carreira, Spáni 3:40,43 1500 metra hlaup kvenna: 1. Doina Melinte, Rúmeníu 4:02,54 2. Fita Lovin, Rúmeníu 4:03,46 3. Birgitte Kraus, V-Þýskalandi 4:03,64 800 metra hlaup karla: 1. Robert Harrlson, Bretlandi 1:49,09 2. Petru Dragoescu, Rúmeniu 1:49,38 3. Leonid Masunov, Sovótrikjunum 1:49,59 800 metra hlaup kvenna: 1. Ella Kovacs, Rúmeníu 2:00,51 2. Nadezhda Olizarenko, Sovótr. 2:00,90 3. Cristeana Cojocaru, Rúmeníu 2:01,01 3000 metra hlaup kvenna: 1. Agnese Possamai, ítalíu 8:55,25 2. Olga Bondarenko, Sovótríkjunum 8:58,03 3. Yvonne Murray, Bretlandi 9:00,94 3000 metra hlaup karla: 1. Bob Verbeck, Belgíu 8:10,84 2. Thomas Weaainghage, V-Þýskal. 8:10,88 3. Giaenk Tiscaenko, Sovótríkjunum 8:10,91 Leikið í kvöld í Digranesi BREIOABLIK og B-lið Vals leika í kvöld í Dígranesi í bikarkeppni HSÍ og hefst viöureign liöanna kl. 21.15. Leikurinn er liður í 16 liða úrslítum keppninnar. í liði Vals eru sem kunnugt er margir gaml- ir landsliöskappar. Á undan leika HK og Fram í 2. deild karla í Digranesi. Sá leikur hefst kl. 20. Islandsmeistara- mót í bekkpressu: Kári vann bezta afrekið KÁRI Elísson frá Akureyri vann bezta afrekið á fyrsta íslands- meistaramótínu { bekkpressu, sem haldið var í veitingahúsinu Klúbbnum á laugardaginn. Kári lyfti 165 kg í 75 kg flokki og er þaö besta afrekiö skv. alþjóð- legri stigatöflu. Keppt var í tveimur flokkum kvenna og sex karlaflokkum og uröu úrslit í þeim sem hór segir: 60 kg flokkur: Hildur Nielsen 52,5 kg 75 kg flokkur: Margrót Óskarsdóttir 67,5 kg Karlar 75 kg flokkur: Kári Elísson 165 kg Andersen (gestur frá Bandaríkjunum) 90 kg 82,5 kg flokkur: Daníel Olsen 130 kg Kjartan Hjálmarsson 107,5 kg Þorgeir Magnússon 105 kg 90 kg flokkur: Ðaldvin Skúlason 140 kg 100 kg ftokkur: Ólafur Sigurgeirsson 185 kg Birgir Viöarsson 115 kg 110 kg flokkur: Víkingur Traustason 192,5 kg Höröur Magnússon 170 kg Valbjörn Jónsson 160 kg Ágúst Kárason 147,5 kg 125 kg flokkur: Hjalti Árnason 192,5 kg Barcelona með örugga forystu BARCELONA er nú meö 11 stiga forystu í 1. deildinni á Spáni eftir 27 umferöir og viröist lítiö geta komiö í veg fyrir aö liöiö veröi meistarí i ár. Úrslit leikja í 27. umferö voru þessi: Malaga — Hercules 1—1 Valencia — Barcelona 2—5 Murcia — Valladolid 1—2 Madríd — Gijon 0—0 Real Sociedad — Sevilla 5— 1 Osasuna — Santander 0—0 Elche — Zaragoza 0—0 Betis — Bilbao 0—2 Espanol — Real Madrid 2—0 Staöan i deildinni er nú þessi: Barcelona 27 18 8 1 62:21 44 Madrid 26 12 9 5 39:23 33 Gijon 27 9 14 4 24:19 32 Real Madrid 27 10 10 7 35:27 30 Real Sociedad 27 9 11 7 35:24 29 Bilbao 27 8 13 6 27:22 29 Valencia 27 8 12 7 34:28 28 Zaragosa 27 9 10 8 29:28 28 Sevilla 27 9 9 9 23:29 27 Santander 27 8 10 9 21:25 26 Espanol 27 7 11 9 31:38 25 Malaga 27 7 11 9 20:29 25 Osasuna 26 9 6 11 30:31 24 Valladolid 27 5 14 8 33:38 24 Betis 27 8 7 12 26:24 23 Hercules 27 5 12 10 21:34 22 Elche 27 4 11 12 11:28 19 Murcia 27 3 10 14 17:40 16 „Get gert þetta aftur" sagði Fernandez Ochoa eftir sinn fyrsta sigur í heimsbikarnum BLANCA Fernandes Ochoa frá Spáni sigraði í storsvigi sem fram for í Colorado í Bandarikjunum og er liður í heimsbikarkeppninni á skíðum. Fernandez Ochoa er 21 árs og er eini keppandinn í kvennaflokki í heimsbikarkeppninni i vetur frá Spáni. Hún vann þarna sinn fyrsta sigur í heímsbikarkeppninni en hún hefur veriö meöal keppenda þar í fimm ár. Ochoa var meö besta tímann í báöum umferöum stórsvigsins og var tæpri sekúndu á undan Mariu Walliser frá Sviss sem hafnaöi í ööru sæti. Ochoa sagöi eftir keppnina: „Ég hef beöiö eftir þessu í tvö ár og nú er ég sannfærö um aö ég get gert þetta aftur." Hún hefur átt viö meiösli aö stríöa í vinstra hnéi í vetur og mun hún koma til meö aö láta skera sig upp við því eftir þetta keppnistím- abil sem er senn á enda. Fernandez Ochoa er komiö af mikilli skiöafjölskyldu, bróöir hennar, Francisco Fernandez Ochoa, varö Ólympíumeistari í svigi 1972. Michela Figini sem er efst að stigum í heimsbikarkeppninni varö aö láta sér lynda 2. sætiö og bætti sig ekki. Ólympíumeistarinn Debbie Armstrong frá Bandaríkjunum varö í 13. sæti og þar á eftir kom landa hennar Cindy Nelson. Tamarq McKinney frá Banda- ríkjunum, sem er efst aö stigum í stórsviginu, var ekki meö vegna meiösla. Urslit i stórsviginu voru þessi: Min. Blanca Fernandez Ochoa, Spáni. 2.26,88 Maria Walliser, Sviss, 2.27,49 Vreni Schneider, Sviss, 2.28,12 Zoe Haas, Sviss, 2.28,12 Traudl Haecher, V-Þýskalandi, 2.28,57 Elisabeth Kirchler, Austurríki, 2.28,72 Mateja Svet, Júglóslaviu, 2.28.74 Maria Epple, V-Þýskalandí, 2.28,94 Perrine Pelen, Frakklandi, 2.28,99 Carole Merle, Frakklandi, 2.29,03
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.