Morgunblaðið - 06.03.1985, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 06.03.1985, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. MARZ 1985 5 Vestmannaeyjar: Minnti á gömlu góðu dagana — þegar Eyjaflotinn lét úr höfn Yestmannaeyjum, 5. rcars. ÞAÐ VAR heldur betur hamagangur við höfnina hér um miðnæturleytið í nótt þegar frestun á verkfalli sjó- manna tók gildi og allur Eyjaflotinn hélt til veiða, svo að segja á sömu mínútunni. Minnti þetta ástand í mörgu á þá gömlu góðu daga þegar það var til siðs að gefa „blússið“, sem svo var kallað. Ákveðið merki var gefið í landi og bátaflotinn háði harða kappsiglingu á fiskimiðin. Enginn mátti halda í róður áður en merkið var gefið. Netabátar, trollbátar, loðnubát- ar og togarar þustu úr höfn í nótt og fyrstu netabátarnir voru að koma aftur í höfn í morgunsárið eftir að hafa lagt netin. Þeir munu draga á morgun. Nú um hádegis- bilið sigldi fyrsti loðnubáturinn inn um hafnarkjaftinn, Gullberg VE, með 180 tonn, en Gullbergið er einn þriggja báta sem veiða loðnu til frystingar fyrir frysti- húsin hér. Síðan hefur Bergur komið að landi með 120 tonn og bátar eru farnir að landa í bræðsl- urnar. Loðnuna fengu skipin hér skammt vestur af Eyjum. Ilmur- inn af ferskri loðnu berst nú um allt hafnarsvæðið. Loðnan úr Gullberginu er frekar smá og því erfið til frystingar, 55 til 60 stykki fara í kílóið. Hrognafylling er hins vegar 20%, svo það er í góðu lagi. Hjól atvinnulífsins eru því aftur farin að snúast eftir bakslag síð- ustu vikna. - H.KJ. Er mikið um verkfallsbrot? „Já, það virðist mér. Á bryggjunni er til dæmis verið að steina niður þorskanet í tveimur bátum. Mér finnst það mjög kúnstugt að menn geti verið að vinna í bátunum í verkfallinu, jafnvel sömu mennirn- ir, sem voru á fundi hér áðan að samþykkja að halda verkfalli áfram. Á togurunum er hins vegar algjör samstaða um að vinna ekki. Einnig skilst mér að á Suðurnesj- um hafi þeir farið strax á sjó. Skip- in, sem fóru héðan í nótt, höfðu heimild til að róa og sennilega koma þau inn aftur strax í dag.“ Heldur þú að samningarnir verði samþykktir í félögunum? „Ég er frekar svartsýnn á það eins og mál- in hafa þróazt. Ef þú hefðir spurt þessarar spurningar í gær hefði ég verið mun bjartsýnni. Nei, ég hef trú á því að þetta verði fellt. Það græðir enginn launþegi á því, að vera í verkfalli. Útvegsmenn eru sjálfsagt í sjöunda himni, þeir fara ekki ílla út úr þessum samningum," sagði Stefán Lárus Pálsson. — J.G. Morgunblaðsmenn hittu að máli í höfninni í Sandgerði, aðspurður um fundinn kvöldið áður. „Það skiptir gífurlegu máli að ná bestu plássunum og það er áreið- anlega þess vegna sem þessir fjórir bátar þjófstörtuðu. Við viljum að allir hafi sömu möguleika og þess vegna samþykktum við að aflýsa ekki verkfalli, fyrr en þeir hefðu tekið netin úr sjó og væru komnir inn,“ segir Jón ennfremur. „Ég held að mesta óánægjan sé með það að kostnaðarhlutdeildinni var ekki breytt sem neinu nemur. Almennt eru menn ekki óánægðir með kauptrygginguna eins og hún er núna, en þessi samningur er til langs tíma og litlar hækkanir tryggðar á samningstimanum. Það er búið að fella samningana á nokkrum stöðum og ekki gott að segja hver verður niðurstaða heild- aratkvæðagreiðslunnar. Mér skilst að mikill meirihluti hafi verið fyrir því í Keflavík að fella samningana, en ekki er gott að segja hvernig hljóðið hefur verið annars staðar, til dæmis í Reykjavík og Hafnar- firði. Þetta getur því farið á hvorn veginn sem er,“ sagði Jón að lokum. Birgir Björn Sigurjónsson, hagfræðingur BHM, og Stefán Ólafsson, for- maður Launamálaráðs BHM. Launamálaráð BHM um tilboð ríkisins: greiðslum til ríkisstarfsmanna annars vegar og starfsmanna með sömu eða sambærilega menntun á almennum markaði hins vegar. „í könnun þessari kemur fram að háskólamenntaðir starfsmenn á almennum markaði höfðu frá 1—18% hærri laun en starfsmenn ríkisins, en meðaltal- ið var 14%,“ sagði Indriði. „Með tilliti til starfskjara, sem ríkis- starfsmenn hafa óneitanlega um- fram aðra, t.d. varðandi lífeyr- ismál, veikindarétt, námsleyfi og fleira þá teljum við að þetta til- boð okkar geri kjör þeirra fylli- lega sambærileg við starfsmenn á almennum markaði. Við höfnum hins vegar þeim talnaleik Laun- anburðarnefndarinnar, en margir félagar í BHMR þyrðu ekki að treysta því að þau gögn yrðu tek- in til greina. Kennarar hefðu t.d. gripið til uppsagna til að forðast það að þeir þyrftu að bíða eftir Kjaradómi. Éf kemur til kasta dómsins á næstunni á hann að kveða upp úrskurð sinn í lok mánaðarins, en gæti frestað því um einn mánuð, enda væri mikið verk að fara yfir greinargerðir allra félaga og ríkisins, auk þess sem málflutningur væri tíma- frekur. Það kom einnig fram á fundin- um að nokkur félög eru þegar far- in að safna uppsögnum félags- manna sinna. Gísli Ólafur Pét- „Felur í sér lækkun fyrir suma hópa“ - „Leiðrétting til jafns við aðra starfsmenn með sömu menntun á almennum markaði“ segir formaður samninganefndar ríkisins „TILBOÐ samninganefndar ríkisins felur í sér launalækkun fyrir suma hópa vegna útfærslu nefndarinar á röðun í launaflokka," sagði Stefán Ólafsson, formaður launamálaráðs BHM, á blaðamannafundi í gær. Indriði H. Þorláksson, formaður samninganefndar ríkisins, sagði þetta alrangt, tilboðið hefði aðeins hljóðaö upp á 5% meöalhækkun og ætlast væri til að félög leggðu fram hugmyndir sínar um dreifingu starfsheita. Samninga- nefnd ríkisins hefði ekki stungið upp á neinum breytingum nema þessari launahækkun. Launamálaráðið hélt fundinn til að kynna sín sjónarmið í kjarabaráttu félagsins við ríkið. Stefán sagði tilboð samning- anefndarinnar á mánudag hljóða upp á um 5% hækkun launa, en hjá sumum yrði í raun lækkun á launum, því tilboðið fæli í sér aðra röðun í launaflokka en áður var. „Tilboðið er í engu samræmi við niðurstöður nefndar, sem vann að samanburði á kjörum há- skólamanna hjá ríkinu annars vegar og á almennum markaði hins vegar,“ sagði Stefán. „Það er ótrúlegt að ekkert tillit er tekið til niðurstöðu þeirrar nefndar, sem fulltrúi fjármálaráðuneytis- ins átti sæti í. Þessi sami maður er nú formaður samninganefndar ríkisins og þrætir fyrir að vinnu- brögð nefndarinnar hafi verið rétt. Þó hafði hann ekkert við þau að athuga þegar könnunin var gerð. Það mætti ætla að þessi könnun hafi aðeins verið fram- kvæmd til að draga mál á lang- inn, en ekki til að reyna að sam- ræma kjör háskólamenntaðra manna hjá ríkinu og á almennum markaði." Indriði H. Þorláksson sagði að samninganefnd ríkisins hefði miðað sitt tilboð við könnun Hag- stofu íslands á heildarlauna- amálaráðs og fulltrúa félaganna að taka gjörsamlega ósambæri- legar staðreyndir og bera þær saman.“ Stefán ólafsson sagði fulltrúa ríkisins hafa staðfest það með til- boðinu í gær að þeir teldu ekki ástæðu til leiðréttingar á kjörum þessa hóps. „Við höfum óskað eft- ir tilboði frá samninganefndinni, sem byggir á þeim gögnum sem samanburðarnefndin vann,“ sagði Stefán. „Það er bæði bundið í lög og eru ákvæði um það í aðal- kjarasamningi, að ríkisstarfs- menn eigi að njóta sömu kjara og sambærilegir hópar á almennum markaði og við viljum ekki trúa því að fjármálaráðuneytið reyni ekki að semja við okkur. Það er ekki hægt að varpa af sér allri ábyrgð á þennan hátt.“ Ef ekki nást samningar í kjara- deilunni mun koma til kasta Kjaradóms. Það kom fram í máli fulltrúa Launamálaráðs að slíkt væri þeim lítt að skapi, því Kjaradómur hefði ætíð dæmt þeim í óhag. Nú hefði Kjaradóm- ur þó í höndum betri gögn en áð- ur, þar sem eru niðurstöður sam- ursson, sem sæti á í samninga- nefnd HÍK, sagði, að rætt yrði við samninganefnd ríkisins um sér- kröfur kennara og mun sá fundur verða í dag kl. 13.30. Hann sagði að af þeim sjö sem sæti eiga í samninganefnd kennaranna myndi einn hækka um 900 krónur á mánuði ef tilboði ríkisins yrði tekið en sagði einnig, að grunn- skólakennarar, sem eru með tæp- ar 20 þúsund krónur í mánaðar- laun myndu lækka í 18.500 krón- ur. Að lokum sagði einn fulltrúi í Launamálaráði að samninga- nefndarmaður ríkisins hefði sagt á fundi með BHMR að samninga- nefnd ríkisins hefði ekki pólitískt umboð til að semja við félögin á þeim grunni er þau óska eftir. Indriði H. Þorláksson sagði það rétt að samninganefnd ríkisins hefði ekki umboð til að semja við félögin samkvæmt þeirra óskum. „Það er alls ekki vilji stjórnvalda að semja við þessi félög um 80—100% hækkun til háskóla- menntaðra starfsmanna umfram það sem samið hefur verið um við aðra ríkisstarfsmenn og starfs- menn á almennum markaði." Tveir starfs- menn úr gæslu- varðhaldi TVEIMUR starfsmönnum GT-hús- gagna hefur verið sleppt úr gæzlu- varðhaldi, en þeir vóru úrskurðaöir í gæzlu vegna rannsóknar Rannsókn- arlögreglu ríkisins á meintum sölu- skatts- og bókhaldssvikum forráða- manna fyrirtækisins. Bú GT-húsgagna var tekið til gjaldþrotaskipta þann 29. nóv- ember síðastliðinn og i framhaldi af því vísaði skiptaráðandi málinu til ríkissaksóknara með beiðni um opinbera rannsókn. V estur landsvegur: Kona fyrir sendibifreið LIÐLEGA fertug kona varð fyrir sendibifreið á Vesturlandsvegi í gærdag. Konan fór út úr áætlunar- bifreið til móts við afleggjarann að vistheimilinu að Skálatúni. Hún gekk aftur með bifreiðinni og hugð- ist fara yfir götuna þegar hún varð fyrir bifreið á leið til Reykjavíkur. Konan lenti á framrúðu bifreið- arinnar og hlaut áverka í andliti og á líkama, en meiðsli hennar munu ekki talin alvarleg. Innbrot í Breið- holtsskóla í FYRRINÓTT var brotist inn í Breiðholtsskóla og skúffur í skrif- borði skólastjóra brotnar upp, auk þess sem brotnar voru upp skúffur á skrifstofu. Ekkert fémætt var og tjón sem unnið var er allnokkurt. 1 vetur hefur verið brotist inn í fjölmarga skóla i Reykjavík og nágrenni og mikil skemmdarverk unnin. Flugleiðir kynna tónleika meö rokkstjörnunni Thomas Ledin á ECCAOWAT dagana 15. og 16. mars Undanfarin ár hefur Thomas Ledin átt mikilli velgengni aö fagna í poppheiminum. Hingaö til hefur okkur aöeins gefist tækifæri til aö fylgjast með Tómasi í sjónvarpinu og meö klifri hans á vinsælda- listum. Fyrir tilstuölan Flugleiöa, Broadway og Skífunnar, heldur kappinn tvenna tónleika, föstudaginn 15. og laugardaginn 16. mars. Einnig kemur fram okkar „heimsfræga“ Ríó Tríó. Tryggöu þér miöa strax í síma 77500 milli kl. 11.00 og 19.00. FLUGLEIDIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.