Morgunblaðið - 06.03.1985, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 06.03.1985, Blaðsíða 37
37 ritanna, mér liggur við að segja frá fundi orösins, því að yfirleitt er um guðsorð að ræða. I leiðinni sjá- um vér, að ekkert er eðlilegra en að Gyðingarnir í ísrael fái sín handrit ekki síður en íslenzka þjóðin. Þarna er þeirra „heim- flutningur handrita". En með þessu hefir prófessorinn „stytt“ timann, „stytt dagana". (Matt 24, 22) Hvaða daga? Fyrir þér er einn dagur sem þúsund ár! Svo að það eru þessir 2 dagar, sem hafa verið styttir, árin 2000. Hinn 17. júní 1983 sló Þjóðvilj- inn upp mynd af mér og birti töl- una 19 með stórum stöfum við hlið mér, svo sem verðskuldaði talan ekki minni heiður en ég sjálfur. í þakkarbréfi frá mér, sem Þjóðvilj- inn birti hinn 30.6. (Ég er, bls. 33) benti ég á það, að talan 19 hefði fylgt mér allt frá fæðingu hinn 19.10. 1910, sem leggja má út sem töluna 40 (10 10 10 10). Við þessi orð mín um tölur fæðingardagsins ætla ég nú að bæta því, að meðan dýrlingarnir fengu að vera óáreittir í almanakinu íslenzka, þá var dagurinn 19. október helgaður Balthasar, vitringnum, sem kom til þess að hylla hinn nýfædda Gyð- ingakonung. Og dagurinn á undan var helgaður Lúkasi, höfundi jóla- guðspjallsins, sem boðar og segir frá fæðingu frelsarans og kon- ungsins. En þeir fengu ekki að vera óáreittir. Þeim var úthýst. En stundum er eins og dýrlingar séu ekki svo auðveldir viðfangs, að minnsta kosti er Lúkas fyrir nokkru aftur kominn inn í alman- akið. En vísindaleg guðfræði á ekki að þurfa að missa neinn svip við þetta. Þessar „tilviljanir" flokkast auðveldlega sem tilviljan- ir. Það væri mjög æskilegt að fá fréttaauka Þóris Kr. í blöðunum, helzt aukinn, því að það er óþol- andi að sjá boðskap bókar þeirra Dr. Potters og ÁN tekið með þögn- inni einni saman af hálfu guð- fræðinganna. Á þjóðin ekki neinar kröfur á hendur þeim fyrir ókeypis mennt- un? Og hvað um þá sem hafa brauðin og embættin og hafa lofað að boða sannleikann í trúarefn- um? Að lokum kemur svo sama spurningin alltaf aftur: Var Jesús frá Guði, eða var hann af sjálfum sér, ásamt lærdómi og guðstrú samtíðarinnar, það sem hann var? MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. MARZ1985 Varðandi persónu Jesú er niður- staða höfundarins þessi: Hann var undursamlegur, birtist sem „há- menntaður, ekki einungis í siðum og menntun Rómverja, Persa, Aþeninga og Alexandríubúa og víðförull kennari, heldur einnig frumlegur, sjálfstæður hugsuður og einlægur tilvistarspekingur, sí- leitandi nýrra sanninda með at- hugunum og reynslu jafnvel allt fram í andlátið." (10) Þetta er að sjálfsögðu ekki annað en heila- spuni höfundarins, fernis á af- skræmingu hans. Hann er að reyna að sykra hinn falska boð- skap sinn og finnst hann hafi ráð á að smyrja þykkt. Samkvæmt skoðun höfundarins á Jesús sjálf- ur að hafa skapað boðskap sinn úr því bezta í samtíðinni, þvert ofan í hans eigin orð, sem eru ein löng fullyrðing um hið gagnstæða. Hann sagði að sér væri bæði sagt og sýnt, það gerði Faðirinn. Þeir eru heldur fáir, sem fullyrða ber- um orðum að Jesús hafi verið að ljúga, enda myndi það skammfíl- era fernisinn. Væri aðeins hægt að losa um samband Jesú við Föðurinn, þá væru engin takmörk fyrir því, hvað menn væru reiðubúnir til að láta ímyndunaraflið gera fyrir hann, jafnvel gera hann að eins- konar superman, nei superstar! Þetta er þá ein leiðin til þess að losna við Jesúm Biblíunnar: að sykra hann. Önnur leið er sú að falsa sjálfar frumheimildirnar. M.R. James, brezkur þýðandi og útgefandi að The Apocryphal New Testament (594 bls.), telur upp 4 falsrit af þessu tagi frá síðari tím- um. Af þeim munu tvö hafa komið út á íslenzku: Barnæska Jesú Krists, og rit sem sagt er að hafi fundizt í Tíbet í búddhaklaustri og kennt við mann að nafni Notovich. Þar sem Dr. Potter trúir ekki á hið „óljósa hugtak ‘guð’“, þá er auðvitað einfaldast að ráða við erfiða staði í Biblíunni með því að lýsa þá falsaða. Fyrir hinn trúaða er þetta ekki svo auðveld og fyrir- hafnarlítil aðferð. Hann getur ekki lýst því yfir að Guð falsi rit. Höfundur bókarinnar segir að kenningin um heilaga þrenningu byggist á fölsunum, kenningin um Heilagan anda byggi á fölsunum. Hér eru á ferðinni prestar, sem leggja ekki mikið upp úr orðum guðspjallsins um syndina gegn Heilögum anda. (Mark 3,29) Með hjálp af kenningum Essenanna megi fá lykilinn að uppruna krist- innar kenningar stendur í bókinni. Það mun ef til vill „leiða til ein- földunar hennar eða jafnvel út- rýmingar hennar að lokum." (130. Lbr. BE.) Þarna slapp loksins kötturinn úr sekknum! Þeim Dr. Potter ætti því ekki að vera neinn vandi á höndum að mynda eigin þrenn- ingu, þrenningu útrýmingarpost- ula. Sá þriðji er þegar fyrir í land- inu og heitir Halldór Laxness. Boðskapurinn tileinkast ári Biblí- unnar. Guð lætur ekki að sér hæða. Hann er almáttugur. Ég hefi áður bent á það, að spádóma sína getur hann látið kommaforingjana flytja. Hann getur meira að segja látið athafnasamasta og stóryrt- asta guðlastara þjóðarinnar og fjandmann Jesú flytja innfjálgt lof um hann í útvarpi flest kvöld alla föstuna, lof, sem er þrungið þeirri hreinu trú, sem Biblían boð- ar. (Opin 3,9.) Um þýðinguna sjálfa mætti ýmislegt segja. Stundum er hún á dálítið uppskrúfuðu máli, svo sem við mátti búast, stundum dálítið álappaleg. Það sem hingað til hef- ir verið kallað innskot er nú sums staðar kallað „inníbætingar". (20,65) Annað skrýtið orð er „höf- undskapur". (86,124) Þá er sagt að ritin í Biblíunni hafi fengið þar inni fyrir „sjálfs-áreiðanleik". Til er að málsgrein sé hafin á „því að“. (136) Hinir frægu rabbíar Shammai og Hillel eru kallaðir „handritaskrifarar". 31. janúar 1985. P.s. Setningin „- í RAUNINNI ALVEG VÍST - AГ er með stórri vélritunarvillu. í handriti er hún öll með litlum stöfum, eins og textinn að öðru leyti. í vélritun- inni hjá mér urðu óvart úr þessu stórir stafir, án þess að ég tæki eftir því fyrr en ég hafði tekið blaðið úr vélinni. Eftir stutta um- hugsun hætti ég við að leiðrétta „villuna", og vonast til að lesand- anum mislíki það ekki um of. BHJE Dr. Benjamín H. J. Eiríksson er fyrrr. bankastjóri Framkræmda- banka íslands og efnahagsrádu- nautur ríkisstjórnar um árabil. Morgunblaðiö/Ól.K.M. Frá undirritun samningsins. Frá vinstri talið: Sigurður Ragnarsson framkvæmdastjóri LH, Matthías Kjartansson starfsmaður Urvals og Karl Sigurhjartarson forstjóri Úrvals. Úrval skipuleggur ferð- ir fyrir hestamenn NÚ FYRIR skömmu var undirritaður samningur milli Ferðaskrifstof- unnar Úrvals og Landsambands hestamannafélaga um gagnkvæmt samstarf við skipulagningu á ferðum fyrir hestamenn til og frá íslandi. Mun LH aðstoða Úrval við kynningu ferðar á Evrópumót Islandshesta- eigenda sem haldið verður 13. til 19 Á móti mun LH fá þrjá far- seðla árlega vegna ferða á stjórnarfundi FEIF (Evrópu- samband eigenda íslenskra hesta) og í tengslum við Evrópu- mótin mun Úrval hlutast til um að 9—10 keppendur njóti veru- legs afsláttar á farmiðum. Þá mun LH tilnefna Úrval sem fulltrúa sinn varðandi skipulagingu ferða til íslands á landsmót 1986. Mun LH leggja til lista með heimilisföngum er- lendra aðila. Einnig munu sam- tökin senda kynningarbækling með eigin pósti til formanna og fulltrúa í erlendum hestamanna- félögum. í framhaldi af þessu sam- komulagi gerði Úrval samning við Landsmótsnefnd og mun Úr- ágúst nk. í Alingsás í Svíþjóð. val leggja til einn vinning í happdrætti mótsins og auk þess greiða ákveðna upphæð af hverj- um þeim erlenda ferðamanni sem kemur hingað til lands sér- staklega vegna mótsins á vegum Úrvals. Á móti fær Úrval einn ís- lenskra ferðaaðila umboð til að annast móttöku þeirra ferða- manna sem hyggjast koma hingað til lands vegna mótsins og mun Úrval útbúa „pakka“ fyrir erlenda gesti mótsins. Myndu slíkir „pakkar“ innihalda flug, flutning frá flugvelli á mótssvæðið, aðgangseyri og gist- ingu. Samningur þessi gildir fyrir árin 1985 og '86 og vænta báðir aðilar góðs af samstarfinu. raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar Sauöárkrókur Almennur stjórnmálafundur verður haldlnn I Saeborg mlövlkudaglnn 6. mars kl. 20.30. Frummælendur: Eyjólfur Konráö Jónsson al- þingismaóur og Pálmi Jónsson alþingismaöur. Allir velkomnir. Sjólfstæöístlokkurinn. Sjálfstæöiskvennafélag Árnessýslu heldur almennan félagsfund á Tryggvagöfu 8, Selfossi, föstudaginn 8. mars kl. 8.30. Fundurinn ber yfirskriftina Ár Æskunnar 1985. Dagskrá: Ræöumenn: 1. Formaöur Æskulýösráös rikisins Erlendur Kristjánsson. 2. Brynleifur Steingrimsson héraöslæknlr á Selfossi. 3. Kaffihlé. 4. Séra Agnes M. Siguróardóttir æskulýös- fulltrui Þjóökirkjunnar 5. Séra Siguröur Sigurösson sóknarprestur Allir velkomnir. Stjómin. Sjálfstæöisfélag Geröahrepps heldur aöalfund i samkomuhúsinu Garói miövikudaginn 6. mars nk. kl. 20.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aöalfundarstörf. 2. Kosning fulltrúa á landsfund Sjálfstæöisflokksins. 3. Önnur mál. Stjórnin. Laugarneshverfi Almennur félagsfundur Félag sjálfstæöismanna i Laugarneshverfi heldur almennan félagsfund fimmtudaginn 7. mars nk. kl. 18.00 i sjálfstasðishusinu Valhöll viö Háaleitlsbraut. Dagskrá: 1. Kosning fulltrúa á landsfund Sjálfstæöisflokksins. 2. Önnur mál. Stjórnin. Hvöt — félagsfundur Hvöt, félag sjálfstæöiskvenna i Reykjavik, heldur almennan félagsfund miðvikudaginn 6. mars nk. kl. 20.00-22.00 i Valhöll, kjallarasal. Dagskrá:1. Kjör fulltrúa á landsfund Sjálfstæöisflokksins. 2. Dagvistun barna i Reykjavik. Ingibjörg Rafnar borgarráösmaöur flytur framsögu. Almennar umræöur. Fundarstjóri: Maria Ingvadóttir. Fundarritari: Helga Ölafsdóttlr. Mætum vel og stundvislega. Stjórnin. Garöabær og Bessastaöahreppur Aöalfundur fulltrúaráös Garöabæjar og Bessastaöahrepps veröur haldinn fimmtudaainn 7. mars kl. 18.00 i Lyngási 12. Dagskrá: 1. Venjuleg aöalfundarstörf. 2. Kosning fulltrúa á landsfund. Félagar fjölmenniö. Stjórnin. Skóga- og Seljahverfi Almennir félagsfundur Félag sjálfstæöismanna i Skóga- og Seliahverfi heldur almennan félagsfund mióvikudaglnn 6. mars kl. 18.00 i Sjálfstæóishúsinu Valhöll viö Háaleitisbraut. Dagskrá: 1. Kjör fulltrúa á landsfund Sjálfstæöisflokkslns. 2. Önnur mál. Stjórnin. Háaleitishverfi Almennur félagsfundur Felag sjálfstæöismanna i Háaleitishverfi heldur almennan félagsfund miövikudaginn 6. mars kl. 18.15 i sjálfstæöishúsinu Valhöll vlö Háaleitisbraut. Dagskrá: 1. Kjör fulltrúa á landsfund Sjálfstæöisflokksins. 2. Önnur mál. Stjórnin. Almennur félagsfundur Félag sjálfstæöismanna i Smáíbúöa-, Bústaöa- og Fossvogshverfi heldur almennan félagsfund fimmtudaginn 7. mars kl. 18.00 í Sjálf- stæöishúsinu Valhöll viö Háaleitisbraut. Dagskrá: 1. Kjör fulltrúa á Landsfund Sjálfstæóisflokksins. 2. Önnur mál. Stjórnin. Akranes Sjálfstæöiskvennafélagiö Bára á Akranesi heldur félagsfund fimmtu- daginn 7. mars í Sjálfstæöishúsinu viö Heiöargeröi. Dagskrá: Kosning fulltrúa á landsfund. Stjórnin á Selfossi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.