Morgunblaðið - 06.03.1985, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 06.03.1985, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. MARZ 1985 Rjúfum ekki samstöðuna eftir Jóhönnu Sigurðardóttur I tilefni loka kvennaáratugar Sameinuðu þjóðanna tóku saman höndum sl. haust 23 félög og sam- tök stjórnmálaflokka, stéttarfé- laga og ýmissa kvennasamtaka um að helga árið 1985 baráttunni fyrir áframhaldandi vinnu að jafnrétti kynjanna. Það átti að gera m.a. með ákveðnum sameig- inlegum aðgerðum og verkefnum kvenna á þessu ári. Gífurlega mikil undirbúnings- vinna hefur farið fram á vegum ’85-nefndarinnar og ríkt hefur eindreginn vilji kvenna í öllum 23 aðildarfélögunum til að vinna að sameiginlegum verkefnum sem allar konur á Islandi gætu sam- einast um. Gildi slíkrar samstöðu á þessu ári felst ekki síst í því að undirstrika á áhrifaríkan hátt, það sem konur gætu sameiginlega barist fyrir, þrátt fyrir mismun- andi pólitísk viðhorf og lífsskoð-' anir og á ég þar ekki síst við jafn- rétti kynjanna. I slíku samstarfi er það grund- vallaratriði, ef samstaða kvenna á þessu ári á að vera jákvæð og skila árangri í jafnréttisbaráttunni, að konur, sem að þessu máli vinna leggi til hliðar það sem að skilur en vinni að fullri einlægni og vilja að því sem konur geta sameinast um. Slík afstaóa er Ivkillinn að því að samstaðan skili þeim árangri sem til er stofnað. Mikid í húfi Af mikilvægum verkefnum sem í undirbúningi eru á þessu ári má nefna að fyrirhugaður er sá stór- viðburður í íslensku menningar- lífi, að konur á Íslandi standi sam- einaðar að mikilli Listahátíð kvenna í september nk. Megin- hugtak hátíðarinnar yrði að sýna það sem konur hafa gert best í listum og bókmenntum, e.t.v. kvikmyndum og tónlist, svo og að kynna það sem hæst ber í listum samtímakvenna. 1 öðru lagi má nefna að eitt meginverkefni samstarfsnefndar- innar á þessu ári er fyrirhuguð útgáfa bókar um stöðu kvenna í upphafi og lokum kvennaáratug- arins. Hér er um að ræða eins kon- ar úttekt á kvennaáratugnum. Hver er árangurinn, — hvað hefur miðað í jafnréttismálum til að bæta stöðu kvenna í íslensku þjóð- félagi á þessum kvennaáratug. Má þar nefna í löggjöf, menntun, at- vinnu, launum, forystu, félagslegri stöðu, heilbrigðismálum, menn- ingarmálum og fleira. Tilgangur- inn er ekki síst sá að niðurstaða þessarar úttektar gæti orðið grunnur að stefnumótun varðandi framtíðina og hvar áhersluatriðin eigi helst að liggja varðandi stefnumótun og forgangsverkefni á sviði jafnréttismála á komandi árum. í þriðja lagi er í undirbún- ingi söfnun vegna þróunaraðstoð- ar. í fjórða lagi má nefna að í byrj- un samstarfsins var um það rætt að sérstaklega skyldi beina augum að þrem dögum á þessu ári til sameiginlegra aðgerða. í fyrsta lagi 8. mars, alþióðleg- um baráttudegi kvenna. I öðru lagi kvenréttindadeginum 19. júní og í þriðja lagi 24. október, en þá eru liðin 10 ár frá þeim stórvið- burði er íslenskar konur lögðu niður vinnu á degi Sameinuðu þjóðanna á kvennaári 1975 til þess að leggja áherslu á mikilvægi vinnuframlags kvenna í þjóðfélag- inu. Á þessum dögum yrði því lögð áhersla á þau mál, sem sameinað gætu konur í baráttunni til að bæta stöðu kvenna. Víkjum til hliðar því sem sundrar Það er ekki vafi í mínum huga, að tækist samvinna og samstaða um þau verkefni, sem hér hafa verið nefnd, þá hefði það ómetan- legt gildi fyrir allt áframhald í jafnréttismálum á Islandi á kom- andi árum. Takist konum á þessu eina ári með áhrifaríkum hætti að tala einni röddu og koma fram sam- einaðar í þeim málum sem sameinar Jóhanna Sigurðardóttir „Alvarlegir brestir hafa komið í þetta samstarf. Ástæðan er sú að sam- tök innan ’85-nefndar- innar hafa kosið í fyrstu sameiginlegu aðgerðum kvenna á þessu ári að virða að vettugi þau grundvallaratriði sem eru lykillinn að slíku samstarfi.“ NU GETA ALLIR EIGIMAST TEPPI Á JL-KJÖRUM. Eigum mikið úrval af Weston gólfteppum á hagstæðu verði, og hin landsfrægu JL-greiðslukjör gera öllum mögulegt að eignast teppi á íbúðina sína á viðráðanlegum kjörum. Þú getur valið um eftirtalda greiðsluskilmála: 1. Staðgreiðsla 5-10% afsláttur eftjr upphæð sem keypt er fynr. 2. Skuldabréf 20% út og afgangur á allt að 6 mánuðum. 3. Mánaðarreikningur. FTl bygcincabóbSbI Teppadeild, Hringbraut 120. S. 28603 RENNDU VIÐ EÐA HAFÐU SAMBAND. konur — kröfunni um jafnrétti kynjanna, ekki sist í launamálum, og áherslunni á mikilvægi vinnu- framlags kvenna í íslensku þjóðfé- lagi, þá væri það krafa sem erfitt væri að ganga framhjá. Um öll þau verkefni, sem hér hefur verið lýst, hvílir sú ábyrgð á herðum kvenna í þessu samstarfi ’85-nefndarinnar að sýna þann þroska að leggja til hliðar það sem aðskilur, en ganga af hreinskiptni og einlægni að þeim verkefnum sem konur geta sameinast um. Mikið er í húfi, enda hafa margar konur lagt fram mikla vinnu til að þau mörgu verkefni, sem undir- búin hafa verið, geti orðið að veru- leika. Afdrifarík úrslitakrafa Alvarlegir brestir hafa komið í þessa samstarf. Ástæðan er sú að samtök innan ’85-nefndarinnar hafa kosið í fyrstu sameiginlegu aðgerðum kvenna á þessu ári að virða að vettugi þau grundvallar- atriði sem eru lykillinn að slíku samstarfi. Þau atriði eru forsend- an fyrir því að samstarf og sam- staða kvenna með ólíkar pólitískar skoðanir og lífsviðhorf takist. Samtök kvenna á vinnumarkaði sem hafa það að markmiði að berjast fyrir bættum hag kvenna og höfða til samstöðu kvenna um það mál, hafa kosið að draga fram það sem sundrar en ekki það sem konur geta sameinast um — bætt- an hag og jafnrétti kynjanna. Þær konur í hópi samtaka kvenna á vinnumarkaðinum sem að um- deildri úrslitakröfu stóðu hljóta að gera það upp við sína eigin samvisku og 500 félaga í sínum samtökum hvernig að henni var staðið, og þær hljóta að meta þá ábyrgð sem á þeim hvílir með því að stefna í tvísýnu áframhaldandi samstarfi og samstöðu kvenna á þessu ári. En hvað sem líður, þá er eitt víst, að þessa stundina hafa flestar konur innan og utan ’85-nefndarinnar af því þungar áhyggjur, að sá ágreiningur sem nú er stofnað til að frumkvæði einna af 23 samtökum innan ’85-nefndarinnar verði til þess að hafa áhrif á áframhaldandi sam- starf og gera að engu önnur verk- efni, sem fyrirhuguð eru á árinu. Þar væri miklu fórnað fyrir lítið. í því efni reynir ekki síst á konur, sem skilja eðli þverpólitísks sam- starfs, að leggja sitt af mörkum og kappkosta um að þessi ágrein- ingur hafi ekki alvarlegri afleið- ingar en þegar er orðið. Allt eda ekkert? En um hvað er deilt? Eftir að undirbúningur var hafinn.af hálfu framkvæmdahóps ’85-nefndarinn- ar um aðgerðir 8. mars á alþjóð- legum baráttudegi kvenna í sam- ræmi við það að 8. mars skyldi verða einn af þeim dögum, sem aðildarfélög ’85-nefndarinnar sameinuðust um, þá kom í ljós að ein samtök af 23 innan ’85-nefnd- arinnar — samtök kvenna á vinnumarkaði — höfðu einnig hug á að halda fund þennan sama dag. Þessi afstaða var rædd á sameig- inlegum fundi allra 23 aðildarfé- taganna, þar sem ákveðið var að reyna til þrautar að ná samkomu- lagi. Þær konur sem fengu það verk- efni af hálfu ’85-nefndarinnar gerðu sitt ítrasta til að ná sam- stöðu og samþykktu fyrir sitt leyti 4 af 5 tillögum samtaka kvenna á vinnumarkaði um breytingar á dagskrá, m.a. þá að fulltrúi þeirra flytti ávarp á fundinum. Þessi niðurstaða, sem ákveðið var að leggja fyrir fund 23 aðild- arfélaganna, var áður kynnt sam- tökum kvenna á vinnumarkaði. Svo bregður þá við, að á þeim fundi tilkynna samtök kvenna á vinnumarkaðinum að sú eina til- laga af fimm, sem eftir stóð af þeirra tillögum, og ekki hafi verið gengið að, yrði nú sett fram sem úrslitakrafa til að þær gætu staðið að sameiginlegum fundi með ’85-nefndinni 8. mars nk. Úrslita- krafa var að Gladys Baez frá Nic- aragua sem er stödd hér á landi þessa daga fyrir tilstilli E1 Salva- dor-nefndarinnar flytti ávarp á fundi ’85-nefndarinnar. Á það skal bent að tækifæri gefast á öðrum vettvangi að hlýða á mál þessarar konu, sem vissulega getur verið áhugavert sem og annarra merkra erlendra kvenna sem staddar eru hér á landi þessa dagana. Hver fyrir sig getur metið sanngirni þessarar úrslitakröfu — sem í raun er krafa um neitunar- vald einna samtaka af 23 innan ’85-nefndarinnar. Ekki síst er hún óskiljanleg í ljósi þeirrar stað- reyndar, að þegar hún er sett fram hefur þegar verið gengið að fjór- um af fimm tillögum þessara sömu aðila um dagskrárbreyt- ingar. Þegar 22 öðrum samstarfs- aðilum er með slíkum hætti stillt upp við vegg, og í reynd sagt við viljum allt eða ekkert, vekur það upp áleitna spurningu. Var mein- ing frá upphafi af hálfu samtaka kvenna á vinnumarkaði að láta á brjóta hvað sem það kostaði — var yfirleitt nokkurn tíma vilji af þeirra hálfu til samkomulags? Höldum áfram Vegna þeirra úrslitakosta sem hér hefur verið lýst ganga konur ekki sameinaðar til baráttu á þessum degi. Hvaða mynd sem að öðru leyti verður reynt að draga upp af þeim tveimur fundum sem haldnir verða vegna þessarar óbilgjörnu úrslitakröfu, þá snýst málið raunverulega um eina spurningu. Spurningin 8. mars snýst um að rjúfa ekki samstöðuna. Hún snýst um það hvort konur geti vegna mik- ilvægis jafnréttisbaráttu kvenna vik- ið ágreiningismálum til hliðar og sameinast í kröfunni á þessu ári um bættan hag kvenna og jafnrétti kynj- anna. Fjölmennum því á fund ’85-nefndarinnar í Háskóiabíói til að sýna vilja kvenna til samstöðu um þau verkefni, sem sameina konur en ekki sundra. Það yrðu skilaboð íslenskra kvenna til að- ildarfélaga ’85-nefndarinnar um að halda áfram að vinna sameig- inlega að þeim verkefnum sem undirbúin hafa verið á þessu ári, þrátt fyrir þann stundarágreining sem nú er uppi. llöldum áfram — Rjúfum ekki samstöðuna. Jóhanna Sigurdardótlir er þing- maður Alþýðuflokksins í Reykja- rík. mídas
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.