Morgunblaðið - 06.03.1985, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 06.03.1985, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLADIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. MARZ 1985 Bólivía: Tugþúsundir mótmæltu verö- hækkunum Paz, Bólivíu, 5. febrúar. AP. TUGIR þúsunda tóku þátt í aðgerð- um í La Pas, höfuðborg Bólivíu, í gær, mánudag, til þess að mótmæla hækkunum á vöruverði, og var dína- mítsprengjum varpað í átt að forsetahöllinni. Brotnuðu nokkrar giuggarúður í byggingunni, en engar uratalsverðar skemmdir hlutust af. Lögreglan var með öfluga ör- yggisvörslu, en ekki kom til átaka. Mótmælafólk hrópaði vígorð gegn forsetanum, Hernan Siles Zuazo, og efnahagsstefnu hans og krafðist þess, að hann segði af sér. Hinn 9. febrúar sl. fyrirskipuðu stjórnvöld lækkun á gengi gjald- miðils landsins, pesósins, um 81% og hækkuðu verð á eldsneyti, far- gjöldum og matvöru um 450% að meðaltali. Bólivía er eitt af fátækustu ríkj- um heims og á við sligandi verð- bólguvandamál að etja. Efna- hagssérfræðingar telja, að verð- bólgan þar hafi verið um 2.700% á árinu 1984. Stafar þetta kreppu- ástand m.a. af miklu verðfalli á aðalútflutningsvöru landsins, tini. Hitapokinn bjargaði uglunni Uglan Olly braggast nú vel í vistinni hjá bjargvætti sínum, frú Christine Taylor í Hesketh Bank, nálægt Preston. Frú Taylor fann ugluna um miðjan síðasta mánuð í garði sínum, kalda, mjög veik- burða og uppgefna. Tók hún ugluna inn í húsið, vafði hana í handklæði og setti á hitapoka. Hefur uglan Olly tekið framförum með hverjum degi, enda m.a. stríðalin á kaníukjöti, sem hún kann vel að meta. Fljótlega verður Olly sleppt á ný, þegar kuldum í Bretlandi linnir. SPRENGING I NAMU Mikil sprenging varð í kolanámu skammt frá Forbach í Austur-Frakklandi fyrir skömmu. Hér er lík eins 22 námumanna sem biðu bana borið burt. Rúmlega 100 námumenn slösuðust í sprengingunni. Volcker varar við fjárlagahallanum Washington, 5. febrúmr. AP. PAUL A. Volcker, seðlabanka- stjóri Bandaríkjanna, sagði í gær að fjárlagahalli stjórnarinnar væri bættur með fjárfestingum útlend- inga og fjárstreymi frá þeim. Sagði hann, að þetta ástand bæri í sér „hið illa sæði, sína eigin tórtím- ingu“. I ræðu, sem Volcker flutti á þingi bandarískra banka og spari- sjóða, bað hann þingfulltrúa að gleyma því ekki, að fyrir heil- brigða bankastarfsemi og banda- rískt efnahagslíf skipti öllu máli að draga úr fjárlagahallanum. Minnti hann á, að síðasta hálfa annað árið hefði hann hvatt til, að úr fjárlagahallanum yrði dregið um 50 milljarða dollara til að byrja með og að nú væri nauðsyn- legt að hækka þá tölu. Hann ítrek- aði þá skoðun sína, að hallann yrði að minnka með niðurskurði og hærri sköttum ef hann dygði ekki til. Volcker sagði, að hvorki fjárlagahallinn né hallinn á versl- uninni við útlönd gætu gengið í langan tíma og að þessi „tvöfaldi ófögnuður" bæri í sér „hið illa sæði, sína eigin tortímingu". Gagnrýni á Tass í kínversku riti Rithöfundar í verkfalli New York, 5. febrúar. AP. Rithöfundar á austurströnd Bandaríkjanna samþykktu á félags- fundi í gærkvöldi að slást í hóp fé- laga sinna í Kaliforníu, sem gert hafa verkfall hjá kvikmyndafélögum og sjónvarpsstöðvum. Vinnustöðvunin mun valda því, að öll handritsgerð fyrir kvik- myndir og sjónvarp liggur niðri, svo og skrif fyrir skemmtiþætti í hljóðvarpi. Talsmenn rithöfunda sögðu, að verkfallið hæfist á miðnætti á mánudagskvöld. Rithöfundar á austurströndinni höfnuðu boði um 6% launahækk- un á ári næstu þrjú árin, en rit- höfundafélagið hafði farið fram á 7% árlega hækkun. Síðasti samningafundur milli aðila var haldinn á föstudags- morgun og hafa frekari fundir ekki verið boðaðir. Síðasta verk- fall rithöfunda, sem gert var árið 1981, stóð í 13 vikur. Peking, 4.marz. AP. KÍNVERJAR sökuðu í dag sovézku fréttastofuna Tass um hræsni og róg um Kínverja í flutningi frétta af stríðinu í Afganistan og sagði að hernaðarfhlutun Rússa þar hefði brotið niður efnahag og menningu Afgana. Gagnrýni Kínverja kom fram í tímaritinu „Peking Review" í grein með fyrirsögninni „Hvers vegna ræðst Tass á Peking- stjórnina?“. Þetta er síðasta svar Kínverja við sovézkum blaðafréttum, þar sem þeir og Bandaríkjamenn eru sakaðir um að veita afgönskum skæruliðum aðstoð á laun. I janúar kallaði Tass Kína „aðra miðstöð" stuðnings við skæruliða, á eftir Bandaríkjunum, og ítrekaði þá afstöðu Rússa að þeir hefðu beðið um aðstoð. Ný ævisaga Mountbattens lávarðar: Ýtti undir innilegt ástar- samband eiginkonu sinnar og Jawaharlal Nehru London, 4. mars. AP. Mountbatten lávardur, breski ad- alsmaðurinn sem hafði tilsjón með sjálfstæðistöku Indlands árið 1947, ýtti undir „innilegt ástarsam- band“ eiginkonu sinnar og Jawa- harlal Nehru, fyrsta forsætisráð- herra Indlands, samkvæmt því sem fram kemur í nýrri ævisögu lávarðarins. í bréfum, sem sögð eru hafa verið trúnaðarbréf og kaflar birtust úr á sunnudag, segir Mountbatten, að kona hans, Edwina Ashley, og Nehru hafi verið „svo sæl saman" og hann hafi ávallt auðveldað þeim að hittast. Útdráttur úr bréfunum birtist í breska blaðinu The Sunday Times í London, þar sem ævisag- an, sem er eftir Philip Ziegler, mun birtast sem framhaldssaga. Samkvæmt frásögn blaðsins er Ziegler fyrsti ævisöguritar- inn, sem fær aðgang að einka- bréfum Mountbattens, síðasta landstjóra Breta á Indlandi. Mountbatten lávarður, sem var systkinabarn Elizabethar drottningar II og frændi eigin- manns hennar, Pilips prins, var ráðinn af dögum af hermdar- verkasveitum IRA, írska lýð- veldishersins, árið 1979. Ziegler skrifar um 38 ára hjónaband þeirra Mountbattens og Edwinu og segir þau hafa staðið í ótal ástarsamböndum utan hjónabandsins. Mountbatten lávarður „Við Edwina vorum allt hjóna- band okkar að reyna að komast upp í rúm hjá öðru fólki," hefur Ziegler eftir Mountbatten. Hryðjuverk í Aþenu Aþenu, 4. marz. AP. SENDIBÍLSTJÓRI, sem varð fyrir skotárásum hryðjuverkamann- anna í miðborg Aþenu fyrir 10 dögum, lézt í dag og var aldrei hugað líf. Hann komst stutta hríð til meðvitundar og gat þá skýrt lögreglu frá því að hann héldi að byssumennirnir hefðu verið þrír. Maðurinn var að aka útgefanda blaðs nokkurs, sem er talið íhaldssamt. Bílstjórinn sagði að mennirnir hefðu haft uppi hróp um að þeir væru handbendi CIA. Japanir og Sovétmenn ræðast við um fiskveiðimál l ókýó, 5. febrúar. AP. JAPAN og Sovétríkin hafa orðið ásátt um að hefja á ný viðræður um fiskveiðimál, og verður fyrsti viðræðufundurinn í Moskvu 13. mars nk. Þetta verður sjötta viðræðulota ríkjanna frá því í júnímánuði til þess að komast að nýju samkomu- lagi í stað þess sem gert var 1978 og rann út um áramótin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.