Morgunblaðið - 06.03.1985, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 6. MARZ 1985
7
Viö tökum undir mótmæli þeirra
...Aðför Norðmanna að
íslenzkum sjávarútvegi"
á
á Lækjartorgi
fimmtudaginn 7. marz kl. 17:15.
Umræöur á
Alþingi
Ræðumaður:
Jón Baldvin Hannibalsson,
form. Alþýöuflokksins.
Fundarstjóri:
Karl Steinar Guönason,
form. verkalýös- og
sjómannafélags
Keflavíkur og varaformaöur
Verkamannasamb. íslands.
TÖKUM
UNDIR
Fyrirspyrjandi (Karl Steinar Guönason): Herra forseti.
Ég hef leyft mér aö bera fram fsp. á þskj. 284 um
ríkisstyrki Norðmanna í sjávarútvegi. Fsp. er svohljóö-
andi, meö leyfi forseta:
„1. Er engin vörn í fríverslunarsamningi EFTA-ríkjanna
gegn stórfelldum ríkisstyrkjum Norömanna til sjávarút-
vegs?
2. Hvað hyggst ríkisstj. gera til þess að koma í veg fyrir
þessa aðför aö íslenskum sjávarútvegi?
3. Kemur norrænt samstarf íslendingum aö engu gagni
í þessum efnum?“
MOTMÆLI
ÞEIRRA
KarlSt,
Guönason
alþm.
„Á þessu ári fær norski sjáv-
arútvegurinn samtals 1375
millj. n.kr. eöa samtals um 6,2
milljarða ísl. kr. Samsvarar
þetta því að norska ríkiö
greiði um 60% af öllu fiskverði
þar í landi.“
„Einnig má nefna annan sam-
anburö. Þessir norsku ríkis-
styrkir svara til þess aö borga
yröi 100% framlag á laun allra
starfsmanna í frystihúsum og
saltfiskverkun hérlendis."
„Þeir segja við kaupendur
fiskjar að þeir viti ekki hvaöa
verð þeir þurfi að fá fyrir af-
uröina, þaö fari eftir ríkis-
styrknum."
(Alþingistíöindi 12.02.85)
Matthías A.
■ Mathiesen
viðskiptar.h.
„Viö öll hugsanleg tækifæri
hefur verið borin fram gagn-
rýni og mótmælt vegna ríkis-
styrkja Norömanna til sjávar-
útvegs og því verið haldið
fram, enda þótt of sterkt sé
e.t.v. til oröa tekiö, aö hér sé
um aöför aö íslenskum sjáv-
arútvegi aö ræða. Þeim hefur
verið gerö grein fyrir því aö
þaö skipti ekki máli hvort um
niöurgreiðslu sé aö ræöa á
frumstigi eöa á lokastigi i
sambandi viö vörufram-
leiöslu.“
(Alþingistídindi 12.02.85).
^ (s_
Hjörleifur
Guttormsson
tyrrv. iðnaðarráðherra
í svari hæstv. ráöh. kom þaö
fram aö íslendingar heföu
itrekaö haft uppi mótmæii viö
þessum styrkjum. En þaö er
alveg Ijóst að þau mótmæli
hafa ekki breytt neinu fram til
þessa."
„Viö verðum aö vinna í þessu
máli af þólitískri dirfsku og
ákveðni. Nóg er samt sem á
íslenskum sjávarútvegi hvílir.“
(Alþingistíöindi 12.02.85).
Halldór
Ásgrímsson
„Ég held aö þaö sé ekki rétt
aö viö förum aö ásaka hver
annan um þaö aö illa hafi ver-
iö staöiö aö málum í sam-
bandi viö þetta aö ég vil telja
brýnasta hagsmunamál
landsins, vegna þess aö þess-
ir styrkir hafa orðið þess vald-
andi aö lífskjör eru hér verri
en ella heföu oröið. Og ef þeir
veröa áfram viö lýöi munu
lífskjör á islandi vart batna
þannig aö hér er aö því leyt-
inu til um langbrýnasta hags-
munamál okkar aö ræöa fyrir
utan fiskistofnana sjálfa. “
(Alþingistíöindi 12.02.85).
Kjartan
Jóhannsson
fyrrv. sjávarútvegsráðherra
„Þaö er augijóst aö ef niöur-
greiöslum og styrkjum meö
sjávarútvegi í samkeppnis-
löndum okkar er haldiö áfram
er kippt grundvellinum undan
lífskjarasókn Islendinga og
viö drögumst aftur úr grann-
þjóöum okkar. Þá er kippt
grundvellinum undan þvi aö
viö getum búið hér og haldiö
uppi því menningarlífi sem viö
hljótum aö gera kröfur til.“
„Ég get ítrekaö aö þetta stríö
verðum viö aö vinna. Þaö er
lífssþursmál. Annars var land-
helgisstríöiö í raun og sann-
leika unniö fyrir gýg ef viö
verðum svo lagöir aö velli i
viöskiptastríði meö óheiðar-
legum aöferðum."
(Alþingistídindi 12.02.85).
m
Éf „Þetta stríð verðum við að vinna“
(Kjartan Jóhannsson, fyrrv. sjávarútvegsráöh. í þingræðu).
Alþyóuflokksfélag Reykjavíkur.