Morgunblaðið - 06.03.1985, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. MARZ 1985
Háskólakórinn
Tónlist
Egill Friöleifsson
Félagsstofnun stúdenta 3.3. ’85.
Flytjandi: Háskólakórinn.
Stjórnandi: Árni Harðarson.
Efnisskrá: Flutt voru verk eftir
Pétur Pálsson, Jón
Ásgeirsson, Hilmar
Þórðarson og Lárus
Halldór Grímsson.
Háskólakórinn efndi til tón-
ieika í Félagsstofnun stúdenta
um síðustu helgi. Undirritaður
átti þess kost að hlusta á söng
kórsins á sunnudag og hafði
gaman af. Mikill kraftur og
gróska hefur einkennt starf
kórsins allt frá stofnun hans
1972 og hefur jafnan verið lögð
áhersla á íslenska samtíma-
tónlist í verkefnavali. Fjöldi
nýrra tónverka hefur þannig
verið frumfluttur af kórnum
þetta tímabil og var svo einnig
nú. Tvær nýjar tónsmíðar litu
hér dagsins ljós, „Nocturnes
handa sólkerfinu" eftir Hilmar
Þórðarson og „I Sing the Body
Electric" eftir Lárus H. Gríms-
son.
Það er ungur velmenntaður
tónlistarmaður, Árni Harðarson
að nafni, sem nú stjórnar kórn-
um og hefur áreiðanlega ekki
verið létt fyrir hann að taka við
af eldhuganum Hjálmari H.
Ragnarssyni. Hann hefur hins
vegar reynst vandanum vaxinn,
þrátt fyrir reynsluleysi á sviði
kórstjórnar. Hann virðist taka
starf sitt af fullri alvöru og í
einlægni reynt að skila verki
sínu sem best, enda margt gott
um þennan konsert að segja.
Söngur kórsins einkenndist
fremur af frískleika en fágun.
Það var eins og ekki hefði í öll-
um tilvikum gefist nægilegt tóm
til að fínpússa og nostra við sum
verkanna, enda nokkur þeirra
snúin í flutningi og tímafrek í
æfingu, ef vel á að vera.
Við heyrðum fyrst nokkur lög
eftir Pétur Pálsson við Sóleyj-
arkvæði Jóhannesar úr Kötlum.
Lögin eru einföld að gerð og það
var útsetningin, sem Árni Harð-
arson gerði, einnig og klæddi
þau vel. Raunar fannst mér
hljómur kórsins heillegastur í
þessum lögum. Jóhannes úr
Kötlum var fyrirferðarmikill á
þessum tónleikum, því hann átti
einnig textann við næsta verk,
sem var „Á þessari rímlausu
skcggöld" við tónlist Jóns Ás-
geirssonar: Ég hafði ánægju af
að endurnýja kynni mín af þessu
verki, sem fyrst hljómaði fyrir
rúmum áratug. Þá heyrðum við
frumflutt „Nocturnes handa sól-
kerfinu“ eftir einn af félögum
kórsins, Hilmar Þórðarson, við
kvæði Sigurðar Pálssonar. Hilm-
ar sýnir þarna umtalsverða
hæfni til að skrifa fyrir raddir. í
verkinu eru víða góðir sprettir
og rís hæst í lokaþættinum. Að
lokum heyrðum við svo frum-
flutning á verki Lárusar H.
Grímssonar „I Sing the Body El-
ectric” við ljóð Walt Whitman.
Hvers vegna að velja enskan
texta? Satt að segja hélt ég að
við ættum nóg af Ijóðum yngri
og eldri („Því lifði þjóðin, að
þraut ei ljóðin" segir Davíð á
einum stað). Þrátt fyrir það er
þetta verk allrar athygli vert.
Það er kliðmjúkt og lét vel í eyr-
um, ekki tiltakanlega rismikið,
en snoturlega samofið, þar sem
segulbandið gegndi veigamiklu
hlutverki.
Háskólakórinn er nú á förum í
söngferð til Hollands. Áreiðan-
lega verður hann landi og þjóð
til sóma með vönduðum söng og
menningarlegri efnisskrá. Héð-
an fylgja þeim bestu óskir um
árangursríka ferð.
Blómlegt
listalíf
Sauóárkróki, 4. mars.
BANDARÍSKI píanóleikarinn Martin
Berkovsky hélt tónleika í Safnahúsi
Skagfirðinga sl. laugardag á vegum
Tónlistarskólans og Tónlistarfélags-
ins í Sauðárkróki. Tónleikarnir voru
vel sóttir og þökkuðu áheyrendur
listamanninum frábæra frammistöðu
með langvinnu lófataki. Varð hann að
leika aukalög.
Um helgina opnaði Þorlákur
Kristinsson (Tolli) málverkasýn-
ingu í Safnahúsinu. Þar sýnir hann
26 verk og hafa nokkrar myndir
þegar selst. Sýningunni lýkur 10.
mars.
- Kári
Öldungadeildarnemar:
Harma stöðu í
kennslumálum
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Fulltrúaþingi Landssambands öld-
ungadeildarnema:
„Fulltrúaþing Landssambands
öldungadeildarnema, haldið í
Menntaskólanum við Hamrahlíð,
laugard. 2. mars sl., harmar þá
stöðu sem upp er komin í kennslu-
málum framhaldsskólanna.
Sífellt er krafist aukinnar
menntunar á öllum sviðum og hlýt-
ur kennarastarfið að vera undir-
staða þess að við íslendingar drög-
umst ekki aftur úr öðrum þjóðum á
því sviði.
Þingið lýsir yfir eindregnum
stuðningi við kennara og gerir þá
kröfu á hendur stjórnvöldum að
menntun sé metin að verðleikum."
Öldungadeildarnemar á Akur-
eyri, í Breiðholti, á ísafirði, Sel-
fossi, Suðurnesjum, Egilsstöðum
og í Flensborg standa saman að
þessari fréttatilkynningu.
;.v.vX
___afsláttur af öHum
heimilistældum tifj^nars
á&ur
13.99°
19.200
92.990
' 18-700
8.900
' 11.900
Nú ,
12.59A ,
17.280
20.69^ ,
15-990,
8.0A0 .
10.7A0
,w*ííSSur"c02V029
CaB''sVcá^aVé\ N\°cca 27 Á°°
"36900
l Ört>V'9^^Ö0 • • • ’ :k'
^ 7\6ð A^eraí 1899°
HeOubOfði o62-1 0á ■
l svaö ^ v.etaro^ A 6 99O
074-i04
\ svart íh 50>era^ 2A .80°
\vie«uborí>4r.
1
Á&ut
27.90°
18.790
." 24.90°
" 25"°
27-500
•" 5.400
•" 11.830
9.990
• 10.900
16.91'
22.41°
23.39'
24.750
4.860
10.647
8.991
9.810,
-125
slá'
iHe"^bi°l2-l02 "
I 'J^'oo“u'S
,s,
.850
4.600
tassö#5
| A Grt"°<nll4 kG-63
Á&UT
1.430
2.180
1.750
1.240
2.725
Hú
1.287
1.962
1.575
1.116
2.452
3.345
3.125
7.360
6.990
1.790
3.01°
2-812
6.624
6.291
1.6A1
11 •'
91
690