Morgunblaðið - 06.03.1985, Síða 33

Morgunblaðið - 06.03.1985, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIPVIKUDAGUR 6, MARZ1985 33 Geir Hallgrímsson: Kvótaskipting loðnunnar nú alfarið norrænt mál Því er enn nauðsynlegra að lausn fáist hið fyrsta GEIR Hallgrímsson utanríkisráð- herra sagði m.a. í almennum umræð- um á Norðurlandaráðsþingi í gær, að þar sem Grænland hefði gengið úr Efnahagsbandalaginu væri kvóta- skipting íslenzka loðnustofnsins nú alfarið norrænt málefni, og því enn nauðsynlegra fyrir norræna sam- vinnu og orðstír hennar, að lausn fengist hið fyrsta í því máli. Hann ræddi einnig kröfur íslendinga og Dana fyrir hönd Færeyja til hafs- botnsréttinda á Hatton-Rockall- hryggnum og lét í Ijós þá ósk íslend- inga að þjóðirnar stæðu þétt saman um þetta hagsmunamál og að þær gætu treyst á góðan stuðning frá hin- um Norðurlöndunum. Varðandi kvótaskiptingu loðn- unnar milli íslendinga, Norð- manna og Grænlendinga sagði ráðherrann, að það væri vilji ls- lendinga að taka fullt tillit til kröfugerða Norðmanna og Græn- lendinga, en við teldum að í móti þyrftu allir aðilar að fá réttlátan hlut. Hann kvaðst telja, að reyna Geir Hallgrímsson flytur ræðu sína á þingi Norðurlandaráðs í gær. ætti að fá lausn á grundvelli vís- indalegra rannsókna á útbreiðslu ioðnunnar á umráðasvæðum land- anna þriggja. Hann benti síðan á, að mál þetta væri nú alfarið nor- rænt, eins og að ofan greinir, og undirstrikaði síðan þýðingu góðr- ar samvinnu Norðurlandanna um fiskveiðar í Norður-Atlantshafi. ísland og Danmörk, fyrir hönd Færeyja, hafa gert kröfu til hafs- botnsréttinda á Hatton-Rockall- hryggnum suður af íslandi, suð- vestur af Færeyjum. Bretar og ír- ar hafa einnig gert slíkar kröfur. Geir sagði að í umfjöllun Alþingis um málið hefðu ítrekað verið gefn- ar yfirlýsingar um, að tekið yrði tillit til hagsmuna Færeyja og ennfremur hefði Alþingi sam- þykkt áeggjan um, að náin sam- vinna yrði í þessu mikilvæga máli milli þessara norrænu landa. Geir Hallgrímsson sagði síðan: „Ég vil nota þetta tækifæri til að láta í ljós ósk okkar um að fsland, Fær- eyjar og Danmörk geti staðið þétt saman um sameiginlega hagsmuni í málinu — auk þess sem þau geti treyst á góðan stuðning frá hinum Norðurlöndum." Einstakt tilboð! Otrúlegt en satt Af sérstökum ástæöum getum viö boöiö takmarkaöan fjölda af mjög lítiö útlitsgölluöum reiðhjólum á hálfviröi í þessari og næstu viku í unglinga- og fullorðinsstærðum. 50%4 6œ-m ÖRNINNL^ Verð frá kr. • vv/v/ • • • • Spítalastíg 8 VIÓ Oóinstorg simar: 14661,26888 Opið laugardag til kl. 4 ÞARFT ÞÚ AÐ MERKJA FRAMLEIÐSLU ÞlNA NÝTT FYRIRTÆKI í VÖRUMERKINGUM Prentum allskonar sjálflímandi vörumerkimiða á rúllum, i einum eða fleiri litum. Ný fjögurra lita prentvél og margar gerðir algengustu forma (stansa), sem notaðir eru i islenskum vörumerkingum. Prentum einnig flestar gerðir limmiða til ýmissa nota Öll vinnsla á staðnum - stuttur afgreiðslufrestur Gerum tilboð í stærri verkefni. Leitið upplýsinga VÖRUMIÐAR SF. Nýbýlavegi 18 Kópavogi Simi: 641244 ádur LÍMMERKI STJORNUNAR IA Ol^Q Starfsþjálfun fyrir verkstjórnendur og trúnaðarmenn Störf verkstjóra verða æ mikilvægari. Verkstjórar eru í þeirri stöðu að þeir hafa þein tengsl við hina almennu starfsmenn fyrirtækjanna og eru jafnframt tengiliður þeirra við æðri stjórnendur. Einnig hefur sífellt farið vaxandi þáttur trúnaðarman'na á vinnustöðum og fulltrúa í starfs- mannaráðum. Nú eru auknar kröfur gerðar til gæða framleiðslu og þjónustu og því mikilvægt að verkstjórnendur og fulltrúar starfsmanna séu vel að sér um þau málefni, sem varða rekstur fyrirtækja, stjórnun og meoferð starfsmannamála. Efni námskeiðsins er eftirfarandi: - Fundartækni og fundarstjórn á starfsmanna- fundum og skipulag gæðahringastarfs. - Starfsmannahald og meðferð starfsmanna- mála. - Stjórnun og hvatning í starfi; Stjórnunarkenn- ingar og stjórnunarstílar. - Frumatriði rekstrarhagfræði; helstu hugtök skýrð með dæmum. - Framlegðarhugtakið og möguieikar verk- stjórnenda til að hafa áhrif á framiegð. - Öryggismál á vinnustöðum og skipulag þeirra. Stuðst er við gögn frá National Safety Council í Bandaríkjunum. - Tölvur og tölvunotkun. Þátttakendur: Námskeið þetta er ætlað öllum starfandi verkstjórnendum og fulltrúum starfs- manna í verslunar-, þjónustu- og framleiðslu- störfum. Námskeiðið er einnig kjörinn vettvang- ur fyrir verðandi verkstjórnendur, sem vilja undirbúa sig sem best. Leiðbeinendur: Sigurður örn Gíslason rekstrarráðgjafi, Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Stjórnunarfélags íslands, Ágúst Þorsteinsson öryggismálaráðgjafi og Björn Guðmundsson kerfisfræðingur. Tími: 11.-15. mars kl. 9-13, 15. mars kl. 13-17; samtals 24 tímar. TILKYNNIÐ ÞÁTTTÖKU í SÍMA 82930 ÍSLANDS ifö ÐUMÚIA 23 Ml 82930

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.