Morgunblaðið - 06.03.1985, Síða 39

Morgunblaðið - 06.03.1985, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. MARZ 1985 39 Minning: Sigríður Sigtryggs■ dóttir frá Flatey Fædd 9. janúar 1894 Dáin 28. febrúar 1985 í dag er okkar ástkæra amma borin til grafar. Hún andaðist að Sunnuhlíð í Kópavogi eftir stutta Iegu. Með henni fer kona sem átti langan æviferil að baki, hún and- aðist á 92. aldursári. Sigríður Sigtryggsdóttir fædd- ist 9. janúar 1894 á Neðribæ í Flatey á Skjálfanda. Foreldrar hennar voru Sigtryggur Sigurðs- son útvegsbóndi og Ingibjörg Sig- urðardóttir. Amma var eitt af 11 systkinum. Eftirlifandi af þeim stóra hóp eru Emilla, Petrína og María. Amma gekk að eiga Kristján Rafnsson frá Bárðardal árið 1917. Þau fluttu síðan að Víðivöllum í Fnjóskadal og voru í húsmennsku þar um fjögurra ára skeið. Því næst fluttu þau að Vík á Flateyj- ardal, en tveimur árum síðar settu þau að úti í Flatey á Skjálfanda. Þá þegar voru börnin orðin þrjú, þ.e. Ingibjörg, Sigurður og Jó- hanna. í Flatey stækkaði barna- hópurinn enn, því þar fæddust Rafn, Guðrún, María og Elísabet. Þegar afi og amma voru að ráð- ast í að byggja sér hús sitt kom reiðarslag. Afi drukkaði 19. maí 1938 er hann aðstoðaði við flutn- inga milli lands og eyja. En amma gafst ekki upp, heldur hélt ótrauð áfram með bygginguna með dyggri aðstoð eldri barna sinna og eyjarskeggja. Smám saman fóru börnin að heiman, flest fluttu þau til Vest- mannaeyja. Einungis Sigurður var eftir hjá móður sinni. Um 1950 flytur amma ásamt Sigurði syni sínum til Vestmannaeyja, enda flest börn hennar búin að stofna heimili þar. í Vestmannaeyjum starfaði amma mikið sem ráðskona og í mörgum tilfellum kom hún í móð- urstað, því slík var ástúðin og um- hyRgjan við börnin. Árið 1965 verður amma að hætta að mestu allri húshjálp, því hún lærbrotn- aði mjög illa. Þrátt fyrir þetta mótlæti voru prjónarnir ávallt á milli handa hennar sem endra- nær. Amma varð fyrir miklu áfalli árið 1972 er yngri sonur hennar, Rafn útgerðarmaður og skipstjóri, lést úr sjúkdómi aðeins 48 ára gamall og var hann öllum mikill harmdauði. í eldgosinu í Vestmannaeyjum árið 1973 flytur amma ásamt Ingi- björgu og hennar manni í Kópa- voginn. Amma átti síðan heima til skiptis hjá börnum sínum, sem öll voru nú flutt á meginlandið. Amma var hugljúf kona sem alltaf var tilbúin að hugga og hughreysta. Ávallt var hún í góðu skapi, en samt staðföst og hreinskilin. Við þökkum ömmu fyrir allar góðu stundirnar í leik og starfi. Barnabórnin Leiðrétting f minningarorðum hér í blaðinu í gær um frú Ragnheiði Bogadóttur frá Búðardal brenglaðist málsgrein þar sem sagt var frá því er faðir Ragnheiðar, Bogi, kvæntist öðru sinni. Sú málsgrein átti að vera á þessa leið: Bogi kvæntist öðru sinni hinn 3. júní 1913 frænku sinni, Ingibjörgu Sigurðardóttur, kennslukonu, dóttur hjónanna Sigurðar Benja- mínssonar og Sigríðar Björns- dóttur, en þau bjuggu á Kjalar- landi í Vindhælishreppi í Austur- Húnavatnssýslu. Bogi og Ingi- björg voru systrabörn. Ingibjörg hafði numið í Kvennaskólanum á Ytri-Ey og í Reykjavík og kenndi börnum í 11 vetur um og eftir aldamótin, þar af 4 vetur í Hös- kuldsstaðasókn. Hún kenndi við Kvennaskólann á Blönduósi 1908 til 1913. Þá gekk hún að eiga Boga í Búðardal og reyndist stjúp- börnum sínum fjórum hin besta móðir og naut mikils ástríkis af þeim. Þau Bogi ólu upp dótturson hans, Boga Þorsteinsson, flugum- ferðarstjóra á Keflavíkurflugvelli. Þá var ekki farið rétt með bænavers séra Hallgríms Péturs- sonar: Hveitikorn þekktu þitt/ þá upprís holdið mitt/ f bindini barna þinna/ blessun láttu mig finna. Um leið og þessar leiðréttingar eru birtar við greinina, eru hlut- aðeigandi beðnir velvirðingar á mistökunum. Prufu-hitamælar + 50 til + 1000 C í einu tæki meö elektrón- ísku verki og Digital sýn- ingu. I CIT* cJ&irE!3©®irD VESTURGOTU 16 - SÍMAR 14630 - 21480 Skip Sambandsins munu ferma til íslands á næstunni sem segir: HULL/GOOLE: hér Dísarfell 11/3 Dísarfell 25/3 Dísarfell 8/4 Dísarfell 22/4 ROTTERDAM: Dísarfell 12/3 Dísarfell 26/3 Dísarfell 9/4 Dísarfell 23/4 ANTWERPEN: Dísarfell 13/3 Dísarfell 27/3 Dísarfell 10/4 Dísarfell 24/4 HAMBORG: Dísarfell 15/3 Dísarfell 29/3 Dísarfell 12/4 Dísarfell 26/4 HELSINKI: Hvassafell 27/3 FALKENBERG: Mælifell 15/3 LARVÍK: Jan 18/3 Jan 1/4 Jan 15/4 GAUTABORG: Jan 19/3 Jan 2/4 Jan 16/4 KAUPMANNAHÖFN: Jan 20/3 Jan 3/4 Jan 17/4 SVENDBORG: Jan 7/3 Jan 21/3 Jan 4/4 Jan 18/4 ÁRHUS: Jan 7/3 Jan 21/3 Jan 4/4 Jan 18/4 GLOUCESTER MASS.: Jökulfell 13/3 HALIFAX, KANADA: Jökulfell 14/3 SKIPADEILD SAMBANDSINS Sambandshúsinu Pósth. 180 121 Reykjavík Sími 28200 Telex 2101

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.