Morgunblaðið - 06.03.1985, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 6. MARZ 1985
45
Framfarafélag Breiðholts III:
Starfshópur hefur unn-
ið að heilsugæslumálum
MORGUNBLAÐINU barst á mánu
dag eftirfarandi frétt frá Framfara-
Ný kynslóð
SfliyiipllmogjiuKr
Vesturgötu 16,
sími 13280.
félagi Breiðholts III:
„Vegna orða Katrínar Fjeld-
sted, formanns heilbrigðisráðs
Reykjavíkurborgar, í þættinum
„Kastljós" í sjónvarpinu á föstu-
dagskvöld, 1. mars, þar sem hún
óskaði eftir því að borgarbúar og
samtök þeirra létu frá sér heyra
um hið alvarlega ástand í heilsu-
gæslumálum í Reykjavík, viljum
við í Framfarafélagi Breiðholts
III benda henni og þá ekki síður
stjórnanda þáttarins á eftirfar-
andi:
Á síðastliðnu hausti stofnaði
Framfarafélagið sérstakan
starfshóp, sem vann að því að
vekja athygli íbúa hverfisins og
yfirvalda á stöðu heilsugæslu-
mála í Breiðholti III. Hópurinn
gaf út bækling um málið og
dreifði honum til íbúa. Hópurinn
safnaði á annað þúsund undir-
skriftum íbúa á þrem dögum (án
þess að ganga í hús). Undirskrift-
arlistarnir voru sendir með bréfi
til fjárveitinganefndar Alþingis.
Jafnframt var samið bréf til allra
þingmanna Reykjavíkur og sent
þeim persónulega. Að vísu fóru
Blaðburöarfólk
óskast!
Austurbaer
Laugarásvegur 32—77 Lindargata frá 40—63
Síðumúli Miðbær I
Sóleyjargata Bergstaðastræti 1—57
JHttSmiMiiMfr
Beiki, eik
og hvítlakkaðar
eldhús- og baöinnróttingar ásamt hreinlætistækjum í
fjölbreyttu úrvali. Einnig bjóöum viö bókahillur á
mjög hagstæðu verði. Góðir greiðsluskilmálar. Leitið
tilboða. Gjörið svo vel og lítið í sýningarsal okkar í
Smiðsbúð 6, Garðabæ.
SJÓN ER SÖGU RÍKARI
Timburiðjan hf.,
símar 91-44163 og 91-44788.
fulltrúar hópsins á fund fjárveit-
inganefndar Alþingis til að fylgja
eftir kröfum íbúanna um að
byggð verði heilsugæslustöð við
Gerðuberg í Breiðholti III.
Árangur þessa starfs okkar er
nú kominn í ljós. Fjárveitinga-
nefnd Alþingis kom og skoðaði
aðstöðu heilsugæslustöðvarinnar
í Asparfelli og kynnti sér fyrir-
hugaða staðsetningu nýrrar
heilsugæslustöðvar við Gerðu-
berg. Á fjárlögum nú eru 3,5
milljónir króna frá ríki og 600
þús. krónur á fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar eða alls 4,1
milljón króna til byggingar
stöðvarinnar á þessu ári.
Borgarstjórinn, Davíð Odds-
son, lýsti því yfir á hverfafundi
sínum í Breiðholti á dögunum að
hefja ætti byggingu heilsugæslu-
stöðvarinnar í sumar.
Við í stjórn Framfarafélags
Breiðholts III teljum okkur hafa
unnið vel að þessu máli þó svo
það hafi ekki farið hátt. Okkur
finnst ekki sanngjarnt að for-
svarsmenn heilsugæslumála í
Reykjavík segi í fjölmiðlum að
enginn hafi látið frá sér heyra.
Við vonum að þetta verði til
þess að fleiri láti heilsugæslum-
álin til sín taka.
2. mars 1985,
Virðingarfyllst, f.h. Fram-
farafélags Breiðholts III,
Gísli Sváfnisson formaður."
Athugasemd frá
Katrínu Fjeldsted
ATHUGASEMD vegna fréttatilkynn-
ingar frá Framfarafélagi Breiðholts
III.
Undirrituð tók þátt í umræðum í
þættinum „Kastljósi" síðastliðinn
föstudag, um heilsugæslu í Reykja-
vík. Þátturinn var stuttur en mál-
efnið mikilvægt og þvi ekki hægt að
ræða alla þætti þess. í lokin hvatti
ég borgarbúa til að láta í sér heyra
um skort á heimilislæknum og
hvatti íbúasamtök og hverfafélög
til að skrifa í blöð eða senda bréf ef
verða mætti til að þrýsta á um úr-
bætur. Gísli Sváfnisson, formaður
Framfarafélags Breiðholts III, hef-
ur gengið á undan með góðu for-
dæmi. Síðastliðið haust skrifaði
Framfarafélagið fjárveitinganefnd
um nauðsyn þess að bæta aðstöðu
og auka starfsemi heilsugæslu-
stöðvar í Breiðholti III. Þetta fram-
tak félagsins ásamt innleggi frá
borgarstjórn Reykjavíkur átti stórn
þátt í því að fé var veitt á fjárlögum
ríkisins til að hefjast handa við
byggingu heilsugæslustöðvar í
Breiðholti III, við Gerðuberg. Þetta
kom ekki fram í „Kastljósi".
Mér þykir miður ef Gísla finnst á
sig hallað, því félag hans sýndi
frumkvæði í málinu og vil fullvissa
hann um að hvatning mín til borg-
arbúa var einmitt byggð á þeim
jákvæðu áhrifum sem bréf Fram-
farafélagsins hafði.
Katrín Fjeldsted læknir, for-
maður Heilbrigðisráðs Reykja-
vfkur.
MURDER IN MOSCOW
'ROM THE lNTKRNATlONAt, BEST SEUÆl
Gorki Park
í Regn-
boganum
REGNBOGINN hefur hafið sýn-
ingar á myndinni Gorky Park, sem
er bandarísk spennumynd með leik-
urunum William Hurt, Lee Marvin
og Joanne Pakula í aðalhlutverkum.
Kvikmyndin gerist að mestu leyti í
Moskvu, þar sem þrjú lík finnast í
Gorky Park og vekur athygli hve
illa þau eru útleikin. Rússneska
rannsóknarlögreglumanninum
Arkady Renko er falið að kanna
málið og brátt vindur málið upp á
sig, þannig að ljóst verður að þræð-
ir þess liggja allt frá Gorky Park til
Kremlarmúra og langt vestur fyrir
járntjald. Auk þess kemur ástin til
sögunnar.
Líf og starfsorka er
dýrmætasta eign hvers og
eins, enda grundvöllur þeirra
verðmæta sem standa undir þörfum einstaklinga og fjölskyldna.
Eru þér ljós þau áhrif sem skyndilegt fráfall þitt myndi hafa á
stöðu þinna nánustu?
Verðtryggð líftrygging veitir fjölskyldu þinni vernd gegn fjár-
hagslegum áföllum við óvænt fráfall þitt.
Við bjóðum verðtryggingu allt tryggingartímabilið svo líftrygging-
in heldur ætíð verðgildi sínu.
Verðtryggða líftryggingu er hægt að taka annaðhvort sem
einstaklingstryggingu, eða fyrir tvo eða fleiri aðila sem bera
fjárhagslega ábyrgð sameiginlega.
Hafðu samband við tryggingaráðgjafa okkar - þeir veita allar
frekari upplýsingar.
"líftrygging
I CAGNKVÍMT TRYOGINGAfELNG
BRUNABÓTAFÉLAG ISLANOS
Skrifstofur. Laugavegur 103 105 Reykjavík Sími 91 26055 UMBOÐSMENN UM ALLT LAND