Morgunblaðið - 14.03.1985, Side 64
EUROCAPD
y
TIL DAGLEGRA NOTA
áeiía
Ofiig 10.C0-CQ.30
FIMMTUDAGUR 14. MARZ 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
Sprett úr spori
Á ísilögAu Vatnshlíðarvatni á Vatnsskarði í A-Húnavatnssýslu.
Morgunbladið/Snorri Snorrason
Kennarar felldu að
snúa aftur til vinnu
Á ALMENNUM félagsfundi HÍK í
gærkveldi var samþykkt tillaga
stjórnar þess efnis, að kennarar,
sem sagt hafa upp störfum, skuli
ekki snúa til starfa nú, þrátt fyrir
Jean Luc Godard tekur við gull-
Ijóninu á kvikmyndahátíðinni í
Cannes fyrir mynd sína Prénom
Carmen, sem sýnd verður á
kvikmyndahátíð.
J.L. Godard
gestur á kvik-
myndahátíð
EINN þekktasti leikstjóri
Frakka, J.L Godard, kemur á
kvikmyndahátíð Listahátíðar
sem haldin verður 18.—28. maí.
Godard er ásamt Truffaut einn
helsti höfundur frönsku nýbylgj-
unnar. Margar af kvikmyndum
Godard hafa notið mikilla vin-
sælda og hefur hann valdið
meira umróti en flestir aðrir leik-
stjórar á síðustu áratugum.
Nýjasta mynd hans „Ég
heilsa þér María“ hefur valdið
mikilli hneykslun meðal trú-
manna í Frakklandi og hefur
sums staðar verið bannað að
sýna myndina. Godard mun
væntanlega koma með þessa
mynd með sér og verður hún
sýnd á kvikmyndahátíðinni
ásamt fleiri myndum eftir
hann.
áskorun ríkisstjórnarinnar í fyrra-
dag. Tillagan var samþykkt með 187
atkvæðum gegn 102, en 6 kennarar
skiluðu auðu.
1 samþykkt fundarins segir
meðal annars, að það sé ekki á
færi annarra en stjórnvalda nú að
koma i veg fyrir frekari skaða
hvað nemendur varðar. Siðan seg-
ir: „Eina lausnin sem nú dugar í
þessu máli verður að vera til
frambúðar, ella stefnir í enn
meira óefni í skólamálum þjóðar-
innar í upphafi næsta skólaárs.“
Þegar úrslit atkvæðagreiðslu
voru ljós hvatti Kristján Thorlaci-
us, formaður HlK, kennara til að
standa saman nú sem fyrr og bað
þá, sem samþykkt fundarins væru
mótfallnir, að hlíta vilja meiri-
hlutans. Ef einhverjir væru hins
vegar ákveðnir i að snúa aftur til
starfa, þá sagði Kristján það ósk
sína að þeir biðu með það i nokkra
daga.
„Ég vona að ríkisvaldið reyni nú
að semja við kennara fyrir al-
vöru,“ sagði Kristján.
Sjómaður og kaupmaður
teknir fyrir hasssmygl
TVEIR menn, liðlega tvítugur skip-
verji á Urriðafossi og fertugur verzl-
unareigandi í Reykjavík, hafa verið
úrskurðaðir í gæzluvarðhald vegna
rannsóknar fíkniefnadeildar lögregl-
unnar í Reykjavík á smygli á 2 kfl-
óum af hassi.
Skipverjinn var handtekinn í
Hafnarfirði eftir komu Urriðafoss
til landsins. I fórum hans fundust
260 grömm af hassi. Síðar um
nóttina var hinn maðurinn hand-
tekinn og fundust tæplega 1800
grömm af hassi i fórum hans.
Verzlunareigandinn var úrskurð-
aður í 15 daga gæzluvarðhald, en
skipverjinn í 5 daga gæzluvarö-
hald. Skipverjinn er grunaður um
að hafa tekið að sér að smygla
hassinu inn í landið fyrir verzlun-
areigandann, sem er grunaður um
að hafa fjármagnað fíkniefna-
kaupin.
ísfirskir sjómenn
boða verkfall
Slitnaði upp úr samningaviðræðum við útgerðarmenn
SJÓMENN á ísafirði hafa boðað
verkfall á togurum og úthafsveiði-
skipum frá og með næsta fímmtu-
degi, 21. mars, og á öðrum bátum
yfír 30 tonnum frá og með 31. mars
hafí ekki tekist samningar fyrir
þann tíma.
I fyrrakvöld slitnaði upp úr
samningaviðræðum Sjómannafé-
lags ísafjarðar og viðsemjenda
þeirra, Útvegsmannafélags Vest-
fjarða og smábátaeigendafélags-
ins Hugins. Vísuðu útgerðarmenn
deilunni til ríkissáttasemjara,
sem hefur boðað fund á ísafirði á
laugardaginn kl. 16, að því er Sig-
urður Ólafsson, formaður Sjó-
mannafélagsins, sagði i samtali
við blaðamann Mbl. í gærkvöld.
Viðræðurnar munu hafa strand-
að á einarðri kröfu sjómanna um
að fá sérstakar hækkanir til sjó-
manna með lengri starfsreynslu.
„Það er hreint mannréttindamál,"
sagði Sigurður Ólafsson. „Sjó-
menn einir stétta í landinu njóta
engra starfsaldurshækkana.
Mönnum er borgað sama kaup
hvort heldur þeir eru viðvaningar
eða sjómenn með áratuga reynslu.
Við viljum fá þessu breytt.“
Ástæða þess að verkfallsboðun-
in er tvískipt er sú, að sögn Sig-
urðar Ólafssonar, að með því móti
lendir ekki allur þungi hugsanlegs
verkfalls á línu- og netasjó-
mönnum, sem hafa í verkfallsað-
gerðum undanfarinna vikna orðið
að hætta veiðum þegar i stað á
meðan togarar og stærri skip hafa
getað haldið áfram allt upp í einn
mánuð.
I Sjómannafélagi ísafjarðar eru
um 150 félagar.
Shultz á
*
Islandi
GEORGE Shuitz, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, var væntanlegur til
íslands laust eftir miðnætti í nótt.
Ráðherrann kom frá Moskvu, þar
sem hann var í gær viðstaddur útför
Chernenkos, fyrrum formanns sov-
éska kommúnistaflokksins.
Shultz ræðir við Geir Hall-
grímsson, utanríkisráðherra, og
íslenska embættismenn, en sið-
degis heldur hann áfram för sinni
til Bandaríkjanna. Strax eftir
komuna þangað leggur hann upp í
ferðalag um Kanada með Ronald
Reagan, Bandaríkjaforseta.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Rauðmagi í soðid!
ÞAÐ MÁ búast við að rauðmagi lendi á veizluborði einhvers borgarbú-
ans strax næstu daga því reykvískir hrognkelsaveiðimenn eru farnir að
fá’ann. Enn er veiði tiltölulega lítil en þess má vænta að hún aukist á
næstu vikum. Myndin af þessum glaðbeitta grásleppukarli var tekin við
Grandagarð í gær.
75 % háskólanema stefna í
störf tengd hinu opinbera
„í REYNDINNI eru það á milli 75% og 80% þeirra sem innrita.sC í Háskóla
Islands, sem Ijóst eða leynt stefna í ævistarf sem er í tengslum við aðra
starfsemi en atvinnulífíð,” segir Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Vinnuveitendasambands ísiands, m.a. í samtali við Morgunblaðið, þar sem
Magnús lýsir áhyggjum sínum vegna vals háskólanema á námsgreinum, sem
Magnús telur vera vísbendingu um ógnvænlega þróun fyrir íslenskt atvinnu-
líf.
í máli Magnúsar kemur fram að hátt virðast stefna að því að
21,3% háskólanema, eða 882 nem- leggja kennslustörf fyrir sig eru
ar, eru við heilbrigðisbrautir Há- 1.312 talsins, eða 32% háskóla-
skólans, þeir sem á einn eða annan nema, og laganemar eru 378 tals-
ins. „Samtals eru þeir sem mér
virðist sem stefni að þvi að starfa
aö námi loknu á einn eða annan
hátt f þjónustu hins opinbera
2.633 talsins, eða 64% af heild-
inni,“ segir Magnús.
Magnús bendir jafnframt á að
nemendur í viðskipta- og verk-
fræði- og raunvfsindadeild séu
1.610 talsins og vægt áætlað fari
um 30% þeirra til starfa hjá hinu
opinbera. Hér sé þvf um 75% til
80% háskólanema að ræða, sem
stefni að ævistarfi ótengdu at-
vinnulifinu, eins og Magnús orðar
það. Framleiðslugreinarnar standi
því frammi fyrir þeirri ógnvæn-
legu staðreynd að menntað fólk
sæki ekki í þær.
Sjá nánar frétt og viðtal við
Magnús Gunnarsson á bls. 4.