Morgunblaðið - 27.03.1985, Page 3

Morgunblaðið - 27.03.1985, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. MARZ 1985 3 TlLGtðGGVUNAR Til að sjá eru páskaegg eiginlega ekki mjög frábrugðin hvert öðru. En vegna þess hve þau eru ólík að bragðiog innihaldi er mikilvægt að geta greint á milli tegunda. Hér fylgir því ofurlítill leiðarvísir um páskaegg frá Nóa og Síríus. Verði ykkur að góðu! jmO ^ Sfrfus Öruggasta leiðin er auðvitað að kaupa egg, brjóta það og bíta i. Pá finna bragðlaukarnir hvort um rétt egg er að ræða En það má líka treysta því, að ef miði með 5 litlum og sætum ungum prýðir pokann, er eggið frá Nóa Síríus. Poki úr glæru plastefni. Ganga má úr skugga um að um réttan poka sé að ræða, með því að blása hann upp, halda fyrir opið og slá síðan þéttingsfast á botninn með lausu höndinni. Á pokinn þá að gefa frá sér hátt og hvellt hljóð til merkis um að hann sé frá Nóa Sírlus Súkkulaðibragðið á að minna ákveðið á bragðið af Síríus hjúpsúkkulaði og Pippi. Kúlur, kropp, konfekt, karamellur og brjóstsykur benda eindregið til þess að eggið sé frá Nóa Siríus. Þó því aðeins að bragðið sé Ijúffengt. Gulur ungi af vandaðrí þýskri gerð. Athugið þó að aðrir framleiðendur hafa einnig gula unga á eggjum sinum. Hnyttinn, rammíslenskur málsháttur skráður með svörtu letri á litaðan borða OOTT fÖLK

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.