Morgunblaðið - 27.03.1985, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 27.03.1985, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. MARZ 1985 41 Inga Þorsteins- dóttir - Minning Fædd 2. september 1918 Dáin 17. mars 1985 í dag verður til moldar borin frá Kópavogskirkju frú Inga K. Þor- steinsdóttir, Nýbýiavegi 58, er lést í Landspítalanum að morgni 17. þessa mánaðar. Inga var fædd í Reykjavík 2. september 1918, næst yngsta barn hjónanna Jóhönnu Greipsdóttur frá Haukadal í Biskupstungum og Þorsteins Finnbogasonar, kennara og síðar bónda í Fossvogi. Ung missti hún móður sína en Þorsteinn hélt heimili áfram ásamt börnum sínum. Inga var að- eins 16 ára er hún tók við húsmóð- urhlutverki á heimili föður síns. Af börnum Jóhönnu og Þor- steins eru á lífi Haukur, búsettur i Svíþjóð, Katrín húsfreyja í Fells- koti og Finnbogi, búsettur í Reykjavík. Látin eru Jóhanna, Friðþjófur og Hildur. Árið 1951 giftist Inga Jóni Kr. Þorsteinssyni, húsasmíðameist- ara. Þeim varð ekki barna auðið, en Inga átti son, Þór Erling, og reyndist Jón honum sem besti fað- ir. Þór Erling er kvæntur Guðnýju Sverrisdóttur og eiga þau 6 börn. Jón lést í desember 1976. Aldrei finnur maður eins vel og þegar veikindi steðja að hvað gott er að eiga góða ættingja og vini. Kom það best í ljós í veikindum hennar. Síðastliðið eitt og hálft ár höfum við fylgst í von og fyrirbæn með hetjulegri baráttu kjarkkon- unnar Ingu frænku við erfiðan sjúkdóm er lagði þessa lífsglöðu konu alltof fljótt að velli. Sérstakar þakkir langar okkur að færa starfsfólki á deild 13D, einnig læknum og hjúkrunarfólki + Otför dóttur okkar og móöur, ÓLAFÍU SIGRÚNAR ODDSDÓTTUR hárgreiöslukonu, Kórsnesbraut 91, fer fram frá Fossvogi fimmtudaginn 28. mars kl. 15.00. Petrea Georgsdóttir, Oddur Jónsson, Tinna Halldórsdóttir, Oddur Halldórsson, Valgaröur Halldórsson. Geisladeildar Landspítalans. Fjölskylda okkar vottar Þór Erling og fjölskyldu og öðrum ættingjum dýpstu samúð. Við biðjum Ingu frænku Guðs bless- unar. Rósa og Steini Móöir min, tengdamóöir og amma, INGA K. ÞORSTEINSDÓTTIR, Nýbýlavegi 58, Kópavogi, veröur jarösungin 27. mars frá Kópavogskirkju kl. 15.00. Þór Erling Jónsson, Guóný Sverrisdóttir, og barnabörn. Minning: Siguröur Hjálmar Þorsteinsson Fæddur 6. mars 1918 Dáinn 9. september 1983 Síðbúin kveðja frá samstarfs- mönnum. Á meðan prentaraverkfall stóð yfir 1 haust, svo engin blöð komu út, var til moldar borinn vinur okkar og samstarfsmaður, Sigurð- ur H. Þorsteinsson, Bræðraborg- arstíg 10 í Reykjavík. Sigurður hóf störf hjá Málmsmiðjunni Hellu hf. í Reykjavík í september 1949 og starfaði þar til dauðadags. Þrjátiu og fimm ára starf hjá sama fyrir- tæki lýsir mjög vel því trausti sem Sigurður bar til okkar, og því trausti sem hann sýndi öllu sem hann tók sér fyrir hendur. Sigurð- ur var ákaflega hagsýnn og út- sjónarsamur og kom það sér vel í starfi hans. Oft þurfti hann að smíöa hjálpartæki sem léttu okkur störfin og spöruðu okkur mikla vinnu. En Sigurður smíðaði fleira. I sínum tómstundum lagði hann mikla vinnu og hugvit í lík- anasmíði. Hann gerði fullkomin líkön af mörgum skipum og skút- um, og studdist þá mest við ljós- myndir. Hann var ekki ókunnur skipum og bátum, því um það snerist lífið hjá honum. Hann hafði svo mikinn áhuga á sjósókn og útgerð, að hann smiðaði sinn eigin bát. Aðal starfssvið okkar í Hellu hf. er að steypa hluti úr áli og kopar. Þarna voru ótæmandi möguleikar fyrir svo listhneigðan mann sem Sigurð, að útfæra og smíða lista- verk, og liggja eftir hann ógrynni af hlutum á því sviði svo sem hús- gögn, bókastoðir, lýsislampar, spegilrammar og margt fleira. Síðustu hlutirnir sem hann smíð- aði hjá okkur voru stjörnur til að skreyta loftið í gömlu kirkjunni í Aðalvík á Ströndum. Þetta var hans kirkja, því Sigurður var ætt- aður frá Neðri-Miðvík í Aðalvík. í fáum skrifuðum orðum er ekki hægt að þakka Sigurði fyrir sam- fylgdina, en við geymum allir góð- ar minningar um þann sómadreng sem eyddi með okkur svo löngum tíma. Við vottum eftirlifandi eigin- konu hans, Matthildi Elíasdóttir, og börnum þeirra hjóna okkar + Þökkum samúö og hlýhug viö fráfall og jaröarför INGVARS PÁLMARSSONAR •kipstjóra, Barmahlfö 20. Öllu starfsfólki á sjúkradeild G, Hrafnistu, þökkum viö frábæra umönnun og hjúkrun. Pálmi Ingvarsson, Auöur Ingvarsdóttir, Siguröur Eirfksson, Siguröur Ingvarsson, Vélaug Steinsdóttir, barnabðrn og barnabarnabðrn. dýpstu samúð og biðjum guð að fylgja þeim um ókomna framtíð. Samstarfsmenn í Málm- smiðjunni Hellu hf. + Þökkum auösýnda samúö og vinsemd viö andlát, BJARGAR BJARNADÓTTUR, Aóalbóli, Reyöarfiröi. Sérstakar þakkir til starfsf ólks h júkrunarheimilisins Egilstööum fyrir góöa umönnun. Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna. Unnur Benediktsdóttir, Ingólfur Benediktsson, Sverrir Benediktsson. + Látinn er GUÐMUNDUR H. ARNÓRSSON, Snorrabraut 67, Reykjavfk. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 1. april kl. 15.00. Ásta Bogadóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. + Þökkum innilega hlýhug og samúö viö fráfall og útför GUDMUNDAR G. HAGALÍN, rithöfundar, umhyggju starfsfólks sjúkrahúss Akraness og hjálpsemi nágranna i Reykholtsdal. Unnur Hagalfn, og aöstandendur. + Faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi, ÁRSÆLL KRISTÓFER JÓNSSON, fyrrv. kaupmaöur f Hafnarfiröi, lést 25. mars i gjörgæsludeild Landakotsspitala. Fyrir hönd tengda- barna, barnabarna og barnabarnabarna. Börnin. + Innilegar þakkir þeim er sýndu okkur samúö og hlýhug viö andlát og útför eiginmanns mins, fööur okkar og tengdafööur, KÁRA GUDJÓNSSONAR, Hagamel 28. Lillý Asa Kjartansdóttir, Kjartan J. Kórason, Laufey Eyjólfsdóttir, Guöjón Kárason. Rv^ií: Jarðarfarar- skreytingar Kistuskreytingar, krans- ar, krossar. Græna höndin Gróörarstöö viö Hagkaup, simi 82895. + Eiginkona min, HELGA SIGURÐARDÓTTIR, lést aöfaranótt 26. mars. Fyrir hönd barna okkar, foreldra hennar, systkina, tengdamóöur og vandamanna, Kristinn Helgason. + Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkar samúö og hlýhug vlö fráfall og jaröarför, ÞÓRHILDAR BRYNJÓLFSDÓTTUR, Breiövangi 14, Hafnarfiröi. Jón Guðmundsson, Salbjörg Jónsdóttir, Valgeröur Þórarinsdóttir, Valgerður Steinarsdóttir. + Móöir okkar og tengdamóöir, RANNVEIG V. GUDMUNDSDÓTTIR, Laufásvegi 38, andaöist föstudaginn 22. mars sl. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 29. mars kl. 10.30 f.h. Guömundur Sigurjónsson, Ellen Bjarnadóttir, Sigriöur Sigurjónsdóttir, Friörik Guömundsson, Katrfn Sigurjónsdóttir, Jón Magnússon, Kjartan Sigurjónsson, Bergljót Jónsdóttir, Unnur Bjarnadóttir. Kransar, kistuskreytingar BORGARBLÓMÍÐ SKiPHOLTÍ 35 SÍMÍ: 322I3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.