Morgunblaðið - 27.03.1985, Blaðsíða 22
MORGUNBLAÐID, MIÐVIKUDAGUR 27. MARZ 1985
22
SKÁKSAM BAIMD
13 lan d s
Skákþing ísiands
1985
hefst laugardaginn 30. mars nk. kl. 14.00.
Teflt veröur í landsliösflokki, áskorendaflokki og
opnum flokki. Áskorendaflokkur: 9 umferöir Monrad,
þátttökurétt eiga skákmenn meö a.m.k. 1800 skák-
stig.
Opinn flokkur: 9 umferöir Monrad, þátttaka öllum
heimil.
Teflt veröur í áskorenda- og opnum flokki í Skák-
heimili TR viö Grensásveg 44, Rvík. Innritun á staön-
um hefst klukkustund áöur en fyrsta umferð byrjar.
Þátttökugjald: 18 ára og eldri kr. 500,-.
15—17 ára kr. 400,-.
14 ára og yngri kr. 300,-.
Keppni í landsliðsflokki hefst á sama tíma og verður
teflt í Hagaskólanum í Reykjavík.
Allar nánari upplýsingar veittar í síma 27570, kl.
13—17.
Stjórn Skáksambands íslands.
KorkoPlast
Sænsk gæðavara
KORK-gólfflísar
meö vinyl-plast-
áferö.
Kork*o*PIast:
í 10 geröum.
Veggkork
í 8 gerðum.
Ávallt
til á
lager.
PStSœ-. *
Aðrar korkvörutegundir á lager:
Undirlagskork í þremur þykktum
Korkvélapakkningar í tveimur þykktum
Gufubaðstofukork
Veggtöflu-korkplötur í þremur þykktum
Kork-parkett venjulegt, í tveimur þykktum
Einkaumboð á íslandi fyrir WICANDERS KORK-
FABRIKER:
Hringið eftir ókeypis sýnishorni og bæklingi.
&
Þ. ÞORGRIMSSON & CO
'Armúla 16 sími 38640
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásíöum Moggans!
iQr,
Markmiðið að efla upp-
lýsingastreymi til fyrir-
tækja á landsbyggðinni
Rætt við Jón Unndórsson, framkvæmda-
stjóra Iðnþróunarfélags Suðurnesja
AÐALFUNDUR Iðnþróunarfélags Suðurnesja verður haldinn í aprflmánuði
næstkomandi og af því tilefni sneri Morgunblaðið sér til Jóns Unndórssonar,
framkvæmdastjóra félagsins, og spurði hann um starfsemina, markmið og
þau verkefni, sem unnið hefur verið að á vegum félagsins að undanfornu.
„Iðnþróunarfélagið er stofnað af
atvinnumálanefndum sveitarfé-
laga á Suðurnesjum til að reka
iðnráðgjafarstarfsemi í landshlut-
anum, sem markast af landsvæð-
inu sunnan Straumsvíkur og nær
yfir allan Reykjanesskaga,“ sagði
Jón Unndórsson, en hann var
spurður um tilurð félagsins og
hlutverk. „Félagið var stofnað 12.
apríl 1984 og starfar samkvæmt
lögum um iðnráðgjöf í landshlut-
um, sem sett voru i desember 1981.
Hlutverk iðnráðgjafar í landshlut-
um er fyrst og fremst að liðka
fyrir upplýsingastreymi frá stofn-
unum og sjóðum á höfuðborgar-
svæðinu til lítilla og meðalstórra
fyrirtækja á landsbyggðinni og
stuðla að stofnun nýrra atvinnu-
fyrirtækja.
Iðnþróunarfélag Suðurnesja
hefur rækt sitt hlutverk með
margvíslegum hætti. Má þar með-
al annars nefna miðlun upplýs-
inga um þjónustu stofnana, um-
sóknir í sjóðakerfið, ráðstefnur
um tækni og nýjar framleiðslu-
greinar og námskeið um undir-
búning að stofnun nýrra fyrir-
tækja, svo eitthvað sé nefnt. Þá
hefur félagið leitað upplýsinga um
vörur, framleiðendur og einkaleyfi
úr erlendum upplýsingabönkum
og hvatt til samvinnu við erlenda
aðila. Einnig hefur félagið annast
arðsemisútreikninga og áætlana-
gerð og aðstoðað hugvitsmenn við
að koma á framfæri nýjungum á
ýmsum sviðum," sagði Jón Unn-
dórsson ennfremur.
Aðspurður um sérstöðu þessar-
ar iðnráðgjafar sagði Jón meðal
annars, að hér væri fyrst og
fremst um að ræða þjónustu við
fyrirtæki úti á landsbyggðinni
sem ekki væru í aðstöðu til að
notfæra sér þá þjónustu sem
rannsóknarstofnanir og þjónustu-
stofnanir á höfuðborgarsvæðinu
byðu upp á. „Þessar stofnanir
veita vissulega ráðgjöf en einungis
þeim sem koma til þeirra. Stjórn-
endur lítilla og meðalstórra fyrir-
tækja á landsbyggðinni hafa i
mörgum tilfellum ekki tíma til að
fara á milli þessara stofnana og
setja sig inn i hvað þær hafa upp á
að bjóða. Margir hverjir eru líka
að hluta til i framleiðslunni og
þess vegna eiga þeir óhægt um vik.
Iðnráðgjöfin er hins vegar miðuð
við þessi litlu og meðalstóru fyrir-
tæki á landsbyggðinni. Við sækj-
um stjórnendur fyrirtækjanna
heim og komum á framfæri ýms-
um upplýsingum. Við reynum að
koma á samböndum við þessa
stjórnendur og þeir koma sinum
vandamálum á framfæri við
okkur. Á þennan hátt öflum við
ýmissa upplýsinga um stöðu fyrir-
tækjanna og eigum þar af leiðandi
auðveldara með að leiðbeina þeim
Jón Unndórsson, framkvæmdastjóri
Iðnþróunarfélags Suðurnesja.
um ýmsa þá þætti er lúta að starf-
semi fyrirtækjanna.
Ég sat fund starfsnefndar á
vegum „Nordinfo" í febrúar síð-
astliðnum, en hlutverk þessarar
nefndar var að gera grein fyrir
hvernig staðið skuli að upplýs-
ingamiðlun til lítilla og meðal-
stórra fyrirtækja og hvaða upp-
lýsingar koma þeim best að not-
um. Þar kom meðal annars fram
hjá öllum þátttakendum að það er
mikið vandamál að koma þessum
upplýsingum á framfæri. Oft er
Árangursríkari
samvinna en áð-
ur hefur náðst
— segir Ragnar Sohlam framkvæmdastjóri
ráðherranefndar Norðurlandaráðs um fyrsta
stjórnarár íslendinga í nefndinni
„ÞE1TA er í fyrsta skipti sem fs-
land tekur að sér formennsku í ráð-
herranefnd Norðurlandaráðs. ís-
lendingar hafa unnið þar mjög gott
starf, sem árangur á eftir að sjást af
á þessu þingi hér í Reykjavík,“ sagði
Ragnar Sohlman aðalframkvæmda-
stjóri ráðherranefndar Norðurlanda-
ráðs, er blaðamaður Mbl. ræddi við
hann í fyrstu dögum þings Norður-
landaráðs, sem haldið var í Þjóð-
leikhúsinu fyrir skemmstu. Ragnar
sem er sænskur hefur gegnt fram-
kvæmdastjórastarflnu sl. þrjú ár í
Osló, þar sem ráðherranefndin hef-
ur aðsetur, en segist hætta í aprfl-
mánuði 1986, þegar skrifstofa ráð-
herranefndarinnar hefur verið flutt
til Kaupmannahafnar.
Ragnar sagði, að fslendingar
hefðu tvívegis, árin fyrir þingin í
Reykjavík 1975 og 1980, átt rétt á
að tilnefna mann til formennsku i
ráðherranefndinni, en tekið þá
ákvörðun að gera það ekki, bæði
vegna ábyrgðarinnar og fjarlægð-
ar frá hinum Norðurlöndunum.
Danir og Sviar skiptu þá með sér
formennskunni. Norðurlöndin
skiptast á að halda þingin og er
starfsregla, að það land sem held-
ur þingið tilnefnir til formennsku
í ráðherranefndina árið fyrir
þinghaldið en árið eftir þinghaldið
í forsætisnefndina, sem þingmenn
skipa, og aðrar þingmannanefnd-
ir. Ragnar sagði að mjög ánægju-
legt hefði verið að vinna með Is-
lendingunum þetta síðasta ár,
Matthías Á. Mathiesen hefði
gegnt formennsku í ráðherra-
nefndinni. Samstarf við hann og
Jón Júlíusson í viðskiptaráðuneyt-
inu, sem stýrt hefði embætt-
ismannanefndinni, hefði verið
með ágætum. „Undir stjórn ís-
lendinga hefur náðst mikill árang-
ur í efnahagssamvinnunni, sem ég
vænti að sýni sig hér á þinginu. Þá
hafa þeir náð mun árangursríkari
samvinnu milli þjóðanna en áður
hefur tekist," sagði hann.
Ragnar Sohlman starfaði hjá
sænskum stjórnvöldum áður en
hann gerðist aðalframkvæmda-
stjóri ráðherranefndarinnar, var
m.a. bæði í fjármálaráðuneytinu
og atvinnumálaráðuneytinu og
hefur því mikla reynslu í þjóðmál-
um. Hann var spurður, hvert gagn
hann teldi okkur helst hafa af
samvinnunni i Norðurlandaráði.
Hann svaraði: „Ég tel að við höf-
um nú þegar mikið gagn af sam-
vinnunni og að við getum aukið
hana. fsland til dæmis getur stytt
MorfOinblaAÍA/ ÓI.K.M.
Ragnar Sohlam framkvæmdastjóri
ráðherranefndar Noröurlandaráós.
sér leiö í mörgum málaflokkum. f
Skandinavíu hefur verið unnið
lengi að ýmsum rannsóknarverk-
efnum, sem fslendingar geta nýtt
sér niðurstöðurnar af. Eg tel að
íslendingar geti náð miklu ut úr
þessari samvinnu.“
Ragnar sagðist alls ekki telja að
Norðurlandaráðsþingin væru orð-
in of stór. Miklu skipti fyrir sam-
vinnuna að menn hittust og ræddu
málin, efldu vináttu og tengsl.
Hann var þá spurður, hverju hann
svaraði heima fyrir, þegar hann
væri spurður um hag Svía af nor-
rænni samvinnu. „Ef Svíþjóð væri
ekki í norrænni samvinnu væri
landið aðeins lítið land í heimin-
um. Sameiginlega njóta Norður-
landaþjóðirnar mikils álits i ver-
öldinni, ekki aöeins innan Samein-
uðu þjóðanna heldur hvar sem
borið er niður.“