Morgunblaðið - 27.03.1985, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. MARZ 1985
Tass sakar majórinn um
aö hafa stundað njósnir
MowLvn m.rv AP ^
Thomas Griffín hershöfðingi, einn af yfírmönnum bandaríska herliðsins í
Vestur-Berlín, ásamt Karyn, eiginkonu Arthurs D. Nicholson majórs sem
sovézkur vörður skaut til bana í Austur-Þýzkalandi. Myndin var tekin við
minningarathöfn um hinn látna á Tempelhof-flugvelli í Vestur-Berlín á
mánudagskvöld.
Monkvu, 26. fnarz. AP.
FRÍ7TTASTOFAN Tass sagði í dag
að bandaríski majórinn, sem sovézk-
ur vörður skaut til bana í Austur-
Þýzkalandi, hefði verið að njósna um
sovézka herstöð og kenndi stjórn-
völdum í Washington um hin
„hörmulegu endalok".
Tass sakaði einnig Bandaríkja-
menn um að „dreifa vísvitandi upp-
loginni frásögn" af málinu og sagði
að sovézka sendiráðið í Washing-
ton hefði borið fram harðorð mót-
mæli í bandaríska utanríkisráðu-
neytinu.
Alvara málsins sést á því að
opinberlega var ekkert um það sagt
í Vestur- og Austur-Þýzkalandi í
dag.
Vestur-þýzka stjórnin vill ekkert
um málið segja fyrr en Bandaríkja-
menn hafa rannsakað það. Hvorki
sósíaldemókratar né græningjar
hafa látið frá sér fara yfirlýsingar
um málið.
í Austur-Þýzkalandi birti aust-
ur-þýzka fréttastofan aðeins frétt
Tass um málið, en rauf þar með
þögn sína um það. Vestur-þýzk blöð
sögðu að þótt málið hefði valdið
hættuástandi mundu stórveldin
reyna að gæta stillingar af póli-
tískum ástæðum.
Ásakanir Tass eru fyrstu opin-
beru viðbrögð Rússa við morðinu.
Tass sakar majórinn, sem banda-
rísk yfirvöld segja að hafi heitið
Arthur D. Nicholson, um að hafa
verið í „njósnaferð" þegar sovézkur
vörður hafi komið að honum í
herstöð skammt frá Ludwigshafen
í Schwerin-héraði í Austur-Þýzka-
landi.
Tass gaf í skyn að vörðurinn
hefði ekki vitað að hinn óboðni
gestur væri Bandaríkjamaður þeg-
ar hann skaut hann.
Talsmaður bandaríska sendi-
ráðsins í Washington sagði um
frétt Tass: „Við vísum útgáfu
þeirra af atburðinum á bug.
Við lítum á þetta sem tilraun til
að réttlæta verknað, sem ekki er
hægt að réttlæta," bætti hann við.
Tass segir að vörðurinn hafi
fundið óboðinn gest klæddan bún-
ingi í felulitum og hafi hann verið
að taka ljósmyndir út um glugga
geymslu nokkurrar.
Vörðurinn skipaði hinum óboðna
gesti á rússnesku og þýzku að
hætta, að sögn Tass. Þegar hann
reyndi að flýja skaut vörðurinn
viðvörunarskoti, sagði Tass.
Þegar hann sinnti þessu engu
beitti vörðurinn vopni sínu að sögn
Tass. „Hann skaut hinn óboðna
gest til bana,“ sagði Tass.
Tass sagði að annar bandarískur
liðsforingi, Jessie G. Schatz, hefði
ekið Nicholson til herstöðvarinnar
og beðið í bíl þeirra. Fréttastofan
sagði að Schatz hefði seinna verið
handtekinn.
Fréttastofan sagði að Banda-
ríkjamennirnir hefðu gerzt brot-
legir við samninga, sem meinuðu
aðgang að stöðum þar sem herlið
væri staðsett. Tass sagði að Rússar
hefðu oftar en einu sinni bent
Bandaríkjamönnum á það hve
hættulegar slíkar ögranir væru.
Afganistan:
Árásir á Sovét-
menn í Kabúlborg
Nviu Deihí. 26. mars. AP. J
Nýju Delhí, 26. mare. AP.
SKÆRULIÐAR í Afganistan gerðu í
Veður
víða um heim
fyrri viku nokkrar árásir á þau
hverfi í Kabúl, höfuðborginni, sem
Sovétmenn hafa sest að í og segja
vestrænir stjórnarerindrekar, að sjö
Sovétmenn a.m.k. hafí fallið.
Haft er eftir heimildum, að Sov-
étmenn safni nú miklu liði vegna
fyrirhugaðrar sumarsóknar í
syðstu héruðum landsins og að
langar lestir skriðdreka og bryn-
varinna bíla hafi lagt upp daglega
frá herstöðvum við Kabúl.
Árásir skæruliða á íbúðarhverfi
Sovétmanna í Kabúl í fyrri viku
eru ólíkar fyrri árásum að því
leyti, sem þær hafa verið mann-
skæðari og sprengjunum komið
fyrir og skotið af meiri nákvæmni
en áður. 19. mars sl. varð mikil
sprenging í verslun, sem Sovét-
menn skipta við, og biðu þá marg-
ir bana og fjórum dögum síðar
varð sprenging í annarri verslun
og varð mannfall mikið.
Samkvæmt óstaðfestum heim-
ildum myrtu Sovétmenn 900
óbreytta borgara í Kunduz-héraði
fyrir skömmu og 480 manns í bæn-
um Chahardara í sama héraði.
Voru Sovétmenn þá að hefna þess,
að háttsettir menn í Rauða hern-
um höfðu verið vegnir í árásum
skæruliða.
Indverjar á varðbergi
af ótta við „Sjakalann“
AmriLsar, Indlandi, 26. mars. AP.
LANDAMÆRAVÖRÐUM, tollvörð-
um og öðrum öryggisvörðum um ger-
vallt Indland hefur verið skipað að
vera á varðbergi og koma í veg fyrir,
að sá alræmdi hryðjuverkamaður
Ilyich Ramirez Sanchez, sem kallað-
ur er „Sjakalinn", sleppi inn í land-
ið. Hefur indversku leyniþjónust-
unni borist til eyrna, að öfgamenn úr
flokki sikha, sem búa erlendis, hafí
fengið Sjakalann til að ráða af dög-
um ýmsa frammámenn í Indlandi.
Haft er eftir heimildum, að ekki
sé ólíklegt, að Sjakalinn eða Carl-
os eins og hann er einnig nefndur
reyni að komast inn í landið með
falskt vegabréf og látist vera
Indverji en ekki eru til mjög
greinargóðar lýsingar á útliti
hans. Indverskur embættismaður,
sem ekki vildi láta nafns síns get-
ið, sagði, að nokkrir vellríkir
kaupsýslumenn af trúflokki sikha,
sem byggju erlendis, hefðu greitt
Hryðjuverkamaðurinn Carlos,
„Sjakalinn" öðru nafni.
ERLENT
Carlos og mönnum hans „of fjár
fyrir að myrða nokkra indverska
leiðtoga og standa straum af
þjálfun öfgamanna" í Punjab.
Ríkisstjórn Gandhis hefur oft
sakað öfgafulla sikha erlendis um
að kynda undir og fjármagna
hryðjuverk í Punjab-fylki þar sem
13 milljónir sikha búa og var ný-
lega skýrt frá því, að í Vestur-
Evrópu og Norður-Ameríku störf-
uðu 26 hópar þessara öfgamanna.
Carlos er fæddur í Caracas í
Venezúela, sonur auðugs lögfræð-
ings og kommúnista, og varð hann
ungur að árum kunnur fyrir alls
kyns hryðjuverk, flugrán og morð.
Logst Hsast
Akureyri 44 alskýjað
Amsterdam 6 11 rigning
Aþena 11 17 skýjaó
Barcelona 18 Mttskýjaó
Berltn 5 13 rigning
BrUssel 0 10 skýjaó
Chícago 1 7 rigning
DuMín 1 9 •kýjaó
Feneyjar 12 skýjaó
Frankfurt e 13 rígning
Genl »i-i-»- : nuiwiiKi i 15 skýjaó vantar
Hong Kong 19 23 skýjaó
Jerúsalem 12 20 skýjaó
Kaupm.höln 0 7 rigning
Las Palmas 21 Mttskýjaó
Ltssabon 10 16 skýjaó
London 4 7 rigning
Los Angeles 14 18 skýjaó
Luxemborg 8 skúrir
MnfffQII 19 Mttskýjaó
Mallorca 20 lÁMalróieA wniKyjM
Miami 17 25 skýjaó
Montreal +7 4 heióskirt
Moskva +3 7 heióskírt
New Yorfc 0 10 heíóskfrt
Osk> 1 2 skýjaó
París 8 11 rigning
Peking 4 10 skýjaó
Reykjavík 4-1 Mttskýjað
Rio de Janeiro 21 35 skýjaó
Rómaborg 3 20 heióskirt
Stokkhólmur 0 1 skýjaé
Sydney 17 20 rigning
Tókýó 13 20 skýjaó
Vmarborg 0 8 skýjaó
bórshðfn 1 snjóól
100.000 manns án upphitunar í Álaborg:
Hiti víða kominn niður
í 10—12 stig í miðbænum
Orkuveri borgarinnar öðru sinni neitað um undanþágu
Álaborg, 26. mars. Frá Ásbirni Blöndal. FrétUriUra Mbl.
ORKUVERIÐ í miðborg Álaborgar sjá kyndarar.
framleiðir, þegar allt er með
felldu, bæði rafmagn og heitt vatn
fyrir fjarvarmaveitu. Og fjarvarma-
veitan sér u.þ.b. helmingi húsa
borgarinnar fyrir upphitun.
Undanfarin misseri hafa stað-
ið yfir miklar breytingar á
orkuverinu og er verið að breyta
því í átt til aukinnar sjálfvirkni.
Hefur ketill orkuversins, sem
kyntur er með olíu, verið til við-
gerðar og endurbyggingar af
þessum sökum frá árinu 1983 og
verður ekki tekinn í notkun fyrr
en sumarið 1986.
Frá því að byrjað var á fyrr-
nefndum breytingum, hefur
orkuverið einungis verið kola-
kynt, og um sjálfa kolamötunina á móti neyðartilfellum. Öllum
Það er einmitt á kyndurunum
sem allt strandar í upphitunar-
málum borgarinnar, og verka-
lýðshreyfingin hefur neitað að
gefa undanþágu fyrir þá.
Af þeim sökum stöðvaðist
orkuverið strax að morgni
sunnudagsins og samtímis urðu
u.þ.b. 100.000 manns án upphit-
unar á íbúðum sínum eða á
stofnunum.
Stuttu áður en verkfallið skall
á hafði héraðssjúkrahúsið í Ála-
borg útskrifað mörg hundruð
sjúklinga og flutt þá sem verst
voru settir saman í stofur sem
hitaðar voru upp með rafmagni.
Sjúkrahúsið tekur nú eingöngu
fyrirhuguðum uppskurðum hefur
verið frestað og fæðingardeild-
inni hefur verið lokað. Verða
konur að leita til sjúkrahúss í um
50 km fjarlægð til að fá fæð-
ingarhjálp.
Einn af læknum borgarinnar
sagði, að ekki léki minnsti vafi á,
að fjöldi aldraðs fólks væri nú í
hættu vegna þess að það ætti
ekki kost á að njóta þess hita
sem það væri vant. Nefndi hann
sérstaklega þá sem ættu við blóð-
rásartruflanir að stríða og ættu
nú á hættu að fá alls konar
lungnakvilla með ófyrirsjáanleg-
um afleiðingum.
f gamla miðbænum í Álaborg,
þar sem hús eru mörg hver illa
einangruð, var hitinn kominn
niður í 12—15 gráður í dag.
Mikið annríki hefur verið hjá
skátum og öðrum hjálparsam-
tökum, m.a. kirkjunni, við hvers
kyns hjálparstarf. Hafa björgun-
armenn unnið við að koma tepp-
um og rafmagnsofnum til sjúkra
og aldraðra, svo og til barna-
heimila.
AUir barnaskólar eru lokaðir
vegna upphitunarleysis, og hafa
margir útivinnandi foreldrar
neyðst til að halda sig heima við
af þeim sökum.
I dag sótti orkuverið í annað
sinn um að fá undanþágu fyrir
starfsmenn við kolamötun, en
beiðninni var hafnað.
Ljóst er, að það mun taka tvo
til þrjá daga að ná upp hita á
fjarvarmaveitukerfi borgarinn-
ar, eftir að allt verður komið í
fullan gang á nýjan leik.