Morgunblaðið - 27.03.1985, Qupperneq 31
Brasilía:
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. MARZ 1985
31
Neves í rannsókn
vegna blæðinga
Sao Paulo, Braailíu, 26. mara. AP.
Tancredo Neves, forseti Brasilíu,
sem verið hefur sjúkur allt frá því að
hann var kjörinn í embætti, kom
með flugvél til Sao Paulo snemma í
morgun. Þar mun hann gangast und-
ir rannsókn vegna blæðinga í þörm-
um, að sögn blaðafulltrúa forsetans,
Antonio Britto.
Neves, sem er 75 ára að aldri,
hefur tvívegis verið skorinn upp
síðan hann veiktist. Hann kom í
sjúkrabíl til hjartadeildar Sao
Paulo-spítala, sem sagður er hinn
staersti í Suður-Ameríku.
Britto sagði, að Neves mundi
gangast undir slagæðamyndatöku
í því skyni að „finna orsök blæð-
inganna, sem verið hafa vægar en
stöðugar síðustu klukkustundirn-
ar“.
Dr. Jorge Luiz Prado, sem kom
með forsetanum i sjúkrabílnum,
sagði, að Neves hefði verið „með
fullri meðvitund og vakandi" með-
an á ferðinni stóð. Kvað hann for-
setann á stöðugri blóðgjöf, auk
þess sem hann fengi næringu í æð.
*
Oskarsverðlaunin:
„Amadeus“ varð
sigurvegarinn
F. Murray Abraham besti leikarinn
og Sally Field besta leikkonan
Lo« Angeles, 26. mara. AP.
TÁRVOT og klökk tók Sally Field
vió öðrum Óskarsverðlaununum
sem besta leikkonan, sem hún
hlýtur á fimm árum. Fékk hún þau
fyrir hlutverk sitt í myndinni
„Places in the Heart“ en annars
var það myndin „Amadeus", sem
var óumdeilanlegur sigurvegari.
Var hún valin besta myndin og
hlaut alls átta Óskarsverðlaun.
Kvikmyndin „Amadeus" var
valin besta myndin eins og fyrr
segir og Murray Abraham var
valinn besti leikarinn fyrir hlut-
verk sitt í henni, en þar leikur
hann Mozart á síðustu árum
hans. Þegar hann tók við verð-
laununum kvaðst hann ekki ætla
að blekkja fólk með því að látast
ekki eiga orð í eigu sinni því að
hann hefði verið búinn að æfa
þakkarræðuna í 25 ár.
Sú mynd, sem næst kom
„Amadeus", var „Blóðvöllurinn"
(The Killing Fields), sem fjallar
um hörmungarnar i Kambódiu á
valdatíma Rauðu khmeranna, en
hún fékk þrenn verðlaun. Kamb-
ódíski flóttamaðurinn dr. Haing
S. Ngor fékk verðlaun sem besti
leikarinn i aukahlutverki en
þetta var jafnframt fyrsta
kvikmyndahlutverk hans. „Þetta
er ótrúlegt, en þannig hefur líka
líf mitt verið,“ sagði Ngor þegar
hann tók við Óskarnum, en hann
var m.a. pyntaður á sínum tíma i
Kambódiu.
Peggy Ashcroft fékk verðlaun-
in sem besta leikkonan i auka-
hlutverki i myndinni „Ferðin til
Indlands" en hún var fjarri góðu
gamni. Var hún við útför vinar
síns, Michaels Redgrave, en fyrir
hennar hönd tók við þeim Ang-
ela Lansbury. Kvikmyndin
„Saga hermanns" (A Soldier’s
Story) var eina myndin af þeim,
sem höfðu verið tilnefndar til
mestu verðlauna, sem engin
verðlaun fékk.
Besta erlenda kvikmyndin var
valin svissneska myndin
„Hættulegir leikir“ en hún fjall-
ar um heimsmeistaramót i skák
þar sem eigast við tveir Sovét-
menn og annar landflótta.
Sjá ennfremur „Hið vandaða
handverk ..." k bls. 26.
Grænland:
Harðar deilur
um þjóðfánann
JONATHAN Motzfeldt formaður
grænlenzku landsstjórnarinnar seg-
ist mótfallinn því að landsþingið
velji annan fána í stað þess, sem
ákveðið hefur verið að verði þjóðfáni
Grænlands. Hinn nýi fáni verður
dreginn að húni á þjóðhátíðardegi
Grænlendinga, 21. júní nk.
Deilur hafa sprottið upp á
Grænlandi útaf nýja fánanum.
Hefur andstaða skapast við fán-
ann, þar sem hann er ekki „nýr“.
Er hann eins að útliti og fáni róðr-
ardeildar Hjortshoj-Egá íþrótta-
félagsins í Danmörku og fáni
sjálfstæðisflokks Puerto Rico.
Einnig vill hluti Grænlendinga að
fáninn líkist meir Dannebrog og
hafi a.m.k. kross.
í höfuðstaðnum Nuuk (Godt-
háb) hafa á þriðja þúsund manns
skrifað undir skjal, þar sem óskað
er að annar fáni verði valinn, og
mikil andstaða er við fánann í öðr-
um bæjum. Otto Stenholdt lands-
þingsmaður krefst þess að málið
verði tekið upp á vorfundi lands-
þingsins í maí og að efnt verði til
þjóðaratkvæðagreiðslu um nýjan
fána.
Motzfeldt hefur hins vegar beð-
ið Tom Heyem Grænlandsmála-
ráðherra að sækjast eftir staðfest-
ingu Danadrottningar á nýja fán-
anum. Stenholdt hefur beðið Hay-
em að halda að sér höndum þar til
málið hafi verið til lykta leitt í
Grænlandi. Fyrr geta Grænlend-
ingar ekki dregið eigin þjóðfána
að húni en danska þingið hefur
samþykkt sérstaka heimild til
handa heimastjórninni um notkun
fánans.
Símamynd/AP
Brynvagn gegn blökkumönnum
Blökkumenn í Sharpeville við Jóhannesarborg í Suður-Afríku minntust þess nú nýlega, að 25 ár eru liðin
frá því að 66 kynbræður þeirra féllu fyrir byssukúlum lögreglumanna. Kom til nokkurra óeirða af þessu
tilefni en þær voru brátt bældar niður af lögreglumönnum á brynvörðum bílum.
Klassískt kvöld
í Arnarhóli
í kvöld
Marakvartettinn
leikur kammertónlist undir borðhaldi.
NÝR, STÓRKOSTLEGUR SÉRRÉTTASEÐILL
í KONÍAKSSTOFUNNI
Eftir ljúffengan kvöldverð er notalegt að setjast í Koníaks-
stofuna og hlusta á góðan söng Asdísar Kristmundsdóttur.
Ásdís Kristmundsdóttir, sópran, stundar nám við Söngskól-
ann í Reykjavík hjá Dóru Reyndal.
Ásdís tók þátt í úrslitakeppni ungra söngvara í sjónvarpinu
sl. helgi og varð í 2. sæti. Undirleikari er Kolbrún Sæ-
mundsdóttir.
Vinsamlegast pantið borð tímanlcga.
Me<) ósk um ad þi<) eigid áncegjulega kvöldslund.
ARTiARHÓLL
A horni Hveifisgötu og Ingólfsstnetis.
Bordapantanir í símo 18833.