Morgunblaðið - 27.03.1985, Page 33
32
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. MARZ 1985
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. MARZ 1985
33
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aöstoöarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift-
argjald 330 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 25 kr. eintakiö.
Málefnin ráða
ingflokkur og fram-
kvæmdastjórn Fram-
sóknarflokksins hafa sent frá
sér sameiginlega yfirlýsingu
þess efnis, að ekki verði séð
að önnur ríkisstjórn en sú
sem nú situr fái ráðið við þau
verkefni sem framsóknar-
menn telja brýnust og fleiri
mikilvæg verkefni sem við
blasa. Jafnan ályktuðu þessar
valdastofnanir Framsóknar-
flokksins á þann veg, að kosn-
ingar nú myndu augljóslega
tefja mjög afgreiðslu nauð-
synlegra mála og jafnvel
stefna þeim í voða. Þá árétta
þingflokkur og framkvæmda-
stjórn, að Framsóknar-
flokkurinn standi heill að
stjórnarsamstarfinu og hann
muni ekki víkja sér undan
þeim stóru þjóðfélagsverk-
efnum sem flokkurinn vinnur
nú að, eins og það er orðað.
í sjálfu sér er það merki-
legt, að þingflokkur og fram-
kvæmdastjórn í flokki for-
sætisráðherra skuli sjá til
þess ástæðu að gera ályktun
af þessu tagi. Forystusveit
flokksins telur nauðsynlegt
að stöðva vangaveltur innan
hans um að stjórnarsam-
starfið sé að bresta fyrir til-
stilli Framsóknarflokksins og
einnig að þörf sé á því út á við
að styrkja pólitískar undir-
stöður stjórnarsamstarfsins
með þessum hætti.
Þess hefur orðið vart í
ályktunum frá Sambandi
ungra framsóknarmanna og
á fundi Framsóknarfélags
Reykjavíkur, að ýmsir fram-
sóknarmenn séu teknir að ef-
ast um gildi stjórnarsam-
starfsins. Með samþykkt
sinni hafa þingflokkur og
framkvæmdastjórn nú bund-
ið enda á vangaveltur manna
um að stjórnin fari frá vegna
einhiiða ákvarðana fram-
sóknarmanna. Steingrímur
Hermannsson, forsætisráð-
herra og formaður Fram-
sóknarflokksins, hefur hins
vegar sagt, að stjórnin muni
ekki lifa af aðra eins koll-
steypu í efnahagsmálum og
varð við gerð síðustu kjara-
samninga.
Með ályktun sinni nú eru
framsóknarmenn einnig að
koma því á framfæri, að það
séu ekki þeir heldur hugsan-
lega sjálfstæðismenn sem
vilji spilla fyrir ríkisstjórn-
inni. Þorsteinn Pálsson,
formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, og Steingrímur Her-
mannsson, forsætisráðherra,
skiptust á orðsendingum í
fjölmiðlum fyrir helgina í til-
efni af orðum sem höfð voru
eftir Friðrik Sophussyni,
varaformanni Sjálfstæðis-
flokksins, og túlkuð eru á
þann veg, að hann vilji kosn-
ingar sem fyrst.
I Morgunblaðsviðtali af
þessu tilefni segir Þorsteinn
Pálsson meðal annars, að
Framsóknarflokkurinn hafi
verið órólegur í stjórnar-
samstarfinu upp á síðkastið.
Framsóknarmenn hafi birt
lista um ágreiningsefni, sem
til stjórnarslita gætu leitt.
Með þeirri samþykkt fram-
sóknarmanna sem hér hefur
verið lýst er tekinn af allur
vafi í þessu efni. Framsókn-
armenn vilja að stjórnin
starfi áfram og hraðað verði
afgreiðslu mikilvægra mála
og þeir nefna tvö þeirra, að-
stoð við húsbyggjendur og
bændur vegna fjárhagserfið-
leika og nýsköpun í atvinnu-
lífi, fyrir utan samráðið við
aðila vinnumarkaðarins.
í Morgunblaðsviðtalinu
sagði Þorsteinn Pálsson það
ekki tímabært að svara
spurningum um kosningar
eins og sakir standa og bætti
við: „Sjálfstæðisflokkurinn
hefur aldrei hlaupist frá
verkum, þegar hann hefur átt
aðild að ríkisstjórn. Við mun-
um láta málefnalegar for-
sendur ráða framhaldi þessa
samstarfs."
Séu þessar yfirlýsingar all-
ar dregnar saman er ljóst, að
þeir Þorsteinn Pálsson og
Steingrímur Hermannsson
eru sammála um að ræða
ekki kosningar núna og láta
málefni ráða lífi ríkisstjórn-
arinnar. í sjálfu sér kemur
þetta engum á óvart. Sú
spurning vaknar, hvort þau
málefni sem framsóknar-
menn leggja höfuðáherslu á í
nýgerðri samþykkt sinni séu
þau einu sem ráða því, hvern-
ig stjórnarsamstarfið þróast.
Sé litið á þau atriði, sem
sjálfstæðismenn hafa lagt
mesta áherslu á af stórmál-
um má nefna landbúnaðar-
málin og sjóðamálið
svonefnda. Hvorugt þeirra
nefna framsóknarmenn. Um
framgang þessara mála
sömdu stjórnarflokkarnir há-
tíðlega síðasta sumar og
ályktuðu um í yfirlýsingu frá
því í byrjun september 1984.
Nýjustu rokunni út af lífi
ríkisstjórnarinnar er lokið.
Framsóknarmenn hafa gert
hreint fyrir sínum dyrum
fram til miðstjórnarfundar í
apríl. Næstu stóryfirlýsinga
sjálfstæðismanna er að
vænta á landsfundi þeirra
strax eftir páska.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Djúpsprengja á dekki El Grillo. Eins og sjá má hefur mikill botngróöur hlaðist á sprengjuna, enda hefur El Grillo legið á sjávarbotni í rúm 40 ár, eða síðan skipinu
var sökkt eftir loftárás þriggja þýzkra flugvéla 10. febrúar 1944.
Sprengjur sóttar á 36
metra dýpi í E1 Grillo
KAFARAR hafa unnið að því
undanfarna daga að ná djúp-
sprengjum úr flaki brezka
olíuskipsins El Grillo, þar sem
skipið liggur á 36 metra dýpi
fyrir utan höfnina á Seyðis-
firði. Búið var að ná upp 18
djúpsprengjum í fyrrakvöld og
eyðileggja þær. í gær átti að
reyna að ná tveimur síðustu
sprengjunum. Hefur verkið
gengið vonum framar.
Að þessu verkefni unnu
sex kafarar frá varnarliðinu
SUrfsmenn " Undhelgisgaezl- _____________________________________________________________________________________________
unnar og kafarar varnarliðsins Kvöldið eftir að fyrstu sprengjurnar náðust voru þ«r brenndar fyrir uUn Seyðisfjarðarkaupstað.
Uka upp skotfæri úr E1 Grillo.
á Keflavíkurflugvelli, en
þeir eru einnig sprengjusér-
fræðingar, og einnig tveir
kafarar frá Landhelgisgæzl-
unni og einn sprengjusér-
fræðingur. Eins og gefur að
skilja er þetta mjög erfitt og
vandasamt verkefni. Kafar-
arnir mega aðeins vera 15
mínútur í kafi í einu á þessu
dýpi og eftir þann tíma
verða þeir að fara upp á yf-
irborðið og mega ekki kafa
næst 12 tíma. Að öðrum
kosti eiga þeir á hættu að fá
kafaraveikina svonefndu, en
hún lýsir sér þannig að
loftbólur myndast í blóðinu.
Vegna mikillar hættu,
sem er samfara djúpköfun
sem þessari, voru menn í
viðbragðsstöðu á Keflavík-
urflugvelli. Ef alvarlegrar
kafaraveiki hefði orðið vart,
átti þyrla varnarliðsins að
sækja kafarann til Seyðis-
fjarðar og flytja hann upp á
Egilsstaði. Þar átti að bíða
Hercules-flugvél og flytja
kafarann til Skotlands til
læknismeðferðar. Vélin
hefði orðið að fljúga rétt
ofan við sjávarflötinn, því
maður með kafaraveiki þolir
ekki að fljúga í mikilli hæð.
Ljósmyndari Morgun-
blaðsins Árni Sæberg, sem
er kafari og fyrrum varð-
skipsmaður, fylgdist með
aðgerðum á Seyðisfirði.
Hann kafaði m.a. niður í E1
Grillo og tók myndir á 36
metra dýpi er kafarar unnu
að því að ná um sprengjun-
um. Notaði Árni til verksins
sérstaka neðansjávarm-
yndavél, sem er í eigu Stef-
áns Hjartarsonar kafara.
Talsmenn Landhelgis-
gæzlunnar lýstu yfir sér-
stakri ánægju með sam-
starfið við varnarliðið við
þetta verkefni.
Þetta eru mennirnir sem náðu
sprengjunum úr El Grillo. Talið
frá vinstri: Halldór Gunn-
laugsson, M. Richardsson,
Þórður Þórðarson, J. Jeffries,
yfírmaður kafaranna, W.
Spoerer, G. Torres, S. Pino og
E. Seuter.
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir HEDRICK SMITH
Er Gromyko nú
annar valdamesti
maðurinn í Moskvu?
Það hefur komið bandarískum sérfreðingum um málefni Sovétríkj-
anna verulega á óvart, hve miklu hlutverki Andrei Gromyko.uUnríkis-
ráðherra Sovétríkjanna hefur gegnt við valdatöku Mihails Gorbachev
sem leiðtoga kommúnisUflokksins þar í landi. Er Gromyko nú af mörg-
um Ulinn nest valdamesti maðurinn í hópi ráðamanna í Kreml.
Gromyko, sem nú er 75 ára
að aldri, fékk það mikil-
væga hlutverk, sem um leið fól í
sér mikinn heiður fyrir hann, að
mæla fyrir kjöri Gorbachevs
sem flokksleiðtoga. Að öllu jöfnu
er það einhver úr hópi keppi-
nauta hins nýja leiðtoga, sem
beðið hefur lægri hlut fyrir hon-
um, er þetta gerir, en einnig hef-
ur það gerzt, að sá, sem næst
æðstur er í valdaröðinni, hefur-
fengið þetta hlutverk og með það
í huga er óhætt að líta svo á, að
Gromyko skipi nú háan sess á
meðal valdamannanna í Kreml.
Að formi til er Nikolai A.
Tikhonov forsætisráðherra næst
æðstur valdamaður Sovétríkj-
anna og það var hann, sem á síð-
asta ári mælti fyrir kjöri Konst-
antins Chernenko sem æðsta
manni flokks og ríkis. Sú stað-
reynd, að gengið var framhjá
Tikhonov að þessu sinni, er af
mörgum skoðað sem sönnun
þess, að honum kunni að verða
vikið enn frekar til hliðar á
næstu mánuðum, er Gorbachev
tekur að velja yngri menn með
sér í forystu kommúnistaflokks-
ins.
En þeir eru til, sem þykjast
finna á þessu aðrar skýringar.
Þeir halda því fram, að líkur
bendi til þess, að Gromyko, sem
nú er í fararbroddi fyrir gömlu
forystumönnunum yfír sjötugt
kunni að hafa verið andvígur því
að fela yngri manni eins og
Gorbachev valdamesta hlutverk-
ið að svo komnu. Ef þetta er rétt,
þá var Gromyko fenginn til þess
að flytja útnefningarræðuna í
stöðu flokksleiðtoga eingöngu til
þess að sýna fram á, að eldri
mennirnir hefðu lagt blessun
sína yfir kjör hins nýja leiðtoga.
Benda má á nýleg fordæmi
fyrir því, að forysta flokksins
hafi notfært sér útnefningu nýs
flokksleiðtoga til þess að sýna
fram á einingu innan forystunn-
ar eftir innbyrðis deilur. Sem
dæmi má nefna, að í nóvember
1982 var það Chernenko, sem
mælti fyrir skipun Yuris Andro-
pov í stöðu flokksleiðtoga, en sá
fyrrnefndi hafði verið aðal
keppinautur Andropovs um
þetta embætti og varð síðan
næst æðsti valdamaðurinn í
valdastiga flokksins.
Bandariskir sérfræðingar um
málefni Sovétríkjanna telja
margir að útilokað sé að túlka
síðustu atburði þar með nokk-
urri vissu, fyrr en ljóst sé, hve
mörgum af æðstu embættum
flokks og ríkis Gorbachev á eftir
að gegna. Menn eru hins vegar
almennt sammála um, að eins og
er virðist Gromyko vera næst
valdamesti maður Sovétríkjanna
og að Gorbachev verði að
minnsta kosti i utanríkismálum
að lúta vilja hans.
Verður Gromyko forseti?
Sumir þykjast skilja atburða-
rásina að undanförnu á þann
veg, að Gromyko kunni jafnvel
að koma til greina sem forseti
Sovétríkjanna, en sú staða losn-
aði einnig við dauða Chernenkos.
Einnig geti vel verið, að Grom-
yko taki við af Tikhonov, sem
forsætisráðherra, en sá síðar-
nefndi er nú nær áttræður að
aldri.
Jafn kunnir fræðimenn um
málefni Sovétríkjanna og próf.
Andrei Gromyko
Jerry F. Hough við Duke-háskól-
ann í Bandarikjunum, halda þvi
fram, að með því að leggja
áherslu á samskiptin við Banda-
ríkin, friðsamlega sambúð og
samninga um afvopnun í ræðu
sinni við embættistökuna, hafi
Gorbachev verið að sýna fram á
sömu stefnu og þeir Chernenko
og Gromyko hafa haldið fram
síðan síðla á síðasta sumri.
„Gorbachev er að lýsa þvi yfir,
að hann sé sammála utanrikis-
stefnu Gromykos,” segir Hugh.
Hann heldur því fram, að nýi
leiðtoginn, sem er tiítölulega
óreyndur i utanríkismálum, hafi
látið Gromyko þetta svið eftir að
mestu að sinni á meðan hann
sjálfur snýr sér að innanlands-
og efnahagsmálum.
Skoðanir eru aftur á móti
skiptar á meðal sérfræðinganna
um það, hvort Gorbachev sé
sáttur við þá hugmynd, að utan-
ríkisráðherrann verði forseti, en
það er fyrst og fremst virð-
ingarstaða sem flokksleiðtog-
arnir hafa þó alltaf viljað skipa
sjálfir til þess að auka á stjórn-
máiaverðleika sína og álit bæði
heima og erlendis.
Því er haldið fram, að Gorb-
achev hafi haldið fast fram þeim
rétti Chernenkos að vera bæði
flokksleiðtogi og forseti í senn og
þá með það að markmiði að geta
sjálfur gert kröfur til þess síðar
að gegna báðum þessum emb-
ættum samtímis.
Aðrir sérfræðingar eins og
Vernon V. Asparturian prófess-
or í stjórnmálavísindum við há-
skólann i Pennsylvaniu draga
það mjög í efa, hvort eldri for-
ystumennirnir I Kreml séu því
sammála, að hann fái að ná svo
miklum völdum.
Þegar allir forystumennirnir í
Kreml gengu í hóp að dánarbeði
Chernenkos i síðustu viku og
vottuðu hinum látna og ekkju
hans virðingu sína var Gromyko
þar þriðji i röðinni og kom næst-
ur á eftir þeim Gorbachev og
Tikhonov. Gromyko gekk þannig
framar reyndum flokksforingj-
um eins og Viktor V. Grishin
leiðtoga flokksins i Moskvu og
Grigory V. Romanov, sem sæti á
í stjórnmálaráði flokksins. Samt
hefur Gromyko aldrei gegnt
mikilvægu hlutverki i flokks-
kerfinu, enda þótt hann hafí ver-
ið utanrikisráðherra i 28 ár.
Margir sérfræðingar lita á
þetta sem sönnun um vaxandi
völd Gromykos en um leið
minnkandi völd Romanovs, sem
af sumum var álitinn voldugasti
keppinautur Gorbachevs um
stöðu flokksleiðtogans.
(Hedeick Smith er fréttaritari
fyrir New York Times. i