Morgunblaðið - 27.03.1985, Page 36
36
MORGUNBLADIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. MARZ 1985
STUTTAR MNGFRETTIR
Réttarstaða.
heimavinnandi
Framkvæmd þingsályktunar
endurbæta og endurreisa rekstur
sjávarútvegsgreina á Suðurnesj-
um með hliðsjón af uggvænlegu
ástandi sem þar ríki í þessum efn-
um. I því efni er m.a. spurt um
viðbótarkvóta og miðlun afla.
aug-
RUV
Maríanna Priðjónsdóttir og ió-
hanna Sigurðardóttir, þingmenn
Alþýðuflokks, flytja tillögu til
þingsályktunar um stjórnskipaða
sjö manna nefnd, „sem hafi það
verkefni að meta þjóðhagslegt
gildi heimilisstarfa og gera úttekt
á hvernig félagslegum réttindum
og mati á heimilisstörfum er hátt-
að samanborið við önnur störf í
þjóðfélaginu".
Söluskattur af aug-
lýsingatekjum
Maríanna Priðjónsdóttir (A) flyt-
ur tillögu til þingsályktunar sem
felur fjármálaráðherra, verði hún
samþykkt, að „fella nú þegar niður
söluskatt af auglýsingatekjum
Ríkisútvarpsins".
Ríkisútvarpið greiddi 46,6 m.kr.
í söluskatt af auglýsingatekjum á
sl. ári.
Hlutfall niöur-
greiðslna
Hjörleifur Guttormsson (Abl.)
spyr landbúnaðarráðherra: 1)
hvaða breyting hafi orðið á hlut-
falli niðurgreiðslna í útsöluverði
helztu landbúnaðarafurða sl. 5 ár?
2) hvert væri verð á einingu helztu
landbúnaðarafurða til neytenda
nú ef sama niðurgreiðsluhlutfall
væri og 1982? 3) hver hefur verið
heildarupphæð niðurgreiðslna
1975—1984 á verðlagi ársins 1985?
Framkvæmd þings-
ályktana
Jóhanna Sigurðardóttir (A) spyr
forsætisráðherra, hvaða af-
greiöslu einstakar þingsályktanir
(viljayfirlýsingar Alþingis) hafi
fengið hjá stjórnvöldum, tímabilið
1. janúar 1975 til 1. janúar 1985.
Óskað er skriflegs svars, sund-
urgreinds um hverja og eina
þingsályktun.
RARIK
Helgi Seljan (Abl.) spyr iðn-
aðarráðherra, hvort uppi séu
áætlanir um að draga úr starfsemi
Rafmagnsveitna rikisins, m.a.
með því að fela öðrum stofnunum
ákveðin, veigamikil verkefni.
Sjávarútvegur á
Suðurnesjum
Kjartan Jóhannsson og Karl
Steinar Guðnason, þingmenn Al-
þýðuflokks, spyrja sjávarútvegs-
ráðherra, hvort hann sé reiðubú-
inn til þess að gera sérstakar
ráðstafanir sem verða megi til að
Skipasala á nauð-
ungaruppboðum
Skúli Alexandersson (Abl.) spyr
sjávarútvegsráðherra, hvort
stjórn Fiskveiðisjóðs hafi orðið við
þeirri beiðni ráðherra „að ákveða
viðmiðunarverð er gildi um endur-
sölu á þeim skipum sem kunna að
verða seld á nauðungaruppboð-
um“.
Byrjunarframkvæmdir íslandslax við Grindavík, stöðvarhús. Fyrirtæki þetta, eða öllu heldur samningur landbúnað-
arráðherra við það, var tilefni hávaða-umreðna á Alþingi í gsr.
íslandslax í Grindavík:
Gjöf til SÍS á gulldiski
“Sagði Ólafur G. Einarsson - Ráðherra eins og enskur vagnhestur, sagði Karl Steinar
Þau miklu verðmæti úr þjóðareign, sem landbúnaðarráðherra hefur
skenkt SÍS (fslandslaxi), er ekki gjöf á silfurfati heldur á gullfati. Hún kann
að standast lagalega en er siðferðilega röng. Grindavíkurbær hafði óskað
eftir kaupum á kirkjujörðinni Stað á Reykjanesi síðla í fyrra, en ráðherra
kaus að sniðganga bæði sveitarfélagið og Hitaveitu Suðurnesja í hagsmuna-
gæzlu fyrir SfS. Þetta vóru efnisatriði úr ræðu Ólafs G. Einarssonar (S) á
Alþingi í gær. Karl Steinar Guðnason (A) hóf umræðu um landnám SIS og
vatnsbúskap á Suðurnesjum með fyrirspurn til landbúnaðarráðberra. Hún
verður að hluta til verður rakin hér á eftir.
Hver er húsbóndi
kirkjumálaráðherra?
Karl Steinar Guðnason (A) kvað
fiskeldi á Suðurnesjum góðra
gjalda vert. Þeir, sem þangað leit-
uðu, yrðu þó að umgangast fólk og
sveitarfélög af háttvisi en ekki
hofmóði og vítaverðum yfirgangi.
Kirkjumálaráðherra hefur I þessu
máli, sagði Karl Steinar, hagað
sér eins og enskur vagnhestur,
sem gengur með augnskjól til
beggja hliða, til að ganga þráð-
beint að kröfu húsbænda sinna.
Menn á Suðurnesjum vissu ekki
annað en samkomulag væri gert
milli Hitaveitna Suðurnesja og ís-
landslax hf. þegar upplýst var, að
ráðherra hefði öllum á óvart gert
samning við fslandslax um borun
og vatnstöku, bæði heits vatns og
kalds, í miklum mæli. SfS fyrir-
tækið sniðgengur því Hitaveitu
Suðurnesja, sem bauð því sömu
kjör og laxeldisstöð Fjárfestingar-
félagsins hafði þegar samiö um.
f greindum samningi ráðuneytis
við SÍS-fyrirtækið er reglugerð
bæjarstjórnar Grindavíkur um
vatnsmál gersamlega hunzuð.
Ráðherra hefur gefið fordæmi um
að hver landeigandi geti borað eft-
ir vatni án þess að bera það undir
lögbæra aðila. Ég undrast, sagði
Karl, hve húsbóndahollur ráðherr-
ann er í hofmóði sínum gagnvart
heimaaðilum á Suðurnesjum.
Löglega að
málum staðið
Jón Helgason, landbúnaðarráð-
herra, kvað Grindavíkurbæ hafa
óskað eftir kaupum á kirkjujörð-
inni Stað í desember sl., en form-
legt kauptilboð hafi enn ekki bor-
izt.
Landbúnaðarráðuneytið, sem
hafi ótvírætt forræði yfir kirkju-
jörðum, hafi selt fslandslaxi á
leigu spildu úr jörðinni Stað á
Reykjanesi, ásamt nokkrum
kalda- og heitavatnsréttindum til
50 ára, en með endurskoðunarrétti
á leigu eftir 5—7 ár. Aðstaðan
verði nýtt til fiskeldis. Enginn
annar aðili hafi óskað eftir hlið-
stæðum leigurétti á þessum stað.
Ráðherra sagði að bæjarstjórn
Grindavíkur hefði verið kunnugt
Fór að lögum,
sagði ráðherra
um viðhorf ráðuneytisins, enda
fylgdi það skilyrði í samningi, að
framkvæmdir féllu að skipulagi
viðkomandi sveitarfélags.
Ég hafði ekki beint samráð við
iðnaðarráðherra um þetta mál,
sagði Jón Helgason efnislega; en
kynnti málið á rikisstjórnarfundi.
Hinsvegar hafði ég ítarlegt sam-
band við Orkustofnun, eins og
orkulög standa til.
Ráðherra kvað rangt, sem hald-
ið hafi verið fram, að gerður
samningur veikti öryggi viðkom-
andi sveitarfélaga að þvi er varðar
vatnsbúskap þeirra.
Gjafir á gulldiski
til SÍS-hringsins
Ólafur G. Einarsson (S) sagði
gjöf þá á gulldiski, sem landbún-
Kfeilmálmverksmiðja í Reyðarfirði:
Rætt við rúmlega tug
erlendra fyrirtækja
Enginn innlendur aðili hefur sýnt áhuga á eignaraðild
Rætt hefur verið við hátt á annan
tug forsvarsmanna erlendra fyrir-
tækja um hugsanlega þátttöku f
byggingu og rekstri Kísilmálmverk-
smiðju í Reyðarfirði, sagði Sverrir
Hermannsson iðnaðarráðherra á Al-
þingi f gær, er hann svaraði fyrir-
spurn frá Helga Seljan (Abl) um það
efni. Meginregla er að skýra ekki
frá nöfnum viðmælenda, á þessu
stigi viðræðna, en þegar hafa nokk-
ur nöfn skotið upp kolli í fjölmiðl-
um: ELKEM, Dow Corning Vor-
poration, Voest Alpine og RTZ Met-
als. Ráðherra kvaðst hvorki geta
skýrt frá nöfnum né niðurstöðum,
enda gæti slíkt veikt samnigsstöðu
og skaðaó hagsmuni Kísilmálm-
vinnslunnar hf.
Meðal annarra atriða sem fram
komu í máli ráðherra má nefna:
• Ekki hefur sérstaklcga verið
rætt við innlenda aðila um eign-
araðild og enginn sýnt áhuga að
fyrra bragði.
• Viðmælendum hefur verið
greint frá ákvæðum laga um
a.m.k. 51% hlutafjáreign fslenzka
ríkisins. Ráðherra kvaðst þó fús
til að beita sér fyrir breytingum á
þessum lögum, ef þurfa þætti.
• Arðsemi verksmiðjunnar hafi
verið miðuð við 18 millidali á
kWst. orkunnar. Viðmælendur
telji yfirleitt þetta verð of hátt til
að verksmiðjan geti haft eðlilega
samkeppnisstöðu. Hagstæðara
raforkuverð bjóðist annars stað-
ar.
• Að undanteknum tveimur mik-
ilvægum þáttum, fjármögnun og
samningum um markaðsmál, er
undirbúningi lokið, en fjármögn-
un og markaðsmál tengist viðræð-
um um eignaraðild. Þessar við-
ræður eru í höndum nefndar, sem
lýtur formennsku Birgis lsleifs
Gunnarssonar, alþingismanns.
• Ráðherra kvað afkomu fyrir-
tækis, þ.e. arðsemi, markaðsör-
yggi og orkumál, vera þann þátt,
sem hafa þyrfti í höfn, áður en
hægt væri að bera upp í ríkis-
stjórn ákvörðun um að ráðast í
framkvæmdir.
aðarráöherra hafi nú fært SÍS, í
trássi við fólk og sveitarfélög á
Suðurnesjum, felast í fimmtfu ára
ódýrum leigurétti á:
• 1) 550 ha. lands (95 ha. fyrir
framkvæmdasvæði, 455 ha. vernd-
arsvæði, sem ekki yrði leigt öðr-
um).
• 2) 20 sek.lftrum af 100 gráðu
heitu vatni, sem samsvarar 6.7
MW af varmaafli.
• 3) 350 sek.lítrum af fersku
vatni, sem dælt yrði upp. Þetta
væri 100 sek.lítrum meira magn
en Hitaveita Suðurnesja dældi
upp, gufuhitaði og seldi á við-
skiptasvæði sínu, sem væru sveit-
arfélög á Suðurneskjum og Kefla-
víkurflugvöllur. Vatni þessu væri
dælt upp úr „kaldavatnsþykkt"
sem flyti ofan á jarðsjó
• 4) 25 þúsund sek.lítrar af 15
gráðu heitum sjó (sem væri undir
kalda vatninu) og dæla þyrfti
einnig upp.
• Samningurinn næði til 50 ára.
Þrátt fyrir verðendurskoðun eftir
nokkur ár væri ljóst, að leigan
væri verulega undir markaðsverði.
Öll vinnubrögð ráðherra í þessu
máli væri umdeild; stæðust e.t.v.
lagalega, en væru siðferðilega
röng. Ólafur vitnaði og til um-
sagnar Orkustofnunar, þess efnis,
að ekki væri hægt að fullyrða um
skaðlausa vatnstöku i þessum
mæli á þessu svæði, án frekari
rannsókna.
Heitar umræður
Heitar umræður spunnust um
þetta mál í Sameinuðu þingi f gær,
þó fátt eitt verði af þeim sagt hér
og nú. Matthías A. Mathiesen,
viðskiptaráðherra, sagði að þetta
mál hefði ekki verið kynnt sér,
fyrr en gert hafi verið. Sverrir
Hermannsson, iðnaðarráðherra,
kvaðst ekki vefengja lögsögu land-
búnaðarráðherra í málinu, en
hann hafi ekki af því vitað fyrr en
u.þ.b. sem leigumáli var undir-
ritaður. Hann væri með frumvarp
um þetta svið i smfðum, sem
kvæði nánar á um meðferð slfkra
mála. Eiður Guðnason (A) spurði
m.a., hvaða ráðherrar hefðu þá
verið viðstaddir kynningu málsins
í ríkisstjórn. Hér væri SÍS-fyrir-
tæki hyglað af þjóðareign á undir-
verði. Guðmundur H. Garðarsson
(S) spurði, hvort landbúnaðar-
ráðherra vildi beita sér fyrir því
að önnur fyrirtæki fengju sams
konar aðstöðu. ólafur G. Einars-
son (S) sagði máli þessu ekki lokið.
Gildistaka samningsins væri
óljós. Bæjarstjórn Grindavíkur
gæti enn látiö til sín taka í mál-