Morgunblaðið - 03.05.1985, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.05.1985, Blaðsíða 2
2: MORGUNBLAÐIÐ, F0STUDAOUR 3. MAÍ 1986 Vefengjum lög- mæti ítölunnar — segir Þórir Magnússon oddviti Sveinsstaðahrepps „NEI, þad gerum við ekki, þar sem við vefengjum lögmæti þessarar ítölugerðar. Við munum ekki gefa neitt eftir af þeim rétti sem við teljum okkur hafa og erum tiibúnir til að verja hann með öllum ráðum,“ sagði Þórir Magnússon, bóndi á Syðri-Brekku, oddviti Sveinsstaðahrepps, í samtali við blm. Morgunblaðsins þegar hann var spurður að því hvort hreppsnefnd Sveinsstaðahrepps færi eftir ítölugerðinni fyrir Grímstungu- og Haukagilsheiðar. Eins og fram hefur komið í Mbl. hefur hreppsnefndin ítrekað neitað því að taka við birtingu ítölugerðarinnar úr hendi sýslumanns Húnvetninga. Fjórir af fimm hreppsnefndar- mönnum í Sveinsstaðahreppi skrifuðu sýslumanni bréf á dögun- um þar sem þeir tilkynntu honum um að þeir tækju ekki við birtingu ítölugerðarinnar. í bréfinu mót- mælti hreppsnefndin eindregið þeirri málsmeðferð sem viðhöfð hefur verið við ítölugerðina og minnir á fyrri mótmæli hrepps- nefndarinnar. Vísað er til forræð- isréttar bænda (fjallskilastjórna) yfir afréttarmálum sínum og beit- armálefnum samkvæmt Iögum um afréttarmálefni þar sem einnig komi fram að „sé um ofbeit að ræða er ítala síðasti hlekkurinn í þeirri úrræðakeðju sem þar er vís- að til“. í bréfinu segir hreppsnefndin að þar sem hreppsnefnd hafi enn ekki fengið þær gróðurrannsóknir frá Rannsóknastofnun landbúnað- arins sem hún bað um í fyrra, sé málsmeðferð ólokið heima I sveit sem lög mæli fyrir um við meðferð beitarmálefna. „Hér með tilkynn- ist að hreppsnefnd Sveinsstaða- hrepps mætir ekki á boðuðum fundi 29. apríl 1985 og veitir ekki móttöku niðurstöðu ítölunefndar né tekur við skjölum þar að lút- andi sem framkvæmdaraðili fyrr en hreppsnefnd hefur fengið I hendur frá RALA umbeðnar gróð- urrannsóknir og beitarmálefni hafa fengið lögboðna meðferð heima í sveit,“ segir að lokum í bréfi hreppsnefndarinnar. Sex skákir í biö NTAÐAN í alþjóðlega skákmótinu, sem nú fer fram í Borgarnesi, var mjög óljós eftir 9. umferöina, sem tefld var í gær. Aöeins einni skák lauk og þar geröi Karl Þorsteins jafntefli viö Jansa. Vantar Karl þá aðeins Vi vinning I tveim næstu skákum til að veröa alþjóðlegur meistari. Aðrar skákir í gær fóru f biö og var gert ráö fyrir aö aö minnsta kosti þrjár þeirra yrðu tefld- ar til enda í gærkvöld. Jansa var efstur í gærkvöld með 6Vi vinning, næstur var Curt Han- sen með 6 vinninga og biðskák, sem hann virtist hafa sterkari stöðu í, að sögn Guðmundar Arn- laugssonar dómara á mótinu. Biðskákirnar, sem átti að tefla í gærkvöld, voru skákir Magnúsar og Leins, Lombardys og Sævars og Hauks og Mokrys. Dularfullt hvarf 27 ára Garðbæings: Skipulögð BJÖRGUNARSVEITIR munu f dag hefja skipulagða leit að 27 ára göml- um Garðbæing, Reyni Smára Friö- geirssyni, sem hvarf aö heiman frá sér laugardagskvöldiö 13. aprfl sl. og befur ekki til spurst síðan. Bfll hans fannst utan vegar, niöur undir fjöru- borði, viö Hlaöhamra f Hvalfjaröar- botni daginn eftir, sunnudaginn 14. apríl. Haföi bfllinn farið út af vegin- um en var óskemmdur, aö því er Sveinn Björnsson, rannsóknarlög- reglumaöur í Hafnarfirði, sagöi í samtali viö blaöamann Mbl. í gær. Lögreglumenn meö sporhund leit- uöu í fjörunni neöan við Hlaðhamra á miövikudaginn en án árangurs. Reynir Smári býr með eldri bróður sínum að Hrísmóum 4 f Garðabæ. Það var bróðirinn, sem tilkynnti hvarf hans til lögregl- unnar í Hafnarfirði sl. þriðju- dagskvöld. Ekki mun ótftt að þeir bræður sjáist ekki svo dögum skipti og taldi eldri bróðirinn þvi ekki fyrr ástæðu til að óttast um Reyni Smára. Reynir Smári Friðgeirsson er starfsmaður hjá Ármannsfelli. Hann hefur ekki sótt laun sin til fyrirtækisins síðan hann hvarf. Þegar síðast sást til hans var leit hafin Reynir Smári Friögeirsson. Hann er nú meö sneggra hár en á þessari mynd. hann klæddur i svarta peysu, blá- ar gallabuxur og svarta skó. Hann er 175 sentimetrar á hæð, grann- ur, svarthærður og stuttklipptur. Þeir sem kynnu að hafa orðið hans varir eru beðnir að láta rannsóknarlögregluna i Hafnar- firði vita. Alþingi kaupir Skólabrú 2 ALÞINGI er þessa dagana aö ganga frá kaupum á húseigninni Skólabrú 2 í Reykjavík. Húsiö er um 120 fm. að grunnfleti, 2 hæöir og kjallari. Kaup- verö þess er 6,3 milljónir króna. Friðrik Ólafsson skrifstofustjóri Alþingis sagði í samtali við Morg- unblaðið að þessi kaup væru gerð vegna mikilla þrengsla f húsakynn- um Alþingis. Þarna verða herbergi og skrifstofuaðstaða fyrir þing- menn auk skrifstofureksturs og út- gáfustarfsemi og afgreiðslu Al- þingistíðinda. Auk Alþingishússins sjálfs á Al- þingi nú Skólabrú 2, Þórshamar, Vonarstræti 8 og 12 og Skjaldbreið. Friðrik sagði að það hafi verið bráðnauðsynlegt að auka við hús- næðið nú, en sennilega yrði aldrei ráðin bót á húsnæðisvandanum, nema með byggingu húss sem hent- ar starfsemi Alþingis. Morgunbladid/Fridþjófur Skrúöganga lagöi upp frá Hlemmtorgi I Reykjavfk laust eftir hádegi f gær og hélt niöur Laugaveginn. Fjölmenni á 1. maí-samkomum: Tryggingar skipta meira máli en krónutölur — sagði Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ m.a. í 1. maí-ræðu sinni í Stykkishólmi HÁTÍÐARHÖLD í tilefni af 1. maí, frfdegi verkaiýösins, voni vel sótt víöast hvar á landinu, enda veöur gott um allt land. í Reykja- vfk fóru hátíðarhöldin fram meö hefðbundnum hætti. Gengiö var frá Hlemmtorgi niöur á Lækjar- torg, en í miðbænum fóru fram tvær samkomur. 1. maí-nefndin gekkst fyrir samkomu á Lækjar- torgi en Samtök kvenna á vinnu- markaðinum á Hótel íslands- planinu. Ásmundur Stefánsson forseti Alþýðusambands íslands var ræðumaður á 1. maí-samkomu i Stykkishólmi. Hann sagði m.a. að verkalýðshreyfingin myndi láta á það reyna að ná fram kauphækkunum strax f vor. Hann sagði ennfremur að verka- fólk þyrfti að vera viðbúið hörð- um átökum í haust, ef ekki næð- ist árangur í viðræðum. „Keppi- keflið er ekki kaup heldur kaup- máttur og kauptrygging," sagði hann ennfremur. Forseti ASÍ gerði ennfremur að umræðuefni samningavið- ræður á liðnu hausti og umræð- una um skattalækkunarleið, sem hann útskýrði í nokkrum orðum og sagði síðan: „í stuttu máli var verið að ræða um samning um lífskjör, ekki aðeins samning um kaup. Það er rétt að kauphækk- anir í þeirri umræðu voru lægri en endanlega var um samið, en með þvf er ekki sagt að kaup- mátturinn væri lægri en er í dag, ef sú leið hefði verið valin. Reynslan sýnir, að tryggingar skipta meira máli en krónutöl- ur.“ Suðurvör í Þorlákshöfn: Tekur yfir reksturinn á frystihúsi Eyrbekkinga SUÐURVÖR í Þorlákshöfn er nú að taka yfir rekstur Hraðfrystihúss Eyr- arbakka og er um þessar mundir veriö að ganga frá kaupleigusamn- ingi vegna þess. Rekstur hraöfrysti- bússins hefur verið erflöur undan- rariö, aðallega vegna hráefnisskorts. Eigendur Suöurvarar hafa lengi haft bug á byggingu frystihúss, en reka enn sem komið er aöeins saltfisk- vinnslu og sfldarsöltun. Hallgrfmur Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Suðurvarar, sagði f samtali við Morgunblaðið, að lengi hefði staðið til að fara út í fryst- ingu. Þegar Hraðfrystihús Eyrar- bakka hefði boðizt hefði verið ákveðið að reyna leigu til eins árs meðan kannað væri hvort og hvernig af kaupum gæti orðið. Nú væri verið að flýta þessum málum eins og unnt væri til þess að hægt verði að hefja humarfrystingu við upphaf vertíðar í maf. Ánnar fisk- ur yrði að sjálfsögðu frystur jöfn- um höndum. Suðurvör ætti tvo humarbáta og væri að auki með þann þriðja f viðskiptum. Hrað- frystihúsið hefði einnig verið með humarbáta i viðskiptum, þannig að framundan væri mikil humar- frysting, ef allt fari að vonum. Hallgrímur sagði, að Suðurvör hefði að undanförnu sent talsvert utan af fiski, ísuðum f gámum, en með leigu frystihússins yrði hann unninn heima og kæmi þá sem viðbót á báðum stöðum, bæði í frystingu og söltun, sem áfram yrði í Þorlákshöfn. Þá yrði vænt- anlega eitthvað fryst af síld á Eyr- arbakka á næstu vertfð og saltað f Þorlákshöfn. Hallgrímur sagði, að ætlunin væri að reyna að halda öllu starfs- fólki Hraðfrystihússins. 12 starfs- mönnum með þriggja mánaða uppsagnarfrest eða lengri hefði verið sagt upp, en reynt yrði að ráða þá að nýju. Þó yrðu þær breytingar á yfirstjórn að sameig- inlegur framkvæmdastjóri yrði fyrir bæði fyrirtækin, en sérstak- ur framleiðslustjóri yrði í frysti- húsinu. Hann vonaðist til þess, að hægt væri að byrja sem allra fyrst á vinnu f frystihúsinu og að sam- vinna við Eyrbekkinga yrði góð. Bygging nýrra ratsjár- stöðva hefst í sumar Sameinaö þing kolfelldi í gær tillögu um aö falla frá þvf aö reisa ratajárstöövar á Vestfjörðum og Noröausturlandi. Tillagan, sem fékk aöeins 15 meðatkvæði en 42 mótatkvæöi, var flutt af Steingrími J. Sigfússyni (Abl.) og Kolbrúnu Jónsdóttur (BJ). Þingflokkar Framsóknar- flokks og Bandalags jafnaðarmanna klofnuðu í afstööu til tillögunnar. Tillaga Haraldar Olafssonar (F) um að vísa tillögu Steingríms og Kol- brúnar til ríkisstjórnarinnar var felld með 43:13 atkvæöum. Frávísunartillagan fékk að- sonar) og eins þingmanns eins 13 atkvæði viðstaddra fram- sóknarþingmanna. Allir aðrir viðstaddir þingmenn, 43 talsins, greiddu henni mótatkvæði. Tillagan um að stöðva bygg- ingu ratsjárstöðva fékk atkvæði viðstaddra þingmanna Alþýðu- bandalags og Kvennalista, þriggja framsóknarþingmanna (Páls Péturssonar, Guðmundar Bjarnasonar og Ingvars Gísla- Bandalags jafnaðarmanna (Kol- brúnar Jónsdóttur). Haraldur ólafsson (F) sat hjá. Mótatkvæði greiddu allir viðstaddir þing- menn Sjálfstæðisflokks og Al- þýðuflokks, tíu þingmenn Fram- sóknarflokks og þrír þingmenn Bandalags jafnaðarmanna. Sjá nánar á þingfréttasíðu, bls. 36.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.