Morgunblaðið - 03.05.1985, Blaðsíða 17
MORGÚfrBLAÐlÐ, FðSTUDAGÚR 3. MAÍ 19fe
17
Vestmannaeyjar:
Hátíðarsýning á 75 ára
afmæli leikfélagsins
Vestmannaeyjum, 29. aprfL
LEIKFÉLAG Vestmannaeyja frum-
sýndi sl. sunnudag í Bæjarleikhús-
inu Saumastofuna eftir Kjartan
Ragnarsson við geysigóðar undir-
teknir leikhúsgesta. Þetta er 114.
verkefni LV og var þetta jafnframt
sérstök afmælissýning því á þessu
ári eru liðín 75 ár frá stofnun Leikfé-
lags Vestmannaeyja. Höfundur
Saumastofunnar, Kjartan Ragnars-
son, var heiðursgestur LV á frum-
sýningunni á sunnudaginn en það
eru einmitt 10 ár frá því hann samdi
verkið. Það var því tvíheilög afmæl-
ishátíð í Bæjarleikhúsinu í Eyjum og
stemmningin í samræmi við tilefnin.
Uppfærsla LV á Saumastofunni
er viðamikið verkefni fyrir lítið
áhugamannaleikhús en hér hefur
vel til tekist. Leikendur eru 14 og
þar af margir nýliðar í stórum
hlutverkum. Var frammistaða
allra leikaranna með miklum
ágætum og gekk sýningin hnökra-
laust fram. Var greinilegt að allir
lögðu metnað í að skila frá sér
góðu verki og tókst það með sóma.
Leikarar sem fram komu í sýning-
unni voru: ólöf Waage, Guðbjörg
Þorláksdóttir, Vigdís Rafnsdóttir,
Inga Jóhannsdóttir, Jóna S. Guð-
mundsdóttir, Ásta G. Ólafsdóttir,
Einar Steingrímsson, Magnús S.
Magnússon, Ösvaldur Guðjónsson,
Hrafn Hauksson, Hjálmar Brynj-
ólfsson, Jóhannes Ágúst Stefáns-
son, Magnús Gíslason og Erla
Gyða Hermannsdóttir. Leikstjóri
er Emil Gunnar Guðmundsson frá
Reykjavík og hefur greinilega
skilað góðu starfi, en þetta mun
vera þriðja leikstjórnarverkefni
hans. Leikmynd gerði Magnús S.
Magnússon, ljósameistari en Lár-
us Björnsson og sýningarstjóri
Auðberg Óli Valtýsson, en hann er
formaður Leikfélags Vestmanna-
eyja. Fimm manna hljómsveit
leikur undir í sönglögum, sem eru
mðrg í þessu vinsæla leikhúsverki
Kjartans Ragnarssonar.
Eins og fyrr er getið hlaut leik-
listarfólkið mjög góðar undirtekt-
ir hjá frumsýningargestum og í
leikslok risu gestir úr sætum sín-
um og hylltu höfundinn, leik-
stjóra, leikara og aðra aðstand-
endur þessarar velheppnuðu og
skemmtilegu sýningar með lang-
varandi lófaklappi. Kjartan Ragn-
arsson, Auðberg óli Valtýsson og
Sigurður Jónsson, forseti bæjar-
stjórnar, fluttu stutt ávörp á svið-
inu og afhenti Siguður LV pen-
ingagjöf frá bæjarstjórn Vest-
mannaeyja.
(iestir kunnu vel að meta framtak leikfélagsmanna að þessu sinni sem áður.
Morgunblaðið/SigurKeir
Sigurður Jónsson, forseti bæjarstjórnar, afhendir formanni Leikfélags Vest-
mannaeyja gjöf að sýningu lokinni.
Leikfélag Vestmannaeyja held-
ur á þessu ári hátíðlegt 75 ára af-
mæli félagsins, en það var stofnað
22. ágúst 1910. Félagið hefur á
þessu árabili starfað af miklum
þrótti og er Saumastofan 114.
verkefni félagsins, en þess má
geta að vitað er um leiksýningar í
Eyjum fyrir daga LV. I dagbókum
gömlu Tangaverslunarinnar er t.d.
getið um leiksýningar árið 1860.
Fyrstu árin voru leiksýningar LV í
gömlu „Gúttó", síðar í Samkomu-
húsinu, en árið 1971 var Bæjar-
leikhúsið í Félagsheimilinu tekið í
notkun og gjörbreytti það allri að-
stöðu félagsins og hleypti auknum
krafti í allt starf þess. Á þeim 14
árum sem liðin eru frá vígslu Bæj-
arleikhússins hefur félagið sett
upp 38 sýningar, tvö til þrjú verk
farið á fjalirnar hvern vetur.
Á þessum merku tímamótum er
við hæfi að senda Leikfélagi Vest-
mannaeyja hinar bestu afmæl-
iskveðjur og óskir um áframhald-
andi öflugt starf að menningar-
málum byggðarlagsins. Bæjarbú-
ar eru í þakkarskuld við félagið og
allt það fólk sem hefur í gegnum
árin lagt fram ómetanlegt starf af
áhuganum einum saman til þess
að skemmta fólki með uppfærslum
á hinum margvíslegustu leikverk-
um. Þakkir sínar sýna bæjarbúar
með því að sækja sýningar leikfé-
lagsins.
— hkj.
I I
' _
a" i
Kjartan Ragnarsson, höfundur Saumastofunnar. var heiðursgestur á hátíð-
arsýningunni.
SALÍ-dagan
Starfsemi listaskólanna kynnt
Nemendur listaskólanna hafa
ákveðið að hefja samstarf um kynn-
ingu á starfsemi skólanna undir
skammstöfuninni SALÍ, samstarf
listskólanema á fslandi, og efla með
því skilning á starfsemi þeirra. Skól-
arnir, sem taka þátt í kynningunni,
eru Myndlista- og handíðaskóli fs-
lands, Tónlistarskólinn í Reykjavík,
Leiklistarskóli fslands, Listdans-
skóli Þjóðleikhússins og Söngskól-
inn í Reykjavík.
Að sögn forsvarsmanna kynn-
ingarinnar eru flestir þessara
skóla í Bandalagi íslenskra sér-
skóla, en það eru fimm ára gömul
samtök. Eitt af meginmarkmiðum
samtakanna er að kynna starf-
semi og aðbúnað sérskólanna og
því var það ákveðið á síðasta ári
að listaskólarnir tækju sig saman
um kynningu á starfseminni.
í þessari kynningu er lögð
áhersla á að brúa bil milli list-
greina og gefa nemendum ólíkra
listgreina tækifæri til að vinna
saman að listsköpun. Þeir sem
koma fram á kynningunni eru
flestir nemendur, sem eru að ljúka
námi eða eru Iangt komnir. Vonir
standa til að þessi kynning skapi
grundvöll að áframhaldandi sam-
starfi milli skólanna.
Dagskráin verður sem hér segir:
4. maí
Raftónlist frá Tónlistarskólan-
um í Reykjavík og nýtt dansverk
eftir nemendur Listdansskóla
Þjóðleikhússins, flutt í Norræna
húsinu kl. 17—19.
4. maí
Söngskólinn í Reykjavík — fs-
lensk sönglist, flutt í Gamla bíói
kl. 16-18.
4. maí
SALf-ball. OXMÁ, Abdou og
kompaní leika fyrir dansi í Fé-
lagsstofnun stúdenta — (laugar-
dagskvöld).-
5. maí
Tónlistarskólinn í Reykjavík.
Tónleikar með blönduðu efni í
Gamla bíói kl. 17.
6. maí
Tónlistarskólinn í Reykjavík. Vor-
tónleikar í Austurbæjarbiói kl. 19.
7. maí
Leiklistarskóli fslands flytur
ljóðaprógramm um sjóinn og haf-
ið — „Heill sé þér þorskur", leik-
stjóri er Guðrún Ásmundsdóttir.
Norræna húsið kl. 16—18.
7. maí
SALÍ-„Kokkteill“. Óvænt uppá-
koma listaskólanna. Norræna hús-
ið kl. 20:30-23.
8. og 9. maí
Leiklistarskóli fslands flytur
ljóðaprógramm um sjóinn og haf-
ið — „Heill sér þér þorskur”, leik-
stjóri er Guðrún Ásmundsdóttir.
Norræna húsið kl. 21—23 báða
dagana.
12. mí til 17. júní
Sýning Myndlista- og handíða-
skóla fslands í Gerðubergi kl.
16—22 daglega.
BORGARNESDAGAR
I LAUCARDALSHÖLL 2.-5. MAÍ
í kvöld:
Kl. 18:45: Söngvar úr Ingiríöi Óskarsdóttur,
eftir Trausta veðurfræöing.
Kl. 21:00 Tískusýning
Lukkugesturinn fær verölaun.
Vörusýning, matvælasýning, listsýning, leikir. Bragöiö
gómsæta rétti, skoöiö listaverk 20 þekktustu listmálara
landsins og spáiö í silfur Egils — 10.000 króna verö-
laun. Borgarnes er komiö í bæinn.
OPIÐ KL. 13-22.
TIL SUNNUDAGSKVOLDS