Morgunblaðið - 03.05.1985, Blaðsíða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 1985
fclk í
fréttum
Þessir glaðlegu krakkar á
myndinni eru í 4. bekk
Tycho Brahe í Krebsskóla í
Hornung og Möller-flygill-
inn sem var í eigu Emilíu
Borg eftir að hann hafði
verið notaður af Alexandr-
ínu Danadrottningu.
Kaupmannahöfn. Þegar mynd-
in var tekin höfðu þau verið að
hlusta á Guðrúnu Jakobsdóttur
segja frá íslandi. Guðrún hefur
verið búsett um árabil í Dan-
mörku og eins og sagt hefur
verið frá í Mbl. er nýkomin út
bók í Danmörku með íslenzkum
ævintýrum sem hún þýddi á
dönsku.
Guðrún sagði að hún hefði
fengið með sér í heimsóknina í
Krebsskóla prestsdótturina í
Höfn, Maríu Ágústsdóttur, og
var þeim mjög vel tekið. Það
vakti eftirtekt þeirra að veggir
skólastofunnar voru þaktir
teikningum og upplýsingum um
ísland. Samræður voru fjörug-
ar og fróðleiksfýsnin mikil og
ótal spurningar um ísland og
íslendinga voru lagðar fyrir
þær. Þegar kennari barnanna,
Bodil Stegelmann, kvaddi ís-
lenzku gestina, sagði hún að
ólíkt væri fræðsla af þessu tagi
lærdómsríkari og líflegri en
þurrt stagl um borgir og fljót.
Krebsskólinn í Kaupmanna-
höfn er einn af elztu skólum
þar og tók til starfa árið 1872.
Auglýsingin sem birtist um síðustu helgi í Mbl.
Merkur
flygill á íslandi
Allforvitnilega auglýsingu gat
að líta hér í Morgunblaðinu
um helgina, þar sem drottn-
ingarhljóðfæri var auglýst til
sölu.
Til að fá nánari vitneskju um
söguna að baki þessa grips var
Ragnar Borg tekinn tali, en hon-
um er málið skylt:
„Þegar Kristján konungur 10.
kom hingað til lands árið 1921,
ásamt drottningu sinni Alexandr-
ínu, þá var það ósk drottningar að
gott hljóðfæri væri til reiðu þar
sem hún gisti í Menntaskólanum í
Reykjavík og var þá fiygillinn sem
nú er til sölu keyptur af ríkis-
stjórninni.
Þess má geta að Friðrik krón-
prins var með í för þessari ásamt
Knúti bróður sínum.
Alexandrína átti trúlega
stærstan þátt í að kenna Friðriki
að meta góða tónlist, enda varð
hann kunnáttusamur á því sviði
og stjórnaði gjarnan sinfóníu-
hljómsveitum við hátíðleg tæki-
færi.“
— En hvaðan Iiggur leið þessa
hljóðfæris um þínar hendur,
Ragnar?
— Svo er mál með vexti að Em-
jlía Borg föðursystir mín fór í
boði Vestur-íslendinga til Kanada
og Bandaríkjanna ásamt frú Stef-
aníu Guðmundsdóttur, Önnu Borg
systur sinni og föður mínum,
Óskari, árið 1920. Þar fluttu þau
og kynntu íslensk ljóð, sögur og
leikrit. Þær Anna og Emelía
ílengdust nokkuð ytra og komu
ekki til baka fyrr en 1924.
Þá var svo komið að Emelía
hafði ráð á að kaupa sér gott
hljóðfæri sem hana hafði lengi
munað í. Hún festir nú kaup á
umræddum flygli, lærir í tónlist-
arskólanum og verður síðan pí-
anókennari um langt skeið.
Kenndi hún fjölmörgum á þennan
flygil-
Eins og ýmsum er kunnugt lést
Emelía hinn 24. desember sl. og
hefur nú komið í minn hlut að
ráðstafa þessu merka hljóðfæri.