Morgunblaðið - 03.05.1985, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÓSTUDAGUR 3. MAÍ 1985
................. ■ " ' ...
13
Samningur Járnblendifélagsins og Raunvísindastofnunar HÍ:
Rannsóknum í efnisfræði
fleygir fram um 5—6 ár
- segir dr. Þorsteinn
I. Sigfússon
eðlisfrœðingur
Járnblendifélagið á GrundarUnga
og Háskóli íslands, raunvísinda-
deild, hafa gert með sér samning til
tveggja ára um rannsóknir á járn-
blendi. Um helmingur samnings-
upphsðarinnar rennur til varanlegra
tækjakaupa, sem nýtast munu til
ýmissa rannsókna í efnisfræði. Yfir-
umsjón með rannsókninni fyrir
Járnblendifélagið og stjórnun henn-
ar hefur dr. Þorsteinn I. Sigfússon
eðlisfræðingur, sérfræðingur við
Raunvísindastofnun Háskóla ís-
lands. Morgunblaðið ræddi við dr.
Þorstein um samninginn við Járn-
blendifélagið og þýðingu hans fyrir
rannsóknir.
„Samningurinn kemur að al-
hliða gagni fyrir rannsóknir í efn-
isfræði. Samningurinn hljóðar
upp á hálfa þriðju milljón króna
og verður rúmri milljón varið til
tækjakaupa. Stærsta tækið verður
ofn sem bræðir málma með
hátíðnibylgjum.
Tækjakaupin þýða að okkur
fleygir fram um 5—6 ár í efnis-
fræðinni. Rannsóknum í efnis-
fræði hefur verið flýtt um hálfan
áratug með samningnum, þvi ella
hefðum við þurft að sækja í opin-
bera sjóði vegna tækjakaupanna.
Að því er ekki hlaupið.
Skilningur ráðamanna járn-
blendiverksmiðjunnar á rann-
sóknum er mjög mikill og til fyrir-
myndar. Samningurinn er líkur
samningi, sem stofnunin gerði við
Lýsi hf. í vetur, og ég held að við
séum að vinna hluti sem virkilega
geta komið að gagni fyrir járn-
blendiverksmiðjuna.
Járnblendifélagið er að auka
rannsóknir og umsvif sín meir og
meir. í verksmiðjunni er við ýms
vandamál að stríða, sem við telj-
um okkur geta leyst hér heima.
Eitt af vandamálunum er stýring
á storknunarferlinu, sem haft get-
ur veruleg áhrif á gæði framleiðsl-
unnar. Rannsóknirnar munu bein-
ast að storknunarferlinu í verk-
smiðjunni. Við erum búnir að
smíða tölvustýrða hitamæla til að
mæla hitann við storknunina og
að hanna frekari búnað til gæða-
eftirlits. Erum því við gagnasöfn-
un í verksmiðjunni.
Fyrri hluti rannsóknanna fer
fram í verksmiðjunni en sá seinni
í tilraunastofu, þar sem búnaður,
sem járnblendiverksmiðjan leggur
til, nýtist. Tengjast þær og
grunnrannsóknum á þessu eðlis-
fræðilega áhugaverða kerfi, þ.e.
járnblendinu.
Það má segja að samningurinn
sé handtak iðnaðarins og Háskól-
ans. Við leggjum til þekkingu og
aðstöðu og verksmiðjan leggur til
búnað, sem getur komið að varan-
legu gagni. Eg held að mikil þekk-
ing sé hér í skólanum sem ekki er
nógu vel virkjuð. Sökin er ekki
endilega iðnaðarins, Háskólinn
þarf líka að hafa frumkvæði og
leggja fram vel mótaðar hug-
myndir. Ég er sannfærður um að
við eigum eftir að sjá aukningu i
þessu. Samvinna Járnblendifé-
Íagsins og Háskólans er eins og
best verður á kosið. Járnblendifé-
lagið sýnir viljann í verki í því
sem allir eru að tala um, að það
þurfi að auka rannsóknir.
Þeir sem velta framtíð iðnaðar
fyrir sér horfa gjarnan framhjá
Dr. Þoreteinn I. Sigfússon eólisfræóingur, sérfræðingur við Raunvísinda-
stofnun Háskóla íslands. Hann hefur yfirutnsjón með og stjórnar rannsókn-
um, sem stofnunin vinnur fyrir járnblendiverksmiðjuna á Grundartanga.
fiskeldi og fiskirækt. Einn mögu-
leikinn er ýmiss konar efnistækni,
t.d. keramik, sem talin er eiga
mikla framtíð fyrir sér. En áður
þarf rannsóknir i efnisfræði og og
má segja að samningurinn við
járnlendiverksmiðjuna sé grund-
völlur að þeim,“ sagði dr. Þor-
steinn.
Auk dr. Þorsteins vinna að
rannsóknunum ungur nýmenntað-
ur eðlisfræðingur, Birgir Jó-
hannesson, og Sveinn Olafsson
verkfræðingur.
Stórhappdrætti Hjálparsveita skáta:
Ágóðanum varið til tækjakaupa
Birgir Jóhannesson eðlisfræðingur.
HJÁLPARSVEITIR skáta efna um
þessar mundir til stórhappdrættis
undir yfirskriftinni Vel búnar hjálp-
arsveitir veita öryggi og hafa happ-
drættismiðar með viðfestum gíró-
seðlum verið sendir landsmönnum.
í frétt frá Landssambandi
hjálparsveita skáta segir að í
meira en 50 ár hafi hjálparsveit-
imar unnið sjálfboðastarf.
Hundruð félaga í hjálparsveitum
víðsvegar um landið eru ávallt
viðbúnir til leitar- og björgunar-
starfa hvenær sem er sólarhrings-
ins, allan ársins hring og hafa
þúsundir landsmanna notið þjón-
ustu og aðstoðar þeirra.
Þótt félagar sveitanna vinni
störf sín í sjálfboðavinnu kostar
reksturinn stórfé árlega og er þess
að mestu aflað af félögunum sjálf-
um, en aðeins lítill hluti er fram-
lag opinberra aðila. Þess vegna
hefur Landssamband hjálpar-
sveita skáta efnt til þessa happ-
drættis.
I boði eru 95 vinningar að verð-
mæti samtals kr. 6.700.000. Um er
að ræða 15 Fiat Uno 45 S bifreiðir,
hver að verðmæti 280.000 kr., 40
Sharp VC 481 myndbandstæki,
hvert að verðmæti 44.900 kr og 40
Sharp R-6200 örbylgjuofnar, hver
að verðmæti 17.600 kr.
Dregið verður þann 9. maí nk.
og verður hagnaði af happdrætt-
inu varið til að búa hjálparsveit-
irnar betri tækjum og útbúnaði.
Frekarl
upplyslngar um
FLUG & HJÓL f
SKOTLANDI velta
söluskrltstofur
Fluglelða,
umboðsmenn
og ferðaskrlfstotur
ODYR OG BRADSKEMMTILEGU
m mm rn■■■ Það er vart hægt að hugsa sér skemmtilegra eða
SL m M ódýrara sumarleyfi fyrir ungt og hresst fólk en
■ ■lllrjfllvlHI M að fljúga með Flugleiðum til Glasgow
og hjóla um Skotland.
„ Við lögðum upp frá Inverness snemma morguns, héldum inn fjörðinn, norður
eftir og svo inn í land, upp milda dali og mjúkar hæðir, bleikar fyrir lyngi.
Það var fljótlegt að komast að þeirri niðurstöðu, að það væri lygi-
lega djöfull gaman að hjóla."
Arni Bergmann ritstjóri.
Hressandi
ferðum
skoskar sveitir