Morgunblaðið - 03.05.1985, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 03.05.1985, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. MAl 1985 41 Þeir bítast um efsta sætið — Tékkinn Jansa og Daninn Hansen, til hægri. Alþjóðlega skákmótið í Borgarnesi: MorgunblaAið/ Louise Lombardy Alþjóðlegur titill í sjón- máli hjá Karli Þorsteins Skák Bragi Kristjánsson Línur eru teknar að skýrast á alþjóðaskákmóti tímaritsins Skákar, sem nú stendur yfir i Hótel Borgarnesi. Curt Hansen og Vlastimil Jansa eru jafnir í efsta sæti með 6 vinninga eftir 8 umferðir, en næstir koma Guð- mundur Sigurjónsson, Karl Þorsteins og Karel Mokry með 5 vinninga hver. Aðrir keppendur eiga ekki lengur möguleika á sigri í mótinu. Hansen og Jansa standa mjög vel að vígi og hlýtur annar hvor þeirra að verða sig- urvegari mótsins. Karl þarf aðeins að ná einum vinningi í þrem síðustu skákun- um til að verða alþjóðlegur meistari í skák, og ætti honum að takast það. Margeir missti bæði af möguleika á stórmeist- araáfanga og efsta sætinu, þegar hann tapaði fyrir Karli í 8. um- ferð. Um aðra keppendur er það helst að segja, að Mokry virðist hafa ofreynt sig í tveim fyrstu umferðunum, því síðan þá hefur hann gert sex jafntefli í jafn- mörgum skákum, og flest í ör- fáum leikjum!! Bandarísku stórmeistararnir, Lombardy og Lein, eru daufari en við mátti búast. Sævar hefur enn veika von um að ná alþjóðlegum meist- aratitli, en til þess þarf hann 6 vinninga. Um önnur úrslit vísast til meðfylgjandi töflu. 6. umferð: Hvítt Anatoly Lein (Bandaríkjun- um) Svart: Vlastimil Jansa (Tékkóslóv- akíu) Griinfelds-vörn 1. d4 — Rf6, 2. c4 — g6, 3. Rc3 — d5, 4. Rf3 — Bg7, 5. Bg5 — Re4, 6. cxd5 — Rxg5, 7. Rxg5 — e6, 8. Dd2 — exd5, 9. De3+ — Kf8, 10. Df4 — Bf6, 11. h4 — h6, 12. Rf3 — Be6, 13. e3 — c6, 14. Bd3 — Rbd7, 15. 0-0-0 — Kg7, 16. g4 — Db8,17. Hdgl — Be7,18. Dxb8 — Haxb8, 19. Bf5 — Bd6, 20. Kdl — Hde8, 21. Hg2 — He7, 22. Hhgl — h5, 23. Bxe6 — Hxe6, 24. g5 — Rb6, 25. Rd2 — Rc8, 26. Rfl — Re7, 27. Rg3 — Bxg3, 28. Hxg3 — Rf5, 29. Hh3 — c5, 30. dxc5 — Hc8, 31. Kd2 — Hxc5, 32. Kd3 — Hd6, 33. Re2 — Hb6, 34. b3 — Ha5, 35. Rc3 — Hb4, 36. Hghl — d4, 37. Rd5 — Hxd5, 38. e4 — Ha5, 39. exf5 — gxf5, 40. Hal — Hxa2, 41. Hxa2 — Hxb3+, 42. Kxd4 — Hxh3, 43. Hxa7 og Lein gafst upp um leið og hann lék 43. leik sinn, því staðan er gjörtöpuð fyrir hann. . 7. umferd: Hvítt: William Lombardy (Banda- ríkjunum) Svart: Margeir Pétursson Sikileyjar-vörn 1. e4 — c5, 2. Rf3 — d6, 3. c3 — Rf6, 4. Dc2 — Lombardy og Lein hafa teflt þessa uppbyggingu gegn Najd- orf-afbrigðinu í mótinu, en ekki hafa þessar tilraunir þeirra gef- ið góða raun. Hvítur er í nokkr- um vanda með að valda peðið á e4. Hann getur leikið 4. Bd3 og í framhaldinu leikið 0-0, h3, Hel, Bc2 o.s.frv. Hann getur leikið 4. e5 og svo getur hann leikið 4. Bc4 — Rxe4, 5. Da4+ — Rc6, 6. Bxf7+ — Kxf7, 7. Dxe4, en þessar leiðir gefa honum lítið. Hann getur einnig frestað ákvörðun með 4. Be2!? (4. - Rxe4? 5. Da4+). 4. — Dc7, 5. Bb5+ — Rbd7 I skákinni Lombardy Jansa í 2. umferð varð framhaldið 5. — Bd7, 6. Bxd7+ - Rbxd7, 7. 0-0 - e6, 8. d3 - Be7, 9. a4 - 0-0, 10. Bg5 - h6, 11. Bh4 - b6, 12. h3 - a6,13. De2 - Hfe8,14. Bg3 - Db7, 15. Rbd2 - Hac8, 16. Rh2 — b5,17. axb5 — axb5, jafntefli. 6. 0-0 — a6, 7. Be2 — g6, 8. c4 — f skákinni Lein — Sævar Bjarnason í 1. umferð varð framhaldið 8. d3 — Bg7, 9. Rbd2 - 0-0, 10. Hel - b6, 11. b3 - Bb7,12. Bb2 - d5,13. Bfl - e5, 14. exd5 - Rxd5,15. g3 - f5,16. Bg2 - Hae8, 17. a3 - Kh8, 18. He2 - Re7, 19. Hael - Rc6, 20. b4 — Hc8, 21. bxcð — bxc5, 22. Rc4 — Hb8, 23. Rfd2 jafntefli. 8. — Bg7, 9. Rc3 — e6, 10. d4 Lombardy eyddi miklum tíma í byrjunina í þessari skák, og á 10. Ieikinn einan notaði hann heila klukkustund. Staðan, sem nú kemur upp, líkist Bro- ddgaltar-afbrigðinu í Enska leiknum, en hvítur er tveim leikjum á eftir (Bfl-b5-e2 og c2- c3-c4). 10. — cxd4, 11. Rxd4 — 04), 12. Hdl — b6,13. a4 — Bb7,14. a5 — Hac8, 15. Rb3 — b5!? 16. Bf4? Eftir 16. cxb5 — Rxe4,17. bxa6 — Bd5 kemur upp flókin og tvís- ýn staða, en frípeð hvíts á a6 gefur honum a.m.k. jafnt tafl. 16. — bxc4,17. Bxd6 — Hvítur verður að fara í þessi mannakaup, þvi annars tapar hann peði bótalaust. 17. — cxb3, 18. Dxb3 — Dc6, 19. Bf3 - e5, 20. Bxf8 - Bxf8, 21. Rd5 — 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 1. Dan Hansson M ISL 2330 10.06/52 X O O 'II O 'L 0 0 Vi 2. A. Lsin G USA 2465 28.03/31 I X 'U 1 0 'II Vi Jl 3. Guömundur Sig. G ISL 2485 29.09/47 I 'lt X 1 V % 'h '/v 4. Haukur Angantýsson A ISL 2340 02.12/48 % 0 0 X 0 'h O 'k 0 5. V. Jansa G TÉKK 2465 27.11/42 I 1 'li 1 X 'h 'A 'U í 6 K. Mokry G TÉKK 2490 07.02/59 % V U X 1 1 Yc 1c 'II 7. Magnús Sólmundars. M ISL 2270 14.11/39 1 0 X 0 0 0 0 0 B Curt Hansen G DANM 2500 1809/64 1 Vt 0 1 X 1 J % I 9 W. Lombardy G USA 2500 04.12/37 Vb •u 1 0 X O V 10. Margeir Pétursson A ISL 2535 15.02/60 Vr 1 v+ % 1 0 1 X 0 11. Saevar Bjamason M ISL 2355 18.07/54 V4 7 » 7t 0 % 1 'II X 12 Karl Þorsteins M ISL 2400 13.10/64 Vt u 'h 1 1 0 'lí 1 X Lombardy stefndi að þessari stöðu, er hann lék 16. leikinn og taldi stöðuna sér hagstæða. Stöðumatið hefur þó sennilega brugðist honum í þetta skiptið, en næsti leikur Margeirs gefur honum gott spil. 21. — Rc5?! Tímatap. Betra var 21. — Ba8. 22. De3 — Rxd5, 23. exd5 — Dd6, 24. Hacl — He8, 25. b4 — Rd7, 26. Da7! — e4!? Keppendur voru komnir í heiftarlegt tímahrak, þegar hér var komið. Lombardy átti aðeins eftir 3 mínútur til að ná 40 leikja markinu, en Margeir 15 mínútur. 27. Be2 - Hb8, 28. b5 — axb5, 29. Hc6? Betra var einfaldlega 29. Bxb5 — Re5, með flókinni og tvisýnni stöðu. Ef svartur svarar 29. Bxb5 með Rc5 verður 30. Bc6 óþægi- legt fyrir hann (ekki 30. Hxc5 — Dxc5, 31. Dxb8 — Dxb5, 32. d6 — De2 ásamt 33. — e3, og hvítur er í vandræðum). 29. — Db4 Ekki 29. — Bxc6, 30. dxc6 — Dc5, 31. Dxd7 og hvítu frípeðin á a- og c-línunum verða svarti erf ið. 30. a6 — Bc5! Margeir þvingar fram unnið endatafl. 31. Hxc5 - Dxc5, 32. Dxc5 - Rxc5, 33. axb7 — Hxb7, 34. Hcl — Rd7, 35. d6 — b4, 36. Hc7 — Hxc7, 37. dxc7 — Rb6, 38. Bc4 — Kf8, 39. Kfl - f5, 40. Ke2 — Ke7, 41. h4? — Tímatap, en Lombardy lék þennan leik strax, því hann vissi ekki, að 40 leikir voru komnir. Besti leikurinn, 41. Bg8, hefði þó varla bjargað taflinu. 41. - Kd7 Biðleikur Margeirs. 42. Bg8 - Rc8! Þessi leikur tryggir vinning- inn. 43. g4 — Re7, 44. Bxh7 — b3, 45 Kdl — e3!, 46. fxe3 — fxg4 og Lombardy gafst upp, því hann ræður ekki við svörtu frípeðin á b- og g-línunum. Béttur dagsM Margrét Þorvaldsdóttir Ég get staðist allt — nema freist- ingu, var haft eftir O. Wilde. Góður málsverður var þar vart undanskil- inn. Hann hefði án efa látið freistast ' ef á borðum hefði verið Fiskur með « Parmesan-osti 800 gr ýsu- eða þorskflök 1 stk. sítróna 1 bolli vatn lárberjalauf 4 piparkorn hvitlauksduft salt 2—3 msk. Parmesan-ostur 50 gr bræddur smjörvi 1. Fiskflökin eru roðflett, skorin í hæfilega stór stykki og sett á leirfat. Safi úr 'k sítrónu er settur yfir fiskinn og hann látinn standa í 5 mín. 2.1 bolli af vatni er settur í pott ásamt lárberjalaufi (brjótið í fernt til að fá bragðefnin fram), piparkornum, safa úr xk sítrónu og örlitlu salti og er suðan látin koma upp. Fiskstykkin eru sett í vatnið og eru þau soðin í 5 mín. við vægan hita. 3. Ofninn er hitaður í 200 gráð- ur. Fiskstykkin eru síðan færð upp úr soðinu og sett í eldfast fat, ör- litlu hvítlauksdufti er stráð yfir fiskinn og að síðustu Parmesan-*— osti. Fiskurinn er síðan bakaður í ofni við 200 gráður í 10 mín. 4. Bræddur smjörvi er settur yf- ir ostinn og fiskurinn borinn fram með soðnum kartöflum. Þetta er afbragðs fiskréttur. Parmesan-ostur fæst hér í nokkrum verslunum (SS). Ostur þessi, sem er mjög bragðbætandi, kemur upphaflega frá Parma á ít- alíu. Hann telst til ákveðinnar tegundar harðra osta og er rifinn niður og settur í ýmsa rétti eða rifinn niður yfir rétti eins og spaghetti — eða fiskrétt sem þennan. Þeir sem njóta bragðgóðs matar , og ekki hafa smakkað Parmesan-* ost ættu að kaupa minnsta skammt og prófa hann í 1—2 rétti. Ef ekki er hægt að fá Parmesan má nota Maribó og setja yfir fiskinn, hann verður ekki eins bragðmikill en verður ágætur samt. Þar sem fiskrétturinn er ekki svo hitaeiningaríkur, þá „freistar" óstöðugra — einfaldur ábætir eins og Dönsk eplakaka 5stk. epli 1 bolli brauðmylsna V* bolli púðursykur 1 tsk. kanill 50 gr smjörlíki 1. Eplin eru afhýdd, skorin niður í bita og soðin í mauk. 2. Brauðmylsnu, púðursykri og * kanil er blandað vel saman. Smjörlíkið er hitað á pönnu, og er brauðmylsnan sett út í og hún „ristuð“ í smjörlíkinu þar til hún hefur fengið ljósbrúnan lit. 3. Eplamaukið og brauðmylsnan er síðan sett í skál, eitt lag yfir annað, brauðmylsna og eplamauk á víxl og á brauðmylsna að vera í neðsta lagi. Þeyttur rjómi er látinn efst og er ábætirinn borinn fram heitur * eða kaldur. Hann er mjög ferskur á bragðið vel kaldur. Verð á hráefni: Fiskur (800) kr. 96.00 Sítróna kr. 7.00
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.