Morgunblaðið - 03.05.1985, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 1985
Appelsínuguli
gærupelsinn
aflaöi fjölda
hönnunartilboða
(.slen.sk i hönnuðurinn Dóra
Kinarsdóttir notaði m.a. appelsínu-
gular gærur í síðdegisklæðnað þann
er hún sýndi í hátíðarveislu í veit-
ingahúsinu Le Pré Catelan í Boul-
ogne-skógi í París þriðjudaginn 23.
apríl sl. Var mikið lagt í þessa 60 ára
afmælisveislu Intercoiffure og allt
heldra fólk Parísar mætt ásamt 50
völdum blaðamönnum. Greifynjan
af París var heiðursgestur og meðal
viðstaddra voru bandaríski leikarinn
Gene Kelly, Ira Fiirstenberg o.fl..
Um réttina sáu frægir kokkar í
heimsborginni, Roiger Vergé, Paul
Bocuse og Gaston Lenetre. Og hönn-
uðum frá ýmsum löndum var boðið
að sýna eina flík. Dóru Einarsdóttur
frá íslandi var sent boð um að
hanna síðdegisklæðnað og senda
teikningar til dómnefndar á undan.
Vakti klæðnaður hennar, sem sýn-
ingarstúlkan Tanía (Ágústa Daní-
elsdóttir) bar, mikla athygli. En
Tanía stóð með henni í eldrauninni,
eins og Dóra orðar það.
Dóra hafði fyrst verið beðin um
að sýna kvöldklæðnað, en bréf þar
sem breytt var í síðdegisfatnað
kom ekki fyrr en tveimur dögum
fyrir brottför, svo að hún þurfti að
ljúka við hann eftir að komið var
til Parísar. Klæðnaður hennar
samanstóð af kjól úr appelsínu-
gulu fallhlífarsilki, en kraginn á
kjólnum byggður upp sem höfuð-
fat og ofan á gæruhattur í sama
lit. Vann Bára Kemp hárgreiðsl-
una þannig að gærulokkar voru
greiddir í hárið og löng flétta.
Belti var úr mislitu efni og appel-
sínugular gæruskóhlífar. Þannig
að sýningarstúlkan kemur til
veislunnar í hlýjum gærupelsi,
sem hún tekur af sér ásamt hatti
og gæruskóhlífum. En kjóllinn er
þannig hannaður að breyta má
honum á þrjá vegu auk þess sem
bæði má hafa hann síðan og stutt-
an. þ.e. með belti, með sjalkraga
eða nota hann sem húfukjól.
—Ég held að það sé rangt að
vera að hlaupa á eftir silki og
demöntum í stórborginni eins og
Lesefni í stórum skömmtum!
LEGUKOPAR
Legukopar og fóöringar-
efni í hólkum og heilum
stöngum.
Vestur-þýzkt úrvals efni.
Atlas hf
Borgartúni 24 — Sími 26755.
Pósthólf 493, Reykjavík.
fólk frá flestum smáþjóðunum
gerir, segir Dóra. Við erum miklu
betur sett með okkar hráa, grófa,
íslenska „sjarma". Á hvaða sviði
sem er eigum við að koma fram
eins og eðli okkar býður fremur en
að vera að elta aðra. Við eigum
heldur ekki alltaf að vera að bíða
eftir því hvað Island geti gert
fyrir okkur. heldur hvað við getum
gert fyrir ísland. Við vorum öll á
eigin vegum og án þess að fá nokk-
urn styrk úr rollusjóði eða ein-
hverjum fiskisjóðum tókst okkur
að auglýsa tsland meira í París
núna en heilar sendinefndir. Sama
gilti á hárgreiðslusýningunni í Río
de Janeiro fyrir tveimur árum.
Með sýningarfötum sínum náði
Dóra að vekja athygli þrátt fyrir
gífurlega samkeppni. Myndbanda-
framleiðandinn Michel Itoba frá
Bruxelles vill að hún hanni bún-
inga fyrir myndbandasýningu af
einhverju tagi þegar I sumar.
Lionel Magal framleiðandi sjón-
varpsþátta fyrir franska sjón-
varpið mun i vor eða í haust gera
dans- og söngvaþátt, sem hann vill
fá Dóru til að hanna búningana í.
Kvikmyndaframleiðandinn Davis
Dugas hefur beðið hana um að
koma utan í haust til að vinna
búninga á leikara i aðalhlutverk-
um í kvikmynd sem ætlunin er að
fara af stað með. Kvaðst Dóra
ánægð með að þeir skyldu allir
hafa ítrekað þessi tilboð og bíður
nú eftir bréflegri staðfestingu á
samtölunum, en hún er önnum
kafin hér heima í vinnu við aug-
lýsingar o.fl. Fastmælum bundið
er að hún vinni með tískuljós-
myndaranum kunna Gunnari
Larsson að búningum fyrir sýn-
ingu hans sem fer til Þýskalands
og Danmerkur í nóvember eða
desember. Gunnar lét taka myndir
af búningi hennar til birtingar í
tískublaði sínu, ásamt myndum af
klakabúningum og hárgreiðslu ís-
lendinganna á hárgreiðslusýning-
unni. Einnig tóku ljósmyndarar
tískublaðsins Avantgarde Inter-
national myndir til birtingar af
gærubúningi hennar. Þá voru ís-
Iendingarnir meðal fimm þjóða
sem valdir voru úr á hárgreiðslu-
sýningunni og verður íslenski
Þessa mynd tók tískuljósmyndarinn Gunnar Larsen í París af Dóru Einars-
dóttur með íslensku sýningarstúlkunni Tanfu sem sýndi tískufatnað hennar
í París. Utan yfír kjól úr fallhlífarsilki ber hún appelsínugulan pels, gæruhatt
og gæruskóhlífar í sama liL
' . " V
iALajM' pjT'
u
t. ’feðíí'f «
^ asfc
Veitingahúsið Le Pré Catelan í Boulogne-skógi.
þátturinn hluti af sjónvarpsþætti
með söngvaranum fræga Serge
Ginsburg, sem verið er að undir-
búa fyrir veturinn.
Ég er ákaflega ánægð með
árangurinn, sagði Dóra sem kom
heim á sunnudagskvöld og hafði
ekki haft tima vegna fyrrnefndra
viðtala til að fara með hópnum til
Mónakó. — Gaman að þeir sem við
mig töluðu skyldu ítreka tilboð
sín. En nú er bara að sjá hvernig
vinnst úr þessu.
- E-Pá.
Bfldudalur:
Megn aflans grálúða og karfi
Kíldudal. S0. aprfl.
SÖLVI Bjarnason landaði hér um helg-
ina 100 tonnum af grálúðu og karfa og
hafa þær fisktegundir aðallega verið
bér undanfarnar veiðiferðir. Næg
vinna hefur veríð í frystihúsinu.
Rækjuveiði hefur verið þokkaleg.
Þeim átti að ljúka núna um mánaða-
mótin en hefur verið framlengt til
15. maí. Þrjú skip komu hér að
bryggju í gær, þar af tvö frystiskip.
Bæði heita þau Jökulfell, það munu
vera Jökulfellið nýja og hið gamla og
tóku þau um 160 tonn af freðfiski.
Fer hann að stærstum hluta á Am-
eríkumarkað. Þriðja skipið var svo
Kyndill í sínum venjulegum ferðum.
Kirkjukór Patreksfjarðar kom í
heimsókn hingað í síðustu viku með
fjölbreytta skemmtidagskrá. Kórinn
fékk góðar undirtektir og var gerður
góður rómur að. Hafi þau þökk fyrir
komuna.
Árshátíð barnaskólans var haldin
hér sl. laugardag fyrir troðfullu
húsi. Þar var að venju fjölbreytt
dagskrá, leikþættir, hljóðfæraleikur
á vegum Tónskólans, söngur o.fl.
Kvikmyndin Skammdegi, sem tek-
in var að mestu leyti hér í Arnar-
firði, var sýnd hér þrisvar um helg-
ina við mjög góða aðsókn, og eðlilega
góðar undirtektir.
Hér eru allir vegir orðnir færir og
geta menn skotist til Reykjavíkur
þegar þeim hentar. Veðráttan leikur
við menn og er lundin létt í sam-
ræmi við það.
Hannes.
Rangæinga-
félagið 50 ára
RANGÆINGAFÉLAGIÐ var stofn-
að 12. desember 1935 og er því rétt
að verða 50 ára. Af því tilefni efnir
félagið til afmælishátíðar hinn 4.
maí að Heimalandi í Vestur-Eyja-
fjöllum. Þá fagnar og Kór Rang-
æingafélagsins 10. starfsári sínu, svo
og kvennadeild félagsins, segir í
frétt frá félaginu.
Til skemmtunar að Heimalandi
verður m.a., að Kór Rangæingafé-
lagsins syngur undir stjórn Onnu
Ingólfsdóttur við undirleik Bjarg-
eyjar Þrúðar Ingólfsdóttur. Ávörp
flytja Katrín Sigurjónsdóttir,
formaður Kórs Rangæingafélags-
ins, og Sigríður Ingimundardóttir,
formaður kvennadeildar félagsins.
Ingibjörg Marteinsdóttir syngur
einsöng við undirleik Bjargeyjar
Þrúðar Ingólfsdóttur og ræður
flytja Dóra Ingvarsdóttir, formað-
ur félagsins, Ámi Böðvarsson,
fyrrverandi formaður þess, og
Þórður Tómasson, safnvörður að
Skógum. Að lokum verður stiginn
dans við undirleik hljómsveitar-
innar Hróka til klukkan 3 um
nóttina. Austurleið annast ferðir
frá Umferðarmiðstöðinni klukkan
18.30 og til baka að lokinni
skemmtuninni.
Blómasala
Fjallkvennanna
KVENFÉLAGIÐ Fjallkonurnar
verður með blómasölu um næstu
helgi til ágóða fyrír kirkjubygging-
una í Fella- og Hólasókn. Sala
blómanna fer fram við verzlanir í
hverfinu, en einnig verður gengið í
hús og blóm boðin til sölu.
Síðasti fundur Kvenfélagsins
Fjallkonurnar á þessum vetri
verður haldinn mánudaginn 6.
maí klukkan 20.30 í kirkjunni. Á
dagskrá þar verður tízkusýning
og rætt verður um fíkniefnamál.
Þá er fyrirhugað að félagsmenn
fari í ferð til Vestmannaeyja
helgina 10. til 12. maí. Upplýs-
ingar um ferðina veitir Brynhild-
ur í síma 73240.
Kirkjur á
landsbyggðinni
Messur
á sunnudag
BLÖNDUÓSKIRKJA: Ferming-
arguðsþjónustur sunnudaginn
5. maí kl. 10.30 og kl. 13.30. Sr.
Árni Sigurðsson.
HALLGRÍMSKIRKJA í Saurbæ
á Hvalfjarðarströnd: Ferming-
arguðsþjónusta kl. 11 á sunnu-
daginn. Sr. Jón Einarsson.
VÍKURPRESTAKALL: Vorferð
kirkjuskólans verður farin á
morgun, laugardag. Brottför
verður frá Víkurskóla kl. 9.30.
Kirkjuskólanum verður síðan
slitið við fjölskylduguðsþjón-
ustu á sunnudaginn kemur kl.
14. Sóknarprestur.