Morgunblaðið - 03.05.1985, Blaðsíða 7
I
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. MAÍ1985
......................—r
Borgarnesdagar ’85 í Laugardalshöll:
Kynning á framleiðslu,
þjónustu og menningu
byggðarlagsins
eftir Trausta sýnt í Austurbæjarbíói í kvöld
Morgunblaðið/ Júllus
Steingrímur Hermannsson og Albert Guðmundsson hófu fyrsta íslands-
meistaramótið í tölvuknattspyrnu. Steingrímur sigraði Albert 1—0 eftir að
Albert hafði sótt látlaust allan leikinn.
Leikritið „Ingiríöur“
BORGARNESDAGAR ’85 hófust í
gær. Forseti íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, var viðstödd
opnunina, isamt ráðherrum, al-
þingismönnum kjördæmisins og
fjölda annarra gesta. Lúðrasveit
Grunnskóla Borgarness lék og for-
maður sýningarstjórnar, Gísli V.
Halldórsson, setti sýninguna og
bauð gesti velkomna.
Sýningin var síðan opnuð al-
menningi og verður hún opin frá
kl. 13 til 22 í dag, föstudag, og á
laugardag og sunnudag. 21 aðili
tekur þátt í sýningunni, fyrir-
tæki, félög og stofnanir, og bera
þau fjölbreyttu atvinnu- og
menningarlífi byggðarlagsins
vitni. Fyrirferðamest eru fyrir-
tæki í matvælaiðnaði og bygg-
ingariðnaði, en þar er einnig að
sjá fiskbúð, skiltagerð, sauma-
og prjónastofu, sparisjóðinn og
fyrirtæki í ferðaiðnaði. Á Borg-
arnesdögum eru til sýnis hin
kunnu steinsteypueiningahús
frá Loftorku sf. og einnig ný teg-
und einingahúsa sem Magnús
Thorvaldsson, hefur hannað. Þá
má ekki gleyma menningunni en
Safnahús Borgarfjarðar sýnir
fjölda listaverka eftir marga
kunnustu listamenn þjóðarinnar
auk gamalla muna úr héraðinu.
í dag og um helgina verður
einnig margt til skemmtunar,
tískusýningar, leikþættir og
sðngvar, happdrætti og valinn
lukkugestur svo eitthvað sé talið.
Háð verður fyrsta íslandsmótið í
tölvuknattspyrnu og hófu ráð-
herrarnir Albert Guðmundsson
Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, skoðar líkan að nýju safnahúsi
sem fyrirhugað er aö byggja í Borgarnesi, sem er til sýnis á Borgarnesdögum
’85. í fylgd með henni eru Gísli Halldórsson, formaður sýningarstjórnar og
Henry Þ. Gránz, framkvæmdastjóri sýningarinnar.
og Steingrímur Hermannsson,
það í gær. Steingrími tókst að
merja sigur með heppnismarki
eftir að Albert hafði sótt lát-
laust allan tímann.
I tilefni Borgamesdaga ’85
sýnir Leikdeild Ungmennafé-
lagsins Skallagríms leikritið
„Ingiríður Óskarsdóttir eða
Geiri djók snýr heim eftir all-
langa fjarveru", í Austurbæjar-
bíói í kvöld. Ingiríður er gaman-
leikur í „afturúrstefnustíl", eftir
Trausta Jónsson, veðurfræðing.
Leikstjóri er Guðjón Ingvi Sig-
urösson, tónlist og söngtextar
eru eftir Bjarna Valtý Guð-
mundsson. Björn Leifsson út-
setti og stjórnar hljómsveit.
Hlutverk í leiknum eru 9, en alls
taka um 30 manns þátt í sýning-
unni. Leikurinn hefur verið
sýndur alls 20 sinnum í Borgar-
nesi og víðar á Vesturlandi að
undanförnu, ávallt við húsfylli.
Leikurinn verður sýndur í Aust-
urbæjarbíói í kvöld klukkan
20.30 og 23.30.
Skemmtun í
Langholtskirkju
KÓR Langholtakirkju gengst fyrir skemmtun í Langholtskirkju á morgun,
laugardag, sem stendur frá kl. 10 til 18.
Lúðrasveitin Svanur, undir
stjórn Kjartans óskarssonar, tek-
ur á móti gestum með lúðra-
blæstri. Þá mun Kór Langholts-
kirkju, undir stjórn Jóns Stefáns-
sonar, syngja með aðstoð áheyr-
enda, lög sem valin verða og kynnt
af þekktum mönnum og konum.
Þeirra á meðal eru biskup íslands,
herra Pétur Sigurgeirsson, Ólafur
Skúlason vígslubiskup, Steingrím-
ur Hermannsson forsætisráð-
herra, Albert Guðmundsson fjár-
málaráðherra, alþingismennirnir
Jón Baldvin Hannibalsson og Sig-
ríður Dúna Kristmundsdóttir.
Barnastund verður frá kl. 13.30
til 14.30 og mun Skólakór Kárs-
ness m.a. syngja. Klukkan 16
verða tónleikar í léttum dúr, þar
sem m.a. koma fram feðgarnir Jón
Sigurðsson og Sigurður Rúnar
Jónsson. Á milli atriða verða
kaffiveitingar á boðstólum.
Úr fréttatilkynningu
Kór Langholtskirkju
Kirkjuskóli
Dómkirkjunnar
í ferðalag
Á MORGUN, laugardaginn 4. maí, efn-
ir Kirkjuskóli Dómkirkjunnar til ferða
lags fyrir þau börn, sem hafa sótt skól
ann í vetur. Farið verður frá Dómkirkj-
unni ki. 13.00 og verður ferðinni beitið
til Suðurnesja. Komið erður til baks
að Dómkirkjunni um kl. 16.30. Nauð
synlegt er, að börnin hafi með sév
nesti.
Þeir sem ætla í þetta ferðalag, eru
beðnir að skrá sig í síma 14070.
Nú fer barnastarfi Dómkirkjunn-
ar senn að ljúka að þessu sinni og
mun Kirkjuskólanum ljúka meö
messu sunnudaginn 12. maí kl. 14.00.
(Fri Dómkirkjnnni.)